Morgunblaðið - 20.05.1995, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ
42 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995
MYRIAM BAT-YOSEF
Aö virkja innsæi með teiknun.
Fjögurra daga námskeið á Snæfellsnesi.
Ferðaþjónusta bænda, sími 562-3640/42/43.
FYRIR GARÐA
OG SUMARHÚS
Girðingarefni • Þakefni
Grasfræ • AburÖur • GarÖáhöld
MR búðin *Laugavegi 164
Símar: 551 1125 • 552 4355 • Fax: 581 4450
Plasthúsgögn frá Hartman
Tréhúsgögn frá HARBO
OpMt
Laugardag kl. 10-16
Sunnudag kl. 13-15
Visa Euro Raðgreiðslur Allt að 36 mán.
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
Eyjaslóð 7 Reykjavík s. 562-1780
ORIGINAL 95% bómull,
5% teygja. Teygjanleg
bómullarskrefhót með
flötum saum.
COTTON. 100% bómull.
LUXURY. 95% bómull,
5% teygja. MeB blúndu.
BRJOSTAHALDARAR - BUXUR - BOLIR
Schiesser^
N Æ R F Ö T
Það besta næst þér!
í
ly'mfnii
LAUGAVEGI OG KRINGLUNNI
m.
IDAG
SKÁK
Umsjön Margcir
Pctursson
HVITUR leikur og vinnur
Staðan kom upp á svæða-
móti í Struga í Makedóníu í
vor. Alþjóðlegi meistarinn
Zelcic (2.500), Króatíu,
hafði hvítt og átti leik gegn
stórmeistaranum Emir
Dizdarevic (2.465) frá Bos-
níu.
16. Rxe6! (Svartur má ekki
opna skálínu að kóngi sínum.
Eftir bæði 16. — dxe6 17.
Bb5+ og 16. fxe6 17. Bh5+
tapar hann drottningunni)
16. - Hb8 17. Rxg7+ -
Kf8 18. Rf5 - Dxe4 19.
Dg3 - Hg8? 20. Da3+! og
svartur gafst upp, því mátið
blasir við. Á þessu svæða-
móti tefldu skákmenn frá
Makedóníu, ísrael, Bosníu
og Króatíu, allt lönd sem
eiga í eijum við ná-
grannana. Úrslitin
urðu vægast sagt
óvænt. Georgíumað-
urinn Zurab
Azmajparasvíli, að-
stoðarmaður Ka-
sparovs til margra
ára, fékk að taka þátt
á mótinu út á það að
hafa ásamt húsbónda
sínum teflt fyrir skák-
félagið Bosna
Sarajevo. Afar frjáls-
leg túlkun á lögum
FIDE það! Hann sigr-
aði með Vh v. af 10
mögulegum, 2. Alterman,
ísrael 7 v. 3. Kurajica, Bosn-
íu 6l/2 v. 4. Smirin, ísrael
5‘/2 v. 5.-7. Dizdarevic, V.
Milov, ísrael og Sutovsky,
Israel 5 v. o.s.frv. Þrír efstu
komust áfram, en Smirin lif-
ir í voninni um að kærumál
sem hafið er gegn Azmajpa-
rasvíli nái fram að ganga.
Þar mun væntanlega reyna
á nýfengin áhrif Kasparovs
í FIDE og hvort Campoman-
es, FIDE-forseti, láti þvílík-
an fáránleika yfir samtökin
ganga.
Með morgunkaffinu
ÉG veit að þetta er
veiðileyfi frá því í
fyrra, en ég ætla bara
að skjóta það sem ég
náði ekki að fella þá.
MUNDU að þykjast
skemmta þér vel, en
gættu þess að
skemmta þér ekki.
ÞAÐ tók 20 ár að
koma ungunum úr
hreiðrinu og nú viltu
endilega fara í heim-
sókn til þeirra.
ÉG veit að þetta er vit-
laus mánuður, en ég
er svo hrifinn af apríl. .
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Tapað/fundið
Ljósmynd tapaðist
SVARTHVÍT gömul
ljósmynd frá árinu 1963
tapaðist sunnudaginn
14. maí sl., mögulega við
Sparisjóðinn í Engihjalla
eða í Kolaportinu. Á
myndinni sitja þrir ungir
drengir á bekk inni í far-
þegaskipi. Skilvís
finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 43319.
Peysufatajakki
fannst
PEYSUFATAJAKKI
fannst fyrir utan
verslunina Frímanns við
Bæjarhraun 14 í Hafnar-
firði laugardaginn 29.
apríl sl. Upplýsingar á
staðnum.
Pennavinir
FRÁ Ástralíu skrifar 47
ára karlmaður, þriggja
barna faðir, sem er fædd-
ur í Litháen en flutti til
Ástralíu fyrir 30 árum.
Starfar hjá ástralska rík-
inu í höfuðborginni Can-
berra. Hefur mikinn
áhuga á íslandi, einnig
tónlist, bókmenntum,
sögu og náttúrulífi.
Gintautas Kaminsk-
as,
37 Barada Crescent,
Aranda ACT 2614,
Australia.
SEXTÁN ára finnsk
stúlka með áhuga á
knattspyrnu o.fl.:
Anna Ábonde,
Lingrand 3,
66240 Petalax,
Finland.
SEXTÁN ára sænsk
stúlka með áhuga á ljós-
myndun, tónlist, líkams-
rækt o.fl.:
Helen Holstensson,
Gamlarpsv. 5,
S-57133 NMssjö,
Sweden.
INDVERSKUR karlmað-
ur sem getur ekki um
aldur en hefur eáhuga á
frímerkjum, tónlist o.fl.:
Ramesh Baid,
203 Kesar Villa,
Plot No. 140A,
Malviya Road,
Vileparle (East),
Bombay 400057,
India.
SAUTJÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á tón-
list og teikningu:
Rika Ishii,
1647-6 Matsunome,
Aizubange-m,
Kawanuma-g,
Fukushima,
969-65 Japan.
FRÁ Ghana skrifar 28
ára kona með áhuga á
ferðalögum, skokki, tón-
list og íþróttum:
Faustina Arhinful,
Box 366,
PÐrospect Hill,
Cape Coast,
Ghana.
FJÓRTÁN ára stúlka á
Álandseyjum með áhuga
á sundi, bókalestri, bréfa-
skriftum, dýrum o.fl.:
Josefin Wikstrand,
Gölby 13,
22150 Jomala,
Áland,
Finland.
LEIÐRÉTT
gudrunh
althingi.is
VEGNA tæknilegra mis-
taka við vinnslu greinar
Arnar Hákonarsonar,
sem birtist í blaðinu í
gær, misritaðist fyrirsögn
greinarinnar. Fyrirsögnin
hér fyrir ofan er sú rétta
og biður blaðið hlutaðeig-
andi velvirðingar.
Víkverji skrifar...
AÐ er oft sagt að Ríkissjón-
varpið hafi ákveðnum skyld-
um að gegna. Dagskrá undanfar-
inna vikna vekur hins vegar upp
spurningar um það gagnvart hveij-
um þær skyldur eru. Víkvetji er
orðinn efins um að þær séu gagn-
vart hinum almenna borgara, sem
neyðist til að greiða sitt afnotagjald
og væntir þess að fá þolanlega dag-
skrá í staðinn. Það hefur áður verið
gert að umtalsefni hér að það nái
auðvitað ekki nokkurri átt að dag-
skráin taki svo dögum skipti ein-
ungis mið af þörfum þeirra er hafa
áhuga á handknattleik. Þegar svo
loks er gert hlé á handknattleiksút-
sendingum að kvöldlagi er sjón-
varpað beint heila kvöldstund frá
umræðum um stefnuræðu forsætis-
ráðherra, vissulega ekki skemmti-
legasta sjónvarpsefni, sem hægt er
að ímynda sér.
xxx
ER ÞAÐ ekki orðin tímaskekkja
að ryðja hefðbundinni dag-
skrá í burtu nokkrum sinnum á ári
til að sjónvarpa margra klukku-
stunda umræðum frá Alþingi á einu
opnu sjónvarpsrás landsins? Þetta
gerist í hvert skipti sem forsætis-
ráðherra á hveijum tíma flytur
stefnuræðu, við hveijar eldhúsdags-
umræður og að auki er stjórnarand-
stöðu dettur í hug að leggja fram
vantrauststillögu á ríkisstjórn. Hvar
annars staðar í hinum vestræna
heimi tíðkast þetta? Hvergi! Rökin
fyrir þessu verða enn óskiljanlegri
þar sem umræðunum er að auki
útvarpað beint. Er ekki kominn tími
til að endurskoða þetta? Og ef al-
þingismenn eru þeirrar skoðunar
að það sé þjóðinni nauðsynlegt að
eiga þess kost að horfa á þá flytja
ræðurnar, er þá ekki hægt að sjón-
varpa umræðunum á sérstakri rás?
xxx
NÚ ER sá árstími runninn upp
þegar hinar árvissu fréttir
fara að berast af því að fyrstu ís-
lensku tómatarnir, agúrkurnar eða
annað grænmeti sé komið á mark-
aðinn. Má oft skilja af þessum frétt-
um að það sé eitthvað sérstakt
gleðiefni. Víkverji og fjölskylda
hans geta hins vegar ekki sam-
glaðst íslenskum garðyrkjubænd-
um. Þó að Víkveiji sé vissulega
þeirrar skoðunar að framleiðsla
þeirra sé ágæt og holl þá þýðir
koma hennar á markaðinn jafn-
framt að grænmetisneysla verður
að munaði, sem ekki er hægt að
leyfa sér nema í takmörkuðum
mæli. Það er hreint með ólíkindum
að í lok tuttugustu aldarinnar skuli
vera hægt að bjóða neytendum upp
á þurfa að greiða okurverð fyrir
þessa hollustuvöru. Jafnvel tómatur
(að ekki sé minnst á papriku) kost-
ar morðijár. Hvar er hin margróm-
aða „manneldisstefna"?
XXX
TUNDUM hefur mátt heyra
þau rök framleiðenda að þetta
séu bara lögmál framboðs og eftir-
spurnar (raunar sömu rök og t.d.
kjötframleiðendur nota er þeir vilja
hækka verðið). Hvernig má þetta
vera? Halda þessir menn að neyt-
endur séu einhveijir bjánar? Auðvit-
að hækkar verð þegar skrúfað er
fyrir framboðið af ódýru grænmeti
með innflutningsbanni, en er þar
með sagt að innlendir framleiðend-
ur geti leyft sér að setja hvaða
verð sem er á vöru sína? Ef íslensk-
ir grænmetisræktendur vilja njóta
velvilja íslenskra neytenda verða
þeir að gæta hófsemdar í verðlagn-
ingu, jafnvel þó að „framboð"
grænmetis sé takmarkað í fyrstu.