Morgunblaðið - 23.04.1995, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 16/4 - 22/4
►ÁTTA hundruð og sjö-
tíu börn taka þátt í Andr-
ésar andar leikum á Akur-
eyri. Að fararsljórum og
foreldrum meðtöldum eru
gestir skíðamótsins um
1.500.
►VETURINN sem kvaddi
í vikunni var óvenju kald-
ur um mestallt land. í
Reykjavík hafa vetrar-
mánuðirnir desember til
mars ekki verið jafnkaldir
frá 1920. Meðalhitinn var
-1,8 stig, sem er 1,7 stigum
undir meðalhita 1961-90.
Næst þessu kemur vetur-
inn 1978-79 en þá var
meðalhiti -1,7 stig. Vetur-
inn 1919 til 1920 var með-
alhiti -2,2 stig.
►FJÓRIR Bretar Iuku
leiðangri sínum þvert yfir
landið á þriðjudagskvöld.
Þeir komu á áfangastað
að Gerpi 46 dögum frá
upphafi ferðarinnar og 10
dögum á undan áætlun.
Fjórmenningarnir ætla að
nota nokkra daga til að
skoða þekkta ferða-
mannastaði á Islandi áður
en þmr halda heim.
►JÓHANN Hjartarson er
efstur eftir 3. umferð
Skákþings Norðurlanda
með 2 1/2 vinning. Næstir
koma þeir Jonathan Tisd-
all og Lars Bo Hansen með
2 vinninga hvor.
► VERÐBRÉF AS AL A
rikissjóðs á innlendum
lánsfjármarkaði hefur
gengið afar illa það sem
af er þessu ári og hefur
engan veginn náð að mæta
innlausn á ríkisverðbréf-
um. Hún er veruleg, ekki
síst vegna þess að vaxandi
hluti lánsfjáröflunar ríkis-
sjóðs hefur færst úr lang-
tímaverðbréfum eins og
skuldabréfum ríkissjóðs í
ríkisvíxla.
Ný stjórn
NÝ ríkisstjóm tekur væntanlega við
völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum
í dag. Formenn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks hafa skipt ráðuneyt-
um á milli flokkanna og staðfest sjóm-
arsáttmála.
í stjómarsáttmálanum er gengið út
frá því að stöðugleiki í efnahagsmálum
verði varðveittur og jöfnuði viðhaldið
í ríkisfjármálum. Hann kveður á um
að atkvæðisréttur verði jafnaður, hús-
næðiskerfmu breytt, þjóðareign á
fiskimiðum verði bundin í stjórnarskrá
og valfrelsi í lífeyrismálum verið aukið.
Flokkarnir hafa þar að auki komið sér
saman um að búvörusamningurinn
verði endurskoðaður, lögum um Lána-
sjóð íslenskra námsanna verði breytt
og skattkerfísbreytingar dragi úr
jaðarskattheimtu. Ráðherrar hafa enn
ekki 'verið valdir í ríkisstjórnina.
Smáskífa Bjarkar
FYRSTA smáskífan af væntanlegri
breiðskífu Bjarkar Guðmundsdóttur
kemur út á mánudaginn hér á landi.
Smáskífan heitir heitir Army of Me og
verður í tveimur útgáfum. Annars veg-
ar venjuleg útgáfa lagsins með þremur
aukalögum og hins vegar útgáfa með
lagið hljóðblandað af bandarísku hljóm-
sveitinni Beastie Boys.
Dagblöðum safnað
saman
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að gera
tilraun til að safna saman gömlum
dagblöðum í Reykjavík. Tuttugu gám-
um verður komið fyrir nálægt verslun-
arkjörnum í borginni og stærri gámum
í Breiðholtshverfum. Borgarverkfærð-
ingur gerir að tillögu sinni að ílát og
gámar verði græn og öll merkt Reykja-
víkurborg og Sorpu.
Atvinnuleysi
RÚMLEGA 8.200 manns voru að með-
altali skráðir atvinnulausir í mars og
jafngildir sá fjöldi 6,4% af áætluðum
mannafla á vinnumarkaði. Atvinnu-
lausum fjölgar um 957 frá mánuðinum
á undan en í febrúar nam atvinnuleys-
ið 5,7% af áætluðum mannafla á vinnu-
markaði. Atvinnuleysi nú í mars er
einnig meira en í sama mánuði í fyrra
og munar þar 357 manns.
Mannskæðasta
hermdarverk í sögn
Bandarí kj anna
GÍFURLEGA öflug bílsprengja sprakk
við hús alríkisstjórnarinnar í jOkla-
homa-borg í Bandaríkjunum á miðviku-
dagsmorgun og lagði stærstan hluta
þess í rúst. Enn er ekki ljóst hversu
margir fórust en rúmlega áttatíu lík
hafa fundist og á annað hundrað
manna er saknað. Meðal hinna látnu
eru 12 böm en dagheimili fyrir böm
starfsfólks var í húsinu sem hýsti auk
þess ýmsar opinberar skrifstofur og
útibú alríkisstofnana. Um 500 manns
störfuðu í byggingunni.
Mikil skelfing hefur gripið um sig í
Bandaríkjunum vegna hermdarverks-
ins, sem er hið mannskæðasta í allri
sögu Bandaríkjanna. Fordæmdi Bill
Clinton Bandaríkjaforseti það harðlega,
sagði að tilræðismennirnir væra „við-
bjóðslegir hugleysingjar" og hét því að
þeir yrðu kiófestir. Sagði Janet Reno,
dómsmálaráðherra, að stjómvöld
myndu krefjast dauðarefsingar yfír
þeim seku.
Tveir hvítir menn vom handteknir á
föstudag, grunaðir um aðild að sprengj-
utilræðinu. Eru þeir félagar í samtök-
um herskárra nýnasista, sem leggja
fæð á stjómvöld.
ERLENT
►SAMNINGUR Kanada
og Evrópusambandsins
um grálúðuveiðarnar við
Nýfundnaland er orðinn
að miklu, pólitísku hita-
máli á Spáni. Kanadamenn
og ESB fögnuðu sam-
komulaginu, sem náðist
um síðustu helgi, sem
miklum sigri en það er
talið móta nýja stefnu
ábyrgrar veiðistjórnar.
►FRAKKAR lögðu á
þriðjudag til að öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðannan
samþykkti nýja ályktun
um Bosníu sem kvæði á
um framlengingu vopna-
hlés. Segjast Frakkar ekki
eiga annars úrkosta en að
kalla friðargæslulið sitt
heim, verði vopnahléið
ekki staðfest.
►EVRÓPA og Norður-
Amerika ættu að samein-
ast um eitt fríverslunar-
svæði við Norður-Atlants-
haf, TAFTA, að mati
Klaus Kinkels, utanríkis-
ráðherra Þýskalands.
►JOSE Maria Aznar, leið-
togi stjórnarandstöðunnar
á Spáni, slapp með minni
háttar meiðsl er sprengja
sprakk nærri bíl hans á
miðvikudag. Er aðskilnað-
arsamtökum Baska, ETA,
kennt um tilræðið.
►ÍBÚAR Yokohama í
Japan urðu í tvígang fyrir
gastilræðum í vikunni, á
miðvikudag og föstudag.
Enginn lét lífð í árásunum.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
GIRNILEGIR ávextir freistuðu gesta Garðyrkjuskólans
að Reykjum á sumardaginn fyrsta.
______________________________ I
Fjölmenni »
á sýningu
Garðyrkju-
skólans j
Hveragerði. Morgunblaðið. i
GÍFURLEGUR fjöldi fólks lagði ’
leið sína í Garðyrkjuskóla ríkis-
ins að Reykjum í Olfusi á sumar-
daginn fyrsta.
Talið er að rúmlega 6.000
manns hafi heimsótt skólann en
þennan dag buðu nemendur
skólans til sýningar. Nemend-
urnir, sem eru 46 í vetur á fjór- )
um brautum, kynntu starfsemi
skólans og leyfðu gestum skól-
ans að kynnast því hvað þeir eru »
að fást við á sviði umhverfis-
og garðyrkjumála.
Um leið gafst fólki kostur á
því að skoða þann fjölbreytilega
gróður sem þarna er. í gróður-
skála skólans blómstra nú fjöl-
margir runnar og tré sem fæst-
ir þrífast utandyra hér á landi
og því vakti þessi litfagri gróður ’
verðskuldaða athygli gesta. í )
öðru gróðurhúsi mátti síðan sjá
ýmsar suðrænar plöntur svo
sem banana-, apelsínu- og kaffi-
tré ásamt risavöxnum kaktusum
sem vöktu óskipta lukku yngri
kynslóðarinnar.
Nemendur Garðyrkjuskólans
halda sýningu sem þessa annað
hvert ár og fjölmargir fastagest-
ir líta á sýninguna sem ósvikinn
vorboða enda greinilegt að gest-
ir voru í sumarskapi þrátt fyrir
norðanstrekkinginn úti fyrir. j
Búsetuþróun frá 1880 til 1990
Kort yfiralla
sveitabæi á íslandi
SVISSLENDINGURINN Martin
Schuler hefur skrifað bókina Bú-
setuþróun á íslandi 1880-1990 sem
Landmælingar íslands, Byggða-
stofnun og Hagstofa íslands gefa
sameiginlega út um þessar mundir.
Hann er nú staddur á íslandi og
mun flytja fyrirlestur um efni bók-
arinnar á vegum sagnfræðistofnun-
ar Háskóla Islands í Odda miðviku-
daginn 27. apríl klukkan 17:00.
„Bókin er gagnasafn um búsetu-
þróun á íslandi á tímabili þegar
mestu breytingar urðu á búsetu í
landinu í sögu þjóðarinnar," sagði
Schuler í samtali við Morgunblaðið.
„Gögnin ná frá 1880 til 1990. í
upphafí tímabilsins bjuggu um 80%
íslendinga í dreifbýli en í lok þess
aðeins 8%; íbúum í dreifbýli hafði
fækkað úr 60.000 í færri en 20.000.
Uppistaða bókarinnar er litrík
kort af öllum sýslum landsins þar
sem allir sveitabæir í landinu eru
merktir með punkti. Kortunum
fylgja 300 síður af töflum þar sem
bæir, býli og hús í dreifbýli eru tal-
in upp. Fjöldi íbúa við manntöl á
þessu tímabili kemur fram og þess
er getið hvenær húsin stóðu auð.“
Shluler sagði að bókin ætti
erinái til allra sem hefðu áhuga á
byggðasögu landsins, sérfræðinga,
nemenda og fræðimanna sem fást
við samanburðarrannsóknir á
byggðaþróun.
Áhugi á íslandi
Áhugi Shculers á íslandi vakn-
aði á unga aldri. „Það var til mynda-
bók um ísland á heimilinu og ég
skoðaði hana tímunum saman. Eg
ferðaðist um landið í átta vikur
þegar ég var við háskólanám sum-
arið 1970 og ákvað þá að skrifa
lokaritgerð mína í
landafræði um brott-
flutninga frá Austur-
Barðastrandasýslu og
þremur héruðum í Ár-
nessýslu, Villinga-
hreppi, Hraungerðis-
hreppi og Skeiða-
hreppi. Ég ætlaði síðan
að stækka verkefnið
og skrifa doktorsrit-
gerð um búsetuflutn-
inga á öllu landinu en
það varð ekki af því.
En ég losnaði ekki við
hugmyndina og hóf
vinnu við söfnun
gagna árið 1984.
Eg ætlaði í upphafi bara að gera
búsetukort sem Landmælingar
unnu en síðan var ákveðið að láta
töflurnar fylgja kortunum og þá
varð verkefnið mun viðameira. Eg
safnaði gögnum úr manntölum,
byggðasögum og öðrum skjölum
sem gátu komið mér að gagni. Ég
vann verkið í frístundum og var lík-
lega samtals um eitt ár á íslandj í
mörgum mislöngum ferðum. Ég
sótti um styrk úr Vísindasjóði árið
1989 og hlaut hann.
Ég lauk við verkefnið 1992. Það
tók þijú ár að ganga frá bókinni
til útgáfu á íslandi. Ég komst að
raun um að það er erfitt að vera
erlendis ef hlutirnir eiga að ganga
snurðulaust fyrir sig. Við vinnslu
bókarinnar kynntist ég mörgu góðu
fólki, ekki síst á landsbyggðinni.
Það var mér innanhandar og ég
lærði margt af því.“
íslandskafla ekki lokið
—Er þessum íslands-kafla í lífi
þínu nú lokið?
„Nei, ég á örugglega
eftir að skrifa fræðirit-
gerðir byggðar á gögn-
unum sem ég safnaði i
saman í bókina. Og
áhuga mínum á íslandi i
og Islendingum hefur |
ekki linnt. Ég þekki
landið vel, hef ferðast
um það þvert og endi-
langt, klifið flesta
þekkta íjallatinda og
farið inn á jökla. En
ég þekki fólkið í land-
inu síður þótt ég tali
íslensku og hafi eign- j
ast nokkra vini og
kunningja.
Aðstæður íbúanna sem byggja j
þetta hijóstuga land heilla mig. Við
hvaða aðstæður hafa þeir búið í
sveit og hvað tekur við þegar þeir
flytjast í sjávarþorpin eða til Reykja-
víkur? Straumurinn til Reykjavíkur
heldur áfram en það geta ekki allir
landsmenn búið þar, Island væri þá
ekki lengur sama landið. Hvemig
er hægt að koma í veg fyrir að sjáv- j
arþorpin fari í eyði? Rétt mynd af
búsetuþróuninni síðustu hundrað 1
árin getur vonandi hjálpað til við I
að svara þeirri spurningu.“
Martin Schuler er fæddur 6. des-
ember 1946 í Sviss. Hann lagði
stund á landafræði í háskólanum í
Zurich og var kennari í nokkur ár
áður en hann sneri sér alfarið að
skipulagsmálum. Hann hefur starf-
að hjá IREC-stofnuninni (Institut
de Recherche sur l’Environnement í
Construit) í Lausanne síðan 1981 1
og er einnig ráðgjafi ýmissa ríkis-
stofnana, þar á meðal hagstofunnar *
í Bern, um þróunar- og skipulags-
mál.
Martin Schuler