Morgunblaðið - 26.03.1995, Side 22
22 SUNNUDAGUR 26. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERUMEKKIMEÐ
RÁÐANDIHLUTIOLÍS
okkur að hægt verði að fækka þeim.
Ég held að það sé álíka fjöldi ann-
arra farartækja sem einnig verður
hægt að fækka.“
Reynt að komast hjá
fjöldauppsögnum
— Hvernig munuð þið standa að
þeirri fækkun starfsmanna sem er
fyrirsjáanleg í dreifíngarkerfinu?
„Þeir þættir sem ég hef nefnt
byggja að mestu á öðru en mann-
skap. Það verður einhver fækkun á
bílstjórum en við teljum að hún
geti gengið yfír af sjálfu sér á ein-
hvetjum tíma og ætlum að reyna
að komast hjá fjöldauppsögnum."
— Er ekki ljóst að Olíufélagið
verði ráðandi aðili í hinu nýja dreif-
ingarfyrirtæki.
„Við gerum ráð fyrir því að eign-
arhlutföll í því fyrirtæki verði ná-
lægt stærðarhlutföllum fyrirtækj-
anna þannig að við verðum líklega
með tvo þriðju hluta. Þetta verkefni
gengur hins vegar ekki nema um
sé að ræða gott samstarf."
Vandséð að þetta sé andstætt
hagsmunum neytenda
— Sumir óttast að það geti verið
andstætt hagsmunum neytenda að
eitt fyrirtæki annist dreifingu á 70%
af því eldsneyti sem flutt er til
landsins. Hvaða augum lítur þú
þetta mál?
„Frá okkar sjónarhóli er vandséð
að það sé andstætt hagsmunum
neytanda að gerðar séu ráðstafanir
til að lækka kostnað neytendum til
hagsbóta. “
— Á sumum sviðum, eins og í
samgöngum, hafa einstök fyrirtæki
mjög mikla markaðshlutdeild.
Hvert er þitt viðhorf til þess að
fyrirtæki hafí jafnmikla hlutdeild í
þessu litla þjóðfélagi?
„Ég þekki ekki nákvæmlega til
markaðshlutdeildar fyrirtækja
hvort sem er í flugi, flutningum,
gosdrykkjamarkaði, blaðaútgáfu
eða fjölmiðlun almennt. Hins vegar
er ekki hægt að líta fram hjá því
að við lifum í fámennu þjóðfélagi
og það að þessir fletir komi upp í
fleiri en einu tilfelli er afleiðing af
því. Það þarf ákveðna stærð til að
ná hagkvæmi í rekstri en þegar
margir smærri eru á markaði verð-
ur kostnaður meiri.“
Baráttan á olíumarkaðnum tók óvænta
stefnu um síðustu helgí þegar Olíufélagið
o g Texaco gengu frá kaupum á 45% hlut í
Olís. Krístinn Bríem ræddi við Geir Magn-
ússon, forstjóra Olíufélagsins m.a. um að-
dragandann að kaupunum, fyrírsjáanlega
hagræðingu, hagsmuni annarra hluthafa í
Olís og samkeppnisstöðu félaganna
KAUP Olíufélagsins hf. á
35% hlut í Olís á dögun-
um og kaup Texaco á
10% hlut telst óneitan-
lega vera einn af stærri viðburðum
í viðskiptalífínu á síðari árum. Þessi
kaup voru mótleikur Olíufélagsins
við harðnandi verðsamkeppi á olíu-
markaðnum, yfirvofandi innrás
kanadíska olíufélagsins Irving Oil
og samstarfí Skeljungs hf. við Hag-
kaup og Bónus um rekstur bensín-
stöðva við stórmarkaði. Að óbreyttu
hafði Olíufélagið takmarkað svig-
rúm til að draga verulega úr kostn-
aði og hagræða til að mæta verð-
Iækkunum en fyrirsjáanlegt var að
með samvinnu við Olís mætti ná
miklu meiri árangri. Eftir sem áður
ætla félögin að keppa á markaðnum
og segir Geir Magnússon, forstjóri,
hér í viðtali að Olíufélagið og
Hydro-Texaco eigi ólíkra hagsmuna
að gæta í OIís þannig að þar muni
ríkja nokkurs konar ógnaijafnvægi.
Olíufélagið hafi því ekki tryggt sér
ráðandi hlut í Olís. Hann var fyrst
beðinn að rekja aðdraganda kaup-
anna.
„Við ákváðum að lækka verð á
bensíni og gasolíu í janúar og þá
lá fyrir að það þyrfti að
ná fram rekstrarhagræð-
ingu upp á umtalsverðar
fjárhæðir í dreifíngar-
kerfínu. Það var komið á
viðræðum við Sund hf.
um mögulegt samstarf við Olís. Á
því stigi ætluðum við ekki að kaupa
af Sundi heldur kom sá flötur upp
á síðari stigum. Okkar erindi var
fyrst og fremst það að þreifa á því
að hvort hægt væri að hefja sam-
starf til að lækka kostnað í þeim
tilgangi að gera okkur sterkari í
samkeppninni. Það var kominn upp
nýr flötur á markaðssetningu Skelj-
ungs gegnum samstarfíð við Orku
og vitað var að Irving Oil hafði
gert ítrekaðar tilraunir til að kaupa
hlut í Olís. Við töldum okkur einnig
hafa ávæning af áhuga Skeljungs-
manna að kaupa Olís-bréfín og
sameina fyrirtækin.
Við stóðum frammi fyrir því að
gera ekkert og beijast við að nýta
okkar stærðarhagkvæmni eða
þreifa fyrir okkur með samstarf við
aðra. Framhaldið er öllum kunnugt.
Á seinna stigi var borið undir
Texaco hvort félagið vildi eiga sín
bréf áfram. Þeir voru mjög ákveðn-
ir að vera áfram hluthafar
og vildu jafnvel auka sinn
hlut frekar en ekki. Þeim
leist mjög vel á okkar
hugmyndafræði og lýstu
sig reiðubúna til sam-
starfs um þetta verkefni á þann veg
að þeir ættu jafnan hlut á móti
okkur.“
Lægri fragt og lægra
innkaupsverð
— Því hefur verið haldið fram
að Olíufélagið hafi verið reiðubúið
að teygja sig mjög langt í verði af
ótta við að bréfin yrðu seld til Irv-
ing Oil. Þannig hafí verið greitt ríf-
lega þrefalt nafnverð fyrir bréfín.
Hvað er hæft í þessu?
„Ég held að allt sem sagt er um
verð sé byggt á einhveijum vanga-
veltum. Það varð samkomulag um
að verð væri trúnaðarmál sem við
munum standa við. Okkar mat á
kaupunum hlýtur að miðast við
þann ávirining sem við getum feng-
ið út úr hagræðingu."
— Hvernig er sameiginlega dreif-
ingarkerfið hugsað?
„Við eigum gríðarlega mikla
vinnu framundan áður en hægt
verður að sjá ákveðnar stærðir.
Hagræðingin felst í því að hingað
til hafa félögin flutt inn eldsneyti
hvert í sínu lagi. Olís hefur flutt inn
olíu og bensín í samvinnu við Skelj-
ung með skipum af svipaðri stærð
og við höfum notað, þ.e. 21-24
þúsund tonna skipum. Þessi félög
hafa náð betri veltuhraða og lægri
fragt vegna samvinnu sinnar. Sam-
eiginlegur innflutningur Olís og
Olíufélagsins fellur vel að 35-38
þúsund tonna skipum sem býður
upp á enn lægri fragt. Á markaðn-
um er talað um að munurinn geti
verið allt að 1 dollar á tonnið. Síðan
höfum við væntingar um að með
auknu magni getum við náð enn
frekari lækkun á innkaupsverði.
Við munum að sjálfsögðu láta fleiri
en einn birgi bjóða í þetta magn
og síðan verður markaðurinn að
svara því að hve miklu leyti það
skilar sér. Við kaupum inn tæplega
400 þúsund tonn saman þannig að
hver dollar skilar umtalsverðum
upphæðum.
Þá rekum við einnig nokkur skip.
Stapafellið er notað í strandflutn-
ingum en þar að auki eigum við
Bláfell og Lágafell sem þjóna stöðv-
um á Faxaflóasvæðinu. Olís rekur
aftur á móti olíuskipið Héðinn og á
helminginn í Kyndli. Við sjáum fyr-
ir okkur að hægt sé að fækka skip-
um en það á eftir að reikna út hvort
Stapafellið nægir eða hvort þörf sé
á öðru stærra skipi. Hins vegar ligg-
ur fyrir að hægt verður að komast
af með eitt skip í staðinn fyrir
Héðinn, Bláfell og Lágafell.“
Veruleg fækkun birgðastöðva
„Það liggur einnig fyrir að Olíu-
félagið rekur 41 birgðastöð aðrar
en innflutningshafnir og Olís rekur
28 stöðvar. Við höfum verið að
skila greinargerðum til yfirvalda
um hvernig eigi að endurbyggja
þessar stöðvar á næstu tíu til ellefu
árum vegna nýrra laga
um mengunarvarnir. Það
er gert ráð fyrir að með
samstarfinu verði hægt
að komast af með veru-
lega færri birgðastöðvar
en élla og þar af leiðandi sparast
verulega í stofnkostnaði og endur-
byggingu. Olíufélagið rekur inn-
flutningshafnir í Hafnarfirði, Ör-
firisey og Hvalfirði. Olís hefur sótt
um viðbótarland vegna endurbygg-
ingar sinnar birgðastöðvar í Laug-
arnesi og það þarf að meta að hvaða
marki þörf er á þeirri endurbygg-
ingu. Það má leiða likur að því að
óþarft verði að byggja slíka stöð.
Síðan eru þessi fyrirtæki með um
170 tankbíla og við sjáum fyrir
Erum ekki með ráðandi hlut
— Samkeppnisstofnun hefur tekið
til athugunar kaup ykkar á hluta-
bréfunum í Olís og fyrirhugað sam-
starf félaganna. Má ekki búast við
að stofnunin geri einhveijar athuga-
semdir við kaup ykkar og samstarf
félaganna?
„Það er mjög eðlilegt að Sam-
keppnisstofnun fari yfír mál eins og
þetta og henni ber að gera það sam-
kvæmt lögum. Miðað við það að við
erum ekki með ráðandi hlut í Olís
og að þessi fyrirtæki munu starfa á
sjálfstæðan hátt á markaðnum í
fíillri samkeppni þá geri ég ekki ráð
fyrir því að það sé tilefni til að-
gerða. Við létum að sjálfsögðu lög-
fræðinga meta þetta fyrir okkur
áður en af stað var farið. Þar að
auki má benda á að það sem við
erum að gera hefur verið gert í öðr-
um löndum t.d. Danmörku. Mikið
af þeirri löggjöf sem við höfum tek-
ið upp er sótt til Danmerkur. Þar
er samstarf af þessu tagi talið eðli-
legt enda hefur ekkert dregið úr
samkeppni."
— En hvemig myndi það horfa
við ykkur ef stjómmálamenn tækju
þetta mál til umræðu?
„Ef stjórnmálamenn vilja fjalla
um stærðir einstakra
þátta í viðskiptalífinu þá
þurfa þeir að koma að
æði mörgum málum. Það
verður þá að fjalla um
fleiri mál en þetta. Ef
okkur tekst vel til með kostnaðarnið-
urskurð og hagkvæmni á hveija ein-
ingu þá held ég að sú gagnrýni sem
menn eru að velta fyrir sér hverfi
með tímanum."
— Það hefur verið töluverð um-
ræða um að setja beri reglur til að
vemda hagsmuni minnihluta í
hlutafélögum. Hvernig horfði það
við þér ef Oh'ufélagið og Hydro-
Texaco yrði skyldað til að gera
öðrum hluthöfum tilboð um að
kaupa þeirra hlut?
Samkeppnis-
stofnun
kanni málið
Engin um-
ræða um
sameiningu