Morgunblaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hönnun málmpenings og seðils að ljúka STEFNT er að því að hundrað króna málmpeningur og tvöþús- und króna seðiil verði settir í umferð um mánaðamót októbers og nóvembers að sögn Stefáns Þórarinssonar forstöðumanns rekstrardeildar Seðlabanka ís- lands. Þröstur Magnússon, grafískur hönnuður, teiknaði nýju myntina, sem og aðra mynt sem gefin hef- ur verið út frá gjaldmiðilsskiptum í ársbyijun 1981. Hundrað króna myntin verður úr gulieitri málm- blöndu eins og fimmtíu krónu myntin sem í gildi er. Tiliaga hönnuða að nýjum tvö- þúsund króna seðli liggur einnig fyrir. Hönnun hans var í höndum Kristínar Þorkelsdóttur og Steph- ans Fairbairn, sem einnig hafa hannað alla seðla sem nú eru í umferð. Nýi seðillinn er tileinkað- ur íslenskri myndlist, aðallitir hans verða brúnn og blár og hann verður sömu stærðar og þúsund króna seðillinn. Búið er að panta sex milljón stykki af hundrað króna mynt- inni og er kostnaður á hverja mynt um þrjár krónur og sextíu aurar, að kostnaði við hönnun og gerð sláttumóta undanskild- um. Peningarnir kosta því alls 21,6 milljónir. Gert er ráð fyrir tveimur milljónum eintaka af tvö- þúsund króna seðlinum til að byrja með. Hver seðill kostar um sjö krónur og áttatíu aura, að hönnunarkostnaði undanskild- um. Það verðaalls 15,6 milljónir króna. Á FRAMHLIÐ myntarinnar verður mynd af landvættun- um og á bakhlið mynd af rauðmaga. Hún verður 25,5 millimetrar í þvermál, eða 2 mm minni en gildandi tíu króna mynt. Verður nýja myntin 8,5 grömm að þyngd, 2,25 mm að þykkt og röndin riffluð og slétt á víxl. Samræmdu prófin í 10. bekk grunnskóla 1-10 í einkunn EINKUNNIR í samræmdum prófum eru gefnar í heilum tölum frá 1 upp í 10 eftir stigafjölda sem nemendur fá fyrir prófverk- efni. Þess misskilnings hefur orðið vart meðal nemenda í 10. bekk í einhveijum grunnskólum að ætlunin sé að fella 30% nemenda á samræmdum prófum. Að sögn Einars Guðmundsson- ar, deildarstjóra prófa- og mats- deildar hjá Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála, er eng- inn fótur fyrir þessari staðhæf- ingu. „Einkunn fer einfaldlega eftir stigum nemenda, sem þeir fá fyr- ir verkefni, og er b'vytj, yfir í heilar tölur frá 1 til 10. Nemend- ur eru látnir njóta þess ef þannig stendur á stigum og ei-u þá hækk- aðir upp en lækkaðir niður að næstu heilu tölu ef þeir komast ekki upp fyrir miðju 'bils,“ sagði Einar. Þannig fær nemandi einkunn- ina 7 ef hann fær stig á bilinu 65 til 70 en einkunnina 6 ef stig- in eru á bilinu 60 til 64. Einar segir ekkert ákveðið fyr- irfram um dreifíngu einkunna. Notkun bókstafa hafi verið lögð af árið 1985 þegar hætt var að fella einkunnir að normalkúrfu. Þá var núverandi fyrirkomulag tekið upp. nas ( Á? Z Á FRAMHLIÐ nýja seðiisins verður andlitsmynd af Jóhannesi S framhliðarinnar er unninn út frá málverki Kjarvals, Úti og inni, svanurinn, sem nú heitir Flugþr veir frá á, e Morgunblaðið/Sverrir issyni Kjarval sem unnin er eftir ljósmynd Jóns Kaldal. Grunnur 1943. Á bakhlið seðilsins verður aðalmyndefni málverkið Leda og *n það málaði Kjarval árið 1954. Samkomulag stj órnarflokkanna um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða Aflahámark eða fleiri banndagar krókabáta FRUMVARP til breytinga á lögum um stjórn fískveiða verður væntan- lega lagt fyrir Alþingi í dag. Stjórn- arflokkarnir náðu samkomulagi um málið í gær. Þorskveiðar krókabáta verða áfram takmarkaðar við 21.500 lestir. Allir krókabátar munu þurfa að sæta banndögum sem eru jafnmargir og banndagar á yfírstandandi ári, að sögn Þor- steins Pálssonar sjávarútvegsráð- herra. Áætlað er að þorskafli krókabáta á þessu fiskveiðiári geti orðið allt að 40 þúsund lestir, samkvæmt upplýsingum Ara Edwald, aðstoð- armanns sjávarútvegsráðherra. Vegna umframveiði krókabáta er talin þörf á meiri takmörkun á veiði. Þar munu eigendum krókabáta EFNAHAGS- og framfara- stofnunin í París, OECD, birtir f dag ársskýrslu sína um íslensk efnahagsmál. í niðurstöðum skýrslunnar segir að efnahags- horfurnar í ár séu nokkuð bjartar í ljósi reynslu síðustu ára en ástæða sé til árvekni. Forsendur þessarar fullyrðingar eru þær að stjórnvöld hafí ákveðið að skerða þorskveiðikvóta um ein- ungis 10.000 tonn, eða um 6%, á yfirstandandi fiskveiðiári en vegna strangari reglna um veiðiheimildir smábáta megi þó búast við að raunverulegur þorskafli dragist töluvert meira saman, mögulega um 20%. Engu að síður megi áfram reikna með aukinni framleiðslu sjávarafurða, m.a. vegna aukinnar sóknar í aðrar tegundir en þorsk bjóðast tveir kostir, viðbótar- banndagar eða svonefnt þak á þorskveiði. Þakið er aflahámark sem verður miðað við aflareynslu tveggja bestu af síðustu þremur fiskveiðiárum. Til grundvallar afla- hámarkinu á að leggja nálægt 70% af fyrstu 50 tonnum aflareynslu og nálægt helmingi af aflareynslu umfram það. Banndögum mun fjölga Fjölgun banndaga mun ráðast af tvennu, að sögn sjávarútvegsráð- herra. í fyrsta lagi því hve margir munu tryggja stöðu sína með því að gangast undir þak á þorskveiði og svo því hver endanleg veiði verð- ur á þessu ári. Umframsókn mun kalla á fjölgun banndaga eftir sömu auk innflutnings á fiski úr erlend- um fískiskipum. Landsframleiðsla gæti aukist um 2,5% Búast megi við aukinni einka- neyslu auk þess sem bæði fjárfest- ing í atvinnulífi og í íbúðarhús- næði muni væntanlega aukast. Fyrir vikið gæti landsframleiðslan vaxið um allt að 2,5% á þessu ári. Þessi aukning þjóðarútgjalda ætti reiknireglu og er í gildandi lögum. Fyrstu veiðitímabilin á þessu fisk- veiðiári varð veruleg aukning á þorskveiði og því kemur til mikil fjölgun banndaga. „Þeir sem vilja komast hjá þessari fyrirsjáanlegu miklu fjölgun banndaganna geta valið að tryggja stöðu sína með því að velja hámark í þorski á grund- velli þaks,“ sagði Þorsteinn. Róðrardagar í stað banndaga Sóknardagár eru 229 í ár og banndagar 136. Til að ná héildar- afla niður í 21.500 lestir bentu áætlanir til að þetta gæti nærri snúist við á næsta fískveiðiári, sóknardagar orðið 136 og bann- dagar 229. I bráðabirgðaákvæði er gert ráð að nægja til að koma í veg fyrir að atvinnuleysi aukist. í skýrslunni segir að fullyrða megi að efnahagsbatinn sé kominn vel á veg. Landsframleiðslan hafí aukist um 3% sem sé mesta aukn- ing í sjö ár og ámóta vöxtur og í öðrum OECD-löndum. Efnahags- batinn skýrist bæði af aukinni sókn í aðrar fisktegundir en þorsk og mestu aukningu annars útflutn- ings frá árinu 1989. Hagstæð þró- fyrir því að ráðherra flýti sem kost- ur er athugunum á því hvort fjár- hagslega og tæknilega er unnt að koma á fót eftirliti sem geri kleift að breyta banndögum í svonefnda róðrardaga. Banndagar eru nú hin- ir sömu fyrir alla en í róðrardaga- kerfi munu menn fá ákveðinn fjölda sóknardaga á ári og hafa svigrúm til að ákveða hver um sig með stutt- um fyrirvara hvenær þeir ætla að róa. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra á ekki von á að þetta tak- ist fyrir næsta fiskveiðiár, en vinn- unni verður hraðað sem kostur er. Ráðherrann sagði að eftirlitskerfí sem þetta gæti tengst ýmsum kost- um í gervihnattatækni og annarri tækni. un á erlendum mörkuðum og batn- andi samkeppnisstaða vegna lægsta raungengis krónunnar í áratugi hafi leitt til stóraukins út- flutnings á iðnaðarvörum. Stjórnvöld sýni sérstaka árvekni í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að mikilvægt sé að stjórnvöld sýni sérstaka árvekni í ljósi aukins hagvaxtar sem nú virðist framund- an. Leggja þurfi aukna áherslu á að draga úr skuldasöfnun hins opinbera. „Einsýnt er að taka þarf ríkisfjármálin fastari tökum en gert hefur verið undanfarin ár. Aðgerðir til að draga úr hallanum þegar á þessu ári ættu að vera ofarlega á dagskrá nýrrar ríkis- stjómar," segir í skýrslunni. Engin tengsl milli skjálfta- svæða RAGNAR Stefánsson jarðskjálfta- fræðingur segir að ekki hafi verið hægt að sýna fram fræðileg tengsl milli jarðskjálftasvæða. Jarðskjálftar á Sjakalín-eyju við Kyrrahafsströnd Rússlands hafa vakið spurningar um hvort tengsl séu milli jarðskjálftasvæða víða um heim. Minni líkur með meiri fjarlægð Ragnar bendir á að mikið hafi verið um að vera á þessum slóðum að undanförnu en eftir því sem fjarlægðin sé meiri séu minni lík- ur á að búast megi við einhveijum áhrifum af völdum skjálfta. Þá hafi fræðimenn ekkert í höndunum sem sýni að samband sé milli svæðanna. Oft hafi verið stungið upp á að tengsl væru milli plötuhreyfínga en ekki hafi verið hægt að sýna fram á að svo sé. -----» ♦ ♦--- Sjöá slysadeild SJÖ voru fluttir á slysadeild Borg- arspítalans eftir árekstur þriggja bíla á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar rétt eftir klukkan 15 í gær. Samkvæmt upplýsingum lög- reglu þurfti að flytja ökumann og þijú börn úr einni bifreiðinni, öku- mann og farþega úr annarri og ökumann úr þeirri þriðju með sjúkrabifreið á slysadeild til að- hlynningar. Meiðsl voru ekki talin alvarleg. -----»-■♦ ♦ - Lést af slysförum LITLI drengur- inn, sem drukkn- aði á Spáni fimmtudaginn 25. maí, hét Ric- hard Aron Egils- son. Richard Áron fæddist þann 8. nóvember 1990. Hann var til heimilis a Tjarnarerötu 27a í Keflavík. s Arsskýrsla Efnahags- og framfarastofnunannnar um efnahagshorfur á Islandi Horfur bjartar en árvekni þörf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.