Morgunblaðið - 30.05.1995, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1990 13
LANDIÐ
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
FYRSTU rekstrarfræðingar sem útskrifast með bachelor-gráðu frá Bifröst. Þrjátíu manna hópur nemenda sem útskrifuðust sem
rekstrarfræðingar frá Samvinnuháskólanum á Bifröst.
Samvinnuháskólinn á Bifröst slitið
Fyrstu rekstrarfræðingar
með BS-gráðu útskrifaðir
Borgarnesi - NÝLEGA útskrifuð-
ust 30 rekstrarfræðingar og 13
rekstrarfræðingar með BS-gráðu
frá Samvinnuháskólanum á Bi-
fröst. Þetta er í fyrsta skipti sem
rekstarhagfræðingar eru útskrifað-
ir með BS-gráðu frá skólanum en
þetta er sjöunda starfsár skólans á
háskólastigi.
í ávarpi sínu sagði Vésteinn
Benediktsson rektor meðal annars
að Samvinnuháskólinn hefði út-
skrifað slna fyrstu nemendur með
bachelor-gráðu. „Ég býst við að
mörgum hafi þótt það bjartsýni af
Jóni Sigurðssyni, forvera mínum í
þessu starfi, þegar hann lagði fyrst
fram hugmynd um það 1989 að
vorið 1995 yrðu fyrstu nemendurn-
ir með þessa gráðu útskrifaðir,"
sagði Vésteinn.
Tryggja starfsöryggi skólans
Viðstaddir útskriftina voru m.a.
Bjöm Bjamason menntamálaráð-
herra, Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðis- og tryggingamálaráðhen-a
og þingmenn Vesturlands. Björn
flutti ávarp og sagðist myndu kynna
sér þær tillögur sem lægju fyrir um
almenn lög um háskólastarf. „Von-
andi hef ég tækifæri til að beita
mér fyrir því sem ráðherra í sam-
vinnu við ágæta þingmenn sem hér
eru og aðra að hrinda áformum um
samræmda löggjöf yfir þessa skóla
í framkvæmd þannig að starfsör-
yggi þeirra sé tryggt og það tryggt
að þeir fái að dafna áfram. Ég er
sjálfur þeirrar skoðunar að það sé
mjög mikilvægt að það sé fjölbreytt
háskólanám hér á landi og það starfi
skóiar víðar en í Reykjavík eða á
Akureyri. Mér fmnst að sú starfsemi
sem hér er stunduð beri merki þess
að skólar geta dafnað við fjölbreytt
skilyrði og ég mun stuðla að því í
mínum störfum að svo verði áfram
um Samvinnuháskólann á Bifröst,"
sagði Björn.
Fram kom við skólaslitin að þeir
sem útskrifuðust frá skólanum
ættu mjög gott með að fá atvinnu
við sitt hæfi. Dæmi munu vera um
að nemi hafi þrefaldað laun sín
eftir þriggja ára nám við skólann.
Hann var með 70 þúsund krónur
í mánaðarlaun er hann fór í skól-
ann en voru boðin 210 þúsund að
námi loknu.
Björgunar-
sveit í eggja-
töku
Fagradal - Björgunarsveitin Vík-
verji í Vík í Mýrdal hefur um
nokkurra ára skeið haft það sem
tekjuöflun að fara út í Reynis-
dranga og taka þar fýlsegg og
svartfuglsegg. Farið er með
nokkura daga millibili til að ná
eggjunum nýorpnum.
Fréttaritari Morgunblaðsins
fór með í slíka ferð eina kvöld-
stund dag einn fyrir skömmu.
Farið var á hjólabát út að Reyn-
isdröngum og síðan klifið upp i
dranga. Að hluta til þarf að nota
stuðningsband tii að ná eggjun-
um.
Ferðin tók tvo tíma og afrakst-
urinn var um það bil 400 egg.
Jónas Erlendsson
Oryggið
dýimætt
ÖryggiS er ómetanlegt þegar ó reynir. VW Golf er öruggasti bíllinn í sínum flokki skv. árekstrarprófi
hins virta tímarits AUTO MOTOR UND SPORT. Hann er einnig fallegur, rúmgóður og búinn þægindum
sem auka enn á öryggið eins og höfuÖpúðum á aftursæti, lituðum rúöum og skiptanlegu aftursæti.
VW Golf er örugg fjárfesting, viðhalds- og rekstrarkostnaSur er lágur og hann er öruggur í endursölu.
VW Golf skutbíll m/útvarpi, tilbúinn á götuna kostar aðeins frá
HEKLA
-t/Y/eÆr 6es£S
Laugavegi 170-174, sími 569 5500
Volkswagen
Oruggur á alla vegu!
ItS0<
kr. 1.370.000