Morgunblaðið - 23.04.1995, Síða 39

Morgunblaðið - 23.04.1995, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSIINJS SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 39 Suðvestur- landskjör- dæmi skal það heita Frá Frá Gesti Sturlusyni: í NÝAFSTÖÐNUM kosningum til alþingis var í hinu nýstofnaða bæjarfélagi (þ.e. Keflavík, Njarð- vík og Höfnum) kosið um nafn á þessu nýja bæjarfélagi. Var kosið um tvö nöfn, Suðurnesbæ og Reykjanesbæ. Voru íbúar þessara plássa lítt hrifnir af þessum nöfn: um, sem kannski er varla von. í það mál blanda ég mér ekki. En það er annað, sem ég vil hér minn- ast á, nafnið á kjördæmi því, sem áðumefnt byggðarlag er í, þ.e. Reykjaneskjördæmi. Þetta nafn á kjördæminu er alveg út í hött, þegar betur er að gáð. Helstu rök mín eru þessi: Reykjanesið, sem kjördæmið er kennt við, er ekki nema lítill hluti kjördæmisins og mikill meirihluti íbúa kjördæmisins býr utan Reykjanesskagans, þ.e. íbúar Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Kópavogs, Seltjarnamess og Mos- fellsbæjar og svo eru tveir fjöl- mennir sveitahreppar til viðbótar, Kjalames og Kjós. En hvað á þetta kjördæmi að heita, mun spurt verða. Því er fljót- svarað, Suðvesturlandskjördæmi. Þetta liggur í augum uppi. Allt þetta kjördæmi er í sunnlendinga- fjórðungi og hefur alltaf verið. Til forna náði fjórðungurinn allt að Hvítá í Borgarfirði. Þegar allt þetta er athugað, finnst mér ekki annað nafn koma til greina en Suðvestur- landskjördæmi. GESTUR STURLUSON, Hringbraut 50, Reykjavík. Ftðeins pað 6esta ncest þér 62-62-62 Fylgstu meb í Kaupmannahöfh Morgunblabib fæst á Kastrupflugvclli og Rábhústorginu Htor0ntnhliibih -kjarni málsins! „Sá yðar sem syndlaus er...“ Frá Örnólfi Thorlacius: NOKKUR skrif hafa undanfarið spunnist út af borgaralegri ferm- ingu. Meðal annars er ráðist all- harkalega á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra í lesenda- bréfi sem birtist í Morgunblaðinu á sumardaginn fyrsta. Lífsreglum hennar er lýst í fyrirsögn og í grein- inni sem „ókristilegum“ og að- standendur borgaralegrar ferming- ar fá upp til hópa einkunnina „trú- leysingjar“. Þar sem sum barnabörn mín hafa kosið að fermast borgaralega - en önnur leitað til kirkjunnar - hef ég kynnst nokkuð þeim mark- miðum sem liggja til grundvallar báðum gerðum fermingar. Ég leyfi mér að staðhæfa að ekkert í þeim undirbúningi sem börnin fá að borgaralegri fermingu brýtur í bága við kristilegt siðgæði. Það er bara ekki vafið inn í fornar helgi- sagnir kristinnar kirkju, sem sumar hveijar koma siðgæði ekkert við. Sonardóttir mín sat í skóla í kristnifræðitímum þar sem kennar- inn var jafnframt prestur í sókn hennar. Þegar hann rakti nokkurra árþúsunda gamla þjóðsögu gyðinga um sexdagasköpun heimsins hreyfði hún athugasemdum og benti á að vísindi nútímans stað- festu annað. Presturinn bauð henni að taka skýringu biblíunnar gilda. Hún kaus að fermast borgaralega og tel ég hana mann að meiri fyrir. Ég fæ ekki séð í hveiju það þjón- ar kristilegu siðgæði að spyrða kærleiksboðskap Krists saman við heimsmynd sem vissulega átti rétt á sér á dögum Abrahams en er nú ámóta trúverðug og sagan um Ask og Emblu. Raunar virðist mér að margir prestar séu í hjarta sínu sammála mér í þessu efni. Það eru margar ástæður fyrir því að börn (eða aðstandendur þeirra) kjósa borgaralega ferm- ingu. Éflaust er trúleysi ein af þess- um ástæðum og ekkert við því að segja. Við búum við trúfrelsi og höfum því fullan rétt á að hafna öllum trúarbrögðum. í hÓDÍ beirra sem fermast bore-- aralega eru jafnan börn aðfluttra foreldra sem alist hafa upp við önnur trúarbrögð en við, en mikla fordóma þarf til að stimpla allt þetta fólk sem trúleysingja. Einnig er þar að fínna fólk sem aðhyllist siðgæðisboðskap Krists án þess að vilja kokgleypa með honum margra árþúsunda heimsmynd og aðrar bábiljur sem mér sýnist því miður að sumir prestar ætlist enn til að menn játist bókstaflega undir. Sjálfur fermdist ég fyrir hálfri öld í Ljósavatnskirkju hjá umburð- arlyndum presti, síra Þormóði Sig- urðssyni, sem kenndi mér að greina boðskapinn frá bókstafnum. Fyrir það er ég honum ævinlega þakklát- ur. Og enginn skyldi taka orð mín þannig að ég sé á móti kirkjulegri fermingu. Eg aðhyllist þann sið- gæðisboðskap sem boðaður er í kristinni trú en er í mörgu ósam- mála heim umhúðum sem sumir boðendur hans virðast telja megin- atriði. Ég leyfi mér að staðhæfa að hægt er að koma þeim boðskap til skila umbúðalaust og tel að það hafi tekist með borgaralegri ferm- ingu. Borgarstjóri liggur undir ámæli fyrir að „nota stöðu sína og Ráð- húsið til að efla trúleysi og leggja ungu fólki ókristilegar lífsreglur" með því að lána húsið undir borg- aralega fermingu. Kirkjuleg ferm- ing fer fram í húsakynnum sem flest eru reist fyrir almannafé og hef ég ekkert út á það að setja. Hvers vegna á þá að meina þeim um aðgang að opinberu húsnæði sem kjósa aðrar leiðir til að búa ungmenni undir lífið? Að mínu mati birtist boðskapur Krists mun frekar í umburðarlyndi hans en því hvort hann var getinn af heilögum anda eða sté niður til Heljar. Bið ég þá sem telja sig þess umkomna að brigsla öðrum um „ókristilegar lífsreglur“ að leiða hugann að þeim orðum hans sem vitnað er til í fyrirsögn þessa pistils. ÖRNÓLFUR THORLACIUS, Bjarmalandi 7, Roxrlnoinlr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.