Morgunblaðið - 09.03.1995, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 47
FRÉTTIR
'SSt''.
f ~ # V'#? “
it
i i - jr a §
I f L 1“ lií F
P W vffe- ▼ ® ! **- "
3WP<
h r i
?r »- r7 T - f
r í ’ i
KARLAKÓRINN Heimir í Skagafirði.
Karlakórinn Heimir
í Digraneskirkju
KARLAKORINN Heimir i Skaga-
firði heldur tónleika í Digranes-
kirkju í Kópavogi föstudaginn 10.
mars kl. 18.30. Söngsljóri er Stef-
án R. Gíslason. Undirleikarar
Thomas Higgerson og Jón St.
Gíslason.
I kynningu segir: „Söngskráin
er fjölbreytt eftir innlenda og
erlenda höfunda, meðal annars
syngur kórinn ný lög eftir Björg-
vin Þ. Valdimarsson, Jón Björns-
son fyrrverandi söngstjóra Heim-
is og Ómar Þ. Ragnarsson, lög
úr óperum ogsöngleikjum eru
einnig á söngskránni auk Iaga
sem ekki hafa verið flutt af öðr-
um kórum.
Einsöngvarar með kórnum eru
Einar Halldórsson, Hjalti Jó-
hannsson, Pétur Pétursson, Sigfús
Pétursson og Óskar Pétursson.
Tvísöng og þrísöng með kórn-
um syngja Gísli Pétursson, Sigfús
Pétursson og Björn Sveinsson.
Söngfélagar í Heimi eru 62.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
Fundur um launamun
Skagfirsk sveifla á Hótel íslandi
SKAGFIRSKT söng- og skemmti-
kvöld verður haldið á Hótel íslandi
föstudagskvöldið 10. mars undir
heitinu Skagfirsk sveifla. Boðið
verður upp á fjölbreytt skemmtiat-
riði undir borðhaldi og að lokum
verður stiginn dans við undirleik
hljómsveitar Geirmundar Valtýs-
sonar.
Karlakórinn Heimir, alls 62 söng-
menn, er kominn til höfuðborgarinn-
ar og mun hann koma fram á
skemmtikvöldinu á HóteL íslandi.
Stjómandi kórsins er Stefán R.
Gíslason og undirleikarar eru Thom-
as Higgerson og Jón St. Gíslason.
Einsöngvarar eru Einar Halldórs-
son, Hjalti Jóhannesson, Pétur Pét-
ursson og Sigfús Pétursson.
Af öðrum söngatriðum má nefna
að Björn Sveinsson, Pétur Péturs-
son og Sigfús Pétursson syngja
þrísöng og Álftagerðisbræður,
Gísli, Óskar, Pétur og Sigfús Pét-
urssynir, taka lagið. Ómar Ragn-
arsson flytur gamanmál ásamt
Hauki Heiðari og Eiríkur Jónsson
stjórnar hagyrðingaþætti að skagf-
irskum hætti. Veislustjóri verður
sr. Hjálmar Jónsson prófastur
Skagfirðinga.
Boðið er upp á þriggja rétta
matseðil.
RANNVEIG Guðmundsdóttir, fé-
lagsmálaráðherra, skipaði í gær, á
alþjóðlegum baráttudegi kvenna
fyrir mannréttindum og friði,
starfshóp sem hefur það hlutverk
að safna upplýsingum um og vinna
að tillögum um starfsmat sem tæki
til að draga úr launamun karla og
kvenna.
Gert er ráð fyrir að starfshópur-
inn safni upplýsingum erlendis frá
um starfsmat sem unnið hefur ver-
ið í þessum tilgangi og að skýrsla
um það efni liggi fyrir í október
1995. Jafnframt skal starfshópur-
inn taka til skoðunar mótun leið-
beinandi reglna um beitingu starfs-
mats, samanber 4. gr. laga nr. 28
1991 um jafna stöðu og jafnan
rétt karla og kvenna.
Ennfremur skal starfshópurinn
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá útskriftarnemum
Fjölbrautaskóla Vesturlands:
„Við útskriftarnemar Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akra-
nesi skorum hér með á alla aðila
kennaraverkfallsins, ríkisstjórn og
kennara, að finna lausn á þessu
ófremdarástandi nú þegar.
Við sættum okkur ekki við að
sitja í verkfalli öllu lengur. Verði
ekki samið fljótlega má búast við
að þessi önn sem nú er rúmlega
hálfnuð sé ónýt.
Okkur fínnst mjög ósanngjarnt
HALDINN verður opinn fundur í
Háskólanum föstudaginn 10. mars
um nýútkomna skýrslu Jafnréttis-
ráðs um íaunamyndum og kyn-
bundin launamun sem unnin var
af Félagsvísindastofnun HÍ fyrir
hönd Jafnréttisráðs.
Fundurinn hefst kl. 12.05 og
verður haldinn í hátíðarsal Háskóla
íslands. Þeir sem að fundinum
standa eru Rannsóknastofa í
kvennafræðum og Stúdentaráð
Háskóla íslands.
I pallborðsumræðum taka þátt:
Guðbjörg Anna Jónsdóttir, umsjón-
taka saman upplýsingar um til
hvaða aðgerða hefur verið gripið í
þessu skyni á vegum hins opinbera
og hjá aðilum vinnumarkaðarins,
t.d. á Norðulöndunum.
í starfshópinn hafa verið skipuð:
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri
hjá Alþýðusambandi íslands, Vig-
dís Jónsdóttir, hagfræðingur frá
Bandalagi háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna, Rannveig Sigurðar-
dóttir, hagfræðingur frá Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja, Gunnar
Björnsson, deildarstjóri frá fjár-
málaráðuneytinu, og Elsa Þorkels-
dóttir, framkvæmdastjóri frá Jafn-
réttisráði, og er hún jafnframt for-
maður starfshópsins. Ritári starfs-
hópsins verður Drífa Hrönn Krist-
jánsdóttir, starfsmaður á Skrif-
stofu jafnréttismála.
að við nemendur séum notuð sem
vopn í baráttu sem þessari og telj-
um rétt okkar til náms fótum troð-
inn.
Við skorum einnig á nemendur
annarra skóla að standa upp og
láta í sér heyra því framkoma
samningsaðila, jafnt kennara sem
fulltrúa ríkisins, er algjörlega
óviðunandi.“
Undir bréfið rita fyrir hönd út-
skriftarnema FVA Jón Trausti Ól-
afsson, Gunnar Hlíðdal Gunnars-
son, Hörður Birgisson og Sigriður
Harðardóttir.
armaður og höfundur launaskýrsl-
unnar, Guðný Guðbjörnsdóttir, dós-
ent í uppeldis- og menntunarfræð-
um f.h. Rannsóknastofu í kvenna-
fræðum, Edda Benediktsdóttir, sér-
fræðingur á Raunvísindastofnun,
formaður jafnréttisnefndar félags
háskólakennara, Sigrún Erla Egils-
dóttir, sálarfræði, fulltrúi stúdenta,
og Hildur Petersen, framkvæmda-
stjóri Hans Petersen.
Tilboð
Öll tæki í
baðherbergið
Aðeins kr. 26.975
Innifalið í tilboði
1. Baðkar 170x70 cm
2. Blöndunartæki fyrir bað
með sturtubúnaði
3. Handlaug
4. Blöndunartæki með lyfti-
tappa og botnventli fyrir
handlaug
5. WC með harðri WC-setu
Vönduð vara
Bað - handlaug og WC
frá sama framleiðanda
og með sama lit.
(D SE
Faxafeni 9, s. 887332
Opið: mánud.-föstud. ki. 9-18
laugard. 10-14
Fræðslufund-
ur um Beta
Interferon
MS FÉLAG íslands heldur
fræðslufund um Beta Interferon í
Víkingasal Hótel Loftleiða fimmtu-
daginn 9. mars kl. 20. Framsögu
hefur John Benedikz og á fundin-
um verða einnig sérfræðingar í
taugasjúkdómum sem flytja stutt
erindi og svara fyrirspumum.
Fundurinn er öllum opinn.
í fréttatilkynningu segir:,, MS
er langvinnur bólgusjúkdómur í
miðtaugakerfi, orsök hans er
óþekkt, fátítt er að sjúkdómurinn
byiji innan fimmtán ára aldurs
eða eftir fimmtugt.
Einkenni sjúkdómsins eru afar
mismunandi svo sem sjóntruflan-
ir, þreyta, jafnvægisleysi og
stundum lömun. Gangur MS-sjúk-
dómsins er mjög breytilegur og
erfitt að segja fyrir um þróun
hans. Því er það svo að þegar lyf
er í sjónmáli sem talið erað hægt
geti á framvindu sjúkdómsins að
miklar vonir eru við það bundnar."
Vaxtarbrodd-
ur í Fellahelli
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Vaxtar-
broddur verður haldin laugardag-
inn 11. mars í Fellahelli og hefst
kl. 14.
Þetta er í fimmta sinn sem
hátíðin er haldin og venjan er að
hljómsveitirnar sem leika séu á
þriðja tuginn, tónleikarnir standi
í átta tíma og leikið sé á tveimur
stöðum. Á Vaxtarbroddi gefst
tækifæri til að sjá og heyra í ung-
um og efnilegum tónlistarmönn-
um sem í framtíðinni eiga eftir
að láta að sér kveða.
Tvær gestahljómsveitir koma
fram á tónleikunum en þær eru
sigursveitir Músíktilrauna Tóna-
bæjar undanfarin tvö ár, Kolrassa
krókríðandi og Maus. Skráning
hljómsveita er í Fellahelli.
Borgardagar
í Borgar-
kringlunni
BORGARDAGAR hófust í Borg-
arkringlunni í gær. Á þeim býður
hver verslun hússins ákveðnar nýj-
ar vörur á sérstöku tilboðsverði og
nemur afslátturinn 20% til 70%.
í tilefni þessara daga er húsið
nú í nýjum búningi og skreytt í
þemalitum dagsins. Þetta er í
þriðja sinn sem Borgardagar eru
haldnir og hafa viðskiptavinir
Borgarkringlunnar jafnan tekið
þessari tilbreytni mjög vel, segir
í fréttatilkynningu.
Borgarkringlan er opin frá kl.
10-18.30 mánudaga til fímmtu-
daga, frá kl. 10-19 föstudaga og
í tilefni Borgardaganna frá kl.
10-18 á laugardaginn.
• •
Okumaður gefi
sig fram
Rannsóknadeild lögreglunnar í
Reykjavík leitar að ökumanni sem
ók á konu á Suðurlandsbraut við
Langholtsveg síðastliðinn mánu-
dag.
Öhappið varð um klukkan fjög-
ur síðdegis þegar konan var á
leið yfir Suðurlandsbraut og varð
fyrir bíl á leið austur þá götu.
Konan taldi í fyrstu að ekkert
amaði að sér en annað kom á
daginn. Er ökumaðurinn, sem ók
á brott eftir að hafa rætt við kon-
una, beðinn að hafa samband við
Iögregluna og einnig vitni ef ein-
hver finnast.
Unnið að starfsmati
til launajöfnuðar
Osanngjarnt að nota nem-
endur í kjarabaráttu
|
Veldu aðeins það besta fyrir þig
„Námskynning 1995u
nk. sunnudag