Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. MAÍ1995 39
FRÉTTIR
Grafarvogssöfnuður
Nýr prestur vígður
til safnaðarins
Á MORGUN verður Sigurður Am-
arson guðfræðingur vígður af
herra Ólafi Skúlasyni, biskupi ís-
lands, til að gegna embætti aðstoð-
arprests í Grafarvogsprestakalli.
Sigurður var meðal margra um-
sækjenda um embættið og hlaut
hann bindandi kosningu til að
gegna því. Vígslan fer fram í Dóm-
kirkjunni kl. 10.30.
Sigurður mun taka þátt í há-
tíðarguðsþjónustu í Grafarvogs-
kirkju á uppstigningardag, 25.
maí, en sá dagur er í kirkjunni
helgaður eldri borgurum. Pétur
Sigurgeirsson biskup predikar þá
Grafarvogskirkju. Kvartettinn
Út í vorið mun syngja undir stjórn
Bjama Þórs Jónatanssonar organ-
ista, og einnig mun barnakórinn
syngja undir stjórn Áslaugar Berg-
steinsdóttur.
Á hvítasunnudag, 4. júní, er sex
ára afmæli Grafarvogskirkju og
þá verður Sigurður Arnarson sett-
ur inn í embætti af séra Guðmundi
Þorsteinssyni dómprófasti. Hinn
nývígði prestur mun þá predika
og kirkjukórinn mun syngja í aðal-
sal að lokinni messu.
Ibúðir á efri
hæð til sýnis
Flórgoða-
dagur við
Ástjörn
FUGLAVERNDARFÉLAG íslands
hefur nú í tvö ár staðið fyrir flór-
goðadegi og er ætlunin að viðhalda
þeim sið að vekja athygli á þessum
skrautlega og skemmtilega fugli
sem á undir högg að sækja og er
í útrýmingarhættu hér á landi, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Flórgoðadagurinn verður sunnu-
daginn 21. maí við Ástjörn sunnan
Hafnarfjarðar. Þar munu reyndir
fuglaskoðarar verða fólki til leið-
sagnar og fróðleiks frá kl. 14 til
16 og segja frá flórgoðanum og
kynna hið fjölskrúðuga fuglalíf við
Ástjörn.
Biðilsleikur flórgoða er einn
áhrifamesti sjónleikur í ís-
lenskri náttúru.
ALMENNINGI gefst um helg-
ina kostur á að kynna sér „íbúð
á efri hæð“. Reykjavíkurborg
og Þórunarfélag Reykjavíkur
hafa styrkt breytingar á hús-
næði á efri hæðum í verslunar-
húsum í miðbænum, svo þar
verði íbúðarhúsnæði. Þetta er
gert í þeim tilgangi að auka líf
í miðbænum og á sér fyrirmynd-
ir erlendis. Nú hafa 15 íbúðir
verið gerðar á efri hæðum
verslunarhúsa og gefst almenn-
ingi kostur á að skoða þijár
þeirra, sem eru að Laugavegi
5. Þær íbúðir eiga Félagsíbúðir
iðnnema og verða þær til sýnis
laugardag og sunnudag frá
13-18. Markmiðið með sýning-
unni er að gera fólki grein fyr-
ir möguleikum á íbúðum á efri
hæð og veittar verða upplýs-
ingar um styrki til slíkra breyt-
inga. Styrkir hafa numið 10%
af kostnaði við breytingar, auk
ýmiss konar fyrirgreiðslu. Á
meðfylgjandi myndum sést hús-
ið að Laugavegi 5 og eldhús og
stofa einnar íbúðarinnar.
Kosið í nefndir Alþingis
KOSIÐ var í fastanefndir Alþingis á þingfundi
s.l. miðvikudag.
SKIPAN nefnda er sem hér segir:
Allsheijamefnd: Sólveig Pétursdóttir, Árni R.
Árnason, Hjálmar Jónsson og Kristján Pálsson,
Sjálfstæðisflokki. Jón Kristjánsson og Valgerður
Sverrisdóttir, Framsóknarflokki. Kristinn H.
Gunnarsson Alþýðubandalagi. Gísli S. Einarsson
Alþýðuflokki. Guðný Guðbjörnsdóttir Kvenna-
lista.
Efnahags- og viðskiptanefnd: Vilhjáimur Eg-
ilsson, Pétur Blöndal, Einar Oddur Kristjánsson
og Sólveig Pétursdóttir, Sjálfstæðisflokki. Gunn-
laugur Sigmundsson og Valgerður Sverrisdóttir,
Framsóknarflokki. Steingrímur J. Sigfússon, Al-
þýðubandalagi. Jón Baldvin Hannibalsson, AI-
þýðuflokki. Ágúst Einarsson, Þjóðvaka.
Félagsmálanefnd: Einar K. Guðfinnsson, Pétur
Blöndal, Arnbjörg Sveinsdóttir og Kristján Páls-
son, Sjálfstæðisflokki. Siv Friðleifsdóttir og
Magnús Stefánsson, Framsóknarflokki. Bryndís
Hlöðversdóttir, Alþýðubandalagi. Rannveig Guð-
mundsdóttir Alþýðuflokki. Kristín Ástgeirsdóttir
Kvennalista.
Fjárlaganefnd: Árni M. Mathiesen, Árni John-
sen, Hjálmar Jónsson, Arnbjörg Sveinsdóttir og
/ Sturla Böðvarsson, Sjálfstæðisflokki. Jón Krist-
jánsson og ísólfur Gylfi Pálmason, Framsóknar-
flokki. Kristinn H. Gunnarsson og Margrét Frí-
mannsdóttir, Alþýðubandalagi, Gísli S. Einars-
son, Alþýðuflokki og Kristín Halldórsdóttir,
Kvennalista.
Heilbrigðis- og trygginganefnd: Lára Margrét
Ragnarsdóttir, Guðmundur Hallvarðsson, Sólveig
Pétursdóttir og Sigríður Anna Þórðardóttir, Sjálf-
stæðisflokki. Siv Friðleifsdóttir og Guðni Ágústs-
son, Framsóknarflokki. Ögmundur Jónasson,
Alþýðubandalagi. Össur Skarphéðinsson, Alþýðu-
flokki. Ásta R. Jóhannesdóttir, Þjóðvaka.
Iðnaðarnefnd: Guðjón Guðmundsson, Sigríður
A. Þórðardóttir, Pétur Blöndal og Árni R. Árna-
son, Sjálfstæðisflokki. Stefán Guðmundsson og
Hjálmar Árnason, Framsóknarflokki. Svavar
Gestsson, Alþýðubandalagi. Guðmundur Árni
Stefánsson, Alþýðuflokki. Agúst Einarsson, Þjóð-
vaka.
Landbúnaðarnefnd: Egill Jónsson, Árni M.
Mathiesen, Guðjón Guðmundsson og Hjálmar
Jónsson, Sjálfstæðisflokki. Guðni Ágústsson og
Magnús Stefánsson, Framsóknarflokki. Margrét
Frímannsdóttir, Alþýðubandalagi. Lúðvík Berg-
vinsson, Alþýðuflokki. Ágúst Einarsson, Þjóð-
vaka.
Menntamálanefnd: Sigríður A. Þórðardóttir,
Tómas Ingi Olrich, Arnbjörg Sveinsdóttiy og
Árni Johnsen, Sjálfstæðisflokki. Hjálmar Árna-
son og Ólafur Örn Haraldsson, Framsóknar-
flokki. Bryndís Hlöðversdóttir, Alþýðubandalagi.
Lúðvík Bergvinsson, Alþýðuflokki. Guðný Guð-
björnsdóttir, Kvennalista.
Samgöngunefnd: Einar K. Guðfinnsson, Egill
Jónsson, Árni Johnsen og Sturla Böðvarsson,
Sjálfstæðisflokki. Stefán Guðmundsson og Magn-
ús Stefánsson, Framsóknarflokki. Ragnar Arn-
alds, Alþýðubandalagi. Guðmundur Árni Stefáns-
son, Alþýðuflokki. Asta R. Jóhannesdóttir, Þjóð-
vaka.
Sjávarútvegsnefnd: Árni R. Árnason, Einar
Oddur Kristjánsson, Guðmundur Hallvarðsson
og Vilhjálmur Egilsson, Sjálfstæðisflokki. Stefán
Guðmundsson og Hjálmar Árnason, Framsókn-
arflokki. Steingrímur J. Sigfússon, Alþýðubanda-
lagi. Sighvatur Björgvinsson, Alþýðuflokki. Svan-
fríður Jónasdóttir, Þjóðvaka.
Umhverfisnefnd: Tómas Ingi Olrich, Árni M.
Mathiesen, Lára Margrét Ragnarsdóttir og Einar
Oddur Kristjánsson, Sjálfstæðisflokki. Ólafur Örn
Haraldsson og ísólfur Gylfi Pálmason, Framsókn-
arflokki. Hjörleifur Guttormsson, Alþýðubanda-
lagi. Gísli S. Einarsson, Alþýðuflokki. Kristín
Halldórsdóttir, Kvennalista
Utanríkismálanefnd. Aðalmenn: Geir H. Ha-
arde, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Árni R. Árna-
son og Tómas Ingi Olrich, Sjálfstæðisflokki. Siv
Friðleifsdóttir og Gunnlaugur Sigmundsson,
Framsóknarflokki. Ólafur Ragnar Grímsson, Al-
þýðubandalagi. Össur Skarphéðinsson, Alþýðu-
flokki. Jóhanna Sigurðardóttir, Þjóðvaká.
Varamenn: Árni M. Mathiesen, Vilhjálmur
Egilsson, Sólveig Pétursdóttir og Hjálmar Jóns-
son, Sjálfstæðisflokki. Hjálmar Arnason og Ólaf-
ur Örn Haraldsson, Framsóknarflokki. Hjörleifur
Guttormsson, Alþýðubandalagi. Rannveig Guð-
mundsdóttir, Alþýðuflokki. Asta R. Jóhannes-
dóttir, Þjóðvaka.
Prestvígsla í
Dómkirkj-
unni
BISKUP íslands, herra Ólaf-
ur Skúlason, vígir nk. sunnu-
dag kl. 10.30 tvo guðfræði-
kandídata prestvígslu.
Sigurður Arnarson verður
vígður til aðstoðarprestsþjón-
ustu í Grafarvogsprestakalli
í Reykjavíkurprófastsdæmi
eystra. Pétur Þorsteinsson
verður vígður til að þjóna
Óháða söfnuðinum í Reykja-
vík.
Vígsluvottar verða sr. Þór-
steinn Ragnarsson, fráfar-
andi prestur Óháða safnaðar-
ins, sr. Vigfús Þór Ámason,
sóknarprestur í Grafarvogs-
prestakalli, sr. Þórir Stephen-
sen, fyrrum dómkirkjuprestur
og sr. Jakob Ágúst Hjálmars-
son, dómkirkjuprestur, er
þjónar fyrir altari, ásamt
biskupi.
Dómkórinn syngur undir
stjórn Marteins H. Friðriks-
sonar, dómorganista.
Hestamenn í
Fjölskyldu-
garðinum
HELGARDAGSKRÁIN í
Fjölskyldu- og Húsdýragarð-
inum í Laugardal verður sem
hér segir:
Á laugardaginn og sunnu-
daginn kl. 13.30 og kl. 15
munu hestamenn frá Hesta-
mannafélaginu Herði í Mos-
fellsbæ sýna listir sínar í
Húsdýragarðinum. Á laugar-
daginn er Landsbankadagur
í Fjölskyldugarðinum og á
sunnudag kl. 15 verður bréf-
dúfuslepping í á vegum Bréf-
dúfufélags Reykjavíkur.
Fjölskyldu- og Húsdýra-
garðurinn verður opinn um
helgina frá kl. 10-18.
Drekadans á
Laugavegi
UM ÞESSAR mundir eru liðin
10 ár frá stofnun Sjanghæ,
kínverska veitingahússins á
íslandi. í tilefni afmælisins
hefur Sjanghæ boðið hingað
til lands dönsurum og
trúðleikurum frá Kína.
Kínverska dreka-skrúð-
gangan leggur af stað niður
Laugaveg kl. 15 laugardag-
inn 20. maí. Drekinn hlykkj-
ast niður Laugaveg, um
Bankastræti, Austurstræti og
endar á Ingólfstorgi.
í fréttatilkynningu segir
að í tilefni 10 ára afmælisins
bjóði Sjanghæ sérstaka máls-
verði og 10% afslátt af öllum
öðrum réttum á matseðlinum.
Gildir afmælistilboðið frá
laugardeginum 20. maí fram
á fimmtudaginn 25. maí, upp-
stigningardag.
■ SUMARBALL í GRAF-
ARVOGI Hljómsveitin Salsa
Picante mun skemmta á
sumarballi Grafarvogs laug-
ardaginn/20. maí sem verður
haldið í Ártúni. Húsið opnar
kl. 22 en hljómsveitin leikur
frá kl. 23-3. Þeir sem mæta
fyrir kl. 23 fá frían drykk og
léttar veitingar. Miðaverð er
1000 kr.