Morgunblaðið - 23.04.1995, Side 48
48 SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR
Sólt til sigurs
í lokarímmu
fyrirHM
WwwWí %
Morgunblaðið/Kristinn
Fyllt upp í síðustu götin
AÐ mörgu ber aö hyggja í undirbúningi Ifðs fyrir heimsmeist-
arakeppní. Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik, hefur að undanförnu lagt áherslu á að slípa
leik íslenska llðslns og reynt að fylla í götin.
Heimsmeistarakeppnin í hand-
knattleik hefst eftir hálfan
^mánuð og hefur komið fram að
markmið íslenska hópsins er að
hafna í einu af sjö efstu sætunum
og tryggja þannig þátttökurétt á
Ólympíuleikunum í Atlanta í
Bandaríkjunum á næsta ári og í
heimsmeistarakeppninni í Japan
1997. Undirbúningurinn er á loka-
stigi og lítur Þorbergur Aðal-
steinsson, landsliðsþjálfari, á síð-
ustu landsleikina sem eins konar
forleik að því sem koma skal.
Fínpússning
„Skipulagið þessa dagana tekur
mið af sjálfri heimsmeistara-
keppninni,“ sagði Þorbergur við
Morgunblaðið en lið leika mest níu
leiki í HM. Þar er ísland í A-riðli
með Bandaríkjunum, Túnis, Ung-
veijalandi, Suður-Kóreu og Sviss
og mætir þeim í sömu röð en fjög-
ur efstu liðin halda áfram í 16 liða
úrslit og þar með hefst útsláttar-
keppni.
„Við byijuðum á tveimur leikj-
um við Japan, síðan tveir æfinga-
leikir við Dani, fjögurra Iiða mótið
í Danmörku í næstu viku og tveir
leikir við Austurríki um næstu
helgi. Við förum í þessa leiki með
aðalkeppnina í huga en reyndar
er munurinn sá að í þessum lo-
kaundirbúningi leyfíst okkur að
gera mistök sem ganga ekki í HM.
Tilgangurinn með þessum leikjum
er jafnframt sá að bæta okkur á
allan mögulegan hátt, slípa leik
liðsins og sérstaklega sóknarleik-
inn til að hann verði eins góður
og mögulegt er þegar úrslita-
stundin rennur upp.“
Ekkert á óvart
Islendingar áttu ekki í erfiðleik-
um með Japani fyrir páska og
þeir hafa haft betur gegn Dönum
undanfarin ár, gerðu reyndar
39:39 jafntefli í 3x30 mínútna
æfingaleik á föstudagskvöld þar
sem þjálfari Dana réð vamarleik
íslenska liðsins, en hafa ekki sótt
gull í greipar Svía. Þorbergur
sagði að þó möguleiki væri á að
mæta bæði Dönum og Svíum í
HM væri gott að leika gegn þeim
svona skömmu fyrir átökin í maí.
Samskiptin hefðu alltaf verið góð,
menn vissu að hveiju þeir gengju
og ekkert kæmi á óvart.
„Ég, Bengt Johansson, þjálfari
Svía, og Ulf Schefvert, þjálfari
Dana, gjörþekkjum leik hvers ann-
ars. Þeir vita hvað ég hugsa og
ég veit hvað þeir eru að gera. Það
kemur ekkert á óvart en stöðugt
er verið að reyna að koma með
eitthvað nýtt sem getur breytt
gangi leiksins.
Við byijum gegn Svíum í Biku-
benmótinu á mánudagskvöld og
ljóst er að við höfum legið töluvert
á eftir þeim. Við ætlum að reyna
að minnka það bil, keyra á fullum
krafti og mætum þeim fullir sjálf-
strausts. Ef við töpum verður það
ekki vegna andlega þáttarins held-
ur vegna þess að þeir eru betri.“
Á þriðjudagskvöld verður leikið
við Dani sem eru með kunnugan
hóp eins og Svíar. „Við höfum
haft mjög gott tak á Dönum á
undanfömum árum og þó þeir séu
stöðugt að bæta sig er ætlunin
að halda sömu tökum og fyrr. Við
ljúkum keppni í mótinu með leik
gegn Pólveijum á fimmtudags-
kvöld en þeir eru óþekkta stærðin
í þessu dæmi. Hins vegar liggur
fyrir að við förum í þetta mót til
að sigra.“
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Leikir aðfaramótt laugardags:
Atlanta - Detroit........128:111
92:99
Cleveland - Milwaukee ....103:82
..107:106
Philadelphia - Miami ..113:106
....110:86
San Antonio - LA Clippers ....107:96
99:96
....110:99
...105:97
Staðan (Sigrar, töp, vinningshlutfall í %).
Austurdeild Atlantshafsriðill: ... 57 24 70,4
■NewYork 54 27 66,7
.35 46 43,2 50 38,3 52 35,8
31
NewJersey 29
24 57 29,6 61 24,7
Washington 20
Miðriðill: •Indiana 51 30 63,0 31 61,3 34 57,5
49
■Chicago 46
■Cleveland 43 38 53,1
■Atlanta 42 39 51,9
Milwaukee 33 48 40,7
28 53 34,6
Vesturdeild
Miðvesturriðill: •San Antonio 61 20 75,3
■Utah 59 22 72,8
47 34 58^0 41 48,8
Denver 39
Dallas 36 45 44,4
21 60 25,9
Kyrrahafsriðill:
58 23 71,6 24 70,4 33 59,3 38 52,5
■Seattle 57
48
■Portland 42
39 42 48,1 54 32,5
26
LA Clippers 16 65 19Á
•Sigurvegari í riðli. San Antonio er með
besta árangur allra liða í deildinni og á því
heimaleikjarétt í oddaleikjum út keppnina.
Orlando er meistari i Austurdeild.
■Sæti tryggt í úrslitakeppninni.
Íshokkí
NHL-deildin
Leikir aðfaramótt iaugardags:
Detroit - Anaheim..................6:5
Washington - Hartford..............6:3
Chicago - Winnipeg.................1:2
St. Louis - Toronto................3:1
•Los Angeles - Edmonton............3:3
•Eftir framlengingu.
Knattspyrna
Æfingalandsleikur
Lima, Perú:
Perú - Chile...................6:0
Flavio Maestri (2., 6., 40.), Ronald Baroni
(29., 67., 88.). Leikurinn fór fram sumar-
daginn fyrsta.
England
Blackbum - Crystal Palace......2:1
(Gailacher 51., Kenna 47.) - (Houghton
71.). 28.005.
1. deild
Reading - Bolton...............2:1
•Þetta var fyrsta tap Bolton í deildinni síð-
an Guðni Bergsson byijaði að leika með
liðinu en hann var fiarri góðu gamni með
landsliði íslands í Chile.
Tranmere - Southend............0:2
Holland
Go Ahead Deventer - Nijmegen...3:2
Morgunblaðið/Kristinn
MIKLAR endurbætur hafa verið gerðar á keppnlsstöðum HM og sérstaklega hefur Laugardals-
höll breytt um svip. M.a. hefur verlð lagt nýtt gólfefni og á myndinni er verið að koma hand-
boltamerkingum fyrir en engar aðrar merkingar verða á gólfinu.
KORFUKNATTLEIKUR
Ekki fleiri deildarieikir hjá
Celtics í Boston Garden
Hátíðarstemmning ríkti í Boston
Garden í hálfleik á viðureign
heimamanna gegn New York
Knicks í nótt. Þetta var síðasti
heimaleikur Boston Celtics í deild-
inni og jafnframt síðasti deildarleik-
urinn í Boston Garden og gerðu
menn sér því dagamun. Red Au-
erbach, eigandi félagsins, og 22
fyrrum leikmenn voru kynntir fyrir
áhorfendum og síðan hentu þeir
bolta á millí sín, Bob Cousy til Bills
Russells, hann til Johns Havliceks,
á Larry Bird og troðsla og allt varð
vitlaust. Þannig var kveðjustundin
í þessum 49 ára velli en New York
tók ekki þátt í þessu og vann 99:92.
Þrátt fyrir tapið komst Boston í
úrslitakeppnina sem áttunda og síð-
asta lið í Áusturdeild en Miwaukee
sat eftir, tapaði 103:82 í Cleveland.
En Boston sér sæng sína útbreidda,
mætir Orlando.
Hubert Davis skoraði 20 stig og
Greg Anthony 19 fyrir Knicks sem
var án Patricks Ewings og Dereks
Harpers. Knicks mætir Cleveland í
1. umferð úrslitakeppninnar.
Charles Barkley gerði 22 stig og
tók 17 fráköst í 110:99 sigri Phoen-
ix gegn Dallas. Seattle tapaði hins
vegar 105:97 fyrir Sacramento og
þar með hefur Phoenix tryggt sér
efsta sæti í Kyrrahafsriðlinum.
Suns mætir Portland Trail Blazers
í 1. umferð úrslitakeppninnar en
liðin hafa mæst fimm sinnum í vet-
ur og hefur Suns ávallt sigrað.
Sacramento heldur í vonina um
úrslitasæti en slagurinn stendur við
Denver og mætast liðin aðfararnótt
mánudags, þegar síðustu deildar-
leikirnir fara fram.
San Antonio hefur þegar tryggt
sér besta árangur allra liða í deild-
inni og þar með heimaleikjarétt í
oddaleikjum út keppnina. Deildar-
meistaramir mættu lakasta liðinu
í nótt, Los Angeles Clippers, og
sigruðu örugglega, 107:96. Dennis
Rodman tók 17 fráköst fyrir San
Antonio og hefur þar með tekið flest
fráköst fjórða árið í röð. San An-
tonio mætir sigurvegara úr leik
Denver og Sacramento í 1. umferð.
Atlanta vann Detroit 128:11 og
mætir Indiana í úrslitakeppninni en
liðin ljúka deildarkeppninni aðfarar-
nótt mánudags með innbyrðis viður-
eign.
Shaquille O’Neal var með 20 stig
og tók 13 fráköst í 110:86 sigri
Orlando gegn Indiana en Horace
Grant skoraði 20 stig. Orlando lauk
tímabilinu á heimavelli með 39 sigra
og 2 töp og þar af 28 sigra og
ekkert tap gegn liðum í Austur-
deildinni. Þetta er besti árangur liðs
á heimavelli síðan 1986 til 1987
þegar Boston gerði slíkt hið sama.
Utah vann Minnesota 99:96,
tryggði sér þar með þriðja sætið
og leiki gegn Houston í úrslitum.
Karl Malone var með 22 stig og
Antoine Carr 17 fyrir Utah. Isaiah
Rider skoraði 25 stig fyrir Minne-
sota sem hefur tapað fjórum leikjum
í röð og 13 af síðustu 15 leikjum.
Reuter
SHAQUILLE O'Neal tekur
frákast fyrlr Orlando gegn
Indiana.