Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 15 VIÐSKIPTI Breytingar vísitölu byg gingarkostnaðar 1993-1995 % —— KK. ^ s 3 - ——«s^=^v o J FMAMJ JÁSÓND 1993 JFMAMJJÁSOND. 1994 I F MAM 1995 Vísitala byggingarkostnaðar reyndist vera 203,9 stig um miöjan mai, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Þessi vísitala gildir fyrir júní. Vísitalan hefur hækkað um 0,1% frá því í apríl. Síðastiiðna tóif mánuði hefur vísitalan hækkað um 3,9%, en undanfarna þrjá mánuði er hækkunin 2% sem jafngildir 8% verðbólgu á ári. Hrávara Reynt að hefta út- flutning á kaffi London. Reuter. HELZTU kaffiútflytjendur hafa endurvakið samning um að reynt verði að draga úr útflutningi og koma verðinu í sama horf og eftir miklar hækkanir í fyrra. Kunnugir telja að neytendur þurfi að hafa meiri áhyggjur af hugsan- legum frostskemmdum'f Brasilíu, en verðbréfafyrirtækið GNI telur líkur á skemmdum einn á móti tíu. Samtök kaffiframleiðslulanda, ACPC, ákváðu á fundi í London í vikunni að 13 umsvifamestu aðild- arlöndin kæmu í framkvæmd sam- komulagi um að halda eftir 10-20% af útflutningi. ACPC stefnir að því að verðið verði jafnhátt og þegar það hækkaði um einn fjórða í fyrra eftir frostskemmdimar í Brasilíu og þurrka, sem á eftir fylgdu. Verðið hefur síðan lækkað um 25%. Umrætt samkomulag náðist í marz, en erfitt hefur verið að fram- fylgja því í Brasilíu þar til nú og efazt er að það beri árangur. Mat á skorti á birgðum af KAKÓ hefur verið tvöfaldað í 165.000 tonn, þar sem horfur eru á minna fram- boði í Malajsíu, Brasilíu og Indónes- íu. Hækkandi verði er spáð. Verð á OLÍU hækkaði vegna aukinnar eftirspurnar eftir benzíni í Bandaríkjunum. Framreiknað verð á benzíni í New York komst í 66,25 sent gallonið og hefur ekki verið hærra í þrjú ár. Framreiknað verð á HVEITI í Chicago lækkaði um tæp 10 sent. SOJABAUNIR hækkuðu í verði vegna frétta um eftirspum í Kína. Ragnar Önundarson, framkvæmdastjóri íslandsbanka, gagn- rýnir hugmyndir um ný húsbréf vegna viðhalds fasteigna ESA kanni lögmæti húsbréfaútgáfunnar RAGNAR Önundarson, fram- kvæmdastjóri íslandsbanka hf., gagnrýnir harðlega hugmyndir félagsmálaráðherra um að gefa út nýjan húsbréfaflokk vegna við- halds og endurbóta á húsnæði. Að hans mati þarf ráðherrann að tilkynna um þessar fyrirætlanir sínar til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) sem myndi kanna lögmæti þeirra. Þetta kom fram á nám- stefnu Verðbréfamarkaðs íslands- banka á fimmtudag. „Núna í vikunni heyrði ég t.d. félagsmálaráðherrann lýsa í út- varpi áhuga á að færa út kvíarnar í þeirri lánastarfsemi sem undir hann heyrir. Hann viðraði hug- myndir um nýjan flokk húsbréfa til 15 ára vegna viðhalds og endur- bóta á húsnæði. Húsbréf eru með ókeypis ríkisábyrgð. Ekki er vitað annað en að nægilegt framboð lánsfjár sé á markaðnum vegna þessara þarfa og er íslandsbanki t.d. að auglýsa slík lán þessa dag- ana. Ráðherrann lætur sér sem sagt detta í hug að efna til nýrrar sam- keppni m.a. við lánastofnanir sem ekki njóta sérstakrar fyrirgreiðslu ríkisins á sama tíma og Eftirlits- stofnun EFTA er að kanna hvort núverandi lánastarfsemi ríkisins samrýmist markaðsfjárfestaregl- unni. Hér virðast menn aka í svo djúpum hjólförum að þeir nái ekki að komast upp úr þeim með nokkru móti. Mig grunar að ráð- herrann hafi ekki hugmynd um að samkvæmt EES-samningnum ber honum að tilkynna Eftirlits- stofnun EFTA fyrirfram um þær fyrirætlanir sínar að hefja nýja starfsemi í skjóli ríkisframlaga og gefa stofnuninni ráðrúm til að meta lögmæti hennar áður en starfsemin er hafín.“ Hugmyndir um nýsköpunarsjóð gagnrýndar Ragnar vék einnig að málefnum Iðnþróunarsjóðs og benti á að sjóð- urinn hefði endurgreitt 13,5 millj- óna dollara víkjandi lán til Norður- landanna en eftir stæði 2,2 millj- arða eigið fé. Nú væri gælt við það að fá Iðnþróunarsjóði það hlut- verk að leggja fram hlutafé og veita áhættulán og styrki til þró- unarverkefna. Heimilt verði að afskrifa lán heppnist verkefnið ekki, samkvæmt frumvarpsdrög- unum. „Ekki finnst mér nú góður blær á þessu,“ sagði Ragnar. „Orðið styrkur felur eiginlega í sér öfugmæli því sá sem nýtur styrks verður veikari og vanbúnari í sam- keppninni á eftir. Við vitum að höfuðstóll Iðnþróunarsjóðs varð til á aldarfjórðungi. Halda menn að það muni taka önnur 25 ár að eyða þessum krónum í hlutafjár- framlög, áhættulán og styrki?" Ragnar varpaði þeirri spurningu fram hvort stjómmálamenn væru búnir að gleyma Hlutafjársjóði, Atvinnutryggingasjóði útflutn- ingsgreina og Framkvæmdasjóði íslands. „Allir voru þessir sjóðir opinberir og reknir á ábyrgð og kostnað almennings. Allir hafa þeir lagt upp laupana. Eftirhreyt- umar eru til innheimtu hjá Lána- sýslu ríkisins en milljarðatöp eru færð á ríkissjóð. Halda menn virki- lega enn árið 1995 að það sé enda- laust hægt að eyða öllum sjóðum og velta vandanum inn í framtíð- - kjarni málsins! HONDA frumsýnir laugardag kl. 10-17 sunnudag kl. 13-17 í fh t * K 4 *„ « |i. -mur ■. _j . ^ 17 % v* fi HONDA Civic 5 dyra Verð frá 1.259.000,- fyj stgr. á götuna. Kynnum einnis ClubCar Solfbíla. Vatnagörðum E4 Sími 568-9900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.