Morgunblaðið - 23.04.1995, Page 8
8 SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
_____________STJORWARMYMPUW_________
STEFNUYFIRL ÝSING
RÍKISSTJÓRNAR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS
OG FRAMSÓKNARFLOKKS
Hér á eftir fer stefnuyfirlýsing ríkisstjómar
Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins,
sem kl. 16 í gær, laugardag, var lögð iyrir æðstu
stofnanir beggja flokkanna.
FRÁ stjórnarmyndunarviðræðum forystumanna flokkanna. F.v. Guðmundur
Bjarnason, varaformaður Framsóknarflokksins, Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, Jón Sveinsson, lögmaður og annar ritstjóra stefnuyfirlýsing-
arinnar (ásamt Hreini Loftssyni), Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, og Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
MEÐ MYNDUN ríkisstjórnar Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks hefst ný fram-
farasókn þjóðarinnar. Undirstöður velferðar
verða treystar og sköpuð skilyrði fyrir bættri
afkomu heimilanna í landinu. Áhersla verður
lögð á samheldni þjóðarinnar, samvinnu
vinnuveitenda og launþega, dreifbýlis og þétt-
býlis. Efnahagslegur stöðugleiki og jafnvægi
í ríkisfjármálum eru forsenda framfara, lágra
vaxta, öflugs atvinnulífs og atvinnuöryggis.
Framtak einstaklinga verður virkjað í þágu
aukinnar verðmætasköpunar. Á þann hátt
verður stuðlað að hagsæld, félagslegum
umbótum og afkomuöryggi. Vegur menntun-
ar og rannsókna verður aukinn, en það er
forsenda nýsköpunar í atvinnulífinu. Unnið
verður að markaðssókn fyrir íslenskar vörur
og þjónustu á erlendum mörkuðum, sam-
starfi við erlend fyrirtæki og þjóðir svo og
fjárfestingu erlendra aðila á Islandi. Ný upp-
lýsingatækni verður nýtt í þágu efnahags-
legra framfara og uppbyggingar í atvinnulíf-
inu, vísindarannsókna, lista og hvers kyns
menningarmála.
Með aðgerðum sínum á kjörtímabilinu
hyggst ríkisstjórnin gera landsmönnum kleift
að ganga bjartsýnir og með reisn inn í 21.
öldina.
Meginmarkmið ríkisstjórnar Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks eru þessi:
• Að viðhalda stöðugleika í efnahagsmálum
og skapa skilyrði fyrir hagvöxt. Hagstætt
raungengi og sambærilegir vextir og í
helstu samkeppnislöndum eru undirstaða
öflugs atvinnulífs og forsenda þess að
störfum fjölgi. Með auknum fjárfestingum
og nýsköpun í atvinnulífi verður unnið
gegn atvinnuleysi.
• Að ná jafnvægi í ríkisfjármálum á kjör-
tímabilinu. Áhersla verður lögð á ráðdeild
og að treysta stoðir velferðarinnar. I þeim
tilgangi er brýnt að stöðva sjálfvirkni í
útgjöldum ríkissjóðs. Unnið verður að kerf-
isbreytingum í þeim tilgangi að nýta sem
best fjármuni sem varið er til heilbrigðis-
og menntamála, einstakra atvinnugreina
og opinberra framkvæmda. Kannað verður
hvort lífeyrissjóðir geti leyst af hólmi ein-
staka þætti almannatryggingakerfisins.
Teknar verða upp viðræður við sveitarfé-
lögin um alvarlegan hallarekstur þeirra og
leiðir til að bregðast við þeim vanda.
• Að vinna að nýskipan í ríkisrekstri, t.d.
með auknum útboðum, sameiningu stofn-
ana, þjónustusamningum, breyttu launa-
kerfí og aukinni ábyrgð stjórnenda. Stefnt
verður að meiri hagkvæmni við opinberar
framkvæmdir. Unnið verður að því að
gera ríkisrekstur einfaldari en um leið
skilvirkari. Aðstöðumunur verður jafnaður
þar sem ríkið stundar atvinnurekstur í
samkeppni við einkaaðila. Arðsemiskröfur
verða gerðar til fyrirtækja ríkisins.
• Að taka upp samstarf við aðila vinnumark-
aðarins um endurskoðun á skattkerfinu
með það að markmiði að draga úr skatt-
svikum, lækka jaðarskatta, einfalda skatt-
kerfíð og auka jafnræði innan þess. Með
skattaívilnunum verður almenningur
hvattur til að leggja áhættufé í atvinnufyr-
irtæki. Undirbúningi þessara skattabreyt-
inga verður lokið á árinu 1996. Skattalegt
umhverfí fyrirtækja verði eins og best
gerist í samkeppnislöndum þannig að ekki
þurfí að gera sérsamninga við erlend fyrir-
tæki um skattaafslætti til að þau fáist til
að starfa hér á landi.
• Að leggja fram áætlun um verkefni á sviði
einkavæðingar sem unnið verður að á kjör-
tímabilinu. Ahersla verður lögð á að breyta
rekstrarformi ríkisviðskiptabanka og fjár-
festingarlánasjóða. Það á einnig við um
fyrirtæki og stofnanir í eigu ríkisins sem
eru í samkeppni við einkaaðila. Unnið verð-
ur að sölu ríkisfyrirtækja á kjörtímabilinu
í samræmi við ákvarðanir Alþingis.
• Að tryggja stöðug og góð rekstrarskilyrði
útflutningsgreina og stuðla að nýsköpun
og sókn í vöruþróun og markaðssetningu.
Að mestu er byggt á aflahlutdeildarkerfi
í sjávarútvegi, en banndagakerfí svo-
nefndra krókabáta verður tekið til endur-
skoðunar. Skapað verður svigrúm til að
rétta hlut þeirra aflamarksbáta sem harð-
ast hafa orðið úti vegna minnkandi þorsk-
afla. Öflugar líffræði- og hagkvæmnirann-
sóknir eru forsenda skynsamlegrar fisk-
veiðistjómar og eðlilegrar þróunar hennar.
Sérstök áhersla verður lögð á að bæta
umgengni um auðlindir sjávar. Tryggja
þarf hagsmuni íslands varðandi veiðar
utan fiskveiðilögsögunnar með því að afla
málstað íslands fylgis á alþjóðavettvangi
og með samningum við aðrar þjóðir. Stefnt
er að því að festa í stjómarskrá ákvæði
um að auðlindir sjávar séu sameign ís-
lensku þjóðarinnar og að stjórn fiskveiða
og rétti til veiða skuli skipað með lögum.
• Að taka búvörusamninginn frá 1991 til
enduskoðunar, sérstaklega með tilliti til
þess mikla vanda sem sauðfjárbændur
standa frammi fyrir. Skapað verður svigrúm
til aukinnar hagræðingar í landbúnaði og
úrvinnslugreinum hans og gripið til þeirra
hliðaraðgerða sem óhjákvæmilegar era. í
því sambandi er mikilvægt að taka tillit til
hagsmuna neytenda. Treysta verður tekju-
grundvöll bænda. í því felst m.a. að losa
um framleiðsluhömlur og auka sveigjan-
leika í framleiðslustjóm, stuðla að nýsköpun
og fjölbreyttari atvinnu til sveita og auð-
velda bændum breytingar á búháttum eða
búskaparlok. Átak í útflutningi landbúnað-
arafurða verður stutt, sérstaklega á grand-
velli nýrra laga um vöraþróun og markaðs-
sókn sem byggist á hreinleika og hollustu
afurðanna. Rannsóknir og þróunarstarf á
þessum sviðum verður eflt. Unnið verður
að gróðurvemd og landgræðslu með það
að markmiði m.a. að stöðva landeyðingu.
Áherslur í landgræðslu og skógrækt miðist
jafnframt við að auka hlut bænda í fram-
kvæmdum. Verkefnum verður raðað með
það fyrir augum að mæta samdrætti í hefð-
bundnum búskap.
• Að efla byggð í landinu með traustum og
góðum samgöngum þannig að gæði lands-
ins og aðrar auðlindir til lands og sjávar
nýtist með hagkvæmum hætti. Með verk-
efnaflutningi frá ríki til sveitarfélaga og
ákvörðun um staðsetningu opinberra stofn-
ana verður stuðlað að eflingu þjónustu-
kjama. Unnið verður að lækkun húshitun-
arkostnaðar. Starfsemi og skipulag
Byggðastofnunar, Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs og atvinnuráðgjafa verður tekið
til endurskoðunar í því skyni að þessir
aðilar geti í sameiningu stuðlað að sókn
og uppbyggingu atvinnulífsins um land
allt.
• Að tryggja öllum tækifæri til náms án til-
lits til búsetu o g efnahags. Þörfum einstak-
linga fyrir endurmenntun og fullorðins-
fræðslu verður sinnt. Flutningi grannskóla
til sveitarfélaga verður lokið í samkomu-
lagi við þau og í samráði við samtök kenn-
ara. Framhaldsskólar verða efldir, ekki
síst starfsnám og verkmenntun. Unnið
verður áfram að uppbyggingu og þróun
Háskóla íslands, Háskólans á Akureyri og
listnáms á háskólastigi. Öflugt rannsókna-
og þróunarstarf er forsenda framfarasókn-
ar í íslensku atvinnulífi. Nýta verður sem
best fjármagn sem varið er í því skyni og
tryggja að bæði nýjar og hefðbundnar at-
vinnugreinar eigi jafnan aðgang að rann-
sóknafé. Lög og reglur um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna verða endurskoðuð.
Nýsköpunarsjóður námsmanna verður
studdur og þátttaka námsmanna í rann-
sóknastarfi verður aukin.
• Að standa vörð um íslenska tungu og þjóð-
menningu og stuðla eins og kostur er að
öflugu lista- og menningarlífi sem aðgengi-
legt sé öllum landsmönnum. Stuðningur
við menningarstarfsemi miðist við að efla
skilning íslendinga á eigin menningu,
ávaxta menningararfleifð þjóðarinnar og
auka þekkingu landsmanna á menningu
annarra þjóða.
• Að lánstími húsnæðislána frá Húsnæðis-
stofnun verði breytilegur þannig að í stað
25 ára eins og nú er verði hann á bilinu
15-40 ár. Sérstök áhersla verður lögð á
að hjálpa ungu fólki til þess að eignast
sína fyrstu íbúð. Þeim sem greiða af eldri
fasteignaveðbréfum Húsnæðisstofnunar
verður gefínn kostur á lengingu lána.
Stuðlað verður að því að einstaklingar, sem
eiga í alvarlegum greiðsluerfiðleikum, hafi
möguleika á því að ná tökum á fjármálum
sínum. Stefnt verður að því að flytja al-
menna húsnæðislánakerfið frá Húsnæðis-
stofnun yfír í bankakerfíð.
• Að stuðla að hagkvæmni og auka fjöl-
breytni í rekstri heilbrigðisstofnana. Lögð
verður sérstök áhersla á þátt forvarna- og
fræðslustarfs í heilbrigðismálum, þ. á m.
til að draga úr neyslu vímuefna. Komið
verður á markvissara samstarfí og verka-
skiptingu milli sjúkrahúsanna í landinu.
Sett verða ný lög um almannatryggingar
þar sem réttur þeirra sem raunveralega
þurfa á bótum að halda verður betur
tryggður en nú er. Tryggingastofnun verð-
ur gerð virkari í eftirliti með útgreiðslum
og sjúkratryggingum, svo og þeirri þjón-
ustu sem stofnunin kaupir.
• Að endurskoða vinnulöggjöfina með það
að markmiði að stuðla að stöðugleika,
ábyrgð samningsaðila og auknum áhrifum
einstakra félagsmanna í stéttarfélögum.
• Að treysta starfsgrundvöll lífeyrissjóða-
kerfisins þannig að allir landsmenn njóti
sambærilegra lífeyrisréttinda. Tryggja
þarf aukið valfrelsi í lífeyrissparnaði og
innleiða samkeppni milli lífeyrissjóða. Sett
verða almenn lög um starfsemi lífeyris-
sjóða þar sem m.a. verða tryggð bein áhrif
sjóðsfélaga á stefnumörkun og stjórn sjóð-
anna. Einnig verða sett lög um stöðu og
hlutverk séreignasjóða lífeyrisréttinda.
Leitað verður samkomulags við lífeyris-
sjóði um að þeir veiji auknum hluta af
árlegu ráðstöfunarfé sínu til fjárfestingar
í atvinnulífinu.
• Að vinna gegn launamisrétti af völdum
kynferðis. Stuðlað verður að jafnari mögu-
leikum kvenna og karla til að njóta eigin
atorku og þroska hæfileika sína.
• Að endurskoða kosningalöggjöfina með
það fyrir augum að hún verði einfaldari
og tryggi jafnara vægi atkvæða milli kjör-
dæma.
• Að setja reglur er tryggi aðgang borgar-
anna að upplýsingum hjá stjórnvöldum.
Dregið verði úr skrifræði í samskiptum
borgaranna við stjórnvöld og óþarfa laga-
og reglugerðarákvæði verða afnumin.
Þjónusta ríkisins verði sniðin að nútíma
tækni, t.d. með nettengingu þjónustustofn-
ana og pappírslausum tollviðskiptum.
Tryggt verður að eftirlitsaðilar íþyngi fyr-
irtækjum ekki um of með starfsemi sinni.
• Að stuðla að vexti íþrótta- og æskulýðs-
starfs með hag fjölskyldunnar að leiðar-
ljósi. Forvarnir og löggæsla verður efld til
verndar borgurunum.
• Að vinna í samstarfi við þjóðkirkjuna og
aðra kristna söfnuði að því að efla jákvæð
áhrif trúarlífs með þjóðinni, ekki síst í til-
efni þess að um næstu aldamót verða 1.000
ár liðin frá kristnitöku.
• Að móta heildarstefnu í samvinnu við full-
trúa atvinnulífsins um upplýsingatækni og
miðlun er miði að þvi að auka framleiðni
og samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja.
• Að taka virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi
um mengunai-varnir og verndun lífrikis
sjávar. Unnið verður að markvissari endur-
vinnslu og endurnýtingu. Stuðlað verður
að bættri ferðaþjónustu er falli vel að
umhverfissjónarmiðum. Áhersla verður
lögð á að Island hafi ímynd hreinleika og
umhverfisverndar.
• Að vinna að frekari erlendri fjárfestingu í
atvinnulífinu. Markaðsstarfsemi verður
efld með því að styrkja starfsemi Útflutn-
ingsráðs, Ferðamálaráðs og Markaðsskrif-
stofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkj-
unar. Utanríkisþjónustan mun leggja meiri
áherslu á að kynna möguleika erlendra
fjárfesta hérlendis. Unnið verður áfram
að undirbúningi orkufreks iðnaðar. Lög
um erlenda fjárfestingu verða endurskoðuð
í því skyni að laða að erlent fjármagn.
• Að treysta samskiptin við Evrópusamband-
ið á grundvelli samningsins um Evrópska
efnahagssvæðið, fylgjast náið með þróun
mála innan sambandsins á næstu misser-
um og kynna íslenska hagsmuni fyrir aðild-
arríkjum þess. Áhersla verður lögð á að
tryggja viðskiptasamstarf og önnur sam-
skipti íslands við Bandaríkin. Kannaðar
verða hugmyndir, sem fram hafa komið,
um fríverslunarsamstarf Bandaríkjanna og
annarra Atlantshafsríkja og hvort í þeim
felist sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki.
Áhersla verður lögð á markaðssókn um
allan heim og leitað leiða til að virkja ís-
lenskt framtak til verkefna á erlendum
vettvangi. Þau tækifæri til alþjóðavið-
skipta, sem leiðir af aðild íslands að Al-
þjóðaviðskiptastofnuninni, verða nýtt. Að-
ildin að Atlantshafsbandalaginu og varnar-
samstarfið við Bandaríkin verða áfram
þungamiðja öryggisstefnu þjóðarinnar, en
áhersla er lögð á að efla þátttöku íslands
í því víðtæka pólitíska samráði sem fram
fer á vettvangi bandalagsins. Þá er lögð
áhersla á þýðingu norræns samstarfs og
þátttöku íslands í starfi Sameinuðu þjóð-
anna og Oryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu. íslendingar munu vinna að stofn-
un Norðurheimskautsráðs sem verði vett-
vangur samráðs og samhæfíngar þeirra
ríkja sem eiga hagsmuna dð gæta á norður-
heimskautssvæðinu, sérstaklega á sviði
umhverfis- og auðlindanýtingar.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks mun láta útbúa verkefnaskrá
fyrir einstök ráðuneyti þar sem gerð verður
grein fyrir þeim verkefnum sem ríkisstjórnin
hyggst ljúka á kjörtímabilinu. Verkefnaskrá-
in verður lögð fyrir Alþingi á haustþingi 1995.