Morgunblaðið - 09.03.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.03.1995, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 9. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Færðu þig, góði, ég verð á milli. Þetta er nú heilög Jóhanna. Staðan í kennaradeilunni lítið breyst í hálfan mánuð Ríkið segist bjóða 16% gegn aukinni vinnu SAMNINGANEFND ríkisins met- ur tilboð sitt um að hækka laun kennara til 16% á tveggja ára samningstímabili. Hluti af hækk- uninni er í formi minni kennslu- skyldm Kennarar telja að tilboð ríkisins nái hvorki að leiðrétta kjör þeirra til samræmis við kjör ann- arra háskólamenntaðra stétta né að greiða sanngjarnt verð fyrir það aukna vinnuframlag kennara sem felist í tilboði ríkisins. Tilboð ríkisins, sem hefur lítið breyst frá 19. febrúar, gerir ráð fyrir að við upphaf samningtímans hækki grunnlaun kennara um 2.700 krónur á mánuði og að laun undir 84.000 á mánuði hækki um 1/40 af því sem á 84.000 krónurn- ar vantar. Þetta þýðir að laun kennara í KÍ hækka um 3S2% að meðaltali og kennara í HIK um 2,9%. Laun kennara hækki síðan um 3% 1. janúar 1996. Báðir samningsaðilar hafa gert tillögur um skipulagsbreytinga í skólastarfi. Ríkið hefur lýst sig tilbúið til að veija til þessa 740 milljónum, en það felur í sér um 10% hækkun á launaútgjöldum ríkisins til kennara. Þessar breyt- ingar ná til breytinga á röðun í launaflokka, vinnutíma og kennsluskyldu. Aldurshækkanir og breytt launaröðun Indriði H. Þorláksson, varafor- maður samninganefndar ríkisins, segir að breytt launaröðun hækki laun kennara í HÍK um 3,65% og laun kennara í KÍ um 2,65%. Rík- ið hefur boði að kennarar sem kennt hafa í eitt ár hækki um einn launaflokk sem þýðir 3% hækkun og hækkar heildariaun kennara um 2,9%. Ríkið hefur sömuleiðis boðist til að hækka laun kennara sem kennt hafa í tvö ár um annan launaflokk. Það þýðir 3% hækkun og hækkun heildarlauna kennara um 2,8%. Eiríkur Jónsson formaður KÍ sagði að þessar launaflokkahækk- anir eftir eitt og tvö ár ættu að koma til framkvæmda 1. maí og 1. ágúst 1996. Hækkanirnar skil- uðu kennurum því litlu á þessu samningstímabili. Indriði sagði að samninganefnd ríkisins væri til viðræðu um að hnika til þessum dagsetningum. Kennsluskylda lækkuð um 0,6-2,2% Kennarar hafa krafist þess að kennsluskylda verði lækkuð um 15% og fært þau rök fyrir henni að breytingar í skólastarfi krefjist þess að kennarar veiji meiri tíma til undirbúnings kennslu, stuðn- ings við nemendur, viðtala við for- eldra og fleiri þátta. Samninganefnd ríkisins hefur lítillega komið á móts við þessa kröfu. í grunnskólum er kennslu- skylda kennara 29 kennslustundir á viku fyrir kennara á aldrinum 25-54 ára. Við 55 ára aldur lækk- ar hún niður í 25 stundir og við 60 ára aldur lækkar hún niður í 19 stundir. Samninganefndin hef- ur boðist til að lækka kennslu- skylduna um einn tíma þar sem hún er mest. Indriði segir að þetta svari til 2,2% hækkunar heildar- launa. Á móti vilji ríkið hins vegar fá lækkaða sérstaka umsjónar- þóknun sem sé ígildi 0,7% af heild- arlaunum. • Samninganefnd ríkisns hefur sömuleiðis boðist til að lækka kennsluskyldu kennara í fram- haldsskólum um eina kennsiu- stund þar sem kennsluskyldan er mest. Þetta þýðir lækkun úr 26 tímum í 25 tíma. Þessi lækkun nær til minnihluti framhaidsskóla- kennara vegna þess að starfsaldur þeirra er tiltölulega hár. Indriði segir að fyrir þá framhaldsskóla- kennara sem lækkunin nái til þýði þetta 4% hækkun launa og áhrif á heildariaun í framhaldsskólum sé um 0,6%. Þessar breytingar á kennslu- skyldu myndi þýða að meðal kennsluskylda í grunnskólum færi úr 27,2 tímum á viku í 26,4 tíma. Meðal kennsluskylda í framhalds- skólum færi úr 23,5 tímum í 23,2 tíma á viku. Kennarar segjast eiga inni 15% launaleiðréttingu Miklar deilur hafa verið milli kennara og samninganefndar ríkisins um breytingar á vinnu- tíma. Samninganefnd ríkisins vill að 12 starfsdögum kennara verði breytt í kennsludaga. Henni reikn- ast svo til að fyrir þetta aukna vinnuframlag beri ríkinu að borga kennurum 4-6% hærri laun. Mat kennara á þessu er allt annað. Þeir líta svo á að ef þeir ættu að taka á sig aukna vinnu sem nemi 12 dögum þá jafngildi það 107 yfirvinnustundum og það samsvari 180 dagvinnustundum. 180 dagvinnustundir jafngildi 10% launahækkun. Niðurstaða kenn- ara er að laun þeirra ættu að hækka um 10% ef afnema á starfs- daga. Eiríkur Jónsson sagði að sam- kvæmt tölum samninganefndar ríkisins um dagvinnulaun há- skólamenntaðra starfsmanna rík- isins hefðu kennarar dregist um 8-18% aftur úr iaunum annarra starfsstétta. Að meðaltali þyrfti að leiðrétta laun kennara með 15% hækkun til þess að þeir stæðu jafnfætis öðrum. Munurinn væri enn meiri ef horft væri á heildar- laun. Eiríkur sagði að út frá þessu væri augljóst að 10% hækkun launa dygði alls ekki til að leið- rétta laun kennara og að greiða fyrir allar þær skipulagsbreyting- ar í skólastarfi sem rætt væri um að gera. Krossgátublaðið endurvakið Menn vilja fá eitthvað meira að glíma við Gísli Ólafsson Gísli hefur unnið að bókaútgáfu og þýð- ingum alla ævi. Hann hefur samið krossgát- ur í frístundum í ein 57 ár fyrir Vikuna og gerir enn. Einnig var hann höfundur Krossgátublaðsins sem gef- ið var út í 18 ár en útgáfa þess hófst aftur um mitt síðasta ár. Þá kom út eitt tölublað en nú stendur til að gefa út fjögur blöð á ári í tvöþúsund eintökum. - Hvenær byrjnðir þú að búa til krossgátur? „Ég byijaði á þessu eftir að ég lauk námi við Mennta- skólann í Reykjavíki Þá gáf- um við tvéir skólabræður út nokkur blöð, þetta var nokkurs konar fíkt. Við höfðum kynnst krossgátum, sem fyrst komu í Fálkanum, að því er ég best veit. Síðan byijaði Vikan að koma út árið 1948, ég sá krossgátu í blaðinu og datt í hug að búa til eina upp á grín. Ég sendi þeim hana og eftir það hringdu þeir í mig og báðu mig um að halda áfram að gera kross- gátur fyrir þá. Síðan hef ég gert allar krossgátur í Vikuna.“ - Hvað þarf maður að hafa í huga við krossgátugerðina? „Maður þarf að hafa góðan orðaforða, vara sig á því að af- skræma ekki merkingu orða og samheita þeirra? sem notuð eru. Maður þarf að vera kunnugur málinu og ég er búinn að fást svo mikið við þýðingar, bókaút- gáfu og prófarkalestur að þótt ég sé ekki lærður íslenskumaður get ég sagt að ég hafi talsvert góða þekkingu á málinu og góð- ► GÍSLI Ólafsson fæddist 3. janúar 1912 að Búðum í Fá- skrúðsfirði. Foreldrar hans voru Ólafur Gíslason fram- kvæmdastjóri í Viðey og Jak- obína Davíðsdóttir. Gísli lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum í Reykjavík árið 1933 og var blaðamaður við Vikuna 1940-41. Hann var ritsljóri Úrvals frá stofnun þess 1942-59 og útgefandi 1956-59. Einnig var hann ritstjóri Við- skiptaskrárinnar 1957-76, að- stoðarmaður við ritstjórn Ægis frá 1955 og Tímarits Verk- fræðingafélags íslands frá 1964. Hann var framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bókaút- gefenda 1976-81 og hefur unn- ið við bókaþýðingar frá 1946. Krossgátublaðið gaf Gísli fyrst út 1961-1979. an orðaforða." - Hvernig eru krossgáturnar bunar til? „Stærðin fer eftir síðustærð í blaðinu. Þær taka yfirleitt eina síðu. Ég er með autt krossgátu- mót, sem er bara strikað. Ég byrja á því að setja mynd í kross- gátumótið, oftast nær í vinstra homi og skrifa einhveijar setn- ingar út frá þeim. Annars vegar lárétt með örvum til að aðgreina orðin og hins vegar lóðrétt. Svo skrifar maður skýringarorð í reit og leitar í huga sér að öðrum orðum sem hafa sömu merkingu og passa í fjölda reitanna út frá því. Svo set ég örvar milli orð- anna tii aðgreiningar ef bil myndast eða pílu ef ekkert bil er. Maður þarf góðan orðaforða en það er ekki hægt ___________ að komast hjá því að nota sömu orðin. Ég nota til dæmis landa- og borgarheiti, mannanöfn, heiti á “ blómum, korntegundum fleira.“ - Hvað varð til þess að þú byrjaðir að gefa út Krossgátu- blaðið á ný? „Ég hef meiri tíma nú því ég er hættur að vinna en einnig hafa þónokkuð margir, sem keyptu blaðið í gamla daga haft samband við mig og spurt hvort meiningin væri að það kæmi út áfram. Mörgum finnast gáturnar í blöðunum léttar og fljótkláraðar og vilja gjarnan fá eitthvað meira að glíma við.“ - Hvernig eru myndirnar valdar? „Maður leitar að skrýtlum eða teikningum í erlendum blöðum og býr til einhveija merkingu út frá því sem myndin sýnir. Ég reyni að hafa merkinguna svolít- ið langsótta en einnig hef ég oft málshátt í gátunni.“ - Er erfitt að fá þær til að ganga upp? „Nei, það finnst mér nú ekki. Ég hef gaman af því að glíma við þetta, að glíma við málið en gæta þess jafnframt að mis- þyrma því ekki.“ - Hvað hefur þú búið til margar krossgátur um dagana? „Ætli ég hafi ekki gert um 2.500 fyrir Vikuna og um 500 fyrir Krossgátublaðið.“ - Geymir þú gátumar? „Nei, því miður á ég Byrjaði með ej*Í öll blöðin og alls nokkurs kon- ® j Eg. he.f __ ... .. ekki haldið henni til ar TIKTI haga.“ - Hvað ertu lengi að búa til eina krossgátu? „Þetta var fjögurra tíma vinna en kannski er ég aðeins lengur að þessu núna, ég er orðinn svo gamall.“ — Gerir þú mikið af því að ráða krossgátur sjálfur? „Ég gríp nú alltaf í Lesbók- ina.“ Ræður þú erlendar krossgátur eða hefur samband við aðra krossgátugerðarmenn? „Nei, aldrei. Ég hef ekki sam- band við neinn og þekki satt að segja engan sem býr til krossgát- ur. Þetta er allt saman til orðið í mínum eigin huga.“ og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.