Morgunblaðið - 20.05.1995, Page 40

Morgunblaðið - 20.05.1995, Page 40
40 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ferdinand YEAH(CHUCK, l'M CALLINC YOU BECAUSE I NEEP SOMEBOPY T0 PLAY FOOTBALL WITH ...MARCIE 15 JU5T TOO WEIRP... HE NEVER UIOULP HAVE UNPER5TOOP THE QUESTION.MARCIE Já. Kalli, ég hringi í þig af því Spyrðu hann hvort hann elski mig vantar einhvern til að spila mig ennþá. Bless í bili, Kalli. fótbolta við ... Magga er of skrýtin... Þú spurðir hann ekki. Hann hefði aldrei skilið spurninguna, Magga. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavik • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Norræni flogaveiki- dagurinn er í dag Frá Bergrúnu Helgu Gunnarsdóttur: í DAG 20.maí er norrænn floga- veikidagur og er viðamikil dagskrá á Norðurlöndunum helguð floga- veiki. Norræn flogaveikisamtök standa að kynn- ingunni hvert _ í sínu landi. Á ís- landi er um 1% þjóðarinnar talin með flogaveiki, eða um 2500 manns. Við á Is- landi höfum félag sem berst fyrir hagsmunamálum alls fólks með flogaveiki, LAUF- landssamtök áhugafólks um floga- veiki. Skrifstofa LAUF er opin alla virka daga frá klukkan 8.30 til 15.00. Þar er hægt að nálgast ýmiskonar fræðsluefni án endurgjalds. Samtök- in voru formlega stofnuð 31. mars 1984 í Reykjavík og hafa því starfað í rúm ellefu ár og eru nú að slíta barnsskónum. Ein deild LAUFs er á Akureyri. Markmið samtakanna allt frá upp- hafí hafa verið: 1) Að auka tengsl milli flogaveikra um land allt; 2) Að fræða og upplýsa féiagsmenn svo og almenning um flogaveiki; 3) Að styðja rannsóknir á floga- veiki hér á iandi; 4) Að bæta félagslega aðstöðu flogaveikra. Félagar okkar á Norðurlöndunum hafa valið sér slagorðið - flogaveiki fram í dagsljósið eða „Epilepsy - Frem i lyset“. Það er svo í okkar mannúðarríka og vel upplýsta samfé- lagi að fordómar gegn flogaveiki eru á undanhaldi, þó að það eimi enn eftir af þeim hjá óupplýstu fólki. Eins og margir vita verður 80% af fólki með flogaveiki ekki fyrir stór- felldri röskun í daglegu lífi og starfi. Sem betur fer fækkar alltaf því fólki sem rekið er úr vinnu sökum flogaveiki. Ástæða brottvikningar stafar oftast af fáfræði og ótta. LAUF hefur einbeitt sér að fræðslu fyrir almenning og starfsfólk leik- skóla, grunnskóla og vinnustaða svo og kennt í nokkrum skólum á fram- haldsskólastigi. Einnig hefur LAUF heimsótt Akureyri, Selfoss og nú síð- ast Vestmannaeyjar, með fræðslu. Kennaraverkfallið setti stórt strik í reikninginn hvað varðar fýrirhugaða fræðsluáætlun en haldið verður áfram af fullum krafti í haust. LAUF hefur gengist fyrir tveimur ráðstefnum um flogaveiki á þessu starfsári. Sú fyrri var haldin í haust og sú seinni nú í vor og fjölluðu um læknisfræðileg og félagsleg málefni. Báðar ráðstefnumar voru vel sóttar og tókust vel. Mjög öflugur foreldra- hópur er starfandi innan LAUF og innan hans eru starfandi stuðningsfor- eldrar sem hægt er að leita til. Fleiri sjálfshjálparhópar eru starfandi. Þar má nefna ungar konur með flogaveiki og flogaveikar mæður með börn. Konuhópur er að ýta úr vör og ætlun- in er að hópur ungra manna taki til starfa í haust. Gera á átak í unglinga- málum og stofna ungmennadeild inn- an LAUF. Verkefni næstu ára munu snúast um fræðslu - og forvamar- störf. Eitt af því sem við erum stoltust af hjá LAUF er söfnun okkar 1991 fýrir heilasírita fyrir Landspítalann, þann fyrsta sinnar tegundar á land- inu. Þetta vannst í samvinnu við fé- lagsmenn Kiwanisklúbbsins Viðeyjar í Reykjavík, sem lögðu á sig mikla vinnu svo og starfsfólk Rásar 2. En betur má ef duga skal. Nú vantar aflestrartæki fyrir heilasíritann sem mun auka aflcöst hans margfalt. Núna er margra mánaða biðtími í síritann. Einnig safna LIONS-menn fyrir tæki á barnadeild Landspítalans sem mun nýtast börnum með floga- veiki mjög vel og stuðla að betra lífi fyrir þau. Við hvetjum fólk og fyrir- tæki til að leggja þessu góða málefni lið. Með haustinu ætlum við að fara af stað með stóra söfnun til að safna fyrir aflestrartækinu og til að bæta aðstöðu félaga okkar. Við hlökkum til aukinna verkefna og horfum bjart- sýn fram á veginn. BERGRÚN HELGA GUNNARSDÓTTIR, framkvæmdastjóri LAUF, Landssam- taka áhugafólks um flogaveiki. En hvernig á þá að bregðast við krampaflogi? Skyndihjálp. JÁ Haltu ró þinni. Þá gerirðu mest gagn. JÁ Snúðu viðkomandi í læsta hliðar- legu. Það hindrar að tungan loki öndunarvegi. Séu kramparnir mjög öflugir, skaltu bíða þar til dregur úr þeim. Oftast gerist það á innan við 5 mínútum. NEI Ekki flytja viðkomandi meðan krampinn varir nema það sé bráð- nauðsynlegt öryggis hans vegna. NEI Ekki troða neinu upp í munn hans. Þú getur brotið í honum tennur. Tungan er föst og við getum ekki gleypt hana. Athugaðu að sár á tungu grær en það gera brotnar tenn- ur ekki. NEI Ekki halda honum föstum eða reyna að hindra eða stöðva kramp- ann. Það tekst ekki. JÁ Veittu honum stuðning og að- hlynningu þegar krampanum er lokið og skýrðu honum frá því hvað gerð- iast. JÁ Leyfðu honum að hvíla sig eða sofa eftir krampann svo hann nái að jafna sig. JÁ Gakktu úr skugga um að hann sé orðinn sjálfbjarga áður en þú skil- ur við hann. JÁ Leitaðu læknishjálpar og hringdu á sjúkrabíl ef krampaflog- ið varir lengur en 5 mínútur, end- urtaki það sig eða þú telur viðkom- andi af öðrum ástæðum þurfa læknishjálpar við. ATH. Sé um að ræða fyrsta krampa- flog, flogið á sér stað í vatni, um er að ræða barnshafandi konu eða syk- ursýki, þarfað leita læknis sem fyrst. Verði breyting á tíðni eða gerð floga, skal einnig leita læknis. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.