Morgunblaðið - 05.03.1995, Qupperneq 50
50 SUNNUDAGUR 5. MARZ1995
MORGUNBLAÐIÐ
RIDDARI hringborðsins: með John Gielgud við
tökur á „First Knight".
CONNERY stundar golf hvar
sem hann kemur því við.
KYNTÁKN þá og enn frekar núna;
Connery í „Dr. No“.
Skoski leikarinn Sean Connery verður 65
ára á árinu og segist of gamall til að leika
Tarzan og Bond kemur ekki heldur til greina
en eins og hann veit manna best skyldi leik-
ari aldrei segja aldrei
eftir Arnald Indriðason
IAN FLEMING vildi ekki sjá
hann í hlutverki njósnara henn-
ar hátignar og sagði hann „of-
vaxinn áhættuleikara" en þeg-
ar hann sagði þau fleygu orð
Ég heiti Bond, James Bond,
var framtíð Sean Connerys
ráðin. Þetta var í upphafi sjö-
unda áratugarins og síðan þá hefur
Connery átt mörg líf á hvíta tjaldinu.
Stundum verður hljótt um hann en
svo skýtur honum aftur upp á yfír-
borðið með látum eins og núna þegar
hann er með þijár myndir í takinu.
Connery er einn af þessum leikurum
sem verður æ betri og skemmtilegri
með tímanum. Hann heldur uppá 65
ára afmæli sitt á árinu og segist
varla leika Tarzan úr þessu. 0g aldr-
ei aftur James Bond.
Connery er skoskur og einn af
eftirsóttustu leikurum samtímans og
myndimar sem hann er að leika í
núna eru af ýmsum toga. í saka-
málamyndinni „Just Cause“ Ieikur
hann lagaprófessor í Harvard sem
reynir að bjarga dauðadæmdum
fanga frá _því að enda í rafmagns-
stólnum. í riddaramyndinni „First
Kr.ight" leikur hann Artúr konung
á móti Richard Gere, sem leikur
Lancelot. Og á döfínni er „Dragon-
heart“ eða Drekahjarta þar sem
Connery leikur röddina í eldspúandi
dreka gerðum með sömu tölvutækni
og risaeðlurnar í Júragarðinum.
Aldrei vinsælli
Connery hefur jafnvel oftar í
seinni tíð en áður þegar hann var
ungur Bond-leikari verið sagður
kynþokkafyllsti karlleikari kvik-
myndanna, sem hlýtur að teljast
ótvírætt merki um hversu vel hann
hefur elst. Breytingin úr ungum
hasarleikara sjöunda áratugarins
yfír í höfðinglegan, eldri stórleikara
dagsins hefur verið svo átakalítil að
hans sögn að hún hefur næstum
farið framhjá honum. „Ég held að
það hafí hjálpað mikið að hárið hvarf
mjög snemma af kollinum," segir
hann. „Ég hef aldrei upplifað nein
vandamál „breytingarskeiðs" á ferli
mínum. Ég hef alltaf leikið mér eldri
persónur. Ég lék föður Harrison
Fords ‘ (Indiana Jones og síðasta
krossferðin) og föður Dustin Hoff-
mans („Family Business"). Og í ár
verð ég 65 ára. Ég á varla eftir að
fara í megrun og leika Tarzan. Og
þótt ég fengi heimsins besta sköpu-
lag á ég aldrei eftir að leika James
Bond aftur.“
Það eru næg hlutverk samt og
líklega hefur Connery aldrei verið
vinsælli og haft meira að gera en
síðasta áratuginn. Hann hefur
reyndar leikið í Tarzanmynd. „Tarz-
an’s Greatest Adventure" eða Mesta
ævintýri Tarzans hét hún og var
gerð árið 1959 en Connery lék í níu
myndum áður en framleiðendumir
Harry Saltzman og Albert Broccoli
völdu hann í Bond-hlutverkið árið
1962. Það má segja honum til hróss
að hann er eini Bond-leikarinn sem
orðið hefur að stórstjörnu. Hlutverk
njósnara hennar hátignar reyndist
aðeins upphafíð á litríkum og glæsi-
legum ferli. Hann lék í fjórum mynd-
um Sidney Lumets á Bond-árunum
SEAN Connery; eini Bond-leikarinn sem eitthvað hefur orðið úr,
og eftir að hann sagði skilið við hlut-
verkið hefur hann leikið í hinum ólík-
ustu myndum allt frá stríðsmyndum
(„The Longest Day“, „A Bridge Too
Far“) til geimævintýra („Outland")
og gangstermynda (Hinir vamm-
lausu). Uppúr 1980 var ferillinn tek-
inn að dala talsvért og hann lét sig
hafa það árið 1983 að leika Bond í
eitt skiptið enn í „Never Say Never
Again". Tvær myndir lögðu grunn-
inn að endumýjun hans á hvíta tjald-
inu um miðjan síðasta áratug; Nafn
rósarinnar og Hinir vammlausu. Síð-
an þá hefur hann varla mátt vera
að því að stunda sitt golf.
Fregnir um lát Connerys ýktar
Hann hefur verið nógu lengi að
til að treysta ekki mönnum í kvik-
myndaiðnaðinum og í nýlegu tíma-
riti kemur fram að hann láti sína
eigin bókhaldara fara yfír gróðann
af flestum myndum sem hann leikur
í. „Ég þoli ekki óheiðarleika," er
haft eftir honum. „Það er glæpsam-
legt þegar menn reyna að stela í
gegnum bókhaldið þegar þú hefur
gert við þá samning.“ Blaðamenn
eru heldur ekki í miklu uppáhaldi.
Connery sagði í viðtali í „Playboy“
árið 1965 að hann sæi „ekkert sér-
staklega rangt við það að slá konu“
en ummælum þessum, sem leikarinn
segir að séu ekki rétt eftir honum
höfð, hefur æ síðan verið haldið á
lofti. Og nú síðast sagði pressan að
hann væri dauður. Það byijaði fyrir
ári í Japan, dagblað í S-Áfríku birti
fréttina og hún barst á öldum ljós-
vakans um hálfa Evrópu frá Frakk-
landi. Connery hafði farið í einfalda
geislameðferð vegna raddbandanna
þegar hann lék í Rísandi sól og gróu-
sögurnar fóru á flug. Leikarinn greip
til örþrifaráða til að stöðva orðróm-
inn, hringdi í bandaríska gaman-
þáttastjórnandann David Letterman
og kom með litlum fyrirvara fram í
þættinum hans í atriði sem minnti á
007 þar sem hann sagði að fregnir
af andláti sínu væru talsvert ýktar.
Og svo er það Bond. „Ég var að
fara upp á loft,“ sagði hann í blaða-
viðtali nýlega þegar hann rakti atvik
sem átti sér stað á heimili hans á
Spáni fyrir nokkrum árum, „þegar
ég heyrði mína eigin rödd koma úr
einu herbergjanna. Þar sátu þá
bamabömin og vom að horfa á Gullf-
ingur. Ég settist niður hjá þeim og
það var forvitnilegt. Það var ákveðinn
glæsibragur og öiyggi yfír myndinni
sem var mjög ánægjulegt. Mig lang-
aði ekkert til að flýta mér yfir í
næstu atriði og svo sá ég auðvitað
hluti sem betur hefðu mátt fara.“
Connery hugsar til Bonds með
talsverðum velvilja. Hann gerði
óþekktan leikarann að milljónamær-
ingi, kyntákni og súperstjörnu. En
Bond var líka þreytandi. „Þetta var
spurning um að klára dæmið og
halda áfram í einhverju öðru. Þeir
byijuðu líka á öllu þessu geimaldard-
óti. Þeir juku sífellt við tæknihliðina.
Ég á við, þessi bíll sem fór í gegnum
sundið á hliðinni í Demantar endast
að eilífu - þetta fór bara úr böndun-
um.“
Félagi Connerys, Roger Moore,
sem einnig lék Bond í ófá skipti seg-
ir að vini sínum hafí einfaldlega tek-
ið að leiðast Bond-rullan. „Maður
leikur í fimm eða sex svona myndum
og fólk eignar manni hlutverkið. Það
getur reynst ákaflega takmarkað."
Verða að endurskapa Bond
Nú eru liðin 12 ár frá því Conn-
ery síðast lék njósnara hennar há-
tignar í „Never Say Never Again“
og hann er enn að fá send handrit
um njósnara. Tökur eru hafnar í
London á enn einni Bond-myndinni
með írska leikaranum Pierce Brosn-
an í aðalhlutverki og Connery hefur
ákveðnar skoðanir á því hvemig
best sé að henni staðið. „Ég held
þeir verði að búa til algerlega nú-
tímalegt umhverfi fyrir karakterinn.
Hið illa heimsveldi er liðið undir lok.
Kínveijar eru famir að gera við-
skiptasamninga um allar jarðir. Allur
heimurinn er að reyna að finna jafn-
vægi. Menn verða áð endurskapa
Bond frá grunni."
Hann gefur Timothy Dalton ekki
háa einkunn fyrir leik hans í hlut-
verkinu. „Hann er þjálfaður Shake-
speare-leikari en vanmat Bond-rull-
una. Persónan þarf að vera myndar-
leg á velli og heillandi en líka hættu-
leg.“ Honum líst vel á Pierce Brosn-
an og heldur að hann muni bæta
nýjum þáttum í karakterinn.
Hann lætur sér annt um spæjar-
ann þótt stundum hafi reynt á vin-
skapinn í gamla daga. Eins og dem-
antar virðast þeir ætla að endast að
eilífu.
Heimildir: Entertainment We-
ekly o.fl.