Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Snorri Welding og Bent Einarsson. Samið um borun við Krýsuvík SNORRI Welding, formaður Krýsuvíkursamtakanna, og Bent Einarsson, framkvæmdastjóri Jarðborana hf., undirrituðu í gær samning sem gerir ráð fyrir að hafist verði handa við borun fyrir nýrri borholu við Krýsuvíkurskóla eftir næstu viku. Eins og kunnugt er efndu sam- tökin nýlega til söfnunar til verk- efnisins í samvinnu við Rás 2. 4 milljónir króna söfnuðust og gerði söfnunin samning þennan mögu- legan. Snorri Welding sagði í samtali við Morgunblaðið að sérfræðingar Orkustofnunar væru búnir að staðsetja nýju borholuna. Boranir hæfust eftir helgi og vonast væri til að búið yrði að fóðra holuna þannig að hún gæti gefið af sér um það bil 2,5 mW orku í lok júní. Sægreifinn reyndist rauðskinni SÆGREIFINN, sem sagt var frá í blaðinu í gær, reyndist þegar betur var að gáð vera rauðskinni. Að sögn Kristjáns Egils- sonar, forstöðumanns Nátt- úrugripasafns Vestmanna- eyja, var sægreifinn greindur eftir lýsingu í bók Gunnars Jónssonar fiskifræðings og í samtali við Gunnar. Þegar Gunnar hins vegar sá mynd- ina í Morgunblaðinu sá hann að þetta var rauðskinni. Kristján segir að sennilega sé þetta fyrsti rauðskinninn, sem veiðist innan íslensku lögsögunnar. Hann er af sæ- greifaætt og er líkur sægreif- anum. Hann hefur fundist við Grænland. _Sá sem fundist hefur næst íslandi veiddist á 1.100 metra dýpi við Fiska- nes við SuðvesturGrænland. Hjálpræðisherinn 100 ára Hátíðar- höld HJÁLPRÆÐISHERINN heldur upp á 100 ára afmæli félagsskapar- ins hér á landi um þessar mundir. Þrennir tónleikar eru á laugar- dag. Útitónleikar verða á Ingólfs- torgi kl. 14, tónleikar í Tjarnarsal Ráðhússins kl. 16 og hátíðarsam- koma í Fíladelfíu kl. 20.30. Sunnu- dagurinn hefst með helgunarsam- komu í Fíladelfíu kl. 10.30, tónlist- arsamkoma fyrir alla fjölskylduna verður kl. 16 og Hjálpræðissam- koma verður í Fíladelfíu kl. 20. LAIMDIÐ Sjúkrahúsi Seyðis fjarðar færð gjöf Seyðisfirði - Félagar í Austur- landsdeild Hjai-taverndar hafa fært Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar. að gjöf braut til þess að ganga eða hlaupa á innandyra. Hægt er að stilla hraða tækis- ins þannig að nánast hver sem er geti notað það. Þá má og stilla hallann sem gengið er á til þess að fá mismunandi áreynslu. Það að hafa svona tæki innan sjúkra- hússins gerir einnig kleift að mæla og fylgjast með viðbrögð- um sjúklings meðan á áreynslu stendur. Birgir Hallvarðsson afhenti tækið fyrir hönd Hjartaverndar og Hannes Sigmarsson læknir tók við því fyrir hönd Sjúkrahússins. Birgir lét þess getið að það hafi verið fyrst og fremst gjöf frá Sigurveigu Þorsteinsdóttur sem gerði félaginu kleift að kaupa búnaðinn. Sigurveigu þekkja allir Seyðfirðingar sem Sigra. Hún er 81 árs gömul verkakona og lagði fram 300.000 kr. til kaupanna. Hannes læknir sagði það vera stefnu sjúkrahússins að auka enn á endurhæfingu innan þess og því kæmi tækið að góðum notum. Að lokum var tækið prófað. Reynir Júlíusson, ráðsmaður spít- alans, fór jómfrúarferðina og gekk dijúgan spotta án þess nokkru sinni að hverfa úr her- berginu. Síðan tók Þorsteinn Bergman, læknir til fótanna og sýndi spretthlaup. Seinna um daginn hélt Austur- landsdeild Hjartaverndar aðal- fund í Félagsheimilinu Herðu- breið. Af fundarsókn mátti sjá að mikiil áhugi er á starfi félags- ins. Magnús Asmundsson, læknir, flutti þar fyrirlestur um áhættu- atriði í hjarta- og æðasjúkdómum og varnir gegn þeim og sagði síðan frá þjálfunarstöð sem verið er að koma á fót á Norðfirði. Á fundijium var kosin ný stjórn fé- lagsins og er formaður hennar nú Birgir Hallvarðsson í Seyðis- firði. Morgunblaðið/Pétur BIRGIR Hallvarðsson og Sigurveig Þorsteinsdóttir. REYNIR Júlíusson fór jóm- frúrferðina á nýju hlaupa- brautinni. í RÆÐUSTÓLI er Dagný Marinósdóttir, formaður sóknarnefnd- ar, og henni á hægri hönd situr séra Ingimar Ingimarsson. * Agreiningur um kirkjusmíð Þórshöfn - Skiptar skoðanir eru meðal heimamanna um það hvernig kirkju skal byggja hér á Þórshöfn. Forsaga málsins er sú að árið 1989 voru kirkjuteikning og staðsetning kirkjunnar samþykkt samhljóða á aðalsafnaðarfundi og var sóknar- nefnd falið að hafa forystu um fjár- öflunarleiðir og byggingarfram- kvæmdir, ásamt sóknarpresti. Kirkjuteikningin var síðan til sýnis og umsagnar árum saman og ítrekað skorað á fólk að láta álit sitt í ljós á henni en menn virtust á eitt sáttir þar sem opinber gagn- rýni kom eklri fram. Fýrsta skóflu- stunga að nýju kirkjunni var tekin árið 1993. Trésmiðjunni hf. á Þórs- höfn var falinn fyrsti verkáfangi en vegna anna sá fyrirtækið sér ekki fært að hefja verkið.Tveimur árum síðar var umræddur áfangi boðinn út. Fjögur tilboð bárust, þar af eitt frávikstilboð með annari kirkjuteikningu en þeirri sem útboð- inu fylgdi. Var það sameiginlega frá verktökum heima fyrir; Tré- smiðjunni Brú sf., Haka sf. og Tré- smiðjunni hf. á Þórshöfn. Sóknarnefnd taldi sér skylt að halda sig við samþykktir safnaðar- funda og harmaði að hugmyndin skyldi ekki koma fram á þeim árum sem ætluð voru til umsagnar á þeirri teikningu sem þá lá fyrir. Hafnaði sóknarnefndin því bæði nýrri teikningu og tilboði sem henni fylgdi. Lægsta tilboð í kirkjubygginguna kom frá Trévangi hf. á Reyðar- firði, að upphæð 16.904.020 krón- ur.í byijun apríl s.l. fékk fyrirtækið skriflega staðfestingu frá sóknar- og kirkjubyggingarnefnd þess efnis að tilboði þess hefði verið tekið. Hluti heimamanna var ekki ánægður með þessi málalok. Undir- skriftum var safnað og farið fram á að safnaðarfundur yrði haldinn til þess að ræða þessi mál. Á þeim fundi komu fram skiptar skoðanir um málið og voru menn ekki á eitt sáttir.Niðurstaða þess fundar varð sú að boðað verði til aðalsafnaðar- fundar og í framhaldi hans at- kvæðagreiðsla varðandi málið. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir KIRKJUMÁLIÐ rætt á safnaðarfundi. Þrjú verkalýðsfélög 30 ára Húsavík - Þijú verkalýðsfélög á Húsavík minnast á þessu ári 30 ára starfsafmælis síns á ýmsan hátt með hátíðarfundum og viðeigandi afmælisfundum. Félögin eru Bygg- ingamannafélagið Árvakur, Sveina- félag járniðnaðarmanna og Verslun- armannafélag Húsavíkur. Félögin hafa sameiginlega skrifstofu með Verkalýðsfélagi Húsavíkur og Starfsmannafélagi Húsavíkurbæjar. Slíkt er fjárhagslega mjög hag- kvæmt og eykur jafnframt samhug og eflir samstarf meðal félaganna. Morgunblaðið/Silli SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI verkalýðsfélaganna á Húsavík. Sumarbúðir við Eiðavatn 1995 Egilsstöðum - í júní nk. hefst 27. starfssumar Sumarbúðanna við Eiðavatn í Kirkjumiðstöð Austur- lands. Starfsemi sumarbúðanna er fjölbreytt, þ.e. hópar fyrir 7-9 ára, hópar fyrir 9-13 ára, dvalardagar fullorðinna einstaklinga með fötlun, auk orlofsdaga eldri borgara. Ein nýjung verður í ár en það er sumarbúðir fyrir unglinga sem marg- ir krakkar á síðasta ári í sumarbúð- um hafa beðið um. Sumarbúðastjóri er Jóhann Þorsteinsson, fyrrverandi fræðslufulltrúi Þjóðkirkjunnar á Norðurlandi og með honum verður þaulvant starfsfólk. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir ÚR starfi Sumarbúðanna við Eiðavatn. Sauðburður í Borg I Eyja- og Miklaholtshreppi - Undanfarnir dagar hafa verið sólrík- ir og hitinn komist í 12-14 stig en frosið hefur flestar nætur þar til nú. Sauðburður stendur nú sem hæst. Víða er þröngt í húsum því ær eru ftjósamar í meira lagi. Ekki veit ég fullum gangi um nein vanhöld. Tún eru ekki að öllu leyti orðin snjólaus. Skaflar eru aðallega í skjóli norðanáttar eftir þennan snjóþunga vetur. Áburðar- flutnjngar standa nú yfir og ekki er enn hægt að sjá hversu mikið tún eru kalin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.