Morgunblaðið - 30.05.1995, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimanmundur brúðarinnar gefur ekki mikla von um friðsæld í hjónabandinu...
Morgunblaðið/Sverrir
ÁTTA nemendur skólans hlutu bókaverðlaun fyrir einkunnir
yfir 8,50. Þeir voru: dúx skólans, Elva Ósk Sigurðardóttir, Stein-
ar Páll Landro semidúx, Ásdís Margrét Rafnsdóttir, Bragi Páls-
son, Hanna Lilja Jóhannsdóttir, Guðrún Björk Stefánsdóttir,
Margrét Eva Árnadóttir og Sigríður Rut Júlíusdóttir.
Verzlunarskóli íslands lýkur
nítugasta starfsári sínu
Útskriftarathöfn
sjónvarpað á Sýn
Fékk opið
kjálkabrot
í tilefnis-
lausri árás
TVEIR 21 árs menn voru úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald í
gær, að kröfu Rannsóknarlög-
regiu ríkisins, grunaðir um
fjórar líkamsárásir í miðbæ
Reykjavíkur aðfaranótt sunnu-
dags. Einn þeirra, sem ráðist
var á, meiddist sýnu mest og
hlaut opið kjálkabrot.
Ráðist var á 21 árs mann á
lóðinni á bak við Rammagerð-
ina við Hafnarstræti um kl. 3
um nóttina. Manninum segist
svo frá að hann hafi lagt bíl
sínum í stæði, gengið frá hon-
um, en skyndilega hafi menn-
irnir ráðist á sig, algjörlega að
tilefnislausu. Hann hlaut opió
kjálkabrot vegna barsmíðanná.
Ráðist var á þrjá aðra unga
menn á þessum slóðum um
svipað leyti og handtók lög-
reglan þijá, grunaða um aðild
að líkamsárásunum. Tveir
þeirra voru svo úrskurðaðir í
gæsluvarðhald í gær til föstu-
dags.
VERZLUNARSKÓLI íslands
brautskráði 198 nemendur" síð-
astliðinn sunnudag. Stúdentar
voru 142,42 útskrifuðust. með
verslunarpróf, og 13 stúdentar
komu úr öldungadeild. Einn
nemandi var utanskóla.
Steinar Páll Landro, 6.X,
náði bestum árangri í við-
skiptagreinum á stúdentsprófi.
Hann hlaut einkunnirnar 10 í
bókfærslu, 9,5 í rekstrarhag-
fræði og 9,5 í þjóðhagfræði.
Hæstu einkunn á verslunar-
menntaprófi hlaut Hannes Páll
Guðmundsson, 6.Q, 7,97.
Verzlunarskólinn er nú að
ljúka 90. starfsári sínu og fór
athöfnin fram í Borgarleikhús-
inu í fyrsta sinn og var send út
á Sýn. Þorvarður Elíasson
skólasljóri afhenti nemendum
prófskírteini sín og verðlaun-
aði fjölmarga sem skarað höfðu
fram úr í námi. Dúx skólans í
ár er Elva Ósk Sigurðardóttir
Wiium, 6.S, sem fékk 9,22 í
aðaleinkunn, og semidúx er
Steinar Páll Landro, sem hlaut
aðaleinkunnina 9,17.
Fyrstu stúdentar braut-
skráðir frá Verslunarskóla ís-
lands voru heiðursgestir sam-
komunnar en þeir eiga 50 ára
stúdentsafmæli um þessar
mundir. Að athöfn lokinni
efndu skólasljórahjónin til mót-
töku á heimili sínu fyrir þá,
kennara og annað starfsfólk
skólans.
Bæklingar fyrir krabbameinssjúka
Skrifaðir til að
gagnsist öllum
Jóhanna Bernharðsdóttir
Hjúkrunarstjórn St.
Jósefsspítala,
Landakoti, kynnir
í dag útgáfu. tveggja
fræðslubæklinga fyrir
krabbameinssjúklinga en í
þeim er fjallað um þekktar
aukaverkanir krabba-
meinsmeðferðar er snerta
daglegt líf sjúklinga og
aðstandenda' þeirra. Jó-
hanna Bernharðsdóttir,
lektor og stoðhjúkrunar-
fræðingur, ritstýrði gerð
bæklinganna auk þess að
vera einn af höfundum
þeirra ásamt sjö hjúkrun-
arfræðingum Landakots-
spítala og næringarráð-
gjafa sjúkrahússins. Efni
bæklinganna byggist m.a.
á niðurstöðum rannsókn-
ar, sem gerð var að frum-
kvæði hjúkrunarstjórnar á konum
sem greinst höfðu með bijósta-
krabbamein og fengið krabba-
meinsmeðferð, ásamt reynslu af
starfi og fræðilegri þekkingu höf-
unda. Tilgangur útgáfunnar er
að sögn Jóhönnu að hvetja til
heilsusamlegra lífs og betri líðan
fólks í krabbameinsmeðferð, efla
færni krabbameinssjúklinga og
aðstandenda þeirra til sjálfs-
bjargar, stuðla að gagnkvæmum
skilningi sjúklinga og aðstand-
enda og búa þá undir ýmislegt
það sem tengist krabbameini,
m.a. hvenær ástæða sé til að leita
til fagfólks.
— Hvaðan kertmr frumkvæðið
að þessari útgáfu?
„Krabbameinssjúklingar fá
mjög gjarnan meðferð á Landa-
koti í gegnum árin og þaðan kem-
ur frumkvæðið. Miklar breyting-
ar hafa orðið í heilbrigðisþjón-
ustunni gegnum árin og hlutirnir
ganga afar hratt fyrir sig, sem
hefur m.a. aukið þörfina á að
aðstandendur fái upplýsingar
þótt að miðlun þeirra hafi einnig
aukist seinustu ár. Hjúkrunar-
stjórn spítalans vildi hins vegar
taka markvisst á þessum málum
og fór þess á leit við mig að hafa
umsjón með verkefninu. Það varð
að samkomulagi að hefja starfið
með rannsóknarvinnu eins og
áður er getið. Rannsóknin var
gerð til að kanna líðan þeirra
kvenna sem höfðu greinst með
bijóstakrabbamein og hvernig
þeim farnaðist meðan á meðferð
stóð, hvaða vandamál og fylgi-
kvillar komu upp, hvaða tilfinn-
ingar og einnig á hvern hátt þær
gætu sjálfar tekist á við sjúkdóm-
inn í amstri daglegs lífs, ásamt
fjölskyldu. Ég skoðaði í raun hvað
það þýðir að hafa krabbamein og
gangast undir viðamikla meðferð
því samfara og þaðan koma nið-
urstöðurnar úr rann-
sókninni sem bækling-
arnir styðjast við að
hluta. Hjúkrunar-
stjómin á Landakoti
yfirfór vandlega ásamt
mér og nokkrum útskriftarnem-
um af námsbraut í hjúkrunar-
fræði niðurstöðurnar. Því næst
setti ég upp námskeið fyrir ann-
ars vegar hjúkrunarfræðinga og
hins vegar sjúkraliða á Landa-
koti og kynnti niðurstöðurnar ít-
arlega og farið var vandlega yfir
heilsufarsmat, ekki síst með tilliti
til andlegrar líðanar sjúklinga.
Einn stærsti þátturinn var jafn-
framt að finna leiðir til að styðja
bet.ur við bakið á sjúklingum og
aðstandendum þeirra, t.d. með
heilbrigðisfræðslu og ráðgjöf,
► Jóhanna Bernharðsdóttir er
fædd árið 1954 og lauk námi
frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1973, BS-prófi í hjúkrunar-
fræði frá HÍ 1977, prófi frá HÍ
í kennslu- og uppeldisfræði til
kennsluréttinda 1979 og MS-
prófi.í hjúkrunarfræði frá
Minnesota-háskóla í Banda-
ríkjunum 1982. Hún var náms-
stjóri í hjúkrunarskólanum og
starfað sem hjúkrunarfræð-
ingur. Hún er nú stoðhjúkrun-
arfræðingur á Landakotsspít-
ala og var skipaður lektor við
námsbraut í hjúkrunarafræði
í Háskóla íslands frá 1990.
slökunaraðferðum, tilfinninga-
legum stuðningi með samskiptum
o.fl. í kjölfarið var samstarfshóp-
urinn myndaður, sem stendur að
bæklingunum, en rannsóknar-
skýrslan verður kynnt betur síð-
ar.“
— Endurspegiar útgáfa bækl-
inganna þörf sjúklinga og að-
standenda fyrir siíka fræðslu?
„Ég held að það sé mjög mikil
þörf á útgáfu sem þessari. Hjúkr-
unarfræðingar hafa í auknum
mæli tekið að skoða hvaða áhrif
veikindi og meðferð hafa á lífið
og hvernig fólk tekst á við sjúk-
dóma og afleiðingar þeirra, jafn-
framt því hvernig við eigum að
nálgast hvert tilvik sem fagaðilar
og hvernig við getum stutt sjúkl-
inga og aðstandendur. Bækling-
arnir eiga ekki að koma í staðinn
fyrir samskipti við fagfólk, heldur
efla færni fólks og auka upplýs-
ingar um við hveiju megi búast.
Æði margir hafa gagn af þess-
um bæklingum, þótt að sama
fólkið notfæri sér ekki alltaf báða
bæklingana, en þeir eru fyrst og
fremst hugsaðir fyrir þá sem
þurfa að glíma við krabbamein.
Þeir sem eru í ögn
meiri fjarlægð, t.d. í
vinahóp, eiga einnig að
hafa gagn af lestri
þeirra. Hvor bæklingar
kemur út í 1.000 ein-
tökum og ég á von á að þeir rati
fljótt til sinna, í samræmi við
þörfina.“
Jóhanna segir að bæklingarnir
geti einnig nýst sem kennsluefni,
þ. á m. fyrir nema á hjúkrunar-
braut og aðra þá sem þurfa og
vilja vita meira um krabbamein
og meðhöndlun þess.
„Við skrifuðum bæklingana
með það í huga að efni þeirra
væri aðgengilegt öllum, en ekki
væri verið að taka á einhveiju
fjarsta-ðukenndu eða gefa ráð
sem erfitt væri að fylgja eftir.“
Efla betri líð-
an og sjálfs-
björg