Morgunblaðið - 23.04.1995, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. APRÍL1995 83
MINNINGAR
bara svolítið af þessu og svolítið
af hinu, þannig að mér tókst aldrei
að fá hana, því miður.
En þótt minningarnar frá Seyðis-
firði séu mér hugleiknar þá gleymi
ég ekki heldur árunum sem þið
bjugguð í Reykjavík, hve gott var
að koma til ykkar afa í Gnoðarvog-
inn og fá nýbakað með kaffínu.
Alltaf sömu hlýlegu móttökurnar,
nú voru komin barnabarnabörn til
sögunnar sem einnig fengu að njóta
ástúðar frá langömmu og langafa.
Það eru ekki mörg börn sem eru
svo heppin að eiga bæði langömmu
og langafa á lífi svo lengi og mín
börn hafa átt og koma þau til með
að sakna ykkar afa mikið.
Elsku amma mín, mig langar að
þakka ykkur afa allt sem þið gerð-
ur fyrir mig, alla ást og umhyggju
sem þið sýnduð mér ætíð. Ég á
ykkur margt að þakka og geymi
minninguna um yndislega ömmu
og afa í hjarta mér ætíð. Nú veit
ég að ykkur líður vel þar sem þið
eruð saman. Guð blessi ykkur og
varðveiti.
Ykkar elskandi barnabarn,
Rannveig Ásbjörnsdóttir.
Mig langar að minnast
. langömmu minnar, Rannveigar
Bjarnadóttur, sem lést á föstudag-
inn langa. Það eru aðeins tveir
mánuðir síðan langafi dó og hún
' hefur áreiðanlega saknað hans mik-
ið, enda voru þau búin að vera gift
í sjötíu ár.
Ég var svona átta eða níu ára
þegar ég fór að ná mér í bækur á
bókasafnið og fara með þær til
langömmu og langafa þar sem ég
sat svo tímunum saman og las. Þar
, gat ég verið ótrufluð og fengið
mjólk og köku hjá langömmu eins
og ég gat í mig látið.
Eftir því sem ég eltist fækkaði
heimsóknunum til þeirra en alltaf
var tekið jafn hlýlega á móti mér
og mínum þegar við komum. Þegar
eldri sonur minn var nýfæddur varð
langafi níræður og er það í eina
skiptið sem tókst að ná öllum fimm
ættliðunum saman á eina mynd en
því miður er ekki til mynd af okkur
3 með yngri drenginn.
Þrátt fyrir slæma heilsu og háan
aldur mundi langamma alltaf nöfn-
in á öllum í fjölskyldunni þó að
ættliðirnir væru orðnir fimm, og
henni þótti gaman að sjá langa-
langömmubörnin sín þó að það
væri því miður alltof sjaldan.
Ég vona að hún sé búin að hitta
langafa aftur og bið góðan Guð að
blessa minningu þeirra. Hvíl í friði,
elsku langamma.
Dagmar.
Ég vil minnast kærrar vinkonu,
Rannveigar Bjarnadóttur, sem lést
í hárri elli 14. apríl síðastliðinn.
Margs er að minnast og minning-
arnar eru mér ljúfar og kærar. Eg
minnist þess þegar ég var lítil stelpa
austur á Seyðisfirði að það þurfti
að koma mér í fóstur, tímabundið,
vegna veikinda móður minnar. Ég
lít á það sem mikið lán fyrir mig
að sæmdarhjónin Rannveig og mað-
ur hennar Sigurður Halldórsson
skyldu taka mig að sér.
Ég var rúmlega þriggja ára þeg-
ar þetta var og ég man að mér var
tekið opnum örmum og ég boðin
velkomin. Þau hugsuðu frábærlega
vel um mig og sýndu mér ástúð og
umhyggju. Þama mynduðust sterk
vináttubönd, rætur þess trausts sem
hefur haldist alla tíð. í endurminn-
ingunni finnst mér eins og ég hafi
verið lítil prinsessa hjá þeim.
Heimili þeirra var afar fallegt og
snyrtilegt, jafnt innan dyra sem
utan. Þau hjón voru með búskap
eins og títt var í þá daga og ég
man óljóst eftir nokkrum Seyðfirð-
ingum sem keyptu af þeim mjólk
og egg. Einnig komu margir og
heimsóttu Rannveigu þegar fólk
verslaði úti í gamla Þórshamri og
seinna meir í ytra kaupfélaginu sem
var við hliðina á húsinu þeirra. Allt-
af var tekið á móti fólki af mikilli
gestrisni og voru það margir sem
þáðu góðgerðir hjá henni. Rannveig
var mild og hlý og laðaði að sér
fólk með elsku sinni, hún var góð
og skemmtileg, sannkallaður mann-
vinur.
Rannveig var ekki alltaf heilsu-
hraust um ævina og hún þekkti
andstreymi lífsins, því var gott að
leita til hennar ef eitthvað bjátaði
á. Hún sýndi best hversu sterk og
yfirveguð hún var, þegar þau hjón-
in urðu að vera aðskilin í rúm þijú
ár vegna veikinda þeirra beggja.
Síðasta eina og hálfa árið sem þau
lifðu voru þau saman á Skjóli þar
sem þau nutu allrar þeirrar umönn-
unar sem gamalt og veikt fólk þarf
með. Eftir að Sigurður lést hrakaði
heilsu Rannveigar enn meir og liðu
ekki nema tæpir tveir mánuðir á
milli dánardægra þeirra. Þau höfðu
verið gift í 70 ár og var samband
þeirra fallegt og gott, þau eignuð-
ust sex börn sem öll eru á lífi og
reyndust þau foreldrum sínum ein-
staklega vel. Það var fallegt að
fylgjast með því hversu vel þau
hlúðu að foreldrum sínum í ellinni
og kom þá í ljós samheldni fjölskyld-
unnar.
Ég vil að lokum þakka fýrir mig
og þær dýrmætu stundir sem ég
átti með þeim Rannveigu og Sig-
urði. Börnum þeirra, tengdabömum
og afkomendum öllum sendi ég
samúðarkveðjur.
Guð blessi minningu Rannveigar
Bjarnadóttur.
Álfhildur Erlendsdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðrí
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta-
skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
Senda má greinar til blaðsins á netfang
þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs-
ingar þar um má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina og hálfa örk
A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línuiengd — eða 3600-4000 slög. Höf-
undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN HF
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562U1540
Vesturbær - Kóp. - einb.
Höfum til sölu einbhúsið nr. 14 við Borgarholtsbraut í
Kópavogi. Húsið er einlyft 135 fm. 4-5 svefnherb. Park-
et á öllu. 29 fm bílskúr. Góð afgirt lóð. Stórkostlegt
útsýni. Verð 11,5 millj.
■ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteignasali. Ólafur Stelánsson, viðsk.fr. og lögg. fasteignasali
mhmm É FASTEIGNAMARKAÐURINN HF mmmmmammmmmm^
j Einbýlishús tii söiu
Til sýnis og sölu í dag kl. 14.00 - 17.00
Þetta eru þrjú einbýlishús, byggð úr timbri, og eru í
Starengi 108-112 (rétt við golfvöllinn á Korpúlfsstöðum).
Húsin eru á einni hæð, íbúðin er 130 fm,
en bílskúr 35 fm. Hvert hús er samtals
165 fm. Húsin innihalda 2-3
svefnherbergi, stofu, baðherbergi,
eldhús, þvottahús, geymslu og anddyri.
Húsin seljast fullfrágengin, bæði að utan
og innan, að undanskyldum gólfefnum
og veggflísum. Öll tæki fylgja. Öll gjöld
eru.greidd. Gangstétt og bílastæði fyrir
framan bílskúr verða lögð hellum með
hitalögn.
Hús nr. 108 er nú tilbúið til
afhendingar. Málning að utan og
hellulögn verður frágengin í júní.
Hús nr. 110 og 112 verða til
afhendingar í júní-júlí, eða eftir
samkomulagi.
Verð á Starengi 108 er kr. 13.050.000.
Húsnæðismálalán fylgir ca. kr.
6.275.000. Eftirstöðvar samkvæmt
samkomulagi kr. 6.775.000.
Afföll húsbréfa eru innifalin í
söluverði.
Smiðsbúð,
Smiðsbúð 8, Garðabæ, sími 656300,
Sigurður Pálsson.
TILSÖLUÁHELLU
Glæsilegt tvílyft einbhús á góðum stað. Stór og rúmgóð
eign. Innbyggður bílskúr.
Sérlega vandað atvinnuhúsnæði. Stærð 350 fm.
Hentar fyrir margs konar starfsemi.
Höfum á söluskrá ýmsar gerðir fasteigna á Hellu,
Hvolsvelli og víðar.
If
Félag
Fasteignasala
Þrúðvangi 18, Hellu,
sfmi 98-75028.
hÓLl
FASTEIGN ASALA
® 10090
SKIPHOLTI 50B,
2. hæð til vinstri
Athugið. Höfum kaup-
anda að 700 fm lager- og skrif-
stofuhúsn.
LEIGU M IÐLUIM
Guðlaugur Örn Þorsteinsson,
rekstrarverkfræðingur, sölumaður,
veitir ailar upplýsingar um
neðangreind húsnæði.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til sölu
Miðborgin - Óðinsgata.
Opið 110 fm skrifstofurými á 3. hæð
með útsýni yfir Óðinstorg. Teikni-
stofa í dag. Húsnæðið skiptist I 3
rými ásamt kaffistofu. Verð 5,2 millj.
Ekkert áhv.
Hraunberg - Breiðholti.
Um 200 fm á 2. hæð í verslunar-
kjarna í Breiðholti auk 80 fm I risi. Á
2. hæð var áður Jassballettskóli
Báru, en risið opið rými með parket
á gólfum. Hvorutveggja iaust til afh.
í tengslum við Ballettskólann var og
er nuddstofa og í risinu er sólbaðs-
stofa. Verð samt. 9,5 millj.
Lyngás - Garðabæ. Hag-
kvæmt 50 fm iðnaðarpiáss með
innkdyrum, góðri lofthæð og snyrt-
ingu. Verið er að leggja síðustu hönd
á húsnæðið sem verður skilað í topp-
standi. Verð 2,4 millj. Áhv. 1,4 millj.
Trönuhraun - Hafnar-
fjörður. Um 339 fm skrifstofu-
húsn. á 2. hæð þar sem áður var
Fiskvinnsluskólinn. Húsnæðið er
með sérinng. og skiptist í móttöku,
4 kennslustofur, 3 skrifstofur og
kari- og kvennasnyrtingu.
Verslunarpláss - mið-
borgin. Lítið og nett 64 fm versl-
unarhúsn. á Hverfisgötu. Auðveld
aðkoma. Verð 3,9 millj. Hagst. áhv.
lán 2 millj.
Skútuvogur - Heild
3. Tvær saml. ólnnr. 185 fm
einingar á jarðh. m. tvennum
innkeyrsludyrum samt 370 fm.
Allt mjög snyrtilegt. Gáma-
stæði á lóð og næg bílastæði.
Selst f einlngum eöa í einu
lagi. Ahv. 9,7 miHj.
Súðarvogur. iðnhúsn. á
tveimur hæðum ásamt risi. Jarðh.
90 fm er eitt opið rými m. innkdyr-
um. 2. hæðin 90 fm er einnig eitt
opið rými m. hleðsludyr og talíu.
Nýtt rafm. og gler og nýl. klætt að
utan. Verð 7,3 mlllj. Ekkert áhv.
Vatnagarðar. Óinnr. 654 fm
skrifstofurými á 2. hæð. Húsn. er
bjart og getur hentað allri skrifst-
starfsemi sérstaklega þeirri sem
tengist höfninni. Góð aðkoma og
næg bílastæði.
Vagnhöfði vei utbuið 431 fm
iðnaðarhúsn. á tveimur hæðum. Efri
hæð að hluta til nýtt sem lager.
Fullinnr. aðst. fyrir starfsfólk. Öflugt
hita og loftræstikerfi. Þjófavörn.
Innkdyr. Gott útipláss. Verð 15,2
millj. Áhv. 6 millj.
Tangarhöfði. Iðnhúsn. sam-
tals 390 fm að gólffl. Tvennar stórar
innkdyr og allt að 6 m. lofthæð.
Milliloft er yfir 180 fm. Verð 13,5
millj.
Til leigu
Haf narstræti - mið-
borg. Stórgiæsil. 363 fm
skrifstofuhúsn. Á 2. hæð áður
húsnæði Féfangs hf. Hús-
næðið er glæsil. tnnr. með 11
skrifstofuherb. Skrifstofur eru
teppal. og Terrasó á göngum.
Allar lagnír fyrir hendí m.a.
tölvunet og simkerfi. Halogen
lýsing. Hér þarf aðeins að
stlnga i samband.
Suðurgata - jarðh. um so
fm skrifstofuhúsn. í hjarta borgarinn-
ar. Opið rými og 2 skrifstofuherb.
ásamtsnyrtingu. Mánaðarl. 40 þús.
Nýbýlavegur. Skrifsthúsn. á
þremur hæðum, samtals 848 fm.
Fullinnr. m. lyftu. Getur leigst í 87,
177 og 250 fm einingum. Eigendur
eru tilb. til að breyta Innr. eftir þörf-
um. Sala kemur einnig til greina,
hagstætt leiguverð.
Armúli. Nýlega innr. skrifstofu-
rými á 3. hæð. Allt nýl. parketlagt.
6 skrifstofur, móttaka og möguleiki
á kaffiastöðu. Mánaðarleiga 75 þús.
Bankastræti. um 145 fm
skrifsthúsnæði í hjarta bæjarins. 5
skrifstherb., móttaka og eldhúsað-
staöa. Hugsanlegt að leigja I minni
einingum. Mánaðarleiga 70 þús.
Hringdu núna - vid slcoóum straxi