Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 7 FRÉTTIR Nýjar sendingar affallegum sumarfatnaði 20% afsláttur af öllum buxnadrögtum vikuna 20 - 26 mai Hverfisgötu 78 sími 28980 Lögreglan á Suðvesturlandi 26 bruggverk- smiðjur á 9 mánuðum LÖGREGLA hefur lokað á þriðja tug bruggverksmiðja á svæðinu frá Selfossi til Suðurnesja frá því í september eða 26 talsins. Að sögn Ómars Smára Ár- mannssonar, aðstoðaryfirlög- regluþjóns í Reykjavík, hafa bruggarar hagað framleiðslu sinni þannig að þeir hafa stílað inn á skemmtanahald í kringum skóla- slit. Til marks um það hafi auk bruggtækja og gambra fundist 200 lítrar af fullsoðnum landa í neytendapakkningum í brugg- verksmiðju sem lokað var í austur- borginni sl. föstudag. Þessum málum verður, að sögn Ómars Smára, gefinn sérstakur gaumur á næstunni. Ómar Smári segir að undan- farna mánuði hafi lítið verið af landa í umferð en frá því í septem- ber hafí verið látið til skarar skríða gegn 26 verksmiðjum á suðvestur- horninu, eða frá Selfossi í austri til Suðurnesja í vestri. Morgunblaðið/Jón.Sig. Fundað með bændum í Blönduvirkjun STJÓRNARMENN Landsvirlq'unar áttu í vikunni fund í stjórnstöð Blönduvirkjunar með nýrri sam- ráðsnefnd bænda og oddvitum á Blöndusvæðinu og á myndinni sjást fundarmennirnir samankomnir fyrir utan stjórnstöðina. Á fundin- um var meðal annars rætt um mögulega stækkun virkjunarlóns- ins við Blönduvirkjun og aðrar framkvæmdir vegna hugsanlegrar stækkunar álversins í Straumsvík. Stjómarmenn Landsvirlqunar halda árlega fundi af þessu tagi með hagsmunaaðilum á virkjunar- svæðum umhverfis iandið. Búist við lax- veiði í meðallagi AÐSTÆÐUR í lífríkinu gefa til kynna að laxveiði verði nærri meðaltali sunnan- og vestanlands en slakari norðanlands. Jón Gunnar Borgþórsson, framkvæmdastjóri Stangayeiðifélags Reykjavíkur, segir að verðlækkun hafí orðið á veiðileyfum síðustu ár. Hann segir að veiðileyfi kosti frá 900 kr. Ein stöng á besta tíma í Norðurá kostar 47.600 kr. Jón Gunnar sagði að sala veiði- leyfa væri þokkaleg og aðeins betri en í fyrra. Verð hefði Jækkað síð- ustu ár og væri t.d. Sogið að lækka um 10-20% og Gljúfurá um tæplega 20% á milli ára. Hvað ástæður verð- lækkunarinnar varði sagði Jón Gunnar ýmislegt spila inn í. Hann nefndi að kaupmáttur hefði minnk- að, framboð væri meira, þ.e. verið væri að sleppa seiðum á ný svæði, og verð á ýmsum tómstundum í samkeppni við veiðina hefði lækk- að, t.d. verð á utanlandsferðum. Veiðispá Fram kemur í fréttabréfi Veiði- málastofnunar að stærð seiða- árganga, sem fara áttu út vorið 1994, hafi verið yfir meðaltali. Hins vegar hafi minna af gönguseiðum gengið út Norðanlands en búast hefði mátt við um vorið. Hugsanleg skýring gæti falist í því að kuldi í ánum sumarið 1993 og 1994 hafi tafið þroska hluta seiðanna og þau setið eftir í ánum. Afleiðingin gæti orðið minni smálaxagengd, einkum norðanlands, í sumar. Sjávarskilyrði ráða hvað mestu um afkomu laxins. Sjávarhiti fyrir Norðurlandi var hár vorið 1994 og var jákvæð fylgni milli sjávarhita og laxgengdar þar ári síðar. Seiði, sem fóru til sjávar 1994, ættu því að hafa komist vel af. Samband er milli smálaxagengd- ar og stórlaxagengdar ári síðar að því er fram kemur i fréttabréfinu. Stórlax hefur meiri þýðingu norðan- lands, þar sem hann er hærra hlut- fall í veiði en á Vesturlandi. Smá- laxagengd var í meðallagi góð vest- anlands, einkum í Borgarfirði, en bæði í Breiðafirði og norðanlands var hún með minna móti. Stórlaxa- gengd ætti því að vera í meðallagi vestantil á landinu en rýrari annars staðar. ■ bjóda þér kaffi? Á smurstöð Heklu erþað tvennt sem hefur forgang: Viðskiptavinurinn og bíllinn hans. Bíllinn þinn nýtur þess að fá þjónustu fagmanna sem nota eingöngu smurefni og vélarolíur frá Shell sem staðist hafa ströngustu kröfur bílaframleiðenda. Og þú mátt vera viss um að kaffið og meðlætið, sem við bjóðum á meðan þú bíður, er einnig fyrsta flokks. Láttu þér og hílnum líða vel á smurstöð Heklu. Þú pantar tíma í síma: 69 66 70 _ Smurstöð - Laugavegi 174. HcKLA Sími: 69 56 70 og 69 55 00. íu( Skógrækt með Skeljungi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.