Morgunblaðið - 20.05.1995, Síða 10

Morgunblaðið - 20.05.1995, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Deilt um samning við Búseta í borgarstjórn Borgarstjóri segir Búseta njóta frumkvæðis síns Inga Jóna Þórðardóttir segir samn- inginn ganga þvert á stefnu R-Iistans INGA JÓNA Þórðardóttir, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagn- rýnir samkomulag borgaryfirvalda við Búseta, húsnæðissamvinnufé- lag, um umsjón með rekstri og við- haldi á 98 leiguíbúðum Félagsmála- stofnunar Reykjavíkurborgar. Ekki hafí verið tekið tillit til bókunar í stjórn Innkaupastofnunar Reykja- víkurborgar, sem samþykkt var samhljóða, um að æskilegt væri að fram færi forval áður en gengið yrði til samninga. Borgarstjóri sagði að um áhugaverða tilraun væri að ræða sem mönnum bæri að fagna. Ef vel tækist til yrði hald- ið lengra á þeirri braut með víðtæk- um útboðum. Inga Jóna sagði að samningurinn gengi þvert á stefnu R-listans um að fram færi forval og/eða útboð á verkum sem unnin eru fyrir borg- ina. Benti- hún á að Búseti fengi sér til liðsinnis annað fyrirtæki, Viðhald og þjónustu hf., sem ætti að sjá um raunverulegt viðhald og framkvæmdir. „Það er rétt sem komið hefur fram að um nýmæli er að ræða þar sem eignaumsýslan og umsjón eign- arinnar er fengin aðila utan borgar- kerfísins," sagði hún. „Við sjálf- stæðismenn lögðum hins vegar á það áherslu að eðlilegt væri að við- haldið sjálft á þessum 98 eignum væri boðið út. Það væri einnig hægt að gera tilraun með að aðilar utan borgarkerfísins sæju um eignaumsýsluna. Eðlilegur fram- gangsmáti væri að viðhaldið færi fram á almennum útboðsmarkaði þar sem um verulegar fjárhæðir er að ræða eða um 28 milljónir á næstu tveimur árum.“ Sagði hún það gagnrýnisvert hvemig staðið hefði verið að málum þar sem eng- ir meinbugir væru á útboði. Inga Jóna gagnrýndi einnig samninginn og sagði hann opinn hvað varðaði upphæðir og fjölda framkvæmda. „Búseti semur við hlutafélag, sem að stórum hluta ef ekki að meirhluta er í eign Búseta sjálfs, um allt þetta viðhald,“ sagði hún. „Það er ekki samið um að boðið sé sérstakt verð fyrir fram- kvæmdirnar heldur á að miða við þær fjárhæðir sem hvetju sinni er að finna í fjárveitingum og fjár- hagsáætlunum vegna viðkomandi eigna.“ Þá gagnrýndi hún að verktakinn hefði í allflestum liðum eftirlit með sjálfum sér. Lítil áhersla væri lögð á að aðilar frá borginni hefðu eftir- lit með verkinu. Ný braut í útboðsmálum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði að Sjálfstæðis- flokkur hefði gagnrýnt samninginn og talið að þarna væri verið að hverfa frá yfirlýstri stefnu að auka útboð á vegum borgarinnar. „Það er ekki svo,“ sagði hún. „í raun erum við að feta okkur inn á nýja braut í útboðsmálum. Þama er um tilraun að ræða og ef vel tekst til þá gerum við ráð fyrir að fara megi með eignaumsýslu á eignum borgarinnar og viðhald í mun _víð- tækara útboð en verið hefur. Áður en það er gert teljum við nauðsyn- legt að gera tilraun sem þessa, þar sem þetta hefur ekki verið áður gert hjá borginni." Fáir með reynslu og þekkingu Borgarstjóri sagði erfitt að bjóða verkið út vegna erfíðleika við gerð útboðsgagna. Þá væru mjög fáir aðilar sem hefðu reynslu og þekk- ingu á viðhaldi og eignaumsýslu leiguíbúða hér á landi í jafn stórum stíl og um væri að ræða. Það væri þá helst borgin sjálf og lauslegur samanburður benti til að staðið væri að framkvæmdum með öðrum og ódýrari hætti hjá Búseta. Kostn- aður borgarinnar af viðhaldi leigu- íbúða væri umtalsverður eða um 158 þús. á hveija íbúð á ári. „Búseti átti fmmkvæði að þessu máli,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „Bú- seti kom með þessa hugmynd til borgaryfirvalda og tekur ákveðið frumkvæði að breytingum í opin- berum rekstri. Það eitt fínnst mér gefa þeim ákveðið forskot og menn eiga að njóta síns frumkvæðis." Benti borgarstjóri á að í lok til- raunatímabilsins yrði borinn saman kostnaður borgarinnar við eigna- umsýslu og viðhald leiguíbúðanna. I athugasemd Ingu Jónu, við ummæli borgarstjóra, kom fram að forval hefði leitt í ljós hversu marg- ir aðilar á vinnumarkaðinum væru tilbúnir til að taka að sér þessi verk. Suðureyri Þróunarsjóður sjávarútvegsins, atvinnutryggingadeild, auglýsir til sölu fasteignina Sætún 8, Suðureyri. Um er að ræða steinsteypt 191,4 fm parhús smíðað 1977. Eignin selst í því ástandi sem hún er í dag. Tilboðum skal skila á skrifstofu Byggðastofnunar á Isafirði fyrir mánudag 29. maí nk. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn í síma 94-4633 og Páll í síma 560-5400 eða grænt númer 800 66 00. Samkomuiag um að Búseti taki að sér viðhald og rekstur leiguíbúða Félagsmálastofnunar 21150-21370 LARUS Þ. VALDIMARSSON, framkvæmdastjori KRISTJAN KRISTJANSS0N, loggiltur fasteigmasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Vinsæll staður - gott verð Stór og sólrík 3ja herb. íb. á 4. hæð v. Hjaröarhaga tæpir 90 fm. Nýtt gler. Sérþvaðstaða í íb. Ágæt sameign. Góð langtlán um kr. 4,5 millj. Tilboð óskast. Úrvalsíbúð á góðu verði 3ja herb. íb. á 2. hæð v. Jörfabakka. Ágæt sameign. Fráb. aðstaða fyrir börn. Hagst. greiðslukjör. Tilboð óskast. Sérhæð - bílskúr - hagkvæm skipti Á vinsælum stöðum í Vestur- og Austurborginni 5 og 6 herb. sérhæð- ir m. innb. bílsk. Eignaskipti mögul. Tilboð óskast. Fyrir smið eða laghentan rúmg. 2ja herb. íb. 64,4 fm í þríbhúsi v. Bræðraborgarst. Árg. 1976. Sérhiti, sérþvhús, sér bílastæði. Bráðabirgðainnr. í eldh. Gott verð. Á lækkuðu verði í Vogunum stór og góð kjíb. í þríbhúsi. Sérinng. Vinsælt hverfi. Laus fljótl. Tilboð óskast. Skammt frá KR-heimilinu - tilboð óskast Sólrík 4ra herb. íb. v. Meistaravelli. Góð lán fylgja. Mjög stór 4ra herb. íb. í lyftuh. v. Kaplaskjólsveg. Mikið útsýni. Opið í dag kl. 10-14. Fjársterkir kaupendur. Almenna fasteignasalan sf. var stof uð 12. júlí 1944. AIMENNA FASTEIGNASALAW ÍaugwÉgm^ímarzÍÍso-zÍSto Samtök iðnaðarins telja að forval hefði átt að fara fram SAMTÖK iðnaðarins eru jákvæð gagnvart því að Reykjavíkurborg afli sér þekkingar á því hvort bjóða megi út eignaumsýslu á vegum borgarinnar. Að sögn Árna Jó- hannssonar hjá Samtökum iðnaðar- ins telja samtökin hins vegar að standa hefði átt öðruvísi að tilrauna- verkefni þar að lútandi, og þar hefði átt að efna til einhverskonar forvals. Meirihluti borgarráðs hefur sam- þykkt samkomulag um að hús- næðissamvinnufélagið Búseti taki að sér sem verktaki tilraunaverkefni um viðhald og rekstur 98 leiguíbúða Félagsmálastofnunar Reykjavíkur- borgar. Arni Jóhannsson sagði í samtali við Morgunblaðið að tilraunaverk- efnið væri það framandi og nýtt að mati þeirra embættismanna borgar- innar sem að því koma, og þetta væri sú eina leið sem þeir hefðu talið færa. „Ég get ekki lagt mat á það hvort svo sé eða ekki, en hins vegar er markmiðssetningin með verkefninu góð og okkur mjög að skapi. Við munum væntanlega fylgjast með niðurstöðu verkefnisins og ef það fer á þann veg sem menn vonast til þá væntum við þess að þetta verði boð- ið út á almennum markaði þegar þessari tilraun lýkur," sagði Árni. Ætíð ætti að leita eftir samkeppni í bókun Innkaupastofnunar Reykjavíkur varðandi samkomulag- ið við Búseta kom fram að stjórn stofnunarinnar teldi æskilegt að forval yrði látið fara fram til að kanna áhuga aðila til að takast á við verkefnið. Alfreð Þorsteinsson, formaður stjómar Innkaupastofnunar, sagði í samtali við Morgunblaðið að það væri hans persónulega skoðun sem formanns stjórnarinnar að ætíð ætti að leita eftir samkeppni. Hann sagð- ist hins vegar vera því hlynntur að þessi tilraun væri gerð og hún væri liður í því að hægt yrði að bjóða slík verk út í framhaldinu og það væri skýr vilji allra að farið yrði með þetta í útboð að loknu reynslu- tímabilinu. Almennur áhugi í borgarstjórn „Stjórn Innkaupastofnunar hefur í samráði við Byggingadeild [borgarverkfræðings] leitað nýrra leiða undanfarið og birt auglýsingar í blöðum þar sem auglýst hefur verið eftir verktökum á skrá hjá okkur. Tilgangurinn er sá að við getum framkvæmt verðkönnun á milli verktaka. Byggingadeild kom svo með þá hugmynd að gera þessa tilraun með Búseta, og ég held að almennt sé áhugi á því bæði hjá meirihluta og minnihluta í borgarstjórn að reyna slíka leið. Menn greinir hins vegar kannski á um það hvort það hefði átt að leita eftir því hvort fleiri aðil- ar hefðu áhuga á þvf að reyna þetta,“ sagði Alfreð Þorsteinsson. FA5TEIGIMASALA REYKJAVIKURVEGI 62 S:65TISS Einbýli - raðhús HVERFISGATA - HF. Vorum að fé f ainkasölu eítt ef þessum virfiul. eldri húsum f nél. míðbæjaríns sem akiplist I jarfih., hœfi og rís. Bílsk. auk 28 fm geymslu sam getur nýst sem vinnuafistafia. Útsýni yf ír mlöbae- inn. Nánari uppl. é skrifst. VESTURBERG - RVÍK Mjög gott endarafih. á tveimur hæflum ásamt innb. bílsk. 4 svefnh. Góðar stof- ur. Sólstofa. Gott vinnuherb. GARÐAFLÖT - EINB. Vorum að fé 6-8 herb. eínb. á elnni hæð ásamt bllsk. Snyrtil. og val viðhaldin eign. V. 11,4 m. JÓFRÍÐARSTAÐA- VEGUR Vorum að f á vandað og vel staðs. elnb. sem skiptist þannig: Hæð og ris er nýtt sem sárib. ásamt titheyrandi bflsk. Á jarðhæð er stúdíóib. asamt góðum vinnu- herb. Staðs. húesins er engu lík. Útsýni yfir höfnina og allt vestur undir Jökul. SMYRLAHRAUN - 602 Vorum að fó 6 herb. raðh. á tveimur hæðum ásamt bflsk. Verð 11,9 miilj. MIÐVANGUR - 681 Mjög gott 6 herb. 135 fm einb. á einni hæð ásamt bilsk. Mjög falleg og vel ræktuð suðurlóö. Verð 13,9 millj. AUSTURGATA - HF. Vorum að fá eitt af þessum eldri einb. sem skiptast í kj., hæð og ris. Góð stað- setn. HELLISGATA - HF. 6 herb. 154 fm einb. é tveimur hæðum. 4 svefnherb. Frábærlega góö staðetn. Verð 8,5 millj. HEIÐVANGUR - EINB. 6 herb. einb. á einni hœö ásamt sól- stofu. Rúmg. bílsk. Góö staðsetn. VerÖ 12,9 millj. 4ra-5 herb. HVAMMABRAUT - „PENTHOUSE" Vorum að fé 5-6 herb. 134 fm ib. é tveimur hæðum. Góð stofa, borðstofa og sólstctfe. 3 rúmg. svefnherb., geta verlð 4. Vandað- ar innr. Parket og flíser. Gullfal- leg elgn. VÍÐIHVAMMUR - HF. 4ra herb. 122 fm íb. á 1. hæð ásamt bílsk. Verð 8,8 millj. SUÐURGATA - HF. Falleg 6 herb. 132 fm íb. á 1. hæð ásamt innb. bílsk. 430. SLÉTTAHRAUN - LAUS Vorum að fá 4ra herb. íb. á 2. hæð. Áhv. byggsj. 2,3 millj. Verð 7,8 millj. 464. ÁLFASKEIÐ 4ra herb. endaíb. (suður) á 2. hæð ásamt bílsk. Verð 7,6 millj. Laus nú þogar. 483. ÁLFASKEIÐ - 446 4ra-5 herb. 106 fm íb. á 3. hæð ásamt bílsk. Gullfalleg eign. Verð 7,8 millj. BREIÐVANGUR 5 herb. 120 fm íb. á efstu hæð i góðu fjölb. Bílsk. Verð 9 mlllj. FAGRAKINN - SÉRH. 4ra-5 herb. 101 fm falleg neðri hæð I tvíbýli. Bilsk. Verð 8,7 millj. HRINGBRAUT Vorum að fá 5 herb. 101 fm miðhæð í þríbýli. Góð staðsetn. Verö 8,4 millj. 3ja herb. Opið hús laugard. og sunnud. kl. 13-18. HVERFISGATA 37 - HF. Vorum að fá 3j8-4ra herb. efri hæð ásamt góðri vlnnuaðst. I rlsí. Mjög mikið endurn. eign m.a. nýl. innr., þak, gler o.fl. Nýjar svallr úr eldhúsi. Sérinng. Laus strax. Verð 6,6 míttj. GOÐATÚN - LAUS Vorum að fá 3ja herb. neðri hæð í tvíb. Mikið endrn. eign. Bilsk. Verð 5,2 millj. HÁAKINN 3ja-4ra herb. íb. á 2. hæð. Góð nýting. Áhv. byggsj. 3,7 millj. Verö 6,1 millj. 360. SMYRLAHRAUN Góð 3ja herb. 83 fm íb. á 1. hæð (jarðh.). Áhv. húsbr. 4,0 millj. Verð 6,6 millj. 361. MÓABARÐ - 318 3ja herb. 93 fm íb. á jarðh. Bllskúr. Allt sér. Verð 7,4 millj. ÁLFASKEIÐ - 357 3ja herb. 81 fm íb. á 2. hæð. Btlskúrs- réttur. Áhv. húsbréf 4,0 millj. Verð 6,7 millj. KALDAKINN - 350 Vorum að fá 3ja herb. efri hæð I tvl- býli. Sérinng. Verð 5,6 millj. 2ja herb. ÖLDUGATA - HF. Vorum að fá snyrtil. 2ja herb. íb. á 2. hæð, ris. Góð áhv. lán. Verð 4,4 millj 28205. HLÍÐARHJALLI - KÓP. Gulifalleg 2ja herb. 81 fm neðri sérhæð i nýl. húsi. Áhv. 3,7 millj. Verð 7 millj. Etgn sem vort er að skoða. ÁLFASKEIÐ - LAUS Mjög góð 2ja herb. 54 fm íb. á 1. hæð. Sveinn Sigurjónsson sölustj. Valgeir Kristinsson hrl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.