Morgunblaðið - 23.04.1995, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 23.04.1995, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ RANNVEIG BJARNA- DÓTTIR OG SIGURÐ- UR HALLDÓRSSON + Rannveig Biarnadóttir fæddist 13. júlí 1906 á Seyðisfirði. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Skjóli 14. apríl sl. Foreldrar hennar voru Bjarni Bjarnason frá Hólmi í Landbroti og eiginkona hans Eyvör Sveinsdóttir. Sigurður Hall- dórsson fæddist á Húsavík 28. mai 1898. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 18. febrúar 1995. For- eldrar hans voru Halldór Ein- arsson sjómaður og eiginkona hans Guðrún Eldjárnsdóttir yósmóðir. Á annan jóladag 1924 gengu Rannveig og Sigurður í hjóna- band, og höfðu þvi verið gift í rúm 70 ár er þau létust með tveggja mánaða millibili á Skjóli. Þar höfðu þau dvalist allra síðustu árin. Sigurður stundaði sjómennsku framan af ævi eða til fertugs, er hann fór i land og stundaði ýmis störf eftir það. Hann var m.a. póstur á Seyðisfirði og jafnframt starfsmaður Olíufélagsins um árabil, þar til þau hjónin fluttu til Reykjavíkur 1966. Þar starf- Á föstudaginn langa lést tengda- móðir mín Rannveig Bjamadóttir á hjúkrunarheimilinu Skjóli, tæpum tveim máuðum eftir að hún fylgdi eiginmanni sínum Sigurði Halldórs- syni til grafar, en hann andaðist 18. febrúar síðastliðinn. Þar með er lokið langri lífsgöngu þessara heiðurshjóna eftir sjötíu ára farsælt hjónaband. En þeim áfanga náðu þau um síðustu jól. Eg átti því láni að fagna að vera tengdasonur þeirra í meira en f|'öru- tíu og sex ár eða frá 16. október 1948 er þau gáfu mér eina af dætr- um sínum, Bjamey og Baddý eins og ég hef alltaf kallað hana. Ekki gat ég annað merkt en að þau gerðu það með gleði og þau tóku mér strax opnum örmum. Ég vil nú, er leiðir skilja um sinn, votta þeim þakklæti mitt og virð- ingu fyrir langa og góða viðkynn- ingu. Áð leiðarlokum er margs að minnast og margt að þakka, þar era mér ofarlega í huga heimsóknir okkar hjónanna og bama okkar austur til Seyðis^arðar, þar sem þau Veiga og Siggi bjuggu lengst af. Þar var okkur tekið af mikilli hlýju og allt gert til að gera dvölina sem ánægjulegasta og eftirminni- legasta. Ekkert var til sparað, tengdamóðir mín kunni svo sannar- lega sitt fag og það varð enginn svikinn af þeim kræsingum, sem hún bar á borð fyrir okkur og aðra gesti. Bæði vora þau hjónin sérlega gestrisin og öllum sem að garði bar, hvort sem var úr næstu húsum eða lengra að komnir, var tekið með kostum og kynjum og veittur góður beini. Tengdamóðir mín hafði stórt hjarta og mátti ekkert aumt sjá. Þess nutu ýmsir sem minna + Gestur Björnsson fæddist að Brún í Reykjadal í Suð- ur-Þingeyjarsýslu 18. apríl 1924. Hann andaðist á heimili sínu í Reykjavík 7. apríl sl. Gestur var jarðsunginn frá Fossvogskirkju 18. apríl sl. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja aði Sigurður við bensínaf- greiðslu hjá Esso á meðan heilsa entist. Börn Rannveigar og Sigurð- ar eru: Guðrún, gift Gunnarí Hannessyni, Bjarney, gift Ás- birni Björnssyni, Halldór, ókvæntur, Svanhildur, sem var gift Hauki Guðmundssyni er lést 1974, sambýlismaður henn- ar er Tómas Oskarsson, Ólöf Anna, ekkja eftir Guðmund Helgason, og Ingi, kvæntur Halldóru Friðriksdóttur. Af- komendur þeirra eru um 50 talsins. Utför Sigurðar fór fram frá Fossvogskirkju 23. febrúar sl. Rannveig verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudag- inn 24. apríl og hefst athöfnin kl. 13.30. máttu sín og áttu víst athvarf í eld- húsinu hjá henni í Dagsbrún við Hafnargötuna. Þar var oft gest- kvæmt og mikið spjallað og margt sem bar á góma. Sigurður tengdapabbi var meinstríðinn og hafði gaman af að hleypa svolitlu fjöri í umræðumar með því að vera eða látast vera á öndverðri skoðun við aðra í þessum „eldhúsdagsum- ræðum“. Kom þá jafnvel fyrir að einhver nágranni fór út í fússi, ósáttur við málfhitning húsbónd- ans. Þetta risti þó aldrei djúpt og fyrr en varði féll allt í ljúfa löð, enda tengdamamma ágætur sátta- semjari. Tengdapabbi og ég voram ekki alltaf sammála í pólitíkinni og aldrei varð okkur eiginlega sundur- orða, nema þegar.stjómmál bar á góma. Þá gat hitnað í kolunum, sérstaklega þegar skammt var í kosningar. Þrátt fyrir miklar annir hjá tengdaforeldram mínum á þessum áram gáfu þau sér jafnan góðan tíma til að sinna kvabbi okkar gest- anna og barnabömin nutu þes svo sannarlega að dvelja hjá afa og ömmu. Það var í mörg hom að líta hjá Sigga tengdapabba, en bæði var að hann var líkamlega hraustur og óbilandi starfssamur að hann komst yfir að vasast í ótrúlega mörgu. Hann bar út póstinn til Seyðfirðinga um árabil og rak bensínsölu fyrir Esso, sem var erilsamt og bind- andi, þegar sinna þurfti viðskipta- vinunum allan sólarhringinn. Áuk þess fékk hann undanþágu, ófag- lærður maðurinn, frá samtökum bólstrara til að reka verkstæði þar sem hann smíðaði og bólstraði dív- ana og dýnur. Varð það góð búbót, þegar umsvifin voru sem mest á vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta biund. Far þú í friði, friður Guðs þig biessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fyigi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Kveðja, með þökk fyrir allt. Elín, Erlendur, Eydís Ylfa og Ýmir Hrafn. síldarárunum og hjálpuðust hjónin að við framleiðsluna. Smábúskap höfðu hjónin áram saman, eina kú, hænsni og nokkrar kindur. Ég minnist þess að tengdapabbi hafði mikla ánægju af fjárbúskapnumm og taldi ekki eftir sér að hlaupa á eftir rollunum sínum upp um allar brekkur og fjöll. Hann átti mjög erfítt með að leggja þann búskap niður. Þáttaskil verða hjá tengdaforeld- ram mínum fyrir um þrjátíu áram, er þau tóku sig upp og fluttu frá Seyðisfirði og settust að í Reykja- vík, þar sem flest bama þeirra vora sest að. Fyrstu árin bjuggu þau í Smá- íbúðahverfinu í nágrenni við tvær dætur sínar og fjölskyldur þeirra. En lengst af bjuggu þau í Gnoðar- vogi 48, þar sem þau höfðu keypt notalega íbúð. Sigurður starfaði áfram í nokkur ár hjá Esso, þar til hann varð að hætta vegna veikinda. Hann hafði alltaf vinnusamur verið og var afar ósáttur við að þurfa að hætta störf- um svo ungur, aðeins rúmlega sjö- tugur. Hann sætti sig þó við orðinn hlut og bar húsbændum sínum hjá Esso mjög gott orð fyrir það hve vel þeir hefðu reynst honum við starfslok. Þar hygg ég að hann hafi notið ávaxtanna af einstakri samviskusemi og trúmennsku í störfum sínum eftir að hann tók að sér rekstur bensínsölunnar á Seyðisfirði og jók stórlega markaðs- hlutdeild Esso á staðnum. Það var flarri tengdapabba að leggja upp laupana þótt á móti blési og hann neitaði að taka það alvar- lega þótt kransæðastífla. væri að hijá hann af og til. Hann var ekki fyiT kominn heim af spítalanum eftir hjartakast, en að hann sást á fullri ferð niðri í miðbæ, þar sem hann hitti gjaman gamla kunningja frá Seyðisfírði til að spjalla við. Þrátt fyrir fyrirmæli lækna að hlífa sér lét hann sig ekki muna um að hlaupa upp og niður stigana í Gnoðarvoginum. Þegar hjarta- verkimir gerðust mjög sárir stakk hann bara töflu undir tunguna og allt var gott í bili. Sigurður var lestrarhestur mikill og las ógrynni af bókum þegar störfum lauk og var víða heima. En sjóninni hrakaði smám saman og þá nýtti hann sér hljóðsnældur Blindrafélagsins, sem komu í stað bókanna. Það var eiginlega ekki fyrr en um nírætt sem veralega fór að halla undan fæti með heilsuna og síðustu 2-3 árin dvaldist hann á Hjúkran- arheimilinu Skjóli, þar sem hann naut góðrar hjúkranar. Fyrir það var hann þakklátur, en honum leiddist vistin sem eðlilegt var, þar sem hann átti erfitt með að hafa samneyti við fólk eftir að hann missti sjónina og auk þess var heymin orðin afar dauf síðustu árin. Heilsu tengdamóður minnar var mjög tekið að hraka og var hún bundin hjólastól hin síðari ár. Var hún nokkur ár á B-deild Borgarspít- alans, þar sem hún naut góðrar umönnunar hjúkrunarfólks. Hún var mjög þakklát fyrir góða hjúkran og elskulegt viðmót starfsfólksins og fékk gjarnan hrós frá því fyrir að vera góður og Ijúfur sjúklingur. Ég leyfi mér að færa þessu ágæta fólki alúðar þakkir fyrir frábæra umönnun í langvarandi veikindum. Sömuleiðis vil ég færa hjúkranar- fólki á Skjóli þakkir fyrir góða umönnun, en þar dvaldist Rannveig síðustu misserin, sem hún lifði. Ég er sannfærður um að tengda- mamma hefði óskað að skilað yrði sérstöku þakklæti til séra Ólafar Ólafsdóttur, prests á Skjóli, en hún reyndist henni afar vel. Geri ég það hér með. Bæði voru Rannveig og Sigurður andlega em og fylgdust vel með þrátt fyrir háan aldur og líkamlega hrömun. Sérstaklega var Sigurður stálminnugur og undravert hvað hann, tæplega 97 ára gamall, mundi alla skapaða hluti, bæði frá gam- alli tíð og það sem nýlega var skeð. Þau voru þakklát fyrir heimsókn- ir ættingja og vina. Eftir andlát Sigurðar hrakaði heilsu Rannveigar ótrúlega hratt og virtist sem lífslöngunin færi mjög þverrandi, uns hún andaðist á föstudaginn langa. Bæði fengu þau hægt andlát, án veralegra þjáninga, að því er virt- ist. Fyrir það eram við fjölskyldan þakklát skaparanum. í nafni okkar hjónanna, bama okkar og bamabama bið ég tengda- foreldram mínum Guðs blessunar. Hvílið í friði. Ásbjörn Björnsson. Það kom mér ekki svo mjög á óvart, þegar mér var tilkynnt and- lát ömmu minnar. Ég held að við höfum bæði vitað að við voram að kveðjast hinsta sinni, eftir útför afa 23ja febrúar síðastliðinn. Kveðju- stundin var þannig. Mér fannst eins og lífsviljinn væri horfínn hjá henni, og það er kannski ekki skrýtið, hún var að kveðja ástvin sinn og eigin- mann eftir rúmlega sjötíu ára far- sælt hjónaband. Það er ég viss um að þrátt fyrir erfíð veikindi hennar ætlaði hún ekki að fara á undan afa. Hún ætlaði að fylgja sínum manni alla leið. Það var alltaf fastur liður þegar farið var til Reykjavíkur að heim- sækja afa og ömmu, lengst af í Gnoðarvoginn, síðan á Dalbrautina og síðustu árin á hjúkrunarheimil- inu Skjóli. Það var svo sem sama á hvem staðinn við heimsóttum þau, alltaf vora móttökumar slíkar að okkur fannst við vera heimt úr helju í hvert sinn og kveðjustundirn- ar voru slíkar að það var eins og þau héldu að maður kænii aldrei aftur. Og þau töldu það ekki eftir sér að koma til Vestmannaeyja haustið 1977 til að vera viðstödd brúðkaup okkar Völu. Skelltu sér bara með ms. Herjólfi eins og þau hefðu aldrei gert annað en að fara á sjó og þau minntust oft á þá ferð og hvað það hefði nú verið gaman og hversu mikið hefði nú verið stjanað við þau þessa daga í Eyjum. Fyrir þá heimsókn verðum við Vala ævinlega þakklát. Afi og amma fylgdust vel með uppvexti og framgangi afkomenda sinna, svo vel, að mann undraði oft, því hópurinn er orðinn býsna stór. Það er gott að eiga góðar minningar og það era allar þær minningar sem ég á um afa og ömmu, hvort sem ég var bam í heimsókn á Seyðisfirði eða sem unglingur og fullorðinn maður. Við Vala og bömin viljum að leiðarlok- um þakka afa og ömmu allar ánægjustundimar sem við áttum saman og vottum ástvinum öllum samúð okkar. Björn Eyberg Ásbjörnsson. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Elsku amma og afi, takk fyrir allar ánægjustundir sem við áttum saman. Það er skrýtið að hugsa til þess að þegar við komum til Reykja- víkur þá munum við ekki hitta ykk- ur. Guð blessi minningu ykkar. Fanney Björk og fjölskylda. Þegar ég kveð elskulega ömmu mína nú svo örskömmu á eftir afa mínum, þá era svo margar minning- ar tengdar henni sem koma upp í kollinn. Elsku amma mín, þú varst sú besta amma sem nokkurt barn get- ur hugsað sér að eiga. Þú varst blíð og góð, hugulsöm og nærgæt- in, ég átti alltaf gott með að ræða málin við þig þegar ég var barn og unglingur hjá þér á Seyðisfirði. Eg var ekki há í loftinu þegar ég fór að venja komur mínar til ykkar afa á sumrin. Alltaf var mér GESTUR BJÖRNSSON tekið jafn hlýlega og er mér minnis- stæð umhyggja þín fyrir mér. Sér- staklega kemur upp í hugann fullt glas af flóaðri mjólk sem þú lést mig drekka við komuna. Þú hafðir ofurtrú á að hún gerði mér gott eftir langt og erfitt ferðalag, stund- um með snjóbíl yfir heiðina. En þótt ég kúgaðist yfir volgri mjólk- inni einsetti ég mér að niður skyldi hún, því ekki vildi ég særa þig amma mín. í huga mér var alltaf sól á Seyðis- firði þegar ég var þar, enda leið mér svo vel. Það var svo gaman að leika sér í garðinum þínum, enda garðurinn svo fallegur með hinum ótrúlegustu gerðum af blómum, tijám og rósum. Mikið fannst mér gaman að hjálpa þér í garðinum og bý ég að þeirri kennslu sem ég fékk hjá þér á þessum árum, nú þegar ég er komin með minn eigin garð. í litla skotinu neðst í garðin- um gátum við Hjördís frænka unað okkur tímunum saman við búleik, þú varst óspör við að lána okkur gamla bolla og dót, svo og gömul föt sem við klæddumst og höfðum mikið gaman af. Oft verður mér hugsað til þín amma mín þegar ég er við vinnu á mínu heimili þar sem er sjálfvirk þvottavél, þurrkari og uppþvotta- vél. Þú með þetta stóra heimili og mikinn gestagang, hvemig þér ent- ist sólarhringurinn, svefntíminn hefur varla verið langur. Minnist ég þess þegar ég var um ellefu ára og farin að vinna við að breiða salt- fisk sem var hinum megin við fjörð- inn. Ef þurrkur var og koma skyldi til vinnu var flaggað með hvítu flaggi eldsnemma, minnir mig að það hafi verið um sex leytið. Alltaf læddist þú inn þar sem ég svaf í stofunni og leist út um gluggann til að athuga hvort ég ætti að mæta. Þú hefðir getað látið mig vakna sjálfa við klukkuna, nei, ekki þú amma mín. Ýmist sagðir þú við mig, „þú mátt sofa áfram Ransý mín“ eða „það er vinna í dag“, þá settist ég upp á hjólið mitt og hjól- aði af stað, að sjálfsögðu með gott nesti fyrir daginn, sem þú útbjóst handa mér. Aldrei heyrði ég þig kvarta yfir skítugu vinnufötunum sem þurfti að þvo af mér við slæm- ar aðstæður. Ekki batnaði það þeg- ar ég varð eldri og var komin í síld- arvinnuna með öllu slorinu sem henni fylgdi. Þegar ég hugsa til baka koma ýmsar myndir upp í hugann, amma mín. Ég minnist hænsnakofans uppi í hlíðinni fyrir ofan húsið. Sé þig fyrir mér við eldhúsvaskinn að vigta egg í brúna bréfpoka á eldhúsvigt- inni, því nýorpin eggin vora vinsæl af nágrönnunum. Hef ég gran um að ekki hafi verið smurt á þá sölu, alla vega ekki fyrir þá sem bágt áttu. Eg minnist þess þegar þú sendir mig einu sinni sem oftar með dallinn, sem þú safnaðir matarleif- unum í, upp í hænsnakofa að gefa hænunum og sækja egg í leiðinni, að haninn brást ókvæða við og hjó í hausinn á mér. Þú að krafla í grænmetisgarðin- um, þar sem þú ræktaðir allt mögu- legt grænmeti. Það var einstakt lag sem þú hafðir á öllum jurtum, ekki síst inniblómunum sem fylltu alla glugga. Hvemig þú fékkst blómin til að blómstra allt árið er mér hul- in ráðgáta, þér var kappsmál að eiga sem flestar tegundir og fylgd- ist ég með þegar þið vinkonurnar skiptust á afleggjurum hver hjá annarri. Sérstakt dálæti hafðir þú á pelargoníum í öllum litum og hef ég erft þann áhuga frá þér. Gaman var að fara með þér þegar Esjan kom með sumarblómin, þá flykkt- ust konumar niður á bryggju og versluðu í garða sína og glugga. Þú á sfldarárunum við sauma í kjallaranum með afa tímunum sam- an, hann að bólstra dívana fyrir síldarbraggana og þú að sauma áklæðið. Það var ótrúlegt hve miklu þú komst í verk, þú bakaðir heil býsn líka svo alltaf var nóg til með kaffinu. Ég þori að veðja að enginn getur nokkra sinni bakað eins góð- ar kleinur og þú, eða klatta og skonsur. Uppskriftin var engin,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.