Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 5
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
MR fær and-
litslyftingu
MENNTASKÓLINN í Reykjavík
á 150 ára afmæli á næsta ári og
í sumar verður skólinn allur
málaður og húsið fegrað.
Að sögn Guðna Guðmundsson-
ar rektors er verið að taka gömlu
málninguna af austurhlið og
norðurgafli þar sem hún var orð-
in hrufótt og ljót vegna þess að
margoft var búið að mála yfir
flagnaða málningu. Auk þess
voru komnir ryðblettir í veggina
út frá gömlum naglahausum.
Guðni segir að í Ijós komi gull-
fallegur 150 ára gamall viður,
algjörlega ófúinn. Ekki þarf að
taka málningu af austurhlið og
suðurgafli því þar var skipt um
yfirborð í kringum 1960. Húsið
verður málað aftur i sama ljósa
litnum og þakið verður áfram
brúnt.
Guðni segir að stefnt hafi ver-
ið að því að málningarvinnunni
yrði lokið við skólaslit 1. júní en
það muni varla takast úr þessu.
Hann segist vona að málarar
verði búnir fyrir 17. júní.
------*--*—*---
Ríkisendurskoðun
162 skýrsl-
ur og grein-
argerðir á
seinasta ári
STARFSMENN Ríkisendurskoðun-
ar skiluðu 55.549 vinnustundum við
endurskoðun, athuganir og skyld
verkefni á seinasta ári, samanborið
við 55.511 stundir á árinu 1993.
Auk þess keypti stofnunin þjónustu
af löggiltum endurskoðendum, alls
5.541 vinnutíma, og voru heildar-
vinnustundir við endurskoðun þann-
ig ljðlega 61 þús. á seinasta ári.
Fram kemur í starfsskýrslu Ríkis-
endurskoðunar að heildarkostnaður
stofnunarinnar á hverja unna vinnu-
stund á seinasta ári hafi numið 2.368
krónum samanborið við 2.400 kr.
árið áður. A seinasta ári voru unnar
samtals 162 skýrslur og greinar-
gerðir en þær voru 150 á árinu 1993.
Frumvarp um fjárreiður
ríkisins
í formála Sigurðar Þórðarsonar
ríkisendurskoðanda kemur- fram að
unnið er að gerð frumvarps til laga
um fjárreiður ríkisins í framhaldi af
skýrslu nefndar sem skilað var á
seinasta ári um breytingar á reikn-
ingsskilum ríkissjóðs og framsetn-
ingu fjárlaga.
Sigurður segir að ef tillögurnar
verða að lögum muni upplýsingar
um reikningsskil ríkissjóðs verða ít-
arlegri en nú er og meiri festu muni
gæta í framsetningu þeirra í fram-
tíðinni. Telur hann mikilvægt að hin
nýja skipan geti tekið gildi við gerð
fjárlagafrumvarps fyrir árið 1997.
VERÐ AÐEINS KR 898.000,-
Reynsluaktu TWINGO!
,Þaö er vel þess viröi.
Strakarmr eru ennþa
stórir og ágætir strákar!
kHlliams
RF.NAÚLT
Formulel
Prefaldur
heimsmeistari
TWINGg
m NÓ6U ,TÓR FyWR
Bifreiðar & Landbúnaðar\élar hf.
RENAULT
RENNUR ÚT!