Morgunblaðið - 30.05.1995, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
(í— M hAbkounn XFJ A AKURCVRI 1annveran í blíðu og stríðu
Ráðstefiw lieilbrigðisdeildar Háskólans á Akureyri 12. - 13.júní 1995
Mán. 12. jiím'
kl. 9.00 kl. 9.30 Afhending ráðstefnugagna, morgunkaffi - Daníel Þorsteinsson leikur á píanó Setning ráðstefnunnar - María Pétursdóttir. vemdari ráðstefnunnar, tlytur ávarp
kl. 10.00 Hvað er maðurinn frammi fyrir eilífðinni ? - Dr. Sigurbjöm Einarsson biskup * Umræður
kl. 11.00 Áfallahjálp - líknarþjónusta Valgerður Valgarðsdóttir, hjúkrunarfræðingur og djákni FSA. * Umræður
kl. 11.45 Hádegishlé
kl. 13.15 Geðheilbrigði Islendinga - Sigmundur Sigfússon, yfirlæknir geðdeildar FSA. * Untræður
kl. 14.00 Fjölskylduheilbrigði * - Karólína Stefánsdóttir félagsráðgjafi * Umræður
14.45-15.15 HeUsuhlé
kl. 15.15 Islenski karlmaðurinn í blíðu og stríðu - Ólafur H. Oddsson, héraðslæknir Umræður
kl. 16.00 Islenska konan í blíðu og stríðu - Kristín Aðalsteinsdóttir. kennari * Umræður
kl. 19.00 Samfélagsefling
Þriðjud. 13.júní
kl. 9.00 Kynning á rannsóknarverkefnum nýútskrifaðra hjúkrunar- fræðinga Upplifun foreldra sem hafa eignast bam með Down- heilkenni - Anna Margrét Pálsdóttir, Anna Rósa Magnúsdóttir, Eva Hjörtína Ólafsdóttir, Fríður Brandsdóttir og Ingibjörg Einarsdóttir Einelti - Anna Margrét Tryggvadóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Hulda Guðný Finnbogadóttir Þegar ástvinur skyndilega deyr: upplifun aðstandenda á hráðamóttöku - Elín M. Hallgrímsdóttir
kl. 10.00 Heilsuhlé
Reynsla ofTeitra af samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk - Emilía J. Einarsdóttir, Ema Margrét Bergsdóttir, Fanney Friðriksdóttir. Guðbjörg Jónsdóttir, Ingibjörg Þórðardóttir og Sigríður Kristinsdóttir Haustlíðan - Kristín Thorberg og Valgerður Jónsdóttir Upplifun karlmanna af hjúkrunarnámi og -starfi - Þorsteinn B. Bjamason
kl. 11.30 Hcídegishlé
kl. 13.15 Umræðuhópar fheitt á könnunni og meðfæti)
Hópur 1: Eilífðin - áfallahjálp og líknarþjónusta Stjómendur: Valgerður Valgarðsdóttir hj.fr. og djákni Elín Hallgrfmsdóttir hjúkrunarfræðingur
Hópur 2: Geðheilbrigði - Fjölskylduheilbrigði Stjómendur: Sigmundur Sigfússon geðlæknir Karólína Stefánsdóttir félagsráðgjafi
Hópur 3: Isienskir karlar og konur í blíðu og stríðu Stjómendur: Ólafur H. Oddsson héraðslæknir Kristín Aðalsteinsdóttir kennari
kl. 15.00 Kynning á umræðum hópa
kl. 16.00 Ráðsíefnuslit
Mánudagskvöldið 12. júní er ætlunin að ráðstefnugestir okkar fái að njóta næringar og upplyftingar iil samfélagseflingar og verður sú dagskrá auglýst síðar. Ljóst er þó að Björg Þórhallsdóttir hjúkrunarfræðingur, lektor og söngkona mun syngja einsöng við undirleik Daníels Þorsteinssonar, Kristín Aðalsteinsdóttir kennari mun flytja minni karla og Ólafur H. Oddsson læknir mun flytja minni kvenna. Ýmislegt fleira verður þar til gamans gert og yfir sumu hvflir hin mesta leynd. T.d. hefur citthvað heyrst um „Fjóra fjöruga á Týrólabuxum". Áætlun okkar er að kvöldið kitli bragðlaukana sem og hláturtaugamar í þeirri tní okkar að „glatt hjarta veiti góða heilsubót, en dapurt geð skræli beinin". Dagskrárstjón kvöldsins verður Kristín Þórarinsdóttir lektor.
Ráðstefnan verður haldin í Oddfellowhúsinu að Sjafnarstíg 3, Akureyri. Ráðstefnustjóri verður Margrét Arnadóttir lektor.
Skráning á ráöstefnuna er á skrifstofu Háskólans á Akureyri s. 96-30-900 alla virka daga kl. 8-16. Ráðstefnugjald er kr. 4000 fyrir báða ráðstefnudagana, en kr. 3000 f'yrir annan daginn og greiðist það fyrir 5. júní inn á bankareikning nr. 49542 á ávísanareikning heilbrigðisdeildar t Landsbankanum á Akureyri. Athugið að nafn greiðanda verður að koma fram á kvittuninni. Veitingar í heilsuhléum eru innifaldar í ráðstefnugjaldi.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Margrét Þóra
ALLT slökkvilið var kallað að Glerárkirkju, en þar varð tug’milljóna tjón í bruna á sunnudag.
Tugmilljóna tjón í eldsvoða í Glerárkirkju
Talið að tvö börn hafi
orðið völd að eldinum
GRUNUR leikur á að börn hafi
valdið eldsvoðanum sem varð í
Krógabóli, á neðri hæð Glerár-
kirkju, á sunnudag. Tugmilljóna
króna tjón varð í brunanum.
íbúi í húsi gegnt Glerárkirkju
varð var við mikinn reyk og lét
slökkvilið vita. Svo mikinn reyk
lagði frá kirkjunni að slökkviliðs-
menn kölluðu út allt tiltækt lið, að
sögn Tómasar Búa Böðvarssonar
slökkviliðsstjóra.
Kórinn á æfingu
Eldurinn kom upp í leikskólanum
Krógabóli sem.er í kjallara hússins
að vestanverðu. „Við vorum frekar
fljótir að slá á eldinn en það var
gífurlegur hiti þarna inni sem var
til trafala til að byrja með,“ sagði
Tómas Búi. Reyk lagði um nánast
alla bygginguna, en fjölbreytt starf-
semi fer fram í kirkjubyggingunni,
m.a. hafa skátar þar aðstöðu og
Síðuskóli hefur afnot af nokkrum
kennslustofum en það er nánast
eina plássið í húsinu sem ekki
skemmdist.
„Ég var með kórinn á æfingu
og við fórum út úr húsinu klukkan
rúmlega hálftvö," sagði Jóhann
Baldvinsson, organisti Glerárkirkju,
en kórfélagar urðu einskis varir er
þeir yfirgáfu kirkjuna tæpum hálf-
tíma áður en tilkynnt var um vld-
inn. „Við vorum á ferð um húsið
en sáum engin merki þess að eitt-
hvað óeðlilegt væri í gangi,“ sagði
Jóhann.
Um 80 börn voru á leikskólanum,
sem var nánast nýr, en tekinn í
notkun eftir sumarieyfi í fyrra. Inn-
an dyra er svo til allt ónýtt og mik-
ið verk framundan að koma skólan-
um í gagnið að nýju. Gripið hefur
verið til bráðabirgðalausna og börn-
um komið fyrir annars staðar tíma-
bundið.
Ekkert viðvörunarkerfi
Engin lokaúttekt var gerð á hús-
næðinu að sögn slökkviliðsstjóra
þrátt fyrir að hann og byggingar-
fulltrúi Akureyrarbæjar hefðu ósk-
að eftir slíkri úttekt. „Við fórum
að eigin frumkvæði í vetur til að
skoða leikskólaplássið og bentum
þá m.a. á að ekkert viðvörunar-
kerfi er þar eins og skylda *er til.
Ég er ekki í nokkrum vafa um að
ef þetta kerfið hefði verið tiltækt
hefði verið hægt að koma í veg
fyrir að tjónið yrði svona nrikið,"
sagði Tómas Búi.
Ljóst er að ekki verður hægt að
sinna kirkjustarfi á næstunni en
organisti sagði að eflaust yrði allt
kapp lagt á að hraða framkvæmd-
um sem kostur væri. Einkum í ljósi
þess að Akureyrarkirkju verður lok-
að 20. júní næstkomandi vegna við-
gerða á orgeli. „Það verða samt
einhverjar vikur í að hægt verði að
messa hér að nýju,“ sagði Jóhann.
Taiið er að tveir ungir drengir
hafi valdið eldsvoðanum, en rann-
sóknarlögreglan á Akureyri, sem
fór með rannsókn á eldsupptökum,
vildi ekki staðfesta að svo væri. Þar
fengust aðeins þær upplýsingar að
rannsókn á eldsupptökum væri lok-
ið og málið upplýst, en ekki yrðu
gefnar upplýsingar um hver niður-
staðan væri.
-----♦ ♦ ♦-----
Bændadags-
hlaup á Sval-
barðsströnd
BÆNDADAGSHLAUP Ung-
mennasambands Eyjafjarðar,
UMSE verður haldið fimmtudags-
kvöldið 1. júní næstkomandi.
Hlaupið verður haldið á Svalbarðs-
strönd og er í umsjá Ungmennafé-
lagsins Æskunnar. Það hefst kl.
20 en skráning verður á planinu
fyrir framan sundlaugina á Sval-
barðsströnd milli kl. 19.00 og 19.30.
Bændadagshlaupið er öllum opið.
Ýmsar vegalengdir eru í boði, allt
frá 700 metrum upp í 4,9 kíló-
metra. Búið er að bæta við eirium
nýjum flokki, 8 ára og yngri.
Þetta er í 23. sinn sem efnt er
til bændadagshlaups en efnt er til
þessa hlaups fyrsta fimmtudag, í
júní ár hvert. Verðlaun, sem VÍS
gefur eru veitt fyrir fyrstu þrjú
sætin í hveijum flokki.
Háskólinn á Akureyri
/ÍlL hAskóunn Aakupeyhi Opinn fyrirlesíur
31. maí 1995
Tími: Miðvikudagur, 31. maí nk. kl. 20.30.
Staður: Háskólinn á Akureyri, Þingvallastræti 23, stofa 24, 2. hæð.
Flytjandi: Anette Wolthers, kennslustjóri við Danmarks Forvaltnings- höjskole, og flytur hún fyrirlestur sinn á ensku.
Effli: „Learning Organisations — people, technology, performance“. Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Einbýlishús í fjörunni á Akureyri.
Hæð, ris og kjallari. Húsið er forskalað timburhús. Á efri
hæð eru 4 herbergi, snyrting og svalir. Miðhæðin er 2
samliggjandi stofur, 2 herbergi, bað, eldhús og sólskáli. í
kjallara er vinnuherbergi, þvottahús og 4 geymslur
m/gluggum. Húsið þarfnast endurbóta. Laust.
Verð kr. 8.500.000.
-1-
C-
€
L
v
L
L:
/i
4
«
4