Morgunblaðið - 20.05.1995, Side 1
80 SIÐUR B/LESBOK/D
113. TBL. 83. ÁRG. LAUGARDAGUR 20. MAÍ1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Auknar líkur á brottflutningi friðargæsluliðsins í Bosníu
NATO-ríki beðin
um að lofa herafia
Brussel, Sar^jevo. Reuter.
Vináttu við
Norður-
Kóreu rift?
Seoul. Reuter.
PAVEL Gratsjov, varnarmálaráð-
herra Rússlands, sagði í gær að
rússneska stjómin væri að íhuga
að rifta mikilvægum vináttusamn-
ingi við Norður-Kóreu til að geta
aukið samvinnu á sviði hermála við
Suður-Kóreu.
Gratsjov sagði þetta á fundi með
starfsbróður sínum í Suður-Kóreu.
Stjórnin í Seoul hefur beðið Rússa
um að endurnýja samninginn ekki,
en hann var undirritaður í júlí 1961
og endumýjast sjálfkrafa til fimm
ára óski hvorugt ríkið eftir endur-
skoðun hans fyrir september á
næsta ári.
Samningurinn kveður meðal ann-
ars á um að Rússar skuli veita
Norður-Kóreu hernaðaraðstoð
skelli á stríð milli kóresku ríkjanna.
Berlusconi
spáð sjón-
varpssigri
Mílanó. Reuter.
LÍKLEGT er, að ítalski fjölmiðla-
kóngurinn Silvio Berlusconi beri
sigur úr býtum í þjóðaratkvæða-
greiðslu í næsta mánuði um það
hvort einum manni skuli leyfast að
hafa jafnmikil ítök í fjölmiðlaheim-
inum og reyndin er með hann. Kom
þetta fram í skoðanakönnun í gær.
í atkvæðagreiðslunni, sem fer
fram 11. júní, verða kjósendur
spurðir hvort takmarka eigi eignar-
hald á sjónvarpsstöðvum við eina
stöð en Berlusconi á þrjár. í skoð-
anakönnun, sem Directa-stofnunin
gerði, kváðust 56,5% mundu greiða
atkvæða gegn fyrrnefndri takmörk-
un en 43,5% með.
Sjónvarpsstöðvar Berlusconis
hafa um 90% sjónvarpsauglýsinga-
markaðarins en sama áhorf og þijár
rásir ítalska ríkíssjónvarpsins, RAI.
Ungverjar í
NATO fyr-
ir 2000?
Washington, Sofiu. Reuter.
UNGVERJAR gera ráð fyrir að
vera gengnir í Atlantshafsbanda-
lagið, NATO, fyrir aldamótin. Vam-
armálaráðherra landsins, Gyorgy
Keleti, sagði eftir fund með ráða-
mönnum í Washington í gær að
þeir hefðu fullvissað sig um að and-
staða Rússa við stækkun NATO
myndi ekki seinka aðild nýfijálsra
ríkja í Austur- og Mið-Evrópu að
bandalaginu.
Keleti hafði eftir Richard Holbro-
oke, aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna, að þótt ráðamenn í
Moskvu hefðu ítrekað andstöðu sína
á fundi með Bill Clinton forseta þar
í borg nýverið myndu bandarísk
stjórnvöld ekki breyta stefnu sinni
í málinu. Ákveðið yrði í sumar
hvaða skilyrði ný aðildarríki yrðu
að uppfylla og 1996 yrði tilgreint
hvaða ríki yrðu fyrst inn.
Syngjandi
tvíbura
systur
VINSÆLUSTU tvíburar í Jap-
an, systurnar Kin og Gin eða
Gull og Silfur, verða 104 ára
gamlar í ágúst nk. og eru nú
komnar til Tævans í boði
skemmti- eða blómagarðs þar
í landi. Þær urðu frægar fyrir
nokkrum árum þegar þær
komu fram og sungu í sjón-
varpsauglýsingu en á Tævan
ætla þær meðal annars að
hitta 1.000 tvíbura, þríbura
og fjórbura. Þær systur eiga
10 börn, 15 barnabörn og 14
barnabarnabörn og þætti ekki
mikið hér á landi. Við komuna
til Tæpei, höfuðborgar Tæ-
vans, tóku þær að sjálfsögðu
lagið ásamt fimm ára gömlum,
tævönskum tvíburasystrum.
UM 5.000 starfsmenn pólsku
dráttarvélaverksmiðjanna Urs-
us stöðvuðu umferð um helstu
járnbrautina frá Varsjá í nokkr-
ar klukkustundir í gær til þess
að leggja áherslu á launakröfur
HEIMILDARMENN í Brussel sögðu
í gær að George Joulwan hershöfð-
ingi, æðsti yfirmaður herafla Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) í Evr-
ópu, hefði óskað eftir skýrum loforð-
um frá aðildarríkjunum um mann-
afla og tæki vegna hugsanlegs brott-
flutnings friðargæsluliða Sameinuðu
þjóðanna frá Bosníu.
Heimildarmennirnir sögðu að
stjórnmálaarmur NATO hefði heim-
ilað Joulwan að leita skýrra svara
við því hversu marga hermenn hvert
ríki væri reiðubúið að senda til Bosn-
íu. Hann vildi ennfremur fá að vita
hvenær hermennirnir yrðu til reiðu
og ríkin væru beðin um að hafa þá
í viðbragðsstöðu.
Embættismenn NATO reyndu að
sínar og kröfur um eftirgjöf
skulda fyrirtækisins. Kveiktu
þeir í hjólbörðum á járnbraut-
inni en í þeim slokknaði er
skyndilega gerði úrhellisrign-
ingu.
gera lítið úr mikilvægi þessa og
lögðu áherslu á þetta væri aðeins
„varúðarráðstöfun til stuðnings
Sameinuðu þjóðunum". Fréttaskýr-
endur sögðu hins vegar að ákvörð-
unin yki mjög líkurnar á því að frið-
argæsluliðarnir yrðu fluttir á brott.
Viðurkennir Serbía Bosníu?
Fast er nú lagt að Bosníu-Serbum
að fallast á friðarviðræður við Bosn-
íustjórn og Bandaríkjamenn reyna
að einangra forystumenn þeirra
frekar. Fjölmiðlar í Belgrad hafa
skýrt frá því að Slobodan Milosevic,
forseti Serbíu, léði máls á að viður-
kenna sjálfstæði Bosníu eftir nokk-
urra daga viðræður við Robert Fras-
ure, sendimann Bandaríkjastjórnar.
ARÆÐNIR kínverskir umbótasinn-
ar eru teknir að gagnrýna arfleifð
Dengs Xiaopings leiðtoga Kína og
hið sama er að segja um pólitíska
leiðtoga sem girnast völd
Dengs.
Ástandið i Kina þykir
minna mjög á árin eftir
dauða Maós formanns er
•Deng notfærði sér ólgu og
almenna óánægju til þess
að ryðja úr vegi áhrifa-
mönnum sem honum stóð
ógn af og gera lítið úr
verkum Maós.
Eini munurinn er sá, að Deng
lifir og sé hann nógu heilsuhraustur
fer hann tæpast varhluta af því
valdakapphlaupi sem nú á sér stað
og atlögunni að stefnu hans.
I vikunni hvöttu rúmlega 40
menntamenn, þar á meðal Wang
Ganchang, 88 ára eðlisfræðingur
sem þróaði fyrstu kínversku kjarn-
Samkomulag hefði þó ekki enn náðst
um þetta vegna ágreinings um af-
nám refsiaðgerða Sameinuðu þjóð-
anna gegn Serbíu.
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hvatti emb-
ættismenn Sameinuðu þjóðanna til
að heimila herþotum NÁTO að gera
árásir á Bosníu-Serba ef þeir héldu
áfram að ráðast á Sarajevo.
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna sögðu í gær að bosnískir stjórn-
arhermenn hefðu kveikt í fjölda húsa
á svæði sem þeir hafa náð á sitt vald
í sókn frá Bihac í norðvesturhluta
landsins. Þeir sögðu einnig að hung-
ursneyð vofði yfir íbúum Bihac þar
sem Serbar kæmu í veg fyrir birgða-
flutninga þangað.
orkusprengjuna, til þess að „gagn-
byltingarstimplinum“ yrði aflétt af
lýðræðishreyfingunni sem kennd er
við atburðina á Torgi hins himneska
friðar vorið 1989.
Þeir báðu ríkisstjórnina
að sýna umburðarlyndi
gagnvart fólki með sjálf-
stæða hugsun og sleppa
hugsjónaföngum úr fang-
elsi.
Stjórnmálaskýrendur
telja, að uppgjör um völd
kunni að vera á næsta leiti
í Kína og margt höfuðið,
jafnvel Li Péngs forsætisráðherra,
eigi eftir að fjúka. Uppgjörið kunni
að kristallast í deilum um árangur-
inn af efnahagsstefnu Dengs en út
af fyrir sig sé verðbólga, mikill
ójöfnuður milli héraða, siðferðis-
kreppa og þverrandi miðstjórnar-
vald nægur efniviður í pólitíska
upplausn.
m hf M É / JHHE
ifí ,< £ ; . :
ff: M f /• -j’iiÆmimtM
Tmðt / // k
líi/wm
W/Jr* *
#/ / jfgjr
f f f é'/f
• #' f .ÆiÉf
Reuter
Lokuðujám-
brautinni frá Varsjá
Upplausn í vændum í Kína
Atök hafin um
arfleifð Dengs
Peking. Daily Telegraph.
Deng Xiaoping