Morgunblaðið - 23.04.1995, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 9
FRÉTTIR
Jóhann
mætir
Tisdall
í dag
JÓHANN Hjartarson teflir við Jon-
athan Tisdall frá Noregi í síðustu
umferð aukakeppninnar um sæti á
millisvæðamóti. Daninn Lars Bo
Hansen mætir Piu Cramling, Svíþjóð
og Heigi Ólafsson teflir við Rune
Djurhuus, Noregi. Staðan á mótinu
þegar tveimur umferðum var ólokið
var þessi: 1. Jóhann 2Vi v. 2. Tisd-
all 2 v. 3. Hansen 2 v. 4. Djurhuus
Vh v. 5. Pia Cramling Vi v. 6. Helgi j
Ólafsson Vi v.
Tisdall nægir að vera jafn Jó-
hanni að vinningum, því hann var
hærri á stigum á Norðurlandamótinu
sjálfu. Hins vegar dugar Jóhanni að
verða jafn Lars Bo Hansen. Næstsíð-
ustu umferð mótsins átti að tefla á
laugardagskvöld. Það fer fram á
Grand Hótel Reykjavík við Sigtún.
Umferðin í dag hefst kl. 13.
Þegar tvær umferðir eru ótefldar
á minningarmótinu um Mikhail Tal
í Riga í Lettlandi stendur Gary Ka-
sparov langbest að vígi. Hann hefur
6 v. af 8 mögulegum og á eftir að
tefla tvær skákir. Vasilí Ivantsjúk
frá Úkraínu hefur einnig 6 v. en á
aðeins eina skák eftir. Indverjinn
Anand er þriðji með 5 v. og tvær
skákir ótefldar.
-----♦--------
Tónleikar í
Skálholti
Selfossi. Morgunblaðið.
KÓR Fjölbrautaskóla Suðurlands
heldur tvenna tónleika nú um helg-
ina. Fyrri tónleikarnir voru í Selfoss-
kirkju í gær en þeir síðari verða á
sunnudag í Skálholtskirkju klukkan
17.00.
A söngskránni eru íslerisk og er-
lend lög, þjóðlög og kirkjutónlist.
Fyrirhugað var að halda kóramót í
Skálholti nú í vor en vegna kennara-
verkfalls féli það niður en kór Fjöl-
brautaskólans náði að halda sínu
striki með æfingar og mun flytja
þau lög sem ætluð voru kóramótinu.
I kórnum eru 60 kórfélagar og mik-
ið starf er á hveijum vetri í kringum
sönginn í skólanum. Nemendur sem
taka þátt í kórstarfi fá það metið
til eininga í skólanum.
Stjórnandi kórsins er Jón Ingi
Sigurmundsson og undirleikari
Vignir Þór Stefánsson. Kristjana
Stefánsdóttir syngur einsöng á tón-
leikunum bæði með kórnum og sjálf-
stætt.
-----♦ ♦ ♦-----
Sigmund í frí
HLÉ verður á skopmyndum Sig-
mund fram i miðjan maí, þar sem
teiknarinn verður í fríi þennan
tíma.
-----♦ ♦ ♦-----
Þær Rannveig, Helena og Hafdís fóru á
fitubrennslunámskeið fyrir einu ári. Samtals misstu
þær 38 kíló og hafa haldið þeim árangri.
Komdu og vertu með á þessu frábæra námskeiði.
Flestar ná að missa 5-10 aukakíló og læra að
halda þeim árangri varanlega! t
3lefot2.maL
Þjálfun 3-5x í viku
Fitumælingar og viktun
Matardagbók
Uppskriftabæklingur að fitulitlu fæði
Mappa m. fróðleik og upplýsingum
Mjög mikið aðhald
Vinningar dregnir út í hverri viku
Frítt 3ja mán. kort fyrir þær 5
samviskusömustu!
Framhaldshópur
- fyrir allar þær sem
hafa verið áður á
námskeiðunum okkar.
Nýtt fræðsluefni.
Mikið aðhald.
Morgunhópur
Daghópur
Kvöldhópar
Barnagæsla
Skráning í síma
68-98-68
ÁGÚSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 689868
8-vikna fitubrennslunámskeið
-6 kg
-20 kg
-12 kg
Messa í Digra-
neskirkju
MESSAÐ verður í Digraneskirkju í
dag, sunnudag, eins og hér segir:
Barnaguðsþjónusta verður klukkan
11. Guðsþjónusta verður klukkan 14.
í tilefni af 300ustu Raynor hurðinni uppsettri á íslandi
VERKVER
j
1 1
1
bjóða Raynor og Verkver
nú 1 5% afslátt af öllum
bílskúrshuröum pöntuðum
fyrir 28. apríl
VerSdæmi: FulningahurS 21 3 x 244 cm lcr* 55.005,-. Innifalið í verði eru brautir og þéttilistar.
1
H
BYGGINGAVÖRUR
Siðumúla 27, 108 Reykjavik
S 581 1544 • Fax 581 1545