Morgunblaðið - 20.05.1995, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
STARFSMENN bandarísku alríklslögreglunnar tóku Schneider í sína vörslu eftir að hann viður-
kenndi hver hann væri. Hafði hann látið sér vaxa yfirvararskegg en var að öðru leyti sjálfum sér
líkur. Hann getur búist við að vera dæmdur í fangelsi í 10 ár fyrir fjármálasvik.
Þýski fasteignajöfurinn Schneider handtekinn á Miami
Hljóp frá 230 millj-
arða króna skuld
Staða Kink-
els talin
mjög veik
Bonn. Reuter.
ÞÝSKIR jafnaðarmenn sögðu í
gær að sú ákvörðun Klaus Kin-
kels utanríkisráðherra að láta af
formennsku í flokki fijálsra demó-
krata (FDP) myndi gera hann að
valdalausum ráðherra og veikja
stöðu Þýskalands á alþjóðavett-
vangi.
„Ef utanríkisráðherra er ekki
jafnframt lengur formaður minni
stjórnarflokksins mun mikilvægi
utanríkismála innan stjórnarinnar
fara dvínandi og staða Kinkels á
alþjóðavettvangi veikjast," sagði
Karsten Voigt, talsmaður jafn-
aðarmanna í utanríkismálum.
Þá létu margir þýskir frétta-
skýrendur í ljós þá skoðun að héð-
an í frá stæði Kinkel alfarið í
skugga Helmuts Kohls kanslara.
Flokkur Kinkels hefur dottið út
af þingum ellefu sambandslanda
og Evrópuþinginu eftir að hann
tók við sem flokksformaður fyrir
tveimur árum.
Samkvæmt heimildum innan
FDP ætlar Wolfgang Gerhardt,
leiðtogi FDP í Hesse, að gefa kost
á sér\sem flokksformaður.
Bandarískir
drengir
24% reynd-
ust þjófar
Chicago. Reuter.
KÖNNUN, sem náði til 2.500
bandarískra drengja á aldrin-
um 10-14 ára, leiddi í ljós að
hartnær fjórðungur þeirra hef-
ur gerst sekur um búðaþjófnað
og 28% hafa orðið drukknir
að minnsta kosti einu sinni.
Könnunin var gerð fyrir
skátahreyfinguna í Bandaríkj-
unum og kom þar fram, að
24% drengjanna höfðu hnupl-
að úr búðum, 54% svindlað á
prófum eða í heimaverkefnum,
5% mætt með byssu í skóla
og 17% neytt eiturlyíja síðasta
árið. í hópnum voru 1.056
skátar.
Frankfurt. Reuter.
ÞÝSKI fasteignajöfurinn Júrgen
Schneider var handtekinn á Miami
í Florida í fýrradag en hans hefur
verið leitað víða um heim síðan í
apríl á síðasta ári. Lét hann sig
þá hverfa frá gjaldþrota fyrirtæki
sínu og skuldum upp á nærri 230
milljarða ísl. kr. Verður Schneider
framseldur til Þýskalands en mála-
reksturinn í kringum það getur þó
tekið hálft ár eða meira.
Schneider var með afar um-
fangsmikinn fasteignarekstur í
Þýskalandi, þar á meðal sumar
glæsilegustu verslunar- og skrif-
stofuhallimar, og hann var frægur
fyrir að hafa hresst upp á miðbæ
margra borga með fallegum bygg-
ingum. Hélt hann sig lítt í sviðsljós-
inu en krafðist þess ávallt að vera
ávarpaður „doktor Schneider".
Aður en hann sneri sér að fast-
eignarekstri var hann múrari.
Að sögn lögreglunnar tókst að
hafa uppi á Schneider með því að
elta sendiboða hans eða aðstoðar-
mann, ítala að nafni Luigi Poletti.
Fóru þeir saman að versla og þeg-
ar Poletti brá sér inn í banka gekk
þýskur lögreglumaður að Schneid-
er þar sem hann beið í bílnum og
bað hann um að sýna skilríki.
Hann viðurkenndi strax hver hann
væri og var hann þá tekinn í vörslu
FBI-manna. Kona hans, Claudia,
var handtekinn skömmu síðar í
blokkaríbúð við ströndina en talið
er, að þau hafi verið þar síðustu
átta mánuði og í Bandaríkjunum
í meira en'eitt ár. Sögur gengu
hins vegar um, að væri í Iran, um
borð í skemmtisnekkju á Persaflóa
eða jafnvel látinn.
Reiði í garð
bankanna
Ekkert hafði heyrst frá Schneid-
er fyrr en nú í vikunni þegar frá
honum barst segulbandsspóla, sem
Ieikið var af í þýsku sjónvarpi, en
þar bað hann um að fá að snúa
aftur til fjölskyldu sinnar án þess
að vera ákærður. Skammaði hann
einnig Deutsche Bank, sem hann
kenndi um gjaldþrotið með því að
hafa neitað að semja um skuldirn-
ar. Deutsche Bank hafði lánað
Schneider 54 milljarða ísl. kr.
Þýskir bankar þykja stífir og
nákvæmir gagnvart almennum
viðskiptavinum sínum og því hefur
það vakið mikla reiði í Þýskalandi
hve Deutsche Bank og aðrir bank-
ar hafa reynst kærulausir í útlán-
um sínum til manna á borð við
Schneider. Hilmar Kopper, aðal-
framkvæmdastjóri Deutsche Bank,
bætti svo ekki um betur með yfir-
lýsingu, sem var fremur beint til
hluthafanna en viðskiptavinanna.
Þar kallaði hann þau hundruð millj-
óna kr., sem margir smáatvinnu-
rekendur hefðu tapa á gjaldþroti
Schneiders, „hreinustu smámuni“.
Spellvirkin í Reykjavíkurhöfn og í hvalstöðinni Hvalfirði fyrir níu árum
Annar mannanna
bíður dóms í
Bandaríkjunum
Boston. Morjjunbladið.
BANDARIKJAMAÐURINN Rodney
Coronado.sem fyrir níu árum sökkti
tveimur hvalbátum í Reykjavíkur-
höfn við annan mann, bíður nú dóms
vegna ásakana um íkveikju, kúgun
og að hafa haft þýfi undir höndum.
Hann er sakaður um aðild að
skemmdarverkum á rannsóknarstofu
í ríkisháskóla Michigan og gæti átt
yfír höfði sér nokkurra mánaða til
nokkurra ára fangelsi.
Mál Coronados er tilefni greinar í
nýjasta tölublaði tímaritsins Rollings
Stone. Þar er látið að því liggja að
hann sé saklaus af ákærunum og
hafí gerst sekur um það eitt að
mæla verkum samtakanna bót, án
þess að taka þátt í þeim, og senda
pakka í hraðpósti.
Árásin á rannsóknarstofuna í Mic-
higan var gerð í febrúar 1992. Þar
var verið að vinna rannsóknir á mink-
um, sem meðal annars voru fjár-
magnaðar af minkabændum. Til-
gangurinn með skemmdarverkunum
var að vekja athygli á illri meðferð
á loðdýrum. Niðurstöður 32 ára
rannsókna voru eyðilagðar og b'rotist
inn í minkakofa og 350 minkum
sleppt. Tjónið var metið á 70 til 125
þúsund dollara.
Þetta var fimmta árás samtak-
anna á minkarannsóknarstofu á
tveimur árum og samtals var tjónið,
sem valdið hafði verið, metið á rúm-
lega tvær milljónir dollara.
Spellvirkjarnir hurfu sporlaust, en
það var tilkynning frá hinum svoköll-
uðu Dýrafrelsunarsamtökum (Ani-
mal Liberation Front), þar sem lýst
var yfir ábyrgð á verknaðinum, sem
kom yfirvöldum á spor Coronados.
Coronado var um þessar mundir
framarlega í baráttunni gegn mis-
notkun dýra í pelsiðnaði og meðal
annars hafði myndefni, sem hann
aflaði á laun, verið notað í sjónvarps-
fréttskýringaþættinum 60 Minutes í
desember árið 1991.
í grein Dennes Kuipers í Rolling
Stone segir að samtök loðdýrarækt-
enda hafi í október 1991 lofað 35
þúsund dollurum fyrir upplýsingar,
sem leiddu til handtöku þeirra, sem
stæðu að baki skemmdarverkunum.
Hélt að ætti að drepa sig
Coronado og félögum fannst sem
sett hefði verið fé til höfuðs þeim
og ákváðu að Iáta lítið fyrir sér fara
um sinn. Þegar her lögreglumanna
réðst með alvæpni inn í kofa, sem
hann hafði skömmu áður dvalið í,
var hann þess fullviss að tilgangurinn
hefði verið að drepa sig.
Að sögn Rolling Stone fór hann í
felur. Coronado er af indíánaættum
og ákvað hann að leita uppruna síns.
í júlí 1993 var lögð fram kæra á
hendur honum vegna skemmdar-
verkanna í Michigan. Hann náðist
hins vegar ekki fyrr en í september
1994. Þá var hann kominn til Ariz-
ona, gekk undir nafninu Martin Ru-
bio og var orðinn aðstoðarmaður
höfðingja í ættbálki yaqui-indíána.
Ákæran var byggð á sendingu til
sjálfboðaliða dýravemdunarsamtak-
anna PETA (People for the Ethiea!
Treatment of Animals) með gögnum
frá tilraunastofunni, sem var eyði-
lögð. Sendingin var rakin til Corona-
dos, sem viðurkennir nú að hafa sent
hana.
Hann kvaðst hins vegar aðeins
einu sinni hafa unnið skemmdarverk
fyrir ALF. Það hafði verið í Vancou-
ver í Canada árið 1987 þegar hann
og David Howitt, sem árið áður hafði
verið með honum á íslandi til að
sökkva hvalbátunum, unnu skemmd-
ir á pelsaverslunum þar í borg. Cor-
onado var þá handtekinn, en látinn
laus gegn tíu þúsund dollara trygg-
ingu og hljópst á brott.
Því er lýst í greininni þegar hval-
bátunum var sökkt og skemmdar-
verk voru unnin á hvalstöðinni í
Hvalfirði og því bætt við að „á þess-
um tíma stunduðu íslendingar hval-
veiðar í beinni andstöðu við alþjóð-
legt bann við hvalveiðum“.
Coronado lýsir aðgerðum sínum á
íslandi í bókinni „Eco-Warriors“ eft-
ir Rik Scarce, sem kom út fyrir
nokkrum árum, og segir þar meðal
annars að sú staðreynd, að íslending-
ar hafí aldrei krafist framsals síns,
beri því vitni að þeir hafí vitað upp
á sig skömmina.
Spurning er hvort íslensk yfirvöld
sjái ástæðu til þess að taka málið
upp nú, þegar Coronado á yfir höfði
sér dóm í Bandaríkjunum.
Látinn laus gegn tryggingu
Coronado var látinn laus skömmu
fyrir síðustu jól en að þessu sinni
var tryggingin ívið hærri: 650 þús-
und dollarar. Hann sneri aftur til
Arizona og verður að halda sig í lög-
sagnarumdæmi yaqui-ættbálksins í
Pima-héraði. Hann hefur að sögn
Rolling Stone gert samkomulag við
ákæruvaldið til þess að halda kostn-
aði við lögfræðinga í lágmarki og sér
fram á að verða sendur í fangelsi
vegna þess að hann neitar að bera
vitni eða bendla fleiri við málið.
Mál Coronados verður tekið fyrir
dóm 27. júlí og þá kemur í ljós hversu
þung refsing hans verður.
Eng’inn
vill verja
Asahara
SHOKO Asahara, leiðtoga
japanska sértrúarsafnaðarins
Æðsta sannleiks, hefur ekki
tekist að fá neinn lögfræðing
til að tala máli sínu fyrir dóm-
stólum en Asahara er sakaður
' um að fyrirskipað taugagasá-
rásina í Tókýó, sem varð 12
manns að bana. Búist er við,
að honum verði skipaður verj-
andi. „Þetta er ekkert líkt
O.J. Simpson-málinu í Banda-
ríkjunum. Hér sér undir iljarn-
ar á hveijum einasta lögfræð-
ingi,“ var haft eftir einum úr
stéttinni. Að sögn ætlar Asa-
hara að lýsa sig saklausan
fyrir rétti og halda því fram,
að hann beri enga ábyrgð á
gjörðum fylgismanna sinna.
Sandskaðar
í Kína
MIKLIR sandbyljir í Ningxia-
héraði í Norður-Kína og í
Innri-Mongólíu hafa grandað
þúsundum fjár og annars bú-
fénaðar og valdið alvarlegum
skaða á ræktarlandi og mann-
virkjum. Vegir, lestarteinar
og um 300 brunnar eru á kafi
í sandi og um 700 vindraf-
stöðvar eru skemmdar. Á
þessum slóðum hafa verið
þurrkar í heilt ár.
Thatcher
sæmd orðu
STJÓRNVÖLD í Japan hafa
ákveðið að sæma Margaret
Thatcher, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Bretlands, einni
æðstu orðu landsins fyrir þátt
hennar í góðum samskiptum
ríkjanna. Verður orðan, Borði
hinna dýru kórónu, afhent
Thatcher þegar hún kemur í
heimsókn til Japans eftir helg-
ina. Thatcher átti á sínum
tíma mikinn þátt í aukinni
fjárfestingu Japana í Bret-
landi.
Afsögn í
Líbanon
RAFIK al-Hariri, forsætisráð-
herra Líbanons, sagði af sér
í gær, öllum að óvörum. Hann
hefur átt í deilu við forseta
landsins, Elias Hrawi, vegna
þess að seta Hrawis í emb-
ætti var framlengd.
Byrgi Hitlers
innsiglað
BORGARRÁÐ Berlínar hefur
ákveðið að rústir neðanjarðar-
byrgis Adolfs Hitlers í Berlín
verði innsiglaðar og byggt á
þeim. Græningjar vildu að
hægt yrði að sjá inn í það í
gegnum glugga en nú hefur
verið ákveðið að byggja
stjórnsýsluhús ofan á því.
Barnaveiki í
Ukraínu og
Kazakhstan
HEILBRIGÐISYFIRVÖLD í
Úkraínu og Kazakhstan hafa
tilkynnt um alvarleg tilfelli af
barnaveiki, en henni hefur
nánast verið útrýmt á Vestur-
löndum.Þá segir að salmon-
ellu- og sárasóttartilfellum
hefði fjölgað mjög í Úkraínu.
f