Morgunblaðið - 23.04.1995, Side 29

Morgunblaðið - 23.04.1995, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 29 MINNINGAR við Ragnar ykkur, þeim og öðrum vandamönnum. Guð gefí ykkur styrk í sorginni. Bjarnveig Höskuldsdóttir. Andlát ungrar konu í blóma lífs- ins er þungt áfall. Við vissum, að sjúkdómur Ágústu var illvígur, horfur óvissar og meðferðin erfið, en vonarneistinn um bata bægði frá neikvæðum hugsunum. Andlát Ágústu kom eins og þruma, en loft- ið var skýjað. Missir eiginmanns, barna, foreldra og þeirra, sem stóðu henni næst er mikill. Óvænt dauðs- fall Ágústu leiðir hugann til Óm- ars, og annarra vina okkar og vandamanna. Á svona stundum rifj- ast upp fyrir okkur enn á ný, hve mikilvægt er að rækta vináttuna, og samband sitt við þá, sem okkur eru kærir, meðan hægt er að njóta. Við vitum að veröldin er hverful, og lífsins lok hér á jörðu eru óum- flýjanleg, og koma okkur oftast á óvart. Við kynntumst Ágústu fyrir sex árum, þegar hún kom ásamt fjöl- skyldu sinni til Blönduóss. Strax hófst náið samstarf og vinátta. Ágústa var hjúkrunarfræðingur á sjúkradeild Héraðssjúkrahússins. Hún var mjög hæf og samviskusöm í sínu starfi. Hún átti gott með mannleg samskipti, og það var þægilegt að vinna með henni. Við vitum, að Ágústa var ekki síður stöðugleikinn uppmálaður. Hún bar hag fjölskyldu sinnar mjög fyrir btjósti. Við minnumst hennar sem glaðværrar og skemmtilegrar vin- konu á mörgum sameiginlegum gleðistundum, en ekki síður sem ábyrgðarfullrar húsmóður á sínu heimili. Brottnám Ágústu úr þessu jarð- lífi er óvægið og ótímabært, eins og alltaf er, þegar fólk er tekið yfir móðuna miklu í blóma lífsins. Þó miklu hafi verið áorkað á stuttri ævi, og grunnur lagður að framtíð fjölskyldunnar, hefðum við öll viljað njóta samvista hennar lengur. Við söknum góðrar vinkonu. En lífsins stundaglas var tæmt, og því fáum við ekki breytt. Við munum geyma Ágústu í minningunni, og þökkum henni innilega samfylgdina. Við hjónin viljum votta Ómari, börnum, foreldrum og tengdaforeldrum og öllum aðstandendum, okkar dýpstu samúð. Böðvar Örn og Gestný. Þegar fréttin barst mér um að þú færir farin, setti rtiig hljóða. Ég átti eftir að segja þér svo margt og ætlaði að hringja í þig eftir helgi. Eftir eru spumingamar stóm — af hverju? Af hveiju þú? Af hveiju svona fljótt? Kynni okkar vom stutt, en þau hófust þegar þú komst inn í sauma- klúbbinn 1990. Einu ári seinna urð- um við nágrannar og hittumst þá oftar yfir kaffibolla. Hefðu þær stundir mátt vera fleiri, en oft er lengst að fara til þeirra sem næstir manni eru. Manni finnst tíminn allt- af vera nægur. Hið daglega amstur skipar því miður of stóran sess í lífi manns, eins og kannski hjá flest- um. Þú varst ekki allra, en þegar ég hitti þig síðast fannst mér að kynni okkar hefðu getað orðið nán- ari, og ég hlakkaði til að þú kæmir aftur heim. Ég ætlaði svo sannar- lega að gefa mér betri tíma fyrir heimsóknir og ætlaði að vera þér innan handar í þínum veikindum. Nú er það of seint. Ágústa, með þessum fátæklegu orðum langar mig að kveðja þig og þakka þér fyrir allt og allt. Ómari, Eydísi, Unni, Frímanni, Þorbjörgu, Frímanni eldri og öðrum aðstandendum vottum við hjónin og börnin okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að styrkja ykkur í ykk- ar miklu sorg. Charlotta. Ómar vinur okkar kynnti okkur hjónin fyrir Ágústu um jólaleytið 1983. Alltaf hefur verið gott sam- band milli okkar og þeirra Ágústu og Ómars og höfum við átt margar góðar stundir saman. Oft hefur verið langt á milli okkar í landfræði- I- legum skilningi, en þó hefur aldrei liðið mjög langt á milli funda. Það eru eftirminnilegir dagar í júní 1988, þegar Ómar og Agústa, sem þá bjuggu í Svíþjóð, heimsóttu okk- ur hjónin í Tel Aviv í ísrael, þar sem við bjuggum þá. Við minnumst einnig heimsóknar þeirra hjóna til okkar síðastliðið sumar á ísafjörð. Það var indælt og afslappað and- rúmsloft sem fylgdi Ágústu og munum við sakna hennar. Við biðjum góðan Guð að styrkja Ómar og börnin. Gísli H. Guðmundsson og Anna Hugrún Jónasdóttir. Mig skortir orð til þess að tjá harm minn og sorg. Hún er ennþá svo ljóslifandi fyrir augum mínum, mér finnst ég hljóti að hitta hana á förnum vegi og ræða um daginn og veginn við hana. Af hveiju hvarf hún frá okkur svona fljótt - af hveiju er lífíð svona óréttlátt? Ágústa var alltaf góð við mig - hún var yndisleg manneskja. Elsku Eydís, Ómar, Unnur og Frímann. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð vegna ykkar mikla missis. Tárin að ðnýtu falla á fold, fá hann ei vakið er sefur í mold. Mjúkasta hjartanu hugganin er horfinnar ástar er söknuður sker á harminum hjartað að þreyta. (Þýð. Jónas Hallgrimsson.) Guðmunda Sirrý. Þegar ungar manneskjur deyja í blóma lífsins, þá kemur upp í hug- ann sú spurning, af hveiju? Já, af hveiju eru börn gerð móðurlaus svona allt í einu og ungur maður missir konu sína svona vægðar- laust? En svona er lífið, við skiljum það ekki alltaf og okkur finnst það ekki alltaf réttlátt. Þó enginn sem þekkti Ágústu væri tilbúinn að trúa því að hún væri með ólæknandi sjúkdóm, og því síður að hún myndi láta undan svo snögglega sem raun bar vitni, verðum við að trúa því að einhver tilgangur hafi verið með að hún fengi að lifa til þessa. Hún var einstök kona, hún var ekki bara falleg í útliti heldur einnig að inn- ræti. Eigingirni var ekki hægt að finna hjá henni og það að gera öðrum greiða var eitthvað henni eiginlegt. Hún valdi sér starfsvett- vang sem hjúkrunarfræðingur og þar fengu þessir eiginleikar að njóta sín sem best og var öruggt að sjúkl- ingarnir hennar þyrftu ekki að hafa áhyggjur að hún þjónaði þeim bara af skyldurækni. Þrátt fyrir að Ágústa ynni úti og væri einnig húsmóðir var móð- ur- og eiginkonuhlutverkið hennar aðalhlutverk. Einnig var hún mjög tengd foreldrum sínum og þótt hún væri eina bam þeirra, þá var hún eflaust á við mörg hvað varðar umhyggju til þeirra. Við Agústa kynntumst fyrst, er hún var að klára hjúkrunarskólann og var nemi á slysadeild Borgarspít- alans. Hún átti að vera með mér á þremur næturvöktum um helgi og var óvenjulega lítið að gera þessar nætur. Við sátum því mikið og spjölluðum um lífið og tilveruna. Hún ætlaði að flytjast norður til Akureyrar, þaðan sem við vorum báðar ættaðar, að loknu námi og vera þá einnig nær foreldrum sín- um. Ékki grunaði okkur að seinna ættum við eftir að hittast aftur og þá yrði hún orðin unnusta æskuvin- ar Ásmundar, mannsins mins. Óm- ar er einnig öndvegis maður, traust- ur og áreiðanlegur svo ekki hafa foreldrar hennar þurft að hafa áhyggjur af henni er þau rugluðu saman reitum. Er fjölskyldur okkar fluttu til Svíþjóðar með stuttu milli- bili, tókum við upp yinkonusamband og hittumst nokkuð oft þó við byggjum hvor í sinni borginni. Ein- hveiju sinni er við vorum með yngstu bömin okkar lítil og vorum báðar heimavinnandi, sátum við úti í yndislegu veðri og létum okkur dreyma um hvernig lífið yrði er við kæmum heim. Ágústa var alltaf með heimþrá eins og svo sem við hin, en foreldrar hennar toguðu í hana og hlakkaði hún til, að kom- ast nær þeim og ala upp börnin í nærveru við þau. Ég man aldrei eftir að hún kvartaði undan lífinu eða væri óánægð. Á einn eða annan hátt virtist eins og hún gæti alltaf gert gott úr öllu og var verulega þægilegt að umgangast hana. Hún var einnig glaðlynd og bros hennar gleymist seint. Eftir að við vorum flutt hittumst við einu sinni sem oftar á heimili þeirra á Blönduósi. Þau Ómar mun- aði ekki um að taka á móti okkur fjórum með litlum fyrirvara og fann maður þar fyrir raunverulegri gest- risni, þar sem við höfðum á tilfinn- ingunni að við værum að gera þeim greiða með komu okkar þótt við værum þiggjendurnir. En nú er Ágústa dáin og veit ég, að við sem fengum að njóta þess að þekkja hana, verðum ríkari manneskjur eftir þau kynni. Börn- um hennar, Ómari, foreldrum og tengdaforeldrum verður sorgin þung og sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur og veit ég að Guð er með þeim í sorg þeirra. Guðrún Vignisdóttir. Heldur finnst manni réttlætið naumt skammtað, þegar frískleg kona og móðir, vart komin um miðj- an aldur, er hrifin burt úr þessu lífí, burt frá ungum börnum og eig- inmanni, burt frá ástkærum foreldr- um. Ágústa Frímannsdóttir er dáin, fallin frá, langt fyrir aldur fram, og enda þótt nú séu nokkrir dagar liðnir frá þvf okkur barst þessi harmafregn, verður þessum tíðind- um vart trúað. Ágústa ólst upp í Álfabyggðinni á Akureyri hjá traustum foreldrum sínum, Þorbjörgu og Frímanni. Hún var eina bam þeirra hjóna og átti ást þeirra óskipta. Við kynntumst henni strax, þegar við vorum á bamsaldri. Fjölskylda okkar hafði þá flust á sömu slóðir í Álfabyggð- ina og var samgangur á milli heimil- anna fljótt mjög mikill, enda vin- skapur mikill á milli foreldra Ág- ústu og okkar. Þetta var á þeim árum, þegar gatan var leikvöllur bama og úti- leikir voru í hávegum hafðir. Og sjaldnast var spurt um aldur, þegar krakkahópurinn ærsjaðist daglangt og fram á kvöld. í þessum fjöl- breytta hópi skar Ágústa sig úr með sitt tinnusvarta hár og yfirveg- aða fas. Og blíðlegt brosið fór ekki framhjá nokkram manni. Hún var jafnan föst fyrir og ákveðin og góð- ur og traustur vinur. Þegar tímar liðu fram skildu leið- ir og hvert okkar fór í sína áttma. Vinskapur foreldra okkar og Ág- ústu tryggði þó alltaf vitneskjuna um leiðir hvers annars. Raunar fór þó svo, að Sigrún, eitt okkar systk- ina, átti eftir að endumýja kynnin við Ágústu síðar á lífsleiðinni. Það átti fyrir þeim að liggja að starfa saman um nokkurt skeið sem hjúkr- unarfræðingar á Akureyri. Síðastliðin ár bjó Ágústa með eiginmanni sínum og bömum á Blönduósi. Við systkinin sáum hana því æ sjaldnar. I ljósi þessa munum við því alltaf vera þakklát fyrir það, að hafa hitt hana af tilviljun fyrir nokkrum vikum og fá þar tækifæri til að spjalla stuttlega saman. Þá grunaði okkur ekki hið minnsta að við ættum ekki eftir að hitta Ágústu meira á lífsleiðinni. Orð mega sín lítils á kveðjustund sem þessari, en samúð okkar er öll með foreldrum Ágústu, eiginmanni og börnum, sem hafa misst svo mikið. Gunnar Orn, Sigrún, Sigmundur Ernir, Guðrún og fjölskyldur. Á erfiðri stundu er gott að eiga trú, trú á lífið og að dauðinn marki aðeins þáttaskil í lífinu í átt til meiri þroska. En hann er sár og stundum virðist ekki hægt að sætt- ast við hann. Líkt og nú þegar hann tekur frá okkur það sem er svo dýrmætt, eiginkonu, móður, dóttur, tengdadóttur, vinkonu, já, yndis- lega manneskju í blóma lífsins. SJÁ NÆSTU SÍÐU t Systir okkar, VALGERÐUR TRYGGVADÓTTIR, Laufósi, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 26. apríl kl. 13.30. Klemens Tryggvason, Þorbjörg Tryggvadóttir, Þórhallur Tryggvason, Björn Tryggvason, Agnar Tryggvason, Anna Guðrún Tryggvadóttir. t Elskulegur sonur okkar og bróðir, VIÐAR MAGNÚS HÓLMARSSON, lést í Landspítalanum þann 15. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 24. apríl kl. 10.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins. Hólmar Þór Stefánsson, Þóra Viðarsdóttir, Arnar Ingi Reynisson, Jóna Dóra Hólmarsdóttir. t Elsku litli sonur okkar, bróðir og barnabarn, ÆVAR ÞORVALDSSON, Klukkubergi 3, sem lést 14. apríl, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 25. apríl kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins og Styrktarfé- lag vangefinna. Þorvaldur Friðþjófsson, Bryndís Ævarsdóttir, Gyða Hrund Þorvaldsdóttir, Sigurður Óli Þorvaldsson, Ragnheiður Sigurðardóttir, Agnes Steina Oskarsdóttir, Ævar Ragnarsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför JÓHÖNNU ÞÓRU JÓNSDÓTTUR, Suðurhólum 30. Jón Cleon Sigurðsson, Guðlaug Ólafsdóttir, Ágúst Óli Óskarsson, Vilborg Sigriður Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og útför, AXELS SVEINBJÖRNSSONAR kaupmanns, Akranesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki E-deildar Sjúkrahúss Akraness fyrir einstaka umönnun og alúð. Jóna Alla Axelsdóttir, Gunnur Axelsdóttir, Steinþór Þorsteinsson, Lovisa Axelsdóttir, Ægir Magnússon, Axel Gústafsson, Kristín Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, ÓSKARS JÓHANNS GUÐMUNDSSONAR vélstjóra frá Vestmannaeyjum, Háaleitisbraut 14, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. María Magnúsdóttir, Elín Ósk Óskarsdóttir, Anna Maggý Óskarsdóttir, Óskar Þór Arngrímsson, Arnar Már Pálmarsson, Sævar Óskarsson, Arngrímur Þorgrímsson, Pálmar Þór Snjólfsson, Eygló Björk Pálmarsdóttir, María Rós Arngrimsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.