Morgunblaðið - 20.05.1995, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þórshafnarbúar að drukkna í fiski
Þórshöfn. Morgunblaðið
HJÁ Hraðfrystistöð Þórshafnar
hf. er allt á fullri keyrslu þessa
dagana, en mjög góður afli hefur
verið bæði hjá trillum og stærri
bátum. Margir krókaleyfisbátar
leggja upp hjá Hraðfrystistöðinni
og hafa þeir komist upp í að landa
tvisvar á dag.
Gunnlaugur Karl Hreinsson
framleiðslustjóri hjá HÞ segir að
milli fimmtán og tuttugu aðkomu-
bátar leggi upp hjá HÞ og eru
þeir flestir krókaleyfisbátar á
línu. Þessi mikli þorskafli sem
berst nú á land þýðir mikla vinnu
þjá fiskverkafólki og er vinnutími
í Hraðfrystistöðinni um þessar
mundir frá sex eða sjö á morgn-
ana til miðnættis.
Að sögn Gunnlaugs er ekki
nógu margt starfsfólk til þess að
vinna á tvískiptum vöktum en
flestir sem tök hafa á hafa drifið
sig í fiskvinnu til þess að bjarga
verðmætum. Innan tíðar kemur
Landa
tvisvar
ádag
skólafólk til vinnu og leysir það
vandann að einhverju leyti.
Auk þorskaflans er unninn út-
hafskarfi og er keyrt á tveimur
flæðilínum í húsinu núna. Hrað-
frystistöðin hefur gert samning
við þrjá færeyska togara um veið-
ar á úthafskarfa sem seldur er á
Ameríkumarkað. Samstarfsaðilar
HÞ eru Tangi hf. á Vopnafirði,
Jökuli hf. á Raufarhöfn og Goða-
borg á Fáskrúðsfirði. Togararnir
munu landa á einhverjum þessara
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
staða eftir því sem hentar hvert
sinn og verður fiskinum ekið á
milli. I fyrstu iönduðu togararnir
í Vestmannaeyjum og var aflinn
fluttur til Þórshafnar einu sinni
í viku með Eimskipum hf. en nú-
verandi fyrirkomulag þykir hent-
ugra. Áframhald verður á þessu
samstarfi í allt sumar, segir Gunn-
laugur Karl og hefur HÞ nú tekið
á móti tæpum 300 tonnum af út-
hafskarfa á rúmum mánuði.
Kraftur í atvinnulífinu
í loðnuverksmiðjunni er keyrt
á fullum afköstum við síldar-
bræðslu allan sólarhringinn.
Búið er að bræða tæplega 10.000
tonn af síld en seinna í þessum
mánuði er til athugunar að vinna
síld til manneldis á Evrópumark-
að. Hjól atvinnulífsins snúast
hratt hér á Þórshöfn þetta vorið
og kraftur einkennir atvinnulíf-
ið.
Aðstoðarbankastj óri Landsbanka
Vextímir hafa
náð hámarki
LANDSBANKINN og Sparisjóð-
imir hækkuðu í gær inn- og út-
lánsvexti sína og hafa nálgast
vexti Búnaðarbanka og íslands-
banka. Brynjólfur Helgason, að-
stoðarbankastjóri Landsbankans,
sagði að bankinn hefði beðið í
lengstu lög með að hækka vexti
en ekki talið fært að bíða lengur.
„Við vorum framan af að bíða
eftir áhrifum kjarasamninga og
ríkisstjórnarskipta en áhrif þess-
ara þátta hafa verið lítil. Verð-
bólga lækkaði til að mynda í stað
þess að hækka eins og spáð hafði
verið,“ sagði hann.
Brynjólfur segir það ráðast af
markaðsaðstæðum hvort vextir
lækki aftur. „Við vonum að þetta
verði ekki til langframa en það
er háð ýmsum atriðum á markað-
inum. Það má þó vekja athygli á
því að skammtímavextir em á nið-
urleið erlendis og það bendir til
þess að vextir séu komnir í há-
mark hér á landi. Okkar staða í
bankanum gefur til kynna að vext-
irnir hafí náð hámarki og muni
a.m.k. ekki hækka meira í bráð,“
sagði hann.
Inn- og útlánsvextir hækka
Landsbankinn hækkaði kjör-
vexti á almennum skuldabréfalán-
um um 1%, úr 7,5% í 8,5%, og eru
hæstu skuldabréfavextir bankans
nú 13,25%. Sparisjóðirnir hækk-
uðu kjörvexti sína á almennum
skuldabréfalánum úr 7,75% í
8,25% og hækkuðu hæstu vextir
úr 12,60% í 13%. Aðrir útlánsvext-
ir hækkuðu minna.
Innlánsvextir hækkuðu lítillega
hjá bankastofnunum og em vextir
á almennum sparisjóðsbókum nú
hæstir hjá Sparisjóðunum eða
0,7%, næsthæstir í Landsbankan-
um en lægstir í hinum bönkunum.
Ástarlíf stöðvaði ferð
Grímsey. Morgnnblaðið.
ÓVENJULEG hindmn varð á
vegi Einars Þorgeirssonar í Mið-
görðum í Grímsey einn morgun-
inn í vikunni þegar hann ók frá
heimili sínu í verslunina á staðn-
um.
Á veginum neðan Sveinsstaða
er stór drullupollur og kom hann
þar auga á fugla. Stöðvaði hann
bifreið sína þar sem fuglarnir
sýndu ekki á sér neitt fararsnið.
Þegar Einar fór að gá hveiju það
sætti að fuglarnir skyldu ekki
fljúga upp við hávaðann í bílnum,
sem er hljóðkútslaus og því nokk-
uð hávær, sá hann að tjaldarnir
tveir í pollinum voru að njóta
unaðssemda ástarlífsins og
skeyttu engu um umhverfi sitt.
Beið Einar, dijúga stund við
pollinn áður en hann komst leiðar
sinnar.
Ríkisstjórnin samþykkir áætlun Seðlabanka um að draga úr verðtryggingu
Lágmarkstímí verðtryggðra
skuldabréfa verði sjö ár
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær,
að tillögu Finns Ingólfssonar, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, áætlun
Seðlabankans um að draga úr notkun
verðtryggingar.
Finnur óskaði eftir því við Seðla-
bankann að hann legði fram tillögur
um leiðir til að draga úr verðtrygg-
ingu í áfóngum. Tillögur bankans
voru Iagðar fram óbreyttar við ríkis-
stjórnina og samþykkti hún að fela
Seðlabankanum að framkvæma þær
í samvinnu við viðskiptabanka og
SAMKEPPNISYFIRVÖLD hafa
frestað því að taka afstöðu til kaupa
Olíufélagsins hf. (Esso) og Texaco á
hlut í Olíuverzlun íslands (Olís) og
fyrirhugaðrar stofnunar sameiginlegs
dreifíngarfyrirtækis féjaganna.
Ástæðan er að sögn Georgs Ólafsson-
ar, forstjóra Samkeppnisstofnunar,
að dregizt hefur að ganga frá form-
legum samningum félaganna og hafa
samkeppnisyfirvöld ekki fengið næg-
ar upplýsingar.
Kaupin á Olís og áform um að
stofna dreifingarfyrirtæki eru til með-
ferðar hjá Samkeppnisstofnun vegna
lagaákvæða um að ógilda megi samn-
inga, stuðli samruni fyrirtækja að
markaðsráðandi aðstöðu þeirra eða
hafí slæm áhrif á samkeppni.
Samkvæmt samkeppnislögum
verða samkeppnisyfirvöld að taka
ákvörðun um ógildingu í málum eigi
síðar en tveimur mánuðum eftir að
þeim varð kunnugt um samruna eða
yfirtöku fyrirtækja.
Samkeppnisstofnun óskaði bréf-
aðrar bankastofnanir, þannig að
breytingamar valdi sem minnstri
röskun á fjármálamarkaði.
Óverðtryggð ríkisbréf
Að sögn Finns mun ríkissjóður á
þessu ári reyna að leggja aukna
áherslu á að bjóða óverðtryggð rík-
isbréf og lengja smám saman bindi-
tíma þeirra. Síðan verði reynt að
hætta að tengja bréfín SDR og’ECU-
vísitölu. í upphafi næsta árs er gert
ráð fyrir lágmarkslánstími verð-
lega eftir upplýsingum frá Olíufélag-
inu; afriti af öllum skriflegum samn-
ingum og upplýsingum um óformlega
samninga. Hinn 26. apríl, rúmum
mánuði eftir að skýrt var frá að
kaupin hefðu átt sér stað, kom svar
frá Olíufélaginu, þar sem fram kom
að öll undirbúningsvinna væri
skammt á veg komin og fylgdu ekki
afritaf neinum samningum. I bréfínu
kom fram að það væri skilyrði af
hálfu Olíufélagsins fyrir kaupum
þess í Olís að samstarf tækist með
tryggðra skuldabréfa verði lengdur
úr tveimur árum í þijú.
Samkvæmt tillögunum verður lág-
marksbinditími verðtryggðra inn-
stæðna hækkaður úr einu ári í þijú
ár 1. janúar 1998 og á sama tíma
verði lágmarkslánstími verðtryggðra
skuldabréfa lengdur úr þremur árum
í fímm ár. 1. janúar árið 2000 verði
verðtrygging innstæðna óheimil en
lágmarkstími verðtryggðra skulda-
bréfa hækkaður úr fímm í sjö ár.
Finnur segir að ástæða þess að
félögunum í innflutningi og dreifingu
og að næststærsti hluthafínn í Olís,
Hydro Texaco, samþykkti þetta sam-
komulag.
Síðastliðinn fímmtudag var sam-
þykkt bókun á fundi samkeppnis-
ráðs, þar sem fram kemur að það
hafí ekki verið fyrr en 17. maí sem
samkeppnisyfirvöld fengu upplýs-
ingar um að Olíufélagið hefði end-
anlega gengið frá kaupum á hlut
Sunda hf. í Olís. Ekki var gengið
formlega frá kaupsamningi fyrr en
þetta sé lagt fram nú sé sú að ríkis-
stjómin hafi trú á því sem hún sé
að gera og þeim stöðugleika sem sé
að myndast í þjóðfélaginu. Hún telji
að hægt sé að stíga þessi skref vegna
þess að stöðugleikinn sé tryggður til
frambúðar. „Ríkisstjómin telur þó
mikilvægt að stíga þetta í ákveðnum
en öruggum skrefum á nokkuð löng-
um tíma þannig að þessi breyting
hafí sem allra minnsta röskun í för
með sér á fjármálamarkaði," sagði
Finnur Ingólfsson.
12. maí, samkvæmt úpplýsingum
Morgunblaðsins.
Að sögn Georgs Ólafssonar telja
samkeppnisyfirvöld að tveggja mán-
aða frestur þeirra til að taka afstöðu
til kaupanna sé þvi frá og með 17.
maí.
Georg segir að málið verði ekki
afgreitt fyrr en afrit allra samninga,
sem tengjast kaupunum, liggi fyrir.
Þar sé átt við kaupsamningana sjálfa,
stofnsamninga og samþykktir fyrir-
hugaðs dreifingarfyrirtækis, hlut-
hafasamninga í Olís og aðra samn-
inga sem tengist kaupunum.
Samkeppnisráð hefur beint þeim
fyrirmælum til Olíufélagsins, Olís,
Hydro Texaco og Sunda, að fá allar
upplýsingar og samninga innan fjög-
urra vikna. Verði samningamir ekki'
að fullu frágengnir á þeim tíma, er
þess krafízt að fá drög að þeim til
athugunar. Vísað er til ákvæða sam-
keppnislaga um að samkeppnisyfír-
völd geti krafízt allra upplýsinga af
fyrirtækjum.
Sleipnir felldi
miðlunartillögu
Verkfall
boðað að-
faranótt
mánudags
VERKFALL langferðabílstjóra í
Bifreiðastjórafélaginu Sleipni hefst
á miðnætti aðfaranótt næstkom-
andi mánudags, takist ekki sam-
komulag á samningafundi aðila í
kjaradeilu bílstjóra og vinnuveit-
enda, sem boðaður er kl. 17 á
sunnudag. Verkfallsboðun félagsins
hefur nú tekið gildi að nýju eftir
að yfírgnæfandi meirihluti félags-
manna felldi miðlunartillögu þá,
sem Þórir Einarsson ríkissáttasemj-
ari lagði fram í deilu Sleipnis við
vinnuveitendur.
78% á móti
AIls greiddu 115 Sleipnismenn
atkvæði. Af þeim höfnuðu 89 miðl-
unartillögunni, 23 voru henni
hlynntir og þijú atkvæði voru auð
eða ógild. Um 78% þeirra, sem
greiddu atkvæði, voru þannig á
móti tillögunni.
Óánægja með launamisrétti
Óskar Stefánsson, formaður
Sleipnis, sagði að það væri eflaust
óánægja með launamisrétti í stétt
bifreiðastjóra sem hefði ráðið niður-
stöðunni. Hann nefndi sem dæmi
að vagnstjórar Strætisvagna
Reykjavíkur hefðu hærri laun en
Sleipnismenn. „Það boðar til dæmis
ekki gott að ætla í uppbyggingu
ferðaþjónustu með óánægju laun-
þega, sem eiga að vinna við hana,“
sagði hann.
Samkeppnisyfirvöld um kaup Qlíufélagsins og Texaco á Olís
*
Akvörðun var
frestað vegna
ónógra upplýsinga