Morgunblaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 60
Farmenn felldu
miðlunartillögu
Stjórnin
hlynnt
verkfalli
STJÓRN Sjómannafélags Reykjavík-
ur hyggst boða vinnustöðvun á kaup-
skipafiotanum náist ekki samkomu-
lag í vinnudeilu undirmanna á kaup-
skipum og viðsemjenda alveg á næst-
unni.
Yfirgnæfandi meirihluti undir-
manna felldi miðlunartillögu ríkis-
sáttasemjara en atkvæði voru talin í
gær. Af 115 greiddu 95 atkvæði, 77
'-'sögðu nei og 18 já.
Þórarinn V. Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri VSÍ segir að niðurstað-
an hafi ekki komið á óvart þegar
haft sé í huga að atkvæðagreiðslan
hafi farið fram á borðshorninu hjá
forystu Sjómannafélags Reykjavíkur.
Óánægja með breyttan
vinnutíma
Birgir Björgvinsson, stjórnarmað-
ur í Sjómannafélaginu, segir að
mesta óánægjan hafi verið með
-— breyttan vinnutíma i heimahöfn.
Farmenn ættu að vinna meira og fá
minni frí í heimahöfn samkvæmt
tillögunni. Menn eru ekki, að sögn
Birgis, of óhressir með launaliðinn.
Miðlunartillagan gerir ráð fyrir
12,5% hækkun á öll laun.
Birgir sagði að vinnuveitendur
vissu hvað farmenn væru ósáttir við
og boltinn væri hjá þeim. Ef ekki
yrði samið alveg á næstunni sæi
stjórnin ekki ástæðu til að fresta
aðgerðum.
Verkfall hefst sjö dögum eftir
boðun og 70 til 80% af kaupskipa-
flotanum stöðvast eftir um hálfs
mánaðar verkfall. Stefnt er að því
að deiluaðilar hittist hjá ríkissátta-
semjara á miðvikudag eða fimmtu-
^dag.
■ 81% farmanna sagði nei/6
------» ♦ ♦-------
Sleipnisdeilan
Boða hertar
aðgerðir
SAMNINGAFUNDUR Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis og vinnuveit-
enda fór út um þúfur laust eftir mið-
nætti aðfaranótt mánudags.
'■>— Óskar Stefánsson, formaður
Sleipnis, segist eiga von á að þær
lyktir muni draga verkfall bílstjóra
enn á langinn. Hann boðar hertar
; aðgerðir gegn verkfallsbrotum.
Verkfallsverðir Sleipnis stöðvuðu
' akstur 6-7 hópferðabifreiða í gær,
m.a. á höfuðborgarsvæðinu, í Hval-
firði og á Þingvöllum, á þeim forsend-
um að um verkfallsbrot væri að ræða.
Sleipnir gerði á Iaugardag kjara-
samning við Stefán Gunnarsson, hóp-
, ferðasérleyfishafa á Hofsósi sem hef-
ur haft fjóra bílstjóra í vinnu, að ósk
</j£ess síðarnefnda. Óskar segir samn-
ifiginn miðast við miðlunartillögu þá
sem ríkissáttasemjari lagði fram fyr-
ir nokkrum vikum en bifreiðastjórar
höfnuðu, að nokkrum liðum frátöld-
um. Samningurinn hefur ekki verið
kynntur félagsmönnum Sleipnis.
Óskar segir ýmsa einstaklinga og
lyrirtæki í röðum eigenda hópferða-
bifreiða hafa sýnt áhuga á að gera
sams konar samning við félagið.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Sandur flýtir fyrir sólbráð
DAVÍÐ Herbertsson bóndi í Hrís-
gerði í Fnjóskadal minnist þess
ekki að hafa fyrr þurft að moka
snjó á þessum árstíma. Fyrir sex
vikum bar hann sand yfir snjó-
inn, þar sem girðingin var undir,
til að flýta fyrir sólbráð. Eins og
sjá má hefur skaflinn látið undan
á löngum kafla og er girðingin
nær öll komin undan snjónum
ofan við þjóðveginn. Óvenjukalt
hefur verið um norðanvert land-
ið og hafa sauðburður og vor-
verk almennt gengið illa.
Kapp lagt a samn-
inga í sjómanna-
deilu í þessari lotu
SAMNINGAFUNDUR í deilu sjó-
manna og útgerðarmanna stóð enn
klukkan að ganga eitt í nótt. Mik-
ill þrýstingur er á samningamönn-
um deiluaðila að ná samningum í
þessari lotu. Ef ekki semst í dag
eða allra næstu daga eru líkur til
þess að verkfallið dragist á langinn
vegna þess að sjómannadagurinn
er um aðra helgi og þá þarf allur
flotinn að vera í höfn samkvæmt
kjarasamningum.
Samningafundur í sjómannadeil-
unni hófst í Karphúsinu klukkan
14 í gær. Áður höfðu deiluaðilar
hitt Þorstein Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra að máli. Sævar Gunnars-
son, formaður Sjómannasambands-
ins, og Kristján Ragnarsson, for-
maður LÍÚ, sögðust mæta með
jákvæðum huga til fundarins með
þeim ásetningi að ná samningum.
Kristján Ragnarsson sagði að ef
ekki næðist samkomulag í þessari
lotu minnkaði t.ilefni til að leysa
deiluna fyrir sjómannadaginn, sem
er um aðra helgi.
Þrýst á um sérsamninga
Ef ekki næst saman nú eru tald-
ar auknar líkur á því að einstaka
útgerðarmenn og félög sjómanna
geri sérsamninga. Þrýstingur hefur
aukist til slíkra samninga víða um
land. Bæði formenn samtaka sjó-
manna og útgerðarmanna segjast
leggja áherslu á að heildarsamn-
ingar takist svo að ekki þurfi að
koma til sérsamninga. Ákveði út-
gerðir innan LÍU að ganga til sér-
samninga, verða þær að segja sig
úr samtökunum.
Enn er fiskvinnslan víðast hvar
í fullum gangi þrátt fyrir verkfall
sjómanna. Flest húsin sjá þó fram
á hráefnisskort fyrir helgi. Við það
fer fjöldi fiskverkafólks á atvinnu-
leysisbætur.
■ Flest fiskvinnsluhús /11
Eldsvoðar af völdum barna
Foreldrar bera ekki
ábyrgð á börnunum
VATRYGGINGAFELAG bætir tjón
sem verður í eldsvoða þótt um
íkveikju sé að ræða en á endur-
kröfurétt á hendur þeim sem tjóninu
veldur.
Þegar börn verða völd að eldsvoða
bera þau ábyrgð á tjóninu. Að sögn
Ingvars Sveinbjörnssonar, hæsta-
réttarlögmanns hjá Vátryggingafé-
lagi íslands, bera foreldrar ekki
ábyrgðina, enda ekki hægt að gera
þá kröfu til þeirra að þeir fvlgist
með börnum sínum öllum stundum.
„Það er útbreiddur misskilningur
að foieldrar beri ábyrgð á börnum
sínum. Það er einungis í þeim tilfell-
um þegar hægt er að segja að þeir
hafi beinlínis horft á börn sín valda
tjóni,“ sagði Ingvar.
Ingvar segir tryggingafélögin
eiga endurkröfurétt á hendur þeim
sem tjóni veldur en þegar börn eigi
í hlut séu þau væntanlega ekki
borgunarmenn og þá sé endur-
kröfurétturinn lítils virði.
Bótaskylda tryggingafélaganna
fellur þá aðeins niður þegar eigandi
kveikir í sjálfur, tryggingafélög
bæta brunatjón af völdum íkveikju
annarra.
■ Tugmilljóna tjón/12
Breti dæmdur hér fyrir fíkniefnasmygl reyndist með falsað vegabréf
Bretar vilja
framsal vegna
vopnaðs ráns
BRESKUR karlmaður, sem dæmdur
var til 18 mánaða fangelsisvistar
hér á landi í nóvember sl. fyrir fíkni-
efnasmygl, reyndist vera með falsað
vegabréf. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hefur komið í Ijós
að maðurinn er eftirlýstur í Bret-
landi fyrir vopnað rán. Búist er við
að bresk yfirvöld leggi fram beiðni
um framsal mannsins á næstunni.
Maðurinn, sem er um fertugt,
var handtekinn við komuna hingað
til Iands í byrjun nóvember í fyrra,
ásamt 23 ára konu. Reyndist hvort
þeirra hafa um 3 kg af hassi í fór-
um sínum og við yfirheyrslur játaði
maðurinn að hafa einu sinni áður
borið 3 kg af hassi til landsins.
Þegar maðurinn var handtekinn var
hann með vegabréf, þar sem sagði
að nafn hans væri Michael Ounswo-
ert. Það reyndist falsað og rétt
nafn mannsins var Jeffrey Force.
Maðurinn var dæmdur í 18 mánaða
fangelsi undir hinu ranga nafni.
Að mati sérfræðings sem blaðið
ræddi við, mun' það engu breyta
að maðurinn var dæmdur undir
röngu nafni, nema hugsanlega til
þyngri refsingar fyrir að gefa upp
rangt nafn. Konan var dæmd í 6
mánaða fangelsi.
Óttuðust flótta
Jeffrey Force er eftirlýstur í Bret-
landi fyrir vopnað rán, sem hann
framdi ásamt félaga sínum. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
kom hið rétta í ljós þegar íslensk
lögregluyfirvöld sendu upplýsingar
um brot mannsins hér til Interpol.
Munu íslensk yfirvöld hafa óttast að
hann fengi aðstoð við flótta, minnug
þess að Donald Feeney, sem dæmdur
var fyrir tilraun til að nema tvö
stúlkuböm á brott, komst nær úr
landi. Var hann því fluttur í Síðu-
múlafangelsið; þar sem öryggis-
gæsla er mun meiri en á Litla-
Hrauni.
Miðað við 18 mánaða fangelsis-
dóm mannsins hefði hann átt mögu-
leika á reynslulausn að helmingi
þess tíma liðnum eða í ágúst næst-
komandi. Þá hefði honum verið vís-
að úr landi, til Bretlands.
íslensk yfirvöld vörðust í gær
frétta af málinu. Erlendur Baldurs-
son, sem varð fyrir svörum hjá
Fangelsismálastofnun í fjarverú
Haraldar Johannessen fangelsis-
málastjóra, svaraði því einu til að
stofnunin gæfi ekki upplýsingar um
einstaka skjólstæðinga sína. Jóhann
Jóhannsson hjá útlendingaeftirlitinu
kvaðst ekki kannast við málið, enda
væri útlendingaeftirlitið ekki rann-
sóknaraðili að því og það kæmi ekki
til kasta þess fyrr en kæmi að
reynslulausn og brottvísun úr landi.
Hjalti Zóphaníasson, skrifstofu-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu, neit-
aði einnig að staðfesta upplýsingar
Morgunblaðsins um málið.
Islenskt mál
„Ég veit það eitt að íslensk yfir-
völd hafa haft þennan mann í : aldi
um tíma eða frá því að hann var
handtekinn við komuna til landsins
fyrir nokkrum mánuðum,“ sagði
Michael Hone, sendiherra Breta á
íslandi, í samtali við Morgunblaðið
í gær. „Þetta mál er alfarið á vegum
íslenskra yfirvalda. Aðrar upplýs-
ingar hef ég ekki og get því ekki
tjáð mig um hvað verður gert í sam-
bandi við mál þessa manns."
Talsmaður bresku lögreglunnar
Scot.land Yard gat ekki veitt upplýs-
ingar um málið, þegar leitað var til
hans í gærkvöldi.