Morgunblaðið - 30.05.1995, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nú á kynninqarverði!
EXCLUSIVE 1400W
'FUTURA 1300W
meb 6 föídu míkrófiiterkerfí.
Kynningarverb kr. 13.600
eba kr. 12.920 stgr.
Vib bjóbum nú þessar glæsilegu og vöndubu ryk-
sugur frá einum stærsta og virtasta framleibanda
Þýskalands á sérstöku kynningarverbi.
EIO ryksugurnar erv
tæknilega fullkomnar,
lágvserar, með stillan-
legum sogkrafti og
mikrófilterkerfisem
hreinsar burt smæstu
rykagnir.
Soghausinn er á hjólum,
svo þab er leikandi létt
ab ryksugal*
meb 6 földu míkrófílterkerfi.
Kynningarverb kr. 15.700
eba kr. 14.915 stgr.
EXCLUS1VE
PREMIER 1300W
meb 5 földu míkrófílterkerfi.
Kynningarverb kr. 9.400
eba kr. 8.930 stgr.
* EXCLUSIVE og FUTURA
PREMIER
Einar Farestveit & Co hf.
Borgartúni 28 © 562 2901 og 562 2900
BJARNI Hinriksson: Úr myndasögunni „Ég þoli ekki John Wayne“.
Draumheimar myndasögunnar
MYNPLIST
Listasafn Reykjavík-
ur — Kjarvalsstaöir
TEIKNIMYNDASÖGUR
Bjami Hinriksson
Opið alla daga kl. 10-18 til 5. júní.
Aðgangur (á allar sýningar) 300 kr.
Sýningarskrá 500 kr.
ÞAÐ kann að hljóma undarlega
í eyrum margra, en með nokkrum
rétti má halda því fram að mynda-
sagan sé einn þeirra miðla myndlist-
arinnar, sem lengst hefur fylgt nor-
rænum þjóðum. í sögum okkar
greinir oft frá listfengum veggtjöld-
um sem skreyttu hýbýli höfðingja,
og Bayeux-refillinn frá 11. öld hef-
ur löngum verið nefndur sem eitt
besta dæmi þeirrar sagnahefðar,
sem sameinar hvoru tveggja í einum
stað, bókmenntir og myndlist, sem
er um leið höfuðeinkenni mynda-
sögunnar.
Þetta tvíeðli hefur verið undir-
staða gífurlegra vinsælda mynda-
sögunnar víða um lönd á þessari
öld, og er einfaldast að benda til
Japan, Belgíu og Frakklands í því
sambandi. Meðal íslendinga hefur
þessi listmiðill hins vegar átt erfitt
uppdráttar, þó ýmsir hafi komið þar
að; t.d. er sagan af Dimmalimm sem
Muggur gerði á þriðja áratugnum
að líkindum fyrsta myndasagan í
íslenskri nútímalist. Vinsældir
þeirrar útgáfu var undantekning;
myndasagan hefur ekki notið virð-
ingar sem bókmenntaverk (e.t.v.
vegna myndanna) og ekki heldur
náð að hasla sér völl innan mynd-
listarinnar, e.t.v. vegna frásagnar-
innar og tímaraðarinnar sem ein-
kennir hana umfram aðra myndlist.
A þessu hefur smám saman orðið
breyting undanfarin ár, fyrst og
fremst fyrir atbeina dugmikilla
ungra myndlistarmanna, sem hafa
hrifist af forminu og leitast við að
hefja það til vegs. Jafnframt hafa
sést þess ýmis merki að listheimur-
inn hafi tekið miðilinn í sátt; Lista-
safn Reykjavíkur hefur þar gengið
lengst, m.a. með stórri fransk-ís-
lenskri sýningu á myndasögum sem
haldin var 1992, og nú með einka-
sýningu á nokkrum teiknimyndasög-
um frá hendi Bjarna Hinrikssonar.
Bjarni hefur verið í fararbroddi
í þessari þróun, enda mun hann
eini listamaðurinn hér á landi sem
hefur stundað sérnám á þessu sviði,
en þá menntun sótti hann til Frakk-
lands undir lok síðasta áratugar.
Að öðrum ólöstuðum átti Bjarni
einna drýgstan þátt í útgáfu
myndablaðsins Gisp! (Guðdómleg
innri spenna og pína) sem kom út
á árunum 1990-92 og var helgað
teiknimyndasögunni; sú útgáfa náði
hámarki í sýningarskrá frönsk-ís-
lensku sýningarinnar 1992, en hef-
ur legið í dvala síðan. Er vonandi
að þar sé um hlé að ræða fremur
en endalok, því myndasagan þarf
sinn vettvang ekki síður en önnur
myndlist.
Á sýningunni á vesturgangi
Kjarvalsstaða getur að líta ýmsar
stuttar teiknimyndasögur frá hendi
Bjarna. Nokkrar þeirra hafa birst
áður í dagblöðum eða tímaritum,
en aðrar eru óbirtar. Sú staðreynd
leiðir hugann að eðli miðilsins, því
þó gaman sé að skoða myndirnar
sjálfar er ljóst að þær eru gerðar
fyrir annan vettvang, þ.e. hið prent-
aða blað; sýning af þessu tagi getur
aldrei komið í stað þeirrar útgáfu-
starfsemi, sem er myndasögunum
nauðsynleg.
Þetta kemur berlega í ljós þegar
sýningarskráin er skoðuð, því hún
er afar virkur hluti sýningarinnar,
en ekki aðeins skreyting eða minja-
gripur um hana. Þar er að finna
prentun á tveimur myndasögum,
dæmi um ramma úr öðrum sögum
og afar fróðlega greiningu og um-
fjöllum um verk Bjama sem Jón
Karl Helgason hefur ritað. Það er
ef til vill besti vitnisburður áður-
nefnds tvíeðlis myndasögunnar, að
hér skrifar ekki listfræðingur held-
ur annar nýráðinna ritstjóra tíma-
ritsins Skírnis; hann leggur ekki
síst út frá menningarlegum tilvísun-
um í verkum Bjarna, hvort sem þær
eiga uppruna sinn í bókmenntum
eða myndlist.
Þær teiknimyndasögur sem
Bjarni sýnir hér eru af ýmsum toga,
og má þar m.a. nefna stuttar sögur
af „Mímí og Mána“ sem geyma
skemmtilegar ábendingar um þver-
sagnir mannlegs eðlis; hið sama
gildir um sögurnar „Osýnileg“,
„Mömmuskór“ og „Ég þoli ekki
John Wayne“, þar sem viðbrögðin
eru ekki endilega byggð á grunni
skynseminnar.
í þessum sögum koma vel fram
ýmis séreinkenni Bjarna sem teikn-
ara. Má þar nefna persónugerðina,
þröngt myndsviðið, sem gjarna er
sveigt til að loka því enn frekar,
hina þöglu myndrafnma sem oft
skipta miklu fyrir frásögnina, og
loks fjölbreytt og oft óvenjuleg sjón-
arhorn, þar sem myndefnið er sýnt
að ofan, frá hlið, í útjaðri mynd-
anna o.s.frv. Þetta síðastnefnda
verður til þess að lesandinn/áhorf-
andinn fær fremur á tilfinninguna
að hann fái aðeins fyrir náð að fylgj-
ast með úr felum, fremur en að
hann sé í heiðurssæti, eins og al-
gengast er um myndasögur.
Skemmtilegustu verkin á sýning-
unni eru úr draumaheimi lista-
mannsins. Hann nefnir nokkrar
sögur sínar „Mig dreymdi ...“, og
hér ber hæst Barokkborgina, sem
er ný saga frá hendi Bjarna. Þarna
birtist minnimáttarkennd okkar ís-
lendinga gagnvart menningarþjóð-
um Evrópu ljóslifandi. Ferðalangar
um landið sjá skyndilega ríkulega
menningarborg við einhvem fjörð-
inn á útnára veraldar, þar sem ekk-
ert á að vera; hér standa frægar
kirkjur við hlið kaupfélagsins,
glæstar hallir andspænis frystihús-
inu og nútíminn (í líki MacDonalds-
veitingastaðar) reynir að laga sig
að hinni tignarlegu borgarmynd.
Hugmyndir um tékkneskrar teng-
ingar við íslenska menningarsögu
gerir þennan draum enn kostulegri
en ella.
Hér er á ferðinni áhugaverð sýn-
ing á skemmtilegum þætti íslenskr-
ar myndlistar, sem vert er að benda
fólki á að láta ekki fram hjá sér
fara. Undanfarin misseri hefur
Listasafn Reykjavíkur haft for-
göngu um sýningar á ýmsum list-
greinum, sem ekki eru í miðjum
straumi myndlistarinnar, og er
þessi sýning hluti af því starfi. í
fámenninu getur verið erfitt að
finna tilverugrundvöll fyrir þennan
listmiðil ekki síður en aðra, og því
gefa sýningar af þessu tagi fólki
nauðsynlegt tækifæri til að fylgjast
með því sem áhugamenn um teikni-
myndasögur eru þó að fást við.
Eiríkur Þorláksson
JuiAraJMÍMÍf
ásútgáfan
Glerárgötu 28 - Akureyri
Áskriftarsími 462 4966
óaÝm'-'
ík. kkinn
t u ekki af maíbókunum!
DÚF6N
Bækurmánaðarinssamanípakka 2.120,-
Saga mánaðarins ekki mmfal.n