Morgunblaðið - 30.05.1995, Síða 31

Morgunblaðið - 30.05.1995, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 31 á síðasta ári Morgunblaðið/Júlíus ur m.a. til gagnkvæmrar itarfsr éttindum. Vinnuvernd Berglind Ásgeirsdóttir, ráðu- neytisstjóri í félagsmálaráðuneyt- inu, sagðist aðeins kannast við að ráðuneytinu hefði borist athuga- semdabréf frá ESA vegna tilskip- ana um vinnuvernd, þ.e. hvernig vinna skuli fara fram á vinnustað. Verkefnið væri hins vegar geypi- lega umfangsmikið. „Undirnefnd stjórnar Vinnueftirlitsins hefur unnið kappsamlega í þessu. En vegna þess að við viljum tryggja sátt um framganginn gengur verk- ið hægar en ef þetta væri tekið, þýtt og framkvæmt. Við höfum ekki gert það þannig. Aðilar vinnu- ________ markaðarins fara yfir það með stjóm Vinnueftirlits- ins hvernig við fram- kvæmum verkið. Við höf- um sagt þeim úti hvernig vinnuferlið er. Við höfum ekki misst sjónar af markinu og vinnan sé í gangi,“ sagði Berglind. Gagnkvæm viðurkenning á menntun i fræ alla á gerð Samkvæmt ársskýrslu ESA hef- ur stofnunin sent menntamálaráðu- neytinu fjórar athugasemdir vegna tilskipana um viðurkenningu á námi. Hins vegar segist Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu, ekki vita betur en ráðuneytið hafi gert hreint fyrir sínum dyrum með lögum um viðurkenningu á menntun og próf- skírteinum frá árinu 1993 og breyt- ingu á lögunum frá árinu 1994. Hún sagði að fyrri lögin næðu til tilskipana um þriggja ára háskóla- nám eða lengra. Þau síðari tækju til víðtækari tilskipanar um styttra nám. Sólrún sagði að sér kæmu at- hugasemdirnar ekki sist á óvart því starfsmaður ESA hefði átt viðræð- ur við starfsmann ráðuneytisins um málið og eftir þann fund hefði hún ekki fengið aðrar upplýsingar en að allt væri í lagi. Hún sagði að líklegasta skýringin væri að dregist hefði að tilkynna breytinguna til ESA. Jörðin skalf enn undir fótum í gær í bænum Neftegorsk á Norður- Sakhalíneyju en óttast er, að meirihluti bæj- arbúa, sem voru 3.500, hafi farist þegar mjög öflugur jarðskjálfti lagði hann í rúst á sunnudag. Bærinn á sér nokkuð langa sögu og ekki alltaf fagra. Hann er einhver sá afskekktasti í öllu Rússlandi og þótti svo óvistlegur, að þangað voru sendir þeir and- stæðingar keisarastjórn- arinnar, sem hún vildi helst losna við BJORGUNARMENN leita í rústunum. Líklegt þykir, að byggingarnar hafi ekki verið gerðar til að standast öflugan jarðskjálfta og því ekki mikil von um, að margir fyndust á lífi. Aðeins tvö eða þrjú hús uppistandandi eftir jarðskjálftann í Neftegorsk á Sakhalín Á þriðja þúsund manna grafnir undir rústunum BJÖRGUNARMENN unnu að því í gær að grafa lif- andi fólk og látið úr rústum 19 stórra fjölbýl- ishúsa, sem hrundu til grunna þeg- ar jarðskjálfti, sem var 7,5 á Ric- hter, lagði olíubæinn Neftegorsk á Sakhalíneyju í rúst snemma á sunnudag. Talið var, að um 3.000 manns væru undir húsarústunum og var óttast, að flestir hefðu látið lífið. Olíuleiðslur fóru í sundur í hamförunum en rússneskir emb- ættis sögðu í gær, að ekki væri hætta á miklu umhverfisslysi. Jarðskjálftinn á Sakhalíneyju er sá öflugasti, sem þar hefur orðið í 40 ár, en björgunarmenn töidu fyrst hugsanlegt, að annar hver íbúi í fjölbýlishúsunum hefði lifað af. Þær vonir dofnuðu þó fljótt þegar farið var að leita í rústunum og í gær . sagði Vladímír Deyev majór og tals- maður almannavarnanefndarinnar á Sakhalín, að á þriðja þúsund manna væru grafnir undir rústun- um og lítii von væri til, að margir fyndust á lífi. „Björgunarmennirnir finna aðeins látið fólk,“ sagði hann. Aðeins grjóthrúgur Fyrstu fréttamennirnir komu til Neftegorsk i gær og sögðu þeir, að varla stæði steinn yfir steini í bænum. „Þar sem fjölbýlishúsin höfðu staðið voru aðeins grjóthrúg- ur meðfram götunum en leikföng og húsmunir sýndu, að þarna hafði búið fólk,“ sagði einn þeirra. „Mað- urinn minn, börnin mín og barna- börnin eru þarna einhvers staðar,“ sagði öldruð kona grátandi. „Ég ætla að bíða hér þar til þau hafa fundist, iifandi eða látin.“ Rússneska stjórnin skipaði strax fyrir um mikla aðstoð vegna hörm- unganna í Neftegorsk en ekki var ljóst hvenær hún bærist. Nefteg- orsk er átta tímabeltum og 7.000 km fyrir austan Moskvu. Níkolaj Loktyonov hershöfðingi og embætt- JARÐSKJÁLFTINN Á SAKHALÍN EYJU Þúsundir manna eru taldar af eftir jarðskjálfta á Sakhalín-eyju í Rússlandi á sunnudag, sem mældist 7,5 stig á Rictherkvarða RUSSLAND N.-Kórea.„^y / n„. , | / EYJA/ Kína VW- M___________________Japan SAKHALÍN ismaður í ráðuneyti, sem hefur með neyðarhjálp að gera, sagði þó, að meira en 40 flugvélar og 11 þyrlur væru í flutningum með matvæli, fatnað og lyf en nokkrir daga munu líða áður sjúkraskip kemur á vett- vang vegna þess hve mikill ís er við ströndina. Afþakka alþjóðlega hjálp Japanir og Suður-Kóreumenn buðu strax fram hjálp þegar frétt- ist af afleiðingum skjálftans en Oleg Soskovets, fyrsti aðstoðarfor- sætisráðherra Rússlands, sem kom til Sakhaiín í gær, kvað Rússa ekki þurfa á alþjóðlegri hjálp að halda. Sergei Khetagúrov, aðstoðarneyð- Reuter MYNDIRNAR eru af sjónvarpsskjá og því óskýrar en það leynir sér ekki, að bærinn er í rúst. Langflestir íbúanna bjuggu í fjölbýl- ishúsum, sem hrundu til grunna meðan fólk var enn í fastasvefni. arhjálparráðherra, sagði þó, að lík- iega yrði ýmiss konar aðstoð þegin. Um 55.000 manns búa á því svæði á norðurhluta Sakhalíneyjar, sem jarðskjálftinn reið yfir, en Nefteg- orsk varð langverst úti enda næst upptökunum. „Ástandið er skelfilegt. Bærinn er rústir einar, aðeins tvær eða þijár tveggja hæða byggingar standa uppi,“ sagði Alexander Míkheyev, starfsmaður almannavarna í héraðs- höfuðborginni, Yúzhno-Sakhalínsk. Gera lítið úr hættu á mengunarslysi Sergei Shoigu neyðarhjálpar- ráðherra sagði í gær, að fyrir 1972 hefði ekki verið talið, að Norður- Sakhalín væri á jarðskjálftasvæði og styrkleiki bygginga hefði verið í samræmi við það. Eftir 1972 hefði reglugerðum verið breytt og byggingar hafðar traustari en ekki kom fram hjá honum hvenær fjölbýlishúsin héfðu verið reist. Olíuleiðsla í Neftegorsk rofnaði á 15 stöðum í jarðskjálftanum og var óttast, að mikið mengunarslys myndi hljótast af. Khetagúrov, að- stoðarneyðarhjáiparráðherra, full- yrti hins vegar, að lítil hætta væri á ferðum. Sagði hann, að þrýsting- ur hefði verið tekinn af leiðslunni og lítið hefði lekið út.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.