Morgunblaðið - 20.05.1995, Side 52
MICROSOFT. einar ).
WINDOWS. SKÚLASONHF
MORGUNBLAÐIB, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Skip leigð til Vestfjarða eða útlanda vegna verkfalls
Félög sjómanna
kanna lagaúrræði
STETTARFÉLOG sjómanna, sem
boðað hafa verkfall í næstu viku,
hafa óskað álita lögfræðinga sinna
á því hvort það standist lög að ís-
lensk skip séu leigð erlendum aðilum
eða fyrirtækjum á Vestíjörðum til
að komast hjá stöðvun vegna verk-
falls. Sjávarútvegsráðherra segir
ljóst að skip missi veiðirétt í ís-
lenskri lögsögu meðan þau eru í
leigu erlendra aðila og veiði skipin
úr umdeildum stofnum missi þau
rétt til að landa hérlendis. Formaður
LÍÚ segir geminga útgerðanna
enduróma óánægju sjómanna með
boðað verkfall. Formaður Alþýðu-
sambands Vestfjarða segir að hann
reikni með að sjómannafélögin þar
boði til samúðarvinnustöðvunar og
reyni að stöðva afgreiðslu og landan-
ir skipa, ef útgerðir þeirra komi sér
undan löglegri vinnustöðvun með
þessum hætti.
Samheiji hf. á Akureyri hefur
leigt frystitogarann Baldvin Þor-
steinsson EA færeyska hlutafélag-
inu Framheija og Sjólaskip hf. leigt
skip sitt Harald Kristjánsson hluta-
Samúdarvinnu-
stöðvun sjómanna
á Vestfjörðum
félaginu Eyvör í Hnífsdal. Útflutn-
ingsverðmæti upp á 160 milljónir á
dag gætu tapast verði af boðaðri
vinnustöðvun sjómanna.
Guðjón A. Kristjánsson, formaður
Farmanna- og fískimannasam-
bandsins, segist telja að bæði áhafn-
ir og útgerðir viðkomandi skipa
bijóti gegn vinnulöggjöfinni og Sjó-
mannasamtökin hafi óskað aðstoðar
ASÍ í málinu. Guðjón segir þetta
ekki hafa áhrif á stöðu í kjaradeilum
sjómanna fyrr en verkfall komi til
framkvæmda.
Skrípaleikur
Pétur Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestijarða, kallar
leigu skipa, til að forðast áhrif verk-
falls, skrípaleik. „Ég gef mér að hér
á Vestfjörðum verði samúðarvinnu-
stöðvun, enda er þetta hættulegt
fordæmi. Ef vinnuveitendur komast
upp með að brjóta á bak aftur lög-
lega vinnustöðvun í einni starfs-
grein, geta þeir eins gert það í öðr-
um. Menn munu reyna að stöðva
löndun og afgreiðslu þessara skipa,
ef þau koma hingað til hafnar."
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra segir að veiði leiguskip úr
stofnum sem ágreiningur er um
skiptingu á fái þau ekki leyfí til að
landa hér. Þetta gæti átt við um
norsk-íslenska síldarstofninn í Síld-
arsmugunni og karfa, þó ekki út-
hafskarfa á Reykjaneshrygg, ekki
rækju á Flæmska hattinum og ekki
þorsk í Smugunni.
Ósammála um líkur á lausn
Guðjón A. Kristjánsson segir að
hægt eigi að vera að leysa kjaradeil-
una áður en til verkfalls komi. Krist-
ján Ragnarsson segir að viðræðum
miði seint og hann sjái ekkert sem
geti komið í veg fyrir verkfall í
næstu viku.
■ Sjómannadeilan/4
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
*
Islendingar byggja
í Þýskalandi
ÍSLENSKIR trésmiðir, sem vinna
í Þýskalandi á vegum Gers
Gmb H. slógu ekki af við vinnuna
þegar ljósmyndara bar að garði
fyrir skemmstu. Armannsfell og
íslenskir aðalverktakar standa
að fyrirtækinu og segir Ármann
Orn Armannsson framkvæmda-
stjóri að hafist hafi verið handa
við byggingu tveggja tíu íbúða
húsa með bílageymslum um 20
km fyrir norðan Stuttgart í
Þýskalandi í lok mars. Fimmtán
íslendingar og þýskir starfs-
menn vinni við framkvæmdirnar
og gangi þær samkvæmt áætlun.
Stefnt er að því að húsin verði
tilbúin í byijun október en fyrir-
tækið hefur þegar reist og selt
eitt 4 íbúða hús í Þýskalandi.
Morgunblaðið/Júlíus
MIKINN reyk lagði úr geymslugangi fjölbýlishúss við
Seilugranda í gærkvöldi og upp um allan stigagang hússins.
Mikið tjón vegna reyks í fjölbýlishúsi
Kveikt í fatahrúgu
á geymslugangi
MIKLAR skemmdir urðu af sóti og
reyk á stigagangi og geymslum í
fjölbýlishúsi við Seilugranda í
Reykjavík í gærkvöldi. Grunur leikur
á að kveikt hafi verið í fatahrúgu á
geymslugangi hússins samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar í Reykja-
vík. Rannsóknarlögregla ríkisins tók
þegar við rannsókn málsins.
Svartan reyk lagði upp um allan
'ltigagang hússins en náði aðeins lít-
•^^kega. inn í 15 íbúðir þess um loft-
ræstistokka. íbúa hússins sakaði
ekki, svo vitað sé.
Úr Grafarvogi á Grandana
Tveir bílar slökkviliðsins voru í
útkalli vegna sinubruna í austasta
bæjarhluta borgarinnar við Hest-
hamra í Grafarvogi þegar bruninn í
- vestasta hluta bæjarins var tilkynnt-
ur. Aðalvarðstjóri Slökkviliðsins i
Reykjavík sagði í samtali við Morg-
unblaðið að illa hafi staðið á og æði
langt að fara milli bæjarhluta. Þó
hafi farið betur en á horfðist og
slökkviliðinu tekist að ráða niðurlög-
um eldsins og reykræsta áður en
sótsvartur reykur náði að einhveiju
marki inn í íbúðir fólks.
Sinueldur á
þremur stöðum
Auk sinubruna í Grafarvoginum
var kveikt í sinu í Fossvogi og á
báðum stöðum brann stórt svæði
gróins lands. Loks kom upp sinueld-
ur á allstóru svæði mosagróins lands
í nágrenni Vífilsstaða. Um tíma var
óttast að mikinn reyk legði inn á
Vífilsstaðaspítala en sá ótti var að
mestu ástæðulaus.
Loka þarf 4 af 8 almennum geðdeildum Landspítala
Læknar segja stefna
í ófremdarástand
LOKANIR sem verða á geðdeild
Landspítalans í sumar vegna spam-
aðar í heilbrigðiskerfmu og hefjast
1. júní munu leiða til ófremdar-
ástands, að mati yfirlækna geðdeild-
arinnar. Þeir telja lokunina gjörsam-
lega óábyrga, en aldrei áður hefur
þurft að skerða starfsemi geðdeildar
spítalans neitt í líkingu við það sem
verður í sumar, að sögn Lárusar
Helgasonar, yfirlæknis. Hann segir
að auk þessa sé nú ríkari áhersla
en áður lögð á að spara ráðningar
til sumarafleysinga.
Loka þarf fjórum af átta almenn-
um geðdeildum spítalans og verður
lokupunum dreift á tvö sex vikna
tímabil, þannig að á hvoru tímabili
verða tvær deildir lokaðar. Um er
að ræða tvær móttökudeildir og
tvær eftirmeðferðardeildir. Þá verð-
ur báðum deildum fyrir áfengis-
sjúklinga lokað á sama hátt sex vik-
ur hvorri í senn, og einnig verður
um lokun á barnageðdeild að ræða
þótt í minna mæli verði.
Deildirnar ætíð
yfirfullar
Að sögn Lárusar Helgasonar eru
allar umræddar geðdeildir ætíð yfir-
fullar og því er starfsfólkinu
áhyggjuefni hvernig fer þegar til
lokananna kemur. Hann segir að
hvert pláss á geðdeild Landspítalans
sé nú setið, og uppgjör fyrir síðasta
ár hafí sýnt að á móttökudeildum
hafi allt árið verið að meðaltali tveir
sjúklingar umfram það sem deildun-
um er ætlað að geta tekið við.
Ofan á það ofurálag sem hafi
verið fyrir eigi því að skerða starf-
semina verulega í tólf vikur, og telji
sérfræðingar geðdeildarinnar úti-
lokað að þeir geti starfað við þessar
aðstæður þannig að ábyrgt megi
teljast.
Óábyrgar aðgerðir
„Við teljum þetta gjörsamlega
óábyrgar aðgerðir og þetta leiðir
aðeins til þess að við verðum að
taka inn mun veikara fólk. Undir
venjulegum kringumstæðum þýðir
það lengri dvöl sjúklinganna, en nú
neyðumst við hins vegar til að út-
skrifa þá fyrr. Annað sem undir-
strikar ábyrgðarleysi þessarar
gjörðar er að eftirmeðferðardeildir
verða líka lokaðar. Þannig verðum
við að loka deildum þar sem fram-
haldsmeðferð fer fram á einstak-
lingum, sem mikið er í húfí að fái
sem bestan og skjótastan árangur
til þess að koma í veg fyrir alvar-
legri skerðingar.
Við sjáum því ekki fram á annað
en einhveija vitleysu, sem svo auð-
vitað mæðir fyrst og fremst á sjúk-
lingum og aðstandendum þeirra.
Það er jafnframt líklegt, þótt ég
vilji ekkert fullyrða um það, að þetta
muni leiða til aukinna sjálfsvíga, því
þegar sjúklingar koma til okkar í
örvæntingu þá verðum við oft að
segja þeim að ekkert pláss sé fyrir
þá. Það má alltaf deila um hvar á
að loka í heilbrigðiskerfmu, en þessi
gjörningur verður gjörsamlega á
ábyrgð stjórnmálamanna, því þetta
er þeirra ákvörðun," sagði Lárus.
200 þúsund tonn af
þorski eftir 3 ár
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
telur mögulegt að setja það mark-
mið að auka aflaheimildir í þorski
upp í 200 þúsund tonn innan
þriggja ára.
Þorsteinn Pálsson sagði á aðal-
fundi Félags rækju- og hörpu-
diskframleiðenda í gær að þó
árangur erfiðra aðgerða til að
vernda þorskstofninn sé að byija
að koma fram sé ekki skynsam-
legt að fara of geyst í að auka
veiðiheimildir. Hins vegar ætti
að vera hægt að setja það mark-
mið að auka aflaheimildir upp í
200 þúsund tonn innan þriggja
ára. Vegna samhengis í lífríki
náttúrunnar gæti uppbygging
þorskstofnsins bitnað á rækju-
veiðunum.
■ Stefnt að aukningu/18