Morgunblaðið - 05.03.1995, Qupperneq 40
40 SUNNUDAGUR 5. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
IT 5AY5 ME WOKE UP AT
TWO O'CLOCK IN TME M0KNIN6,
ANP HE UJA5 TERKIPIEP
"WHERE AMI ?"HE A5KEP HIM5ELF..
"(a)HAT AMI RUNNIN6 AWAV FROM? "
Sérðu? Það sama gerðist með
Leo Tolstoj og gerðist með þig.
Hér stendur að hann hafi vaknað
klukkan tvö um nóttina og hafi
verið skelfdur. „Hvar er ég,“
spurði hann sjálfan sig. „Frá
hverju er ég að flýja?“
Mér hefur alltaf fundist að
Tolstoj og ég ætlum eitthvað
sameiginlegt.
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavik • Simi 569 1100 • Simbréf 569 1329
Kennararnir
og ríkið
Frá Guðmundi Óskarssyni:
EINS OG flestir vita þá stendur
nú yfír verkfall. kennara og ráfa
þá margir nemendur um sem verk-
fallsflækingar. Aðrir fínna sér
vinnu eða halda áfram námi þar
sem frá var horfíð. Sumir nemenda
kunna vel við sig og nefna verk-
fallið frí en aðrir fylgjast vel með
fréttum og vona að einhver glæta
sé í að samningar náist, en hver
er vonin þegar kennarar haga sér
eins og þeir gera.
Oft fær maður að heyra í frétt-
um hve illa ríkið fer með kennara
og að ríkið vilji ekki semja, en
raunin er sú að kennarar eru þeir
sem ekkert víkja. Kennarar ættu
að gera sér grein fyrir því að þeg-
ar verið er að semja, þá er nauð-
synlegt að báðir aðilar víki á ein-
hvem hátt. Það er nokkuð ljóst
að kennaramir fá ekki allt upp í
hendumar fyrir ekki neitt.
Verst er að öll þessi vitleysa
bitnar ekki á kennumm, heldur
nemendum. Nemendurnir sem
hafa borgað margar þúsundir
króna í skólagjöld fyrir rétta að-
stöðu og aðstoð við kennslu, eru
illa sviknir með því að borga pen-
ingana til þess eins að geta séð
um sig sjálfír og stundað sjálfs-
nám. Einnig er eitt sem hneyksl-
aði mig mjög. Þegar kennararnir
sem á svo áberandi hátt tala um
í kennslustundum að nemendur
eigi að hugsa vel um hvað sé sið-
ferðislega rétt og siðferðislega
rangt, mæta fyrir utan Hótel Sögu
á mánudaginn 27. febrúar og
mótmæla með söng þegar þing-
fulltrúar Norðurlandaráðs mæta í
heimsókn til landsins. Þetta kalla
ég einfaldlega dónaskap og svona
gerir fólk ekki. Það er siðferðislega
rangt!
Vonandi gera kennarar sér
grein fyrir því hvað þeir em að
gera með þessu verkfalli, og reyna
að hjálpa til við að semja með ríkis-
stjórninni. Þetta getur haft mjög
víðtæk áhrif ef þeir semja ekki
fljótt. Eins og fram hefur komið
í fréttum, þá eru mörg fötluð bötn
sem þarfnast þjálfunar en fá ekki
vegna þess að kennararnir vilja
fá meiri pening, styttri vinnutíma
og alls kyns breytingar til að lifa
í munaði. Þjóðin hefur einfaldlega
ekki efni á að hafa þá í verkfalli.
GUÐMUNDUR ÓSKARSSON,
Kvennaskólanemi.
Upplýsingar um
Intemettengingu
við Morgunblaðið
VEGNA fjölda fyrirspurna
varðandi Internet-tengingu við
Morgunblaðið, skal eftirfar-
andi áréttað:
Tenging við heimasíðu
Morgunblaðsins
Til þess að tengjast heimasíðu
Morgunblaðsins, sláið inn slóðina
http://www.centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar upp-
lýsingar um blaðið, s.s netföng
starfsmanna, upplýsingar um
hvernig skila á greinum til blaðs-
ins og helstu símanúmer.
Morgunblaðið á Internetinu
fyægt er að nálgast Morgun-
blaðið á Internetinu á tvo vegu.
Annars vegar með því að tengjast
heimasíðu Strengs hf. beint með
því að slá inn slóðina
http://www.strengur.is eða
tengjast heimasíðu blaðsins og
velja Morgunblaðið þaðan.
Strengur hf. annast áskriftar-
sölu Morgunblaðsins á Internet-
inu og kostar hún 1.000 krónur.
Sending efnis
Þeir sem óska eftir að senda
efni til blaðsins um Internetið
noti netfangið: mbl@centrum.is.
Mikilvægt er að lesa vandlega
upplýsingar um frágang sem má
fínna á heimasíðu blaðsins. Það
tryggir öruggar sendingar og
einnig að efnið rati rétta leið í
blaðið. Senda má greinar, fréttir,
auglýsingar og myndir eins og
fram kemur á heimasíðu blaðsins.
Mismunandi tengingar
við Internet
Þeir sem hafa Netscape/Mos-
aic-tengingu eiga hægt um vik
að tengjast blaðinu. Einungis þarf
að slá inn þá slóð sem gefín er
upp hér að framan.
Þeir sem ekki hafa Netscape/
Mosaic-tengingu geta nálgast
þessar upplýsingar með Gopher-
forritinu. Slóðin er einfaldlega
slegin inn eftir að forritið hefur
verið ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota a.m.k.
14.400 baud-mótald fyrir
Netscape/Mosaic tengingar.
Hægt er að nota afkastaminni
mótöld með Gopher-forritinu.
Allt efni sem birtist'í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt i
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.