Morgunblaðið - 30.05.1995, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ1995
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
INNFLUTNIN GUR
Á LANDBÚNAÐAR-
AFURÐUM
SAMKVÆMT frumvarpi því, sem nú liggur fyrir Alþingi,
um breytingar á lögum vegna aðildar Islands að Alþjóða-
viðskiptastofnuninni, er gert ráð fyrir að innflutningur á land-
búnaðarafurðum megi hefjast í júlímánuði.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að fara þá leið að heimilaður
verði innflutningur á ákveðnu magni af til dæmis kjöti, eggj-
um, smjöri og ostum á lægri tollum en hámarkstollum. í upp-
hafi verður þetta magn 3% af innanlandsneyslu á viðkomandi
vöru en verður síðan aukið í 5% af innanlandsneyslu á næstu
sex árum.
Landbúnaðarráðherra mun úthluta þessum tollkvótum og
gert er ráð fyrir tvenns konar fyrirkomulagi við úthlutun
þeirra. í fyrsta lagi að úthlutað verði til umsækjenda með
heildsöluleyfi og að hlutkesti verði látið ráða, ef umsóknir
berast um meiri innflutning en sem nemur tollkvóta vörunn-
ar. Einnig er heimilt að veita almenna heimild til innflutnings
vöru á þeim tollum, sem um tollkvótana gilda.
Innflutningur umfram tollkvóta verður tollaður á þann
hátt að innflutt vara verði um 30% dýrari en sem nemur heild-
söluverði sambærilegrar innlendrar vöru.
Ari Teitsson, formaður Bændasamtakanna, harmar í sam-
tali við Morgunblaðið á sunnudag, að ekki hafi verið farin
sú leið að lögbinda hámarkstolla á innfluttum landbúnaðaraf-
urðum. Hann telur, að í upphafi muni innflutningurinn ekki
hafa mikil áhrif. „Hins vegar óttast ég að síðar komi inn ein-
hveijar vörutegundir, sérstaklega í blandaðri vöru, sem land-
búnaðarafurðir eru hluti af, þar sem þetta tekur frá innlend-
um markaði."
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna,
segir, að hann hefði talið eðlilegt að ganga lengra í upphafi
þannig að innflutt vara yrði á sama verði og innlend. „Þá
hefði verið keppt á grundvelli gæða og tollalækkanir á tímabil-
inu nýst sem vopn til að knýja á um aukna hagræðingu í ís-
lenskum landbúnaði,“ segir Jóhannes við Morgunblaðið. Hann
fagnar þó því að fallið hafi verið frá „áformum um ofurtolla".
Hart hefur verið deilt um innflutning á búvörum til íslands
á undanförnum árum. Með gildistöku frumvarpsins er fallið
frá þeirri grundvallarreglu, að innflutningur skuli vera bann-
aður og hljóta það að teljast merk tímamót í íslenskri verslun-
arsögu á þessari öld. Neytendur munu njóta góðs af fjölbreytt-
ara úrvali og vonandi í einhverjum tilvikum lægra verði. Inn-
lendri framleiðslu verður veitt aðhald með aukinni samkeppni.
Engin leið er að spá um hvaða áhrif þessi breyting mun
hafa á innlenda framleiðendur. í mörgum tilvikum er ólík-
legt, að innflutningur muni ógna innlendri framleiðslu. Þetta
á ekki síst við um mjólk og ýmsar mjólkurvörur, þar sem
neytendur leggja mikið upp úr ferskleika og gæðum.
Þegar komið var á frelsi í innflutningi á sælgæti á sínum
tima, vegna aðildar íslands að Fríverslunarsamtökum Evrópu
(EFTA), óttuðust margir að íslensk sælgætisframleiðsla væri
dauðadæmd. Auðvitað rættust þeir spádómar ekki. Þvert á
móti stendur íslensk sælgætisframleiðsla í miklum blóma og
ekki verður annað séð en að innlend framleiðsla standist þeirri
innfluttu fyllilega snúning jafnt hvað varðar verð og gæði.
Þá bendir ekkert til annars en að innlend bjórframleiðsla
muni halda sterkri markaðshlutdeild sinni þrátt fyrir að vernd-
artoilar á innfluttan bjór hafi verið felldir niður.
Vissulega verður mikil hagræðing að eiga sér stað í landbún-
aði og framleiðendum á eftir að fækka. Það hefði eftir sem
áður verið nauðsynlegt þó að GATT-samkomulagið hefði ekki
komið til. Helsti vandi bænda er ekki yfirvofandi innflutning-
ur heldur breyttir neysluhættir og úrelt og óhagkvæmt fram-
leiðslukerfi.
Innflutningur landbúnaðarvara gerir aftur á móti þörfina
fvrir uppstokkun enn brýnni. Bændur eiga að bregðast við
með skjótum hætti og keppa við innflutninginn með afurðum
sem hæfa nútíma neysluvenjum, á verði sem neytendur geta
sætt sig við. Islenskar afurðir eru um margt einstakar. Land
okkar er hreint og ómengað og það sama á við um íslenskar
búvörur. Þessar röksemdir hafa iðulega verið notaðar í útflutn-
ingi landbúnaðarafurða. Ættu þessi rök ekki einnig að höfða
til íslenskra neytenda?
Það er hins vegar erfitt að sjá hvernig skömmtunarkerfi
við úthlutun tollkvóta á að geta staðist í raun. Uthlutunar-
og skömmtunarkerfi hafa aldrei reynst vel og eru um margt
óréttlát, jafnt gagnvart þeim innflytjendum sem ekki eiga
þess kost að flytja inn vörur á lægri tollum og þeim neytend-
um sem ekki gefst færi á að kaupa vörur á þessum kjörum.
Það er því líklegt að brátt muni koma upp kröfur um aukið
frjálsræði.
X
Flest ráðuneyti fengu athugasemdabréf frá ESA
Tilvísana-
reglugerðir
dugðu ekki til
Fyrsta ársskýrsla ESA, efbirlitsstofnunar
EFTA, gefur ekki fagra mynd af árangri ís-
lendinga við gildistöku EES-tilskipana. I sam-
• • A
antekt Onnu Gunnhildar Olafsdóttur kemur
fram, að nánast öll ráðuneyti hafa fengið
misalvarleg athugasemdabréf frá stofnuninni
vegna framkvæmdarinnar.
YMIST er minnt á að ekkert
hafi verið gert til að upp-
fylla ákvæði tilskipana
eða að framkvæmdin hafi
verið ófullkomin. Tengiliðir EES í
ráðuneytunum bera ýmsu við og
nefna t.d. að meira fé og mannskap
þurfi til að vinna tímafrekt verk-
efni. Einar Magnússon, skrifstofu-
stjóri lyfjamálaskrifstofu heilbrigðis-
ráðuneytisins, telur að rekja megi
margar af athugasemdum ESA til
misskilnings í ráðuneytunum.
„Við völdum úr áríðandi reglu-
gerðir að okkar rnati og afgreiddum
hinar með svokölluðum tilvísana?
reglugerðum og þýddum meðfylgj-
andi tilskipanirnar. Sú vinna gekk
fljótar fyrir sig og útgáfa reglu-
gerðanna var auglýst í Stjórnartíð-
indum í desember. ESA var hins
vegar ekki sátt við vinnubrögð okk-
ar og vildi að nákvæmar væri farið
í sakirnar. Þeir hafa nokkuð til síns
. máls því ef virkilega er rýnt í text-
ann í einstökum tilskipunum má sjá
að eftir á að fylla í ákveðnar eyð-
ur,“ sagði Einar.
Hann sagði að ráðuneytið hefði
fengið svo alvarlega athugasemd
að næsta stig væri kæra frá ESA.
„Við höfum því verið í sambandi
við ESA og erum að svara því lið
fyrir lið hvenær við komum þessum
reglugerðum út. Mér telst til að
reglugerðirnar séu á bil-
inu 8 til 9. Við höfum
hugsað okkur að vinna
hratt og koma þeim út
fyrir áramót,“ sagði Ein-
ar um leið og hann tók
fram að vinnan hefði tekið meiri
tíma en áætlanir gerðu ráð fyrir
því ekki hefði verið nægilega mikill
mannafli til að sinna starfinu.
Góð staða á fjármálasviðinu
Finnur Sveinbjörnsson, skrif-
stofustjóri í viðskiptaráðuneytinu,
sagði að þegar væri búið að hrinda
í framkvæmd öllum tilskipunum
EES-samningsins varðandi fjár-
málaþjónustu. Hins vegar væri hér
um langan feril að ræða og enn
ætti eftir að ganga frá nokkrum
smáatriðum. „Þegar þeir frá ESA
eru að athuga hvort við höfum hrint
löggjöfinni í framkvæmd með rétt-
um hætti útbúa þeir svokallaða
samanburðartöflu, þ.e. líta til
ákveðinnar greinar í tilskipuninni
og skrifa svo hjá sér hvar sé að
finna viðeigandi ákvæði í íslenskum
lögum eða reglugerðum. Þeir fóru
svona yfir fyrstu og aðra bankatil-
skipunina, tilskipun um peninga-
þvætti, tilskipun um verðbréfasjóði
og tilskipanir um vátryggingar, á
fundi með okkur á síðasta ári. Full-
trúarnir töldu eftir fundinn að enn
ætti eftir að hrinda í framkvæmd
nokkrum ákvæðum tilskipananna
og sendu okkur bréf þar að lút-
andi. Við höfum svarað því og telj-
um að þarna þurfi að lagfæra nokk-
ur atriði,“ sagði Finnur. Hann sagði
að þegar á haustþingi yrðu flutt
fimm frumvörp til að hrinda í fram-
kvæmd nýjum tilskipunum og gera
lagfæringar í tengslum við ábend-
ingar ESA. Reynt væri að hraða
verkinu eftir megni.
Umhverfismál - stór
málaflokkur
Karitas Gunnarsdóttir, deildar-
sérfræðingur í umhverfisráðuneyt-
inu, sagði að aðalástæðan fyrir því
hvað hægt gengi við framkvæmd
tilskipananna væri sú að meiri
mannskap þyrfti til að ■ vinna að
reglugerðum fyrir stóran mála-
flokk. „Því er ekki óeðlilegt að ráðu-
neytinu berist formleg bréf. Þau
eru nokkur og ekki mörg miðað við
hvað reglugerðirnar eru margar.
Við erum einfaldlega með stöðuga
vinnu í gangi að reyna að fram-
fylgja ákvæðum samningsins og
ljúka reglugerðunum," sagði Karit-
as. Hún nefndi sem dærni að ráð-
herra hefði mælt fyrir tveimur
frumvöi'pum í tengslum við EES-
samninginn, þ.e. um erfðabreyttar
lífverur og matvæli, á miðvikudag.
Hún sagði að vinna við reglu-
gerðirnar væri aðallega á vegum
sérfræðinga ráðuneytisins í Holl-
ustuvernd og hefði verk-
efnum verið raðað í for-
gangsröð. „Forgangs-
verkefni eru t.d. á sviði
matvæla. Sumar af reglu-
gerðunum varða ekki ís-
lenskar aðstæður sérstaklega. Því
eru þær ekki settar efst á listann
þó kvartað sé yfir því að þeim hafi
ekki verið komið í framkvæmd,“
sagði Karitas.
Varðandi stöðu Islands almennt
sagði Karitas að margir samverk-
andi_ þættir hefðu eflaust áhrif á
að Islendingar væru styst á veg
komnir í lögleiðingu EES-reglna.
Fram hefði komið að ekki gengi
alltaf jafngreiðlega að koma málum
gegnum þingið, samningurinn væri
viðamikill og íslendingar væru
óvanir því hve mikil skriffinnska
fylgdi honum; Hins vegar sagði hún
að ekki mætti gleyma því að tölu-
verðri vinnu væri þegar lokið. Reynt
væri að hraða verkefnum af
fremsta megni og t.d. teldi hún að
ráðuneytið væri komið á sæmilegt
ról gagnvart ESA.
Ólokið einni reglugerð um
landbúnaðarmál
Guðmundur Sigþórsson, skrif-
stofustjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu, sagði að gengið hefði verið frá
tveimur reglugerðum af þremur í
ráðuneytinu. „Við erum búnir að
ganga frá fóðurreglugerðinni. Sáð-
vörureglugerðinni erum við búin að
Vantar fé og
fólk í tíma-
frekt verk
EES-SAMNINGURINN tek
viðurkenningar á s
ganga frá en hugsanlega ekki að
láta vita af því,“ sagði hann en
ráðuneytinu hafa einmitt verið send
fjölmörg athugasemdabréf vegna
síðarnefnda málaflokksins. Guð-
mundui' sagði að gerðar hefðu ver-
ið tillögur að einfaldari gerð áburð-
arreglugerðarinnar. „Fundið var að
þeim og því verðum við að fara
einhvern dýrari veg. Engu að síður
gerum við ráð fyrir að reglugerðin
verði tilbúin fyrir 1. júlí. Við höfum
látið vita af því.“
Hann sagði að vinnan hefði
gengið hægar en ella því kostnaður-
inn við reglugerðirnar væri mikil,
t.d. hefði fóðurreglugerðin kostað
milljón og sáðvörureglugerðin
hálfa, og vinnan væri ____________
flókin og tímafrek.
„Reglugerðirnar eru gríð-
arlega flóknar og inni-
halda mikið af smáatrið-
um. Ég get nefnt að í
Til en
sem ki
regluj
Evrópu er verið að framleiða fræ
sem er ekki framleitt hér. Við skul-
um eftir sem áður hafa reglur um
þetta eins og við séum að framleiða
það. Áburðurinn er framleiddur af
einum aðila hérna og verslað með
hann af einum aðila. Samt erum
við með reglur sem gera ráð fyrir
allt, allt öðru fyrirkomulagi."
Gengið frá síðustu
reglugerðinni
Ragnhildur Hjaltadóttir, skrif-
stofustjóri í samgönguráðuneytinu,
sagði að verið væri að undirbúa
setningu síðustu reglugerðarinnar.
„Hún mælir fyrir um að ríkin eigi
að viðurkenna gagnkvæmt flug-
skírteini ef kröfurnar eru þær sömu.
Ég var nú síðast á fundi útaf reglu-
gerðinni í morgun. Við erum eigin-
lega að ganga frá því hér og nú.
Hvers vegna vinnan hefur ekki
gengið hraðar? Á því eru ýmsar
skýringar. Við höfum verið að fara
yfir efnisatriði tilskipunarinnar og
aðlaga okkar framkvæmd henni.
Nú er nánast allt komið á. Ég vona
að ég geti tilkynnt ESA um þessa
reglugerð á föstudaginn. Ég ræddi
einmitt um þetta við þá í síðustu
viku,“ sagði hún.