Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Bónus seldi tíu tonn af lamba- kjöti í gær LAMBAKJÖT, sem auglýst var á óvenju lágu verði í Bónus í gær, seldist nærri upp. Að sögn Jóns Asgeirs Jóhannessonar, fram- kvæmdastjóra, var um að ræða 10 tonn af Goða-lambakjöti, lærum, hryggjum, hálfum skrokkum og grillsöguðum framhryggjum. Var kílóverð á hryggjum 452 kr. og kílóverð á lambalærum 455 krónur. Til samanburðar má geta þess að heildarsala lambakjöts á landinu nam um 442 tonnum í apríl, eða tæplega 15 tonnum að meðaltali á dag. Lambakjöt hefur verið á tilboðs- verði í flestum stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu undanfarnar vikur og er algengt kílóverð á lær- um og hryggjum öðrum hvorum megin við 500 krónur. Niðurgreitt kjöt Sala á lambakjöti hefur dregist talsvert saman á síðustu mánuðum. Til dæmis má nefna að heildarsala á kindakjöti var nærri 40% minni í mars síðastliðnum en í sama mán- uði 1994. Markaðsaðgerðir sam- starfshóps um sölu á lambakjöti, meðal annars niðurgreiðslur, eru til þess fallnar að auka sölu á þessari afurð. Alexander Þórisson fram- kvæmdastjóri samstarfshópsins segir að kjötið sé niðurgreitt um 10% af skráðu heildsöluverði af- urðastöðva. „Samkvæmt tölum sem nú liggja fyrir hefur lambakjötssala tekið kipp og var meiri í apríl í ár en sama mánuði í fyrra. Niður- greiðslur hófust 18. apríl og við miðum við að greiða niður 600 tonn af lambakjöti til júníloka. Skilyrði af okkar hálfu var að niðurgreiðslur væru notaðar til verðlækkunnar og ljóst er að það hefur verið gert. Verðið er töluvert lægra en ég gerði ráð fyrir og hefur það bæði kosti og galla. Hið jákvæða er að nú er selt mikið magn og birgðir minnka. Aftur á móti má velta fyrir sér hver borgar lágt verð á lambakjöti að lokum. Ekki allir sláturleyfishaf- ar og kaupmenn treysta sér til að taka þátt í kapphlaupi um lægsta verð. Þeir hljóta því að leggja áherslu á annað en lambakjöt á meðan.“ Dýrara í heildsölu Úlfar Reynisson er skrifstofu- stjóri hjá Kjötumboðinu, sem fram- leiðir undir vörumerki Goði. - Hvað kostar lambakjöt í heild- sölu hjá ykkur? „Samkvæmt verðlista kostar kíló af lambalæri 536 kr. kg þegar búið er að taka tillit til 10% niður- greiðslu. Sama verð er á hrygg. Osagaður frampartur kostar 339 krónur kílóið.“ - Það er dýrara en í verslun sem kaupir kjöt af ykkur. Hvernig stendur á því? „Ég get ekki skýrt þennan verð- mun og ræði ekki kjör einstakra viðskiptavina okkar.“ Jón Ásgeir Jóhannesson segir að Bónus hafí ekki borgað með kjötinu sem selt var þar í gær. „Við fengum það á góðu verði.“ Hann kveðst lít- ið hafa orðið var við að aðrir kaup- menn kæmu í Bónus-verslanir til að kaupa ódýrara kjöt en í heild- sölu. „Ég hef aðeins séð nokkra kaupmenn af landsbyggðinni, en enga sem hafa keypt verulegt magn.“ IMEYTENDUR Sauða- litimir í tísku aftur f VIKUNNI var sýning hjá ís- lenskum heimilisiðnaði á ullar- fatnaði og teppum sex framleið- enda. Sauðalitirnir voru áber- andi enda í tísku að hafa fatnað sem náttúrulegastan. Eitthvað var um rautt, grænt og blátt með sauðalitunum og mikið um kápur, slár og ófóðraðar síðar jakkapeysur. Buxur sem ekkiþarf að pressa MELKA-herrabuxur, sem ekki þarf að pressa, fást nú í flestum herrafatadeildum landsins. í fréttatii- kynningu frá Bergís hf., sem er um- boðsaðili fyrir Melka herra- fatnað, segir að vegna þess að buxurnar séu meðhöndl- aðar með svo- nefndri Durable Press-aðferð þurfí ekki að pressa þær og brotin haldist eftir marga þvotta. Enn- fremur segir að buxumar standist vel tímans tönn, krumpist ekki, séu þægilegar því efnið í þeim sé létt og hleypi lofti í gegn, og liturinn haldist vel vegna sérs- takrar litunaraðferðar. Efnið í buxunum er ofnæmis- prófað samkvæmt evrópska staðl- inum „0ko-Tek 100 standard“. HROSSATAÐ og kúamykja eru að mestu horfin úr görðum í borgum og bæjum. Þeir sem ólust upp við lykt, sem var ótvírætt merki um að sumarið væri í nánd, nota frekar hænsnaskít eða þörungamjöl. Um þessar mundir geta íbúar á höfuð- borgarsvæðinu reyndar fengið ókeypis jarðvegsbæti á gámastöðv- um Sorpu. Er uppistaða hans garða- úrgangur og hrossatað. Vaxandi áhugi á náttúruvemd og lífrænum lífsstíl hefur haft þau áhrif að verksmiðjuframleiddur til- búinn áburður þykir ekki fínn. Því leitast menn við að nota lífrænan áburð og þykir hæsnaskítur hafa gefíð góða raun. Hænsnaskítur vinsæll Hjá Blómavali og gróðurvöru- verslun Sölufélags garðyrkjumanna fengust þær upplýsingar að sala á hænsnaskít hefði aukist verulega á síðustu árum, enda væri um að- gengilegan og fremur ódýran kost að ræða. Sumir hafa óbilandi trú á hrossa- taði og er það enn notað í einhverj- um mæli á tún og matjurtagarða. Kúamykja er öllu sjaldgæfari. Ein- staka sinnum er hrossatað auglýst til sölu og mun algengt verð á hlassi, sem dugar á væna grasflöt, vera um 6.000 krónur. 15 lítra poki af hæsnaskít kostar rúmlega 1.000 krónur hjá Blóma- vali og Sölufélagi garðyrkjumanna. Á 100 fermetra grasflöt þarf milli 20 og 70 lítra af hæsnsaskít, eftir Hænsnaskítur í stað hrossataðs ástandi garðsins. í matjurtagarða er venjulega sett meira og miðað við 140 lítra af skít í 50 fermetra garð. Hjá Blómavali og Sölufélagi garðyrkjumanna voru menn sam- mála um að hæsnaskítur væri að öllu jöfnu betri kostur en hrossatað. Það væri þó gott sem forðabú, neð- arlega í skurðum, sem grafnir eru fyrir limgerði eða beð. Bentu þeir á að hrossatað þyrfti að standa í 2-3 ár og brotna vel niður áður en það teldist gott. Þá þyrfti að hreinsa það til að losna við illgresis- fræ, sem hestar melta ekki. Sögðu talsmenn verslananna tveggja að á hvetju sumri leitaði töluverður fjöldi til þeirra vegna illgresis sem sprott- ið hefði upp af fræjum úr hrossa- taði. Hænsnaskítur væri hitaður og þurrkaður, svo ekki væri hætta á að illgresisfræjum væri sáð með honum. Þörungamjöl í kartöflugarða Þörungamjöl er mikið notað 'í kartöflugarða og er það selt í neyt- endapakkningum frá 5 upp í 20 kg. 5 kg poki kostar um 600 kr. og 20 kg um 1.500 krónur. Er þör- Lífrænn áburður af ýmsu tagi er notaður til að örva grasvöxt. ungamjöl sagt mjög ríkt af næring- arefnum og einnig kjötbeinamjöl, en það er eingöngu selt í 40 kg. pakkningu hjá Sölufélagi garð- Morgunblaðið/Ámr Sæberg Unglingar og vímuefni NYUTKOMNU fræðsluriti SÁÁ um vímuefnaneyslu unglinga verður dreift á tæplega 30 þúsund heimili um allt land. Ritið er sent foreldrum 9-15 ára barna, félögum og styrkt- arfélögum SÁA. Fræðsluritið ber nafnið: „Ung- lingar og vímuefni: Hvað geta for- eldrar gert?“ og er ætlað að fræða foreldra um ástæður þess að vímu- efnaneysla unglinga er óæskileg og hvað hægt sé að gera innan veggja heimilisins til að stemma stigu við henni. Skýrt er frá því hversu al- geng vímuefnaneysla unglinga er og í viðauka er fjallað um vímuefnin og ýmsar aðferðir við foiyarnir. í könnun sem fræðslu- og for- vamadeild SÁÁ gerði í vetur kom í ljós að mikið vantaði á þekk- ingu foreldra á vímuefna- , i vanda ungl- Vj inga. í kjölfar- ið var efnt til fræðslufunda fyrir foreldra \\ og ákveðið að gefa út þetta fræðslu- rit. í fréttatilkynningu frá SÁÁ segir að grunnur forvarna- starfs samtakanna sé sá hagnaður sem varð af álfasölunni í fyrra. Um næstu helgi verði hafin árleg fyjár- söfnun SÁÁ og sé ætlunin að veija hagnaðinum áfram til for- varnastarfs fyrir ungt fólk. Leitað að sökudólgi. Fræðslu- rit fyrir foreldra yrkjumanna og kostar um 2.300 krónur. Að sögn Gísla Sigurðssonar eiganda gróðurvöruverslunar Sölu- félags garðyrkjumanna er kjöt- beinamjöl mikið notað í gróðurhús. „Þetta er tiltölulega nýkomið á markað, en er alhliða næring fyrir blóm og matjurtir. Ég held að helsta ástæða þess að kjötbeinamjöl er ekki mikið notað í kringum heima- hús sé sú að það er aðeins selt í stórum pakkningum." Þeir sem vilja fá lífrænan jarð- vegsbæti á gámastöðvum Sorpu geta komið þangað með ílát og fengið 70 lítra af bætinum, sem kallaður er molta. Um er að ræða árangur af átaki um endurvinnslu á lífrænum úrgangi, sem Sorpa stóð fyrir á síðasta ári. í fréttatilkynn- ingu kemur fram að mjög hafi ver- ið vandað til verka við framleiðsluna og að molta sé rík af lífrænum efn- um og helstu næringarefnum plantna. „Hún hefur góða loftunar- og vatnsheldieiginleika, er laus við illgresisfræ og hefur reynst ágæt- lega við ræktun í gróðurhúsum,“ segir í tilkynningunni. Ennfremur segir að moltu megi til dæmis nota í ófijóan jarðveg, við útplöntun, sem yfirborðslag í blómabeð, á grasflöt og til að losna við illgresi. Einnig megi nota hana sem tijánæringu og við matjurtaræktun. Alls eru til um 3.000 skammtar af moltu á gámastöðvum og verður hægt að fá jarðvegsbætinn til 28. maí næstkomandi - eða meðan birgðir endast. Barnastígur við Skóla- vörðustíg BARNAFATAVERSLUNIN Barnastígur opnaði nýlega á Skóla- vörðustíg 8. Á boðstólum er fransk- ur og danskur fatnaður á þriggja mánaða til tólf ára börn frá IKKS, Gina Diwan, Mani og Animal Farm. Sokkar og sokkabuxur eru frá danska fyrirtækinu MP. í fréttatilkynningu segir að í haust verði einnig boðið upp á ít- alskar vörur og meira úrval frá Frakklandi. • Eigendur Barnastígs eru Magda- lena Kjartansdóttir og Markús E. Jensen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.