Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 17 NEYTENDUR Okeypis nám- skeið í hug'leiðslu „ÉG hugleiði svo hugur minn geri líf mitt ekki flókið," er haft eftir Sri Chinmoy. Hér á landi er starfrækt Sri Chinmoy-miðstöð, sem mun í næstu viku halda ókeypis námskeið í hugleiðslu fyrir byijendur. „Hugleiðsla er leið til að svara grundvallarspurningum um tilgang lífsins og jafnframt leið til að fínna þá hamingju og lífsfyllingu sem við leitum flest að. Hugleiðsla á því djúp- ar rætur í grunneðli mannsins," seg- ir Eymundur Matthíasson, einn af leiðbeinendum á námskeiðunum. Sjálfur hefur Eymundur hugleitt að staðaldri undir handleiðslu Sri Chinmoy síðastliðin 10 ár. í næstu viku verða haldin 19 ókeypis kynningamámskeið, ýmist í Tónabæ eða Sri Cinmoy-miðstöðinni að Hverfisgötu 76. „Fólki nægir að koma í eitt skipti. Við kennum m.a. einfaldar einbeitingar- og hugleiðslu- æfíngar. Þeim sem líkar þetta og vilja kynnast hugleiðslu nánar, stendur til boða framhaldsnámskeið, sem einnig er ókeypis. Það stendur í 4 vikur og verða þá kenndar nýjar æfingar auk þess sem fólk fær leið- sögn í að gera eigin áætlun í hug- leiðsluiðkun." - Til hvers að hugleiða? „Til að fínna virkan innri frið, opna fyrir orku sem er til staðar í okkur öllum. Gegnum hugleiðslu tök- um við á móti krafti, sem við náum ekki að höndla nema við búum við innri frið. Fyrir flestum okkar er frið- ur óvirkt ástand, ástand sem kemur upp þegar ekki er ófriður, en með hugleiðslu förum við að kynnast friði sem virkum mætti í lífi okkar og annarra. Ef við líkjum lífi okkar við haf, lifa flest okkar á yfirborðinu. Með hugleiðslu komumst við að því hvað býr í dýpri vitund tilverunnar." - Hver er kennari þinn, Sri Chinmoy? „Hann er Indveiji, sem hefur verið mjög virkur undanfarna áratugi í að sýna fram á gildi hugleiðslu til að skapa áhrifameira og innihaldsríkara mannlíf. Hann fluttist 32 ára gamall til Bandaríkjanna og hafði þá stund- að hugleiðslu í 20 ár. Kringum hann myndaðist fljótlega hópur áhuga- fólks um hugleiðslu og eru nemendur hans nú um 3.000 í heiminum. Hann hefur skrifað mjög margar bækur Eymundur Matthíasson, leiðbeinir á hugleiðslu- námskeiðunum. um andleg málefni og hafa sumar verið gefnar út á íslensku. Hann hefur lagt á það ríka áherslu að innri friður er forsenda heimsfriðar. Ég hitti hann reglulega og hann hefur komið hingað til að halda tón- leika og einnig í tengslum við Sri Chinmoy friðarhlaupið, sem haldið er annað hvert ár. Hann leggur áherslu á hlaup og íþróttir. Þannig er auðveldara að vinna með þá orku sem skapast í hugleiðslu.“ — Er hugleiðsla í tísku? „Hugleiðsla er ekki tískubóla, enda er löng hefð fyrir henni. Marg- ir hafa sýnt hugleiðslu áhuga á síð- ustu árum, en þeir eru færri sem eru tilbúnir að leggja mikið á sig við iðk- un hennar. Kannski stafar það af því að þörfín er ekki nægilega sterk. Samt eru margir opnir og leitandi, en í nútímasamfélagi er margt sem togar í okkur. Til að hugleiða að staðaldri þarf mikla staðfestu og sterka andlega þrá.“ Kynningarnámskeiðin verða hald- in í Tónabæ næstkomandi mánu- dags-, þriðjudags-, og fímmtudags- kvöld kl. 20-22. A Hverfísgötu 76 verða þau sem hér segir: Mánudag-fímmtudag kl. 12-13 og kl. 15-17. Föstudag kl. 12-13, kl. 15-17 og kl. 20-22. Laugardag kl. 10-12, 15-17 og 20-22. Sunnudag kl. 10-12 og kl. 15-17. ■jíV: 1 v A 1 tus 1 1 NÝJA húsnæði Heildsöluverslunarinnar við Fellsmúla. Heildsöluverslunin flutt í Fellsmúla HEILDSÖLUVERSLUNIN, sem starfrækt hefur verið í tæp tvö ár í Faxafeni, flutti nýlega í nýtt og rúmgott húsnæði á einni hæð í Fellsmúla ofan við „Gullaugað" þar sem afgreiðsla IKEA var áður. í fréttatilkynningu segir að markmið verslunarinnar sé að bjóða neytendum ýmsa vöruflokka á sam- bærilegu eða lægra verði en í ná- grannalöndunum. Oft hafí verið erfitt að anna eftirspurn en nýja húsnæðið geri kleift að stórauka vöruúrval og nú sé boðið upp á öll tæki í eldhús og bað, handverk- færi, rafmagnsverkfæri, garð- yrkjuáhöld, bílafylgihluti, bama- hjól, vinnufatnað o.m.fl. Heildsöluverslunin er opin dag- lega frá 9-18 og laugardaga frá 10-14. Drekar og dúndurfjör í ^ miðbænum Nú eru liöin 10 ár frá stofnun Sjanghæ, kínverska veitingahússins á íslandi. í tilefni afmælisins eru komnir hingað kínverskir dansarar og trúðleikarar ásamt ósviknum kínverskum skrúðgöngudreka. Fjörið hefst kl. 14:00 í dag, laugardag, við Sjanghæ. Þaðan leggja Kínverjarnir og drekinn þeirra af stað kl. 15:00. Drekinn hlykkjast niður Laugaveg-, um Bankastræti, Austurstræti og endar á Ingólfstorgi. Afmælisveislan hefst í Sjanghæ í dag og stendur fram á fimmtudaginn 25. maí, uppstigningardag. Afmælistilboð á matseðli eru tvennskonar, fjórir réttir, súpa og eftirréttur á aðeins kr. 1290 og fimm réttir, súpa og eftirréttur á aðeins kr. 1490. Og bjórglas með matnum kostar krónu fyrir hvert ár sem Sjanghæ hefur starfað. Bjórinn kostar þvi 10 krónur! Hádegisverðar-hlaðborð alla dagana - allir réttir á 600 kr. 10% afsláttur af öllum öðrum réttum á matseðlinum. Láttu sjanghæja þig - það borgar sigl- KINVEMKtl Vinnur þú á laugardögum? Landsleikurinn okkar!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.