Morgunblaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Útför móður minnar, MARÍU MARKAN ÖSLUND, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 31. maí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Blindrafélagið, Hamrahlíð 17. PéturÖslund. t Elskuleg eiginkona mín og móðir okkar, JÓNÍNA ÓLAFSDÓTTIR, frá Hvítárvöllum, er látin. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Ásbjörn Jónsson og börn. t Ástkær frænka'og vinkona okkar, UNNUR HULDA EIRÍKSDÓTTIR, feldskeri, Bergstaðastræti 48, er látin. F.h. aðstandenda, Sigrfður Sigurðardóttir, Jóhanna Tómasdóttir, Theodór Nóason. t Ástkær sambýlismaður minn, sonur, faðir og bróðir, VIÐAR LOFTSSON, Hamraborg 38, Kópavogi, lést á heimili sínu 13. maí sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Fyrir hönd vandamanna, Anna Ósk Ragnarsdóttir, Ásthildur Guðlaugsdóttir. t Hjartkær sonur okkar, ÞRÖSTUR BERGMANN INGASON, Álftamýri 8, Reykjavík, sem andaðist 22. maí sl. verður jarð- sunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnar- firði, fimmtudaginn 1. júní kl. 13.30. Rósa R. Frímannsdóttir, Ingi Bergmann. t Elskuleg móðir okkar, téngdamóðir, amma og langamma, HELGA INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, Suðurgötu 15, Keflavík, sem lést í Borgarspítalanum 23. maí, verður jarðsungin frá Kefla- víkurkirkju á morgun, miðvikudaginn 31. maí kl. 14.00. Gunnar K. Þorgeirsson, Margrét Böðvarsdóttir, Vilberg K. Þorgeirsson, Guðrún Björk Jóhannesdóttir, Sigurður Þorgeirsson, Rut Olsen, Magnea V. Þórsdóttir, Jón K. Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGURBORG ODDSDÓTTIR, Álfaskeiði 70, Hafnarfirði veröur jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju, í dag, þriðjudaginn 30. maí kl. 15.00. Haraldur Ólafsson, Hólmfríður Gunnarsdóttir, Oddur Ólafsson, Sigríður Á. Þórarinsdóttir, Ómar Ólafsson, Vaigerður Ásgeirsdóttir, Aðalsteinn Ólafsson, Margrét Ágústsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. SVERRIR GUÐMUNDSSON + Sverrir Guð- mundsson fæddist í Reykjavík 28. mars 1914. Hann lést í Arnar- holti 21. maí 1995. Foreldrar hans voru Guðmundur Sigurðsson, klæð- skerameistari, og kona hans, Svan- laug Benediktsdótt- ir. Systkini Sverris voru: Sigurður, ljósmyndari; Lauf- ey, húsfrú; Bene- dikt, listmálari; Guðmundur, dömuklæðskeri; Guðríður, húsfrú; Svanlaug (systir Clementsína) og Haukur (pressari). Sverrir verður jarðsunginn í dag frá Kristskirkju og hefst athöfnin kl. 15.00. ÞAÐ verður vart sagt að andlát Sverris Guðmundssonar hafí komið á óvart. Bæði var aldurinn hár og hann hafði í alllangan tíma verið þungt haldinn og nánast horfinn þessari tilvist. Kynni okkar Sverris hófust þegar ég tengdist vinum hans, hjónunum Margréti og Sigmari, sem hann bast mjög traustum böndum alla tíð. Sverrir var við fyrstu sýn sér- stæður og batt ekki bagga sína allt- af sömu hnútum og samferðamenn hans. Hann átti við fötlun að stríða og heyrnardep- urð hafði mikil áhrif á samskipti hans við fólk. En þegar nánar var að gáð og hann fór að kynnast fólki betur kom í Ijós að hann fylgdist vel með mönn- um og málefnum og minni hans var ótrú- lega gott. Tilsvör hans báru oft vott um laun- fyndni og hann gat svo sannarlega komist skemmtilega að orði eins og reynd- ar bróðir hans, Haukur, sem alþjóð þekkti sem pressara og margar góðar sögur eru tengdar. Ég minnist fjölmargra ferða með Sverri í sumarbústaðinn í Grímsnes- inu, en þar á Sverrir mörg handtök- in varðandi girðingarnar. Ég sé hann fyrir mér í úlpunni sinni úti í landinu tjargandi girðingarstaur- ana og dittandi að girðingunni. Hann lagði alltaf mikla áherslu á að girðingarnar væru í lagi og staf- aði það ekki síst af miklum áhuga hans á trjárækt. Reyndar virtist allt gróa í höndum hans, og við Dóra komum stundum til hans blómum sem voru að deyja drottni sínum og oftar en ekki kom hann þeim til lífs á ný. t Innilegt þakklæti til allra þeirra sem sýndu okkur samhug og hlý- hug, við andlát og útför MARGRÉTAR ÓLAFSDÓTTUR, Túngötu 63, Eyrarbakka. Fyrir hönd vandamanna, Jón Ingi Sigurjónsson. t Frændi okkar, ÓSKAR KJARTANSSON, Karlagötu 18, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum miðvikudaginn 31. maí kl. 14.00. Aðalheiður Jónsdóttir, Svava Jónsdóttir. t Föðurbróðir minn, SVERRIR GUÐMUNDSSON, Hátúni 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Kristskirkju, Landakoti í dag 30. maí kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Sjálfsbjörg, Félag fatlaðra í Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda. Sigríður Sigurðardóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir og amma, ARÍN GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR, Bergþórugötu 2, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 31. maí kl. 15.00. , Ágúst Þorsteinsson, Margrét Ágústsdóttir, Jóhann Ágústsson, Hrafnhildur Sigurðardóttir og barnabörn. Að leiðarlokum skal þakkað fyrir samveruna með Sverri Guðmunds- syni. Hann var einn þeirra manna sem ekki lagði illt til nokkurs manns og heimkoma slíkra manna hlýtur að verða góð. Dóra og Rúnar. Látinn er vinur okkar, Sverrir Guðmundsson, skósmiður á áttug- asta og öðru aldursári. Þessa dagana rifjast upp endur- minningar frá liðnum árum. Það var árið 1930 á björtum sumardegi sem við Sverrir hittumst fyrst. Eg var á gangi með tveimur vinum mínum niður Amtmannsstíg þegar kallað var á okkur. Þar var kominn Sverrir Guðmundsson, sem kom norðan Skólastrætis og fór mikinn. Við tókum tal saman og snérust umræðurnar um dúfur, en á þessum tíma áttu margir unglingar dúfur. Allmörgum árum síðar lágu leið- ir okkar saman á ný og svo hefur verið ávallt síðan við störf og leik. A yngri árum fórum við oft í ferðalög í hópi glaðra félaga, og þar naut Sverrir sín vel því hann unni mjög allri útivist. Þegar Sverrir var fjögurra ára gamall missti hann móður sína. Var hann þá tekinn í fóstur til móður- systur sinnar, Sigríðar Benedikts- dóttur, og eiginmanns hennar, Stef- áns Gunnarssonar, skókaupmanns. Sverrir mat Sigríði móðursystur sína mjög mikils og var henni ávallt þakklátur fyrir uppeldið. Heimili þeirra hjóna var rómað fyrir smekk- vísi og myndarskap og komu þang- að margir listamenn og var oft mikið um að vera. Sigríður var mikil ræktunarkona og var Sverrir hennar hægri hönd í ýmsu er laut að blómaræktinni. Hjá Stefáni í Austurstræti 12 lærði Sverrir síðan skósmíði. Það má segja að lengi býr að fyrstu gerð, því að þegar Sverrir flutti að Hátúni 10 bjó hann sér þar vistlegt heimili og það má segja að hann hafi flutt með sér uppeldis- áhrifín af Sóleyjargötunni hjá þeim Sigríði og Stefáni. Sverri var í blóð borin smekkvísi og löngun til að safna að sér ýmsum fallegum mun- um, myndum og blómum. Arið 1941 varð Sverrir fyrir því að slasast svo að afleiðingarnar áttu eftir að hrjá hann alla tíð. Hann var oft rúmfastur vikum sam- an og það var ekki auðvelt fyrir svo athafnasaman mann og iðinn sem Sverrir var. Hann bar sig samt vel og benti á hvað margir ættu mikið erfiðara en hann. Það var notalegt að heimsækja Sverri. Jafan var heitt á könnunni og á góðum stundum ræddum við um ýmislegt sem snerti Reykjavík, og mannlífið á þeim tíma þegar við vorum ungir. Stundum rifjuðum við upp hverjir áttu gömlu bílnúmerin, t.d. R-5 o.fl. því Sverrir hafði ótrú- lega gott minni fram eftir árum. Stundum sagði hann mér frá draumum sínum og þá bar á góma framhaldslíf og þar gat hann talað sig heitan því hann átti sína trúar- vissu. Mér kemur í hug 23. sálmur Davíðs sem einkunnarorð Sverris: „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast leiðir mig að vötnum þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þó ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig...“ Við fráfall Sverris Guðmundsson- ar söknum við góðs vinar. Glöðu samverustundirnar geymum við í þakklátum huga okkar. Einlægni Sverris og góðvild munum við aldr- ei gleyma. Margrét og Sigmar Guðmundsson. Legsteinar Krossar Skildir Málmsteypan kaplahraunis IJPT T Á \*4 220 HAFNARFJÖRDUR IíXjIiÍj/I XJl. SÍMI 565 1022 FAX 565 1587
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.