Morgunblaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bakarasveinar í verkfalli í sex tíma Samningar náð- ust í gærmorgnn Einkunnir í HI á verald- arvefnum Meistar- inní vanda Keppnistímabil torfæruöku- manna hófst á Akureyri á laug- ardaginn. Það blés ekki byrlega fyrir Islandsmeistaranum Ein- ari Gunnlaugssyni, sem velti í hörkukeppni um fyrsta sætið. Eldur varð laus í jeppanum, þegar hann var kominn á fjögur íijól. Það náðist að slökkva í honum áður en verulegur skaði varð. Hefur unnið þrjú síðustu ár Þótt jeppinn hefði skemmst talsvert að framan í veltunni náði Einar að halda áfram og varð fjórði. Þrjú síðustu ár hef- ur hann ætíð unnið fyrstu keppni ársins. Sigurvegari í flokki sérútbú- inna jeppa varð Haraldur Pét- ursson frá Ölfusi, en Gunnar Guðmundsson vann flokk götu- jeppa. ■ Barátta fram á /B9 BAKARASVEINAR sömdu við meistara klukkan sex í gærmorg- un, sex klukkustundum eftir að verkfall þeirra hófst. Samningarn- ir verða bornir undir atkvæði í Bakarasveinafélaginu í dag auk þess sem atkvæðaseðlar verða sendir út á land. Gunnar Guðmundsson formað- ur Bakarasveinafélagsins kveðst telja samningana fela í sér kjara- bætur og að hluti af kröfum þeirra hafi náðst fram, en bakarasveinar vildu m.a. fá tvo launataxta, greidda næturvinnu eftir átta stunda vinnudag og lengra orlof en verið hefur. Stefán Sandholt formaður Landssambands bakara- meistara segir að samningar sveiji sig í ætt við almennt samkomulag VSÍ og ASÍ, ásamt því að launa- töxtum fjölgi og þeir verði færðir nær greiddu kaupi í stað þess að hafa tvo taxta við lýði. Bakara- sveinar fái ekki næturvinnu greidda eftir átta stunda vinnu en einn orlafsdagur bætist við eftir tólf ár í iðn. Hann vildi ekki meta hversu mikla hækkun í prósentum samkomulagið fæli í sér. Báðir aðilar sáttir „Ég held að báðir aðilar séu sáttir við þessa niðurstöðu miðað við hvernig málin stóðu, þótt ég viti ekki hvort maður sé nokkurn tímann ánægður enda um eilífa baráttu að ræða,“ segir Gunnar. í Bakarasveinafélaginu er 101 fé- lagsmaður. Um klukkan hálffjögur í gær- morg-un ríkti svartsýni um að sam- komulag næðist í deilu bakara- sveina og viðsemjenda þeirra, en rúmri klukkustund síðar lágu fyrir drög að samningi sem síðan var undirritaður um klukkan sex eins og áður sagði. Stefán segir að samningsaðilum hafi ekki fundist sá ágreingingur sem var á milli þeirra um fjöguleytið nægjanlega mikill til að ástæða væri til að viðræður strönduðu. „Báðir slógu af sínu og tókust í hendur,“ segir Stefán og kveðst vonast eftir stuðningi bakara- meistara við samkomulagið og að deilum á þessum vettvangi sé nú lokið að sinni. HÁSKÓLI ÍSLANDS hefur tekið upp þá nýbreytni að birta einkunn- ir stúdenta við skólann á veraldar- vefnum (Internetinu) en sú tilraun hófst að loknum prófum í desem- ber sl. Að sögn Árna Finnssonar prófstjóra hafa þeir einir aðgang að einkunnum sínum sem hafa orðið sér úti um notendanafn og aðgangsorð hjá Reiknistofnun HI en þeir eru um 3.500 af 5.300 stúd- entum. Árni sagði að þetta mál hefði verið í undirbúningi í nokkurn tíma en þurft hefði að tryggja að hver einstaklingur hefði einungis að- gang að sínum einkunnum. Þetta hafi tekist og nú sé hægt að fletta upp einkunnum úr prófum á vor- misseri. Upplysingar um próftöflur, námskeið og einkunnir má finna á heimasíðu Háskóla íslands á ýms- um undirsíðum en slóð HÍ er www.rhi.hi.is/HIHome.html. Einkunnir er að finna í kafla um kennslusvið skólans á upplýsinga- síðu um stjórnsýslu Háskólans. Morgunblaöið/Gunnlaugur Taxi - ný leigu- bílastöð opnar Fyrsta nýja leigubílastöðin sem stofn uð er í Reykjavík í rúm 40 ár NÝ leigubílastöð, Taxi, tekur til starfa um næstu mánaðamót. Tíu bílstjórar verða á stöðinni til að byija með, að sögn Jóns Smith, eins af forsvarsmönnum stöðvar- innar, og flestir koma þeir af BSR og Bæjarleiðum. Höfuðstöðvar Taxi verða að Bíldshöfða 12. Opið verður allan sólarhringinn. Taxi er fjórða leigu- bílastöðin í Reykjavík. Niðurboð tröllríða markaðnum Aðspurður sagði Jón að mark- aðurinn væri mettaður en til stöðv- arinnar hefði verið stofnað m.a. vegna óánægju leigubílastjóra á hinum stöðvunum. Jón sagði að rúm 40 ár væru liðin frá því síð- ast hefði verið stofnuð leigubíla- stöð í Reykjavík, en það var Bæjar- ieiðir. „Það er fyrst og fremst niður- boðin sem eru að tröllríða mark- aðnum. Við munum ekki taka þátt í þeim og afsláttur verður enginn til fyrirtækja og stofnana svo vitað sé. Hins vegar gæti farið svo að við byðum hinum almenna borgara allt að 10% staðgreiðsluafslátt,“ sagði Jón en bætti því við að ekki væri að fullu frá því gengið. Eins og fyrr segir mun Taxi ekki veita stofnunum eða fyrir- tækjum afslátt. Jón sagði að aðrar stöðvar veittu þessum aðilum allt upp í 45% afslátt. Hann sagði að þetta yrði lítil stöð í upphafi en kvaðst eiga von á því að fleiri gengju til liðs við hana innan tíðar. „Við tökum við öllum sem vilja koma, einkum ef þeir koma með vinnu með sér og vilja vinna að sátt og hagsmunum stéttarinnar," sagði Jón. Staðaruppbætur til hjúkrunarfræðinga á landsbyggðmni Samningar hafa náðst á flestum sjúkrahúsunum FLEST öll sjúkrahúsin á lands- byggðinni hafa náð samningum við hjúkrunarfræðinga um greiðslur staðaruppbóta út þetta ár, að sögn Hrefnu Sigurðardóttur, deildar- stjóra í heilbrigðisráðuneytinu. Kemur því ekki til þess að hjúkrun- arfræðingar gangi út um næstu mánaðamót eins og þeir höfðu ákveðið í kjölfar þess að sérkjara- samningum vegna staðaruppbótar var sagt upp frá og með 1. júní. Samtals fengu sjúkrahúsin aukafjárveitingu að upphæð 34,7 milljónir króna til þess að unnt yrði borga hjúkrunarfræðingum staðaruppbætur í 10 mánuði á þessu ári, en sjúkrahúsin verða hins vegar sjálf að leggja út fyrir greiðslunum í tvo mánuði. Sjúkra- húsin á Akureyri og Akranesi fá þó enga aukafjárveitingu vegna þess að þau fóru ekki að þeim til- mælum heilbrigðisráðuneytisins að segja upp sérkjarasamningunum við hjúkrunarfræðinga. Engin Iausn Hrefna Sigurðardóttir sagði að þessar aðgerðir yfirvalda væru þó engin lausn fyrir sjúkrahúsin ef þau ætluðu að halda áfram óbreyttu ástandi varðandi greiðslur staðaruppbóta, því ráðuneytið hefði ekki fjármagn til þess að standa undir greiðslunum á næsta ári. „Þetta verður auðvitað gert með einhverri samvinnu milli okkar og sjúkrahúsanna. Eins og í ljós hefur komið þá er þetta búið að taka heilt ár núna frá því samningar voru gerðir og talað hefur verið um að fella þetta niður, en það hefur ekki gengið upp. Maður þor- ir því ekkert að spá í það hvernig þetta verður um áramótin,“ sagði Hrefna. Kjarasamningar hjúkrunar- fræðinga verða lausir um næstu áramót og sagði Hrefna spumingu hvort tekið yrði á þessu máli sam- tímis viðræðum um nýjan kjara- samning, en Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra hefur lýst því yfir að greiðslur vegna staðarupp- bótar starfsfólks sjúkrastofnanna á landsbyggðinni verði teknar inn í kjarasamninga milli ríkisins og viðkomandi stéttarfélags, eða í beinum tengslum við gerð kjara- samninga. Enn lokast Steingríms- fjarðarheiði Laugarhóli. Morgunblaðið. ENN þurfti að opna Stein- grímsfjarðarheiði á Djúpvegi í gær. Heiðin lokaðist hvað eftir annað fyrir helgina og var enn fokið í göngin í fyrrinótt. Vonskuveður var á heiðinni á sunnudag og varð árekstur milli moksturstækis og fólks- bíls. Það gekk á með snjókomu og skafrenningi um allan mið- hluta Strandasýslu og var mik- il hálka á hálsum og heiðum suður frá Bjarnarfirði og á Holtavörðuheiði. Þá fennti einnig hressilega í það sem búið var að opna af leiðinni norður í Norðurfjörð. Þegar fréttaritari hringdi í Ólaf vitavörð á Hornbjargi tók hann svo til orða: „Hér er vet- ur á næturnar, en haust á daginn". j r i > i l \ ) ) > i i i \ i -
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.