Morgunblaðið - 30.05.1995, Page 25

Morgunblaðið - 30.05.1995, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ1995 25 LISTIR Morgunblaðið/Silli FRÁ söngmessunni á Húsavík Söngmessa á Húsavík Húsavík. Morgunblaðið. Norræna menningarhátíðin á Spáni Islenskur skellihlátur Nýjar bækur • MANNRÉTTINDI biirnn er yfirskrift fyrsta heftis í nýrri ritröð Barnaheilla, sem fjalla mun um málefni barna frá mörgum sjónar- hornum. í þessu fyrsta riti eru birt erindi, sem flutt voru á ráðstefnu samtakanna um mannréttindi barna sl. haust, þegar Barnaheill fagnaði fimm ára afmæli sínu. í þessu hefti eru fjórtán erindi og greinar um mannréttindi barna, barnavernd og viðhorf til barna. Höfundar eru Arthur Morthens, formaður Barnaheilla, Vigdís Finn- bogadóttir forseti íslands - sem varð fyrsti félagi samtakanna og er jafnframt heiðursfélagi - Þor- steinn Pálsson dómsmálaráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson fyrrv. utanríkisráðherra, Lars H. Gu- stafsson, varaformaður Barna- heilla í Svíþjóð, Loftur Guttorms- son, prófessor við Kennaraháskóla íslands, Bragi Guðbrandsson, for- stöðumaður Barnaverndarstofu, Karl Steinar Valsson, afbrotafræð- ingur og lögreglumaður í Reykja- vík, Aðalsteinn Sigfússon, félags- málastjóri í Kópavogi, dr. Guðrún Jónsdóttir, stjórnarmaður í Stíga- mótum, Hrefna Friðriksdóttir hér- aðsdómslögmaður, Hrólfur Kjart- ansson, deildarstjóri í menntamála- ráðuneytinu og Agúst Þór Árna- son, framkvæmdastjóri Mannrétt- indaskrifstrofu íslands. Mannréttindi barna má fá á skrifstofu Barnaheilla, Sigtúni 7 í Reykjavík, og kostar 600 krónur. AÐ TILHLUTAN söngstjóra, organista og sóknarprests flutti Kirkjukór Húsavíkur há- tíðlega söngmessu í Húsavíkur- kirkju nýlega og var hún vel sótt. Flutt voru þekkt kirkjuverk eftir innlenda og erlenda höf- unda. Sóknarpresturinn sr. Sig- hvatur Karlsson flutti hugvekju og á milli tónlistaratriða las Kristbjörg Lilja Jakobsdóttir upp úr ritningunni. Stjórnandi kirkjukórsilis var Natalia Chow og undirleikari Helgi Pétursson. Einsöngvarar Hólmfríður Benediktsdóttir, Natalia Chow og Matthildur Rós Haraldsdóttir, einleikari á klarinett var Baclay Anderson. LEIKBRÚÐULAND sýndi Bannað að hlæja á Norrænu menningarhá- tíðinni á Spáni og voru sýningarn- ar fjölsóttasta atriðið á hátíðinni ef myndlistarsýningar eru frátald- ar. Þess má geta að Caput-hópur- inn lék fyrir 300-400 manns á tónleikiim í Auditorio Nacional í Madríd. Dagblaðið E1 Pais birti 22. apríl umsögn um sýningu Leikbrúðu- lands og skrifaði m.a.: „Það er mjög sjaldgæft að sýnd séu barnaleikrit frá öðrum löndum í höfuðborginni. Menningarhátíð Norðurlanda, sem haldin er í Madrid, Katalóníu og Valencíu um helgina, er undantekning: þar gef- ast tvö einstök tækifæri til að sjá sýninguna Bannað að hlæja eftir íslenska hópinn Leikbrúðuland, sem sýnir í Madrid í fyrsta skipti á 25 ára ferli sínum. Þýtt yfir á spænsku gæti nafn leikhópsins útlagst Land brúðanna eða Leik- brúðuland (!!), en ekki neitt atrið- anna (24) er sýning með (leikbrúð- um). í Bannað að hlæja eru mögu- leikar lýsingar notaðir af mikilli fimi og fínleika sem leyfir lausnir eins og þá að ein persóna verksins er að hálfu leyti brúða (bolur og útlimir) og að hálfu leyti mann- eskja (höfuðið). Útkoman er fígúra sem minnir mjög á skopmyndir sem teknar eru á útihátíðum þar sem andlitið virðist áfast við lík- ama nautabana eða flamengó- dansara. Óhætt er að segja að í fyrsta skiptið sem fígúran kemur fram á sviðið fara öll börnin að hlæja og bijóta þannig bann titils- ins. En hlátrasköllin þagna fljótt þegar í ljós kemur að fígúran er ljóti kallinn í sögunni. Þetta er Loki, illgjarn guð sem vill eyði- leggja það sem góðir félagar hans hafa skapað: Jörðina. Leikfléttan er byggð á fornu norrænu ljóði sem með hjálp goð- sögunnar segir frá sköðun heims- ins og íbúa hans. Fyrir utan umhverfísmál fjallar verkið, sem er fyrir börn sex ára og eldri um stórfengleik vinátt- unnar og hlátursins. Að syngja til sín ham- ingjuna og fegurðina TONLIST Vídistaöakirkju SÖNGTÓNLEIKAR Kór Öldutúnsskóla eldri og yngri félagar halda upp á 30 ára starfs- afmæli kórsins. Laugardaginn 27. maí 1995. ÞEGAR Egill Friðleifsson lítur yfir farinn veg, sér hann hóp af syngjandi fólki, sem á honum þökk að gjalda fyrir góðar stundir, og ekki minni hóp, sem vissi, að þar sem hann og söngvarar hans fóru, var boðið upp á góðan söng. Á þessum vettvangi hefur hann alið upp sitt fólk í Hafnarfirði með þeim glæsibrag, að bergmálað hefur um heim allan, svo að Kór Öldutúnsskóla nýtur mestrar frægðar þess sem Hafnfirðingar geta státað af, þ.e. að eiga barna- kór, sem sómir sér vel í samfélagi slíkra kóra alls staðar að úr heim- inum og stendur í fararbroddi ís- lenskra barnakóra. Árangur Egils er aðdáunarverður en líklega eru uppeldislegu áhrifin þó merkileg- ust, að kenna ungu fólki að syngja til sín hamingjuna og fegurðina. Kór Öldurtúnsskóla hóf tónleik- ana og söng nokkra gamla vini en einnig nýlegt lag eftir Hildi- gunni Rúnardóttur, Maríuljóð, við kvæði eftir Vilborgu Da^bjarts- dóttur, fallegt og vel mótað tón- verk, er kórinn söng mjög vel, eins og reyndar öll hin sönglögin, þó sérstaklega megi nefna gelíska þjóðlagið Dagur er risinn og Senn kemur vor, eftir Kabalevskí, þar sem stílhreinn og agaður söngur kórsins naut sín einkar vel. Valgerður Andrésdóttir, fyrrum kórfélagi, lék Ballöðu í g-moll, eftir Chopin af töluverðri leikni og músíkalskri innlifun. Þá tók „Litli kór“ lagið og þá mátti heyra hvernig sáð er fyrir góðum kór og hversu sá sproti getur vaxið og blómgast, sé vel vakað yfir og hlúð að, eins og kom fram í fal- legu lagi eftir Atla Heimi Sveins- son, Það kom söngfugl að sunnan, við texta eftir Þorstein Gylfason. „Skot 92“ nefnist sönghópur sá sem fór til Skotlands 1992 og söng m.a. Aglepta, eftir Mellns, sem kórinn hefur flutt víða, hlotið mik- ið lof og verið verðlaunaður fyrir afburða góða útfærslu þessa vandasama nútímaverks. Hanna Björk Guðjónsdóttir sópransöngkona söng Vilja-ljóðið eftir Léhár en með henni lék Ing- unn Hildur Hauksdóttir, sem báð- ar eru aldar upp í kór hjá Agli. Hanna Björk er efnileg söngkona, er hefur undanfarið stundað fram- haldsnám í söng og söng hún Vilja-ljóðið mjög fallega. í Kvennakór Reykjavíkur eru nokkrar sem sungu með Agli og þar fór fyrir hópnum Margrét Pálmadóttir, söngvari og stjórn- andi Kvennakórsins og sungu þær nokkur lög við undirleik Svönu Víkingsdóttur. Svo nefndur „Mömmukór", undir stjórn Bryn- hildar Auðbjargardóttur, kom næst fram en hún stjórnar einnig unglingakór í Firðinum. Að síðustu komu allir kóranir saman og sungu Þú hýri Hafnarfjörður, eftir Frið- rik Bjarnason og Þjóðsönginn. Þessir afmælistónleikar voru skemmtilegir og aðalsmerki þeirra var góður tónflutningur og sýndi, að þar sem vel er lagt til undirstöð- urnar, rís af traust mynd, er vísar mönnum veginn allt lífið. Jón Ásgeirsson 24 klukkutímar Lánareglur okkar eru einfaldar og óþarfa bið vegna umsókna þekkist ekki. Ef öll gögn liggja fyrir af þinni hálfu, er umsóknin því afgreidd innan sólarhrings. SUÐURIANDSBRAUT 22, 108 REYKJAVÍK SÍMl 568 9050, FAX 581 2929 Fáðu ítarlegan uppjýsingabækling í næsta útibúi Landsbanka Islands, Búnaðarbanka Islands eða hringdu beint í okkur. Kynntu þér þá margvíslegu möguleika sem fjármögnunarleiga hefur umfram aðra kosti á lánamarkaðinum. y\

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.