Morgunblaðið - 30.05.1995, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 41
INGIÞOR
GEIRSSON
+ Ingiþór Haf-
stein Geirsson
slökkviliðsstóri
Brunavarna Suður-
nesja fæddist í
Höfn, Hópnesi í
Grindavík 17.2.
1930. Hann andað-
ist á Landspítalan-
um 23. maí sl. For-
eldrar hans voru
hjónin Margrét Ey-
jólfsdóttir, f. 14.12.
1905, d. 8.9. 1968,
og Geir Þórarins-
son vélstjóri og org-
anisti, f. 3.2. 1906,
d. 17.12. 1983. Ingiþór var elst-
ur af fimm systkinum. Systkini
hans eru: Eyjólfur Ingiberg, f.
1932, Sigurlaug, f. 1934, Karl
Heiðar, f. 1938, og Siguróli, f.
1950. Ingiþór ólst upp í Grinda-
vík til níu ára aldurs en þá flutti
fjölskyldan til Keflavíkur. Ingi-
þór kvæntist Laufeyju Jóliann-
f. 8.8.
1933, frá Hlíðarhús-
um í Sandgerði, og
bjuggu þau alla tíð
i Keflavík. Börn
þeirra hjóna eru: 1)
Jóhannes Margeir,
f. 25.6.1953, kvænt-
ur Guðbjörgu M.
Jónsdóttur. Þau
eiga þrjú börn og
þrjú barnabörn. 2)
Ragnar, f. 8.8.1955,
d. 10.10. 1983. 3)
Ragnheiður Ása, f.
18.2.
1965. 4) Margrét, f.
14.12. 1962, gift Jóhanni Inga
Grétarssyni og eiga þau einn
son og hún eina dóttur frá fyrri
sambúð. 5) Heiðar, f. 11.6.1965.
6) Ragnheiður Asa, f. 30.7.
1966. Hún á einn son.
Utför Ingiþórs fer fram frá
Keflavíkurkirlgu í dag og hefst
athöfnin kl. 14.00.
AÐFARANÓTT 23. maí andaðist
Ingiþór Geirsson slökkviliðsstjóri,
Lyngholti 10, Keflavík.
Nokkrum dögum áður heimsótti
ég hann á skrifstofu hans í slökkvi-
stöðinni og ræddum við um hafið
eins og svo oft áður. Á veggnum
gegnt skrifborði Ingaþórs var stór
mynd af Keflavíkurhöfn, töluðum
við oft um þessa mynd og sagði
Ingiþór að hún hefði verið tekin
1949 og bátana þekkti hann alla
sem voru í höfninni, og vildi hann
endilega lána mér myndina af
höfninni, við spurðumst fyrir um
heilsufar hvor hjá öðrum því við
höfðum verið saman í endurhæf-
ingu á Reykjalundi og var heilsan
ágæt hjá okkur báðum miðað við
aðstæður. Við ræddum einnig um
gamla tímann og rifjuðum upp í
lokin hvor um sig þegar við unnum
fyrir fyrstu aurunum sem smá
pattar. Það var alltaf jafn
skemmtilegt að koma á skrifstofu
Ingaþórs og spjalla við hann og
þetta skipti var eins og alltaf áður.
En þegar ég kvaddi vin minn og
gekk út af skrifstofu hans með
myndina góðu hvarflaði það ekki
að mér að ég ætti ekki eftir að
sjá hann aftur.
Ingiþór Geirsson var mikill
hæfileika- og mannskapsmaður,
það var afskaplega gott að vera í
návist hans. Það var alveg sama
á hveiju gekk, það var alltaf jafn
mikil ró, léttleiki og hlýja í öllu
fari hans.
Árið 1963 eða fyrir 32 árum
var Ingiþór í föstu starfi í landi
auk þess sem hann var í slökkvilið-
inu, fékk hann frí um sumarið til
að fara norður á síldveiðar hans
og hann hafði gert svo oft áður.
Þetta sumar vorum við saman á
Bergvík KE55. Ingiþór var fyrsti
vélstjóri, þetta var fyrsta sumarið
mitt á Bergvík, ég hygg að Bene-
dikt Jónsson framkvæmdarstjóri
útgerðarinnar hafi fengið IngaÞór
til að fara með mér þetta sumar.
Alla tíð síðan höfum við Ingiþór
verið góðir vinir. Þetta sumar gerði
Ingiþór við allt og lagfærði sem
aflaga fór í vélbúnaðinum þannig
að allt gekk snurðulaust. Á heim-
leiðinni um haustið þegar við vor-
um staddir á Selvogsbanka á vest-
urleið kviknaði í bátnum út frá
rafmagni við ljósavél og varð vél-
arrúmið alelda á skammri stundu.
Sjálfkrafa tók Ingiþór stjórnina
gegn eldinum, slökkvitækin voru
opnuð og þeim hent ofan í logandi
vélarrúmið og svo var öllum bátn-
um lokað aftur og frammúr, meira
að segja var troðið í skráargötin,
þannig var eldinum haldið niðri
þangað til Mummi frá Sandgerði
og Lóðsinn frá Vestmannaeyjum
komu og aðstoðuðu okkur til Þor-
lákshafnar þar sem slökkvilið stað-
arins réð niðurlögum eldsins.
Mörgum árum seinna kom aftur
upp eldur í Bergvík með svipuðum
hætti og aftur var bátnum bjargað
með ráðum Ingaþórs.
Það er mikil eftirsjá að ljúf-
menni og góðum dreng en það er
líka sérstakt happ og forréttindi
að hafa fengið að kynnast slíkum
manni og vera honum samtíða.
Blessuð sé minning Ingaþórs
Geirssonar. Ég votta frú Laufeyju
Jóhannesdóttur, bömum þeirra og
öðrum ástvinum mína dýpstu hlut-
tekningu.
Grímur Karlsson.
Á aðeins tveimur mánuðum
hafa félagar í Þroskahjálp á Suð-
umesjum þurft að sjá á bak tveim-
ur heiðursfélögum sínum og stofn-
endum félagsins, þeim Halli Guð-
mundssyni og Ingaþór Geirssyni.
Árið 1992, á 15 ára afmæli fé-
lagsins, vora Ingiþór og Laufey
kona hans ásamt öðram stofnend-
um sæmd gullmerki félagsins og
gerð að heiðursfélögum. Allt þetta
fólk vann ötullega að því að ryðja
brautina og koma á þjónustu fyrir
fötluð börn í heimabyggð.
Ingiþór gegndi ýmsum trúnað-
ar- og ábyrgðarstörfum fyrir fé-
lagið og sat í stjórn um árabil.
Hann var formaður byggingar-
nefndar þegar félagið stóð í fram-
kvæmdum við Suðurvelli og
gegndi forystuhlutverki við aðra
uppbyggingu félagsins. Félögum
hans í Þ.S. var vel ljóst hve gífur-
lega vinnu Ingiþór innti af hendi
fyrir félagið á þessum áram. Því
til staðfestingar er tilvísun í
skýrslu formanns á aðalfundi fé-
lagsins 23. mars 1981. Þar sagði
formaður Þ.S., Einar Guðberg:
„Ingiþór er óeigingjarn maður, sí-
fellt með hugann við velferð og
framgang félagsins. Eina sem
getur vakið hann frá þessari göf-
ugu hugsun og vinnu er branalúð-
ur.“ Það þarf því engan að undra
að sá hugsjónaandi sem einkenndi
Ingaþór hafði áhrif á marga vini
hans og vinnufélaga og á félagið
marga velunnara og sérstaka
stuðningsmenn í röðum slökkvil-
-m-
HflMHBEHG
'Ml
ERFISDRYKKJAN
\/picliicaliir I ánmi'ilo A cími **
Veislusalur Lágmúla 4, sími 588-6040
MINNINGAR
iðsmanna.
Þegar lokið var við að byggja
þjónustukjarna Þ.S. við Suðurvelli
þurfti að velja honum nafn. í virð-
ingarskyni við minningu Ragnars,
son Ingaþórs sem þá var nýlátinn,
valdi stjórn félagsins að nefna
húsin Ragnarssel. Sú starfsemi
sem fram fer þar hefur síðan ver-
ið mikilvægur þáttur í þeirri þjón-
ustu sem fötluð börn og fjölskyld-
ur þeirra njóta hér á svæðinu.
Þökk sé Ingaþór og því fólki sem
barðist með elju og dugnaði fyrir
bættum hag fatlaðra barna og fjöl-
skyldna þeirra. Það þurfti ótrúlegt
hugrekki og úthald í baráttunni
við fordóma og þekkingarleysi sem
einkenndi málefni þroskaheftra á
þessum tíma.
Ingiþór var fyrsti formaður
svæðisstjórnar málefna fatlaðra á
Reykjanesi og gegndi því embætti
um árabil. Með störfum sínum
ávann Ingiþór félaginu traust og
velvild sem alla tíð síðan hefur
einkennt viðhorf íbúa á Suðumesj-
um til Þroskahjálpar.
Stjóm Þroskahjálpar á Suður-
nesjum vottar eiginkonu Ingaþórs,
bömum og öðram aðstandendum
samúð og þakkar störf hans í þágu
félagsins og skjólstæðinga þess.
Blessuð sé minning Ingaþórs
Geirssonar.
F.h. Þ.S.,
Helga Margrét
Guðmundsdóttir.
Ingiþór slökkviliðsstjóri í Kefla-
vík er látinn. Með nokkram línum
kveð ég þennan ágæta mann.
Kynni okkar hófust fyrir löngu,
áratugum í raun. Hann reyndist
alltaf yfírvegaður öðlingur og allra
vinur. Hann var glettinn og smit-
aði frá sér góðum siðum með fal-
legu brosi alltaf þegar maður hitti
hann. Ingiþór var góður leiðtogi
sem hafði tileinkað sér að vera til
fyrirmyndar öðrum til góðs vegar
og vandaðra verka. Mikið og gott
samstarf hefur ríkt í áratugi milli
slökkviliðanna á Suðurnesjum og
átti Ingiþór stóran þátt í að svo
var. Ingiþór var orðinn slökkviliðs-
stjóri er ég var enn að feta stig-
ann. Alltaf gaf Ingiþór góð ráð
og hafði tíma til að ræða málin.
Sérstaklega minnist ég þess
hversu gott var að hitta Ingaþór
á eldstað þegar hann bað okkur
um aðstoð við bruna eða slys. Oft
var mikið um að vera og margt
sem þurfti að ske fljótt, en Ingi-
þór, af undraverðri ró og yfírsýn,
geislaði frá sér smitandi öryggi
sem gerði allt slökkvistarfið nán-
ast auðvelt. Við slökkviliðsmenn á
Keflavíkurflugvelli eigum fallegar
og góðar minningar um Ingaþór
Geirsson slökkviliðsstjóra Kefla-
víkur og kveðjum hann með hjart-
ans þökk fyrir áratuga samstarf.
Við geymum minningu um góðan
dreng. Fyrir hönd slökkviliðsins á
Keflavíkurflugvelli votta ég ást-
vinum hans öllum, og samstarfsfé-
lögum okkar innilegustu samúð.
Haraldur Stefánsson.
Biómastofa
Friöfinm
Suöurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sfmi 31099
Opið öll kvöld
til ki. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
MÁR EGILSSON
+ Már Egilsson
fæddist 23. jan-
úar 1932. Hann lést
á heimili sinu 21.
maí sl. Foreldrar
hans voru Egill
Árnason stórkaup-
maður og Ásta
Norðmann listdans-
ari, sem bæði eru
látin. Systkini hans
eru Árni, tónlistar-
maður, og Kristín.
Hálfsystir Más sam-
feðra er Erla. Már
kvæntist Guðrúnu
Steingrímsdóttur
árið 1959, en þau skildu síðar.
Börn þeirra eru Egill, tölvunar-
fræðingur, kvæntur Þorgerði
Hönnu Hannesdóttur, Stein-
grímur Dúi, kvikmyndagerðar-
maður, og Már, nemi.
Útför Más Egilssonar verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag.
Þrátt fyrir nepju
og nýfallinn snjó í hlíðum
kvakar lóan dátt
í dapurlegu holtinu.
Enn skal fagna
ungu vori og nýjum söng
i öllum þessum kulda,
fýrirheitinu
hvemig sem það rætist.
(Snorri Hjartarson)
Már.
Dæm svo mildan dauða,
drottinn þínu bami,
eins og léttu laufí
lyfti blær frá hjami,
eins og lítill lækur
ljúki sínu hjali,
þar sem lygn í leyni
liggur marinn svali.
(Matthías Jochumsson)
Andlát vinar okkar Más Egils-
sonar bar sviplega að, en kom þó
eigi með öllu á óvart, því að hann
hafði átt við mjög vaxandi van-
heilsu að stríða hin síðari ár. Van-
máttugir stöndum við enn einu sinni
í gustinum af „manninum með ljá-
inn“. Þær lyndiseinkunnir Más sem
okkur eru á þessari stundu efst í
huga og glæða munu minningu
hans birtu og yl eru: ..
kankvísin, kímnigáfan,
glettnin og góðvildin
og fágaður listrænn
smekkur, hin mikla
viðkvæmni undir niðri,
hjálpsemin og örlætið
sem var honum í blóð
borið.
Örlögin höguðu þvf
svo að Már valdi sér
verslun og viðskipti að
starfsvettvangi. Lengi
vel lék það í höndum
hans, en á köflum varð
einnig mótviðrasamt,
og gerði él snörp.
Ósagt skal hér látið um réttu eða
röngu hilluna í lífinu - en á því er
enginn efi að vel hefðu hentað Má,
bæði listræn tjáning á ýmsum svið-
um, ellegar störf að líknar- og
mannúðarmálum. Þar lagði hann
raunar sitthvað til málanna þótt
hljótt færi. Margir munu minnast
þess með þakklátum huga.
Við þökkum minninguna um góð-
an dreng og vottum ástvinum hans
samúð.
Magnús Skúlason,
Kristinn Kristinsson.
Stórhuga maður er fallinn í val- -
inn. Upp í hugann koma minningar
um glaðlyndan og örlátan heims-
mann sem bæði kynntist björtum
og skuggalegum hliðum mannlífs-
ins. En efst í huga eru þó heimsókn-
imar á heimili hans og Gunnu í
gegnum tíðina því þau voru stór-
kostlegir gestgjafar. Mér og mínum
sýndi hann alltaf bæði elsku og
áhuga og fyrir það þakka ég hér.
Fjölskyldunni sendi ég mínar
inniíegustu samúðarkveðjur.
Vilborg.
í dag er til moldar borinn Már
Egilsson. í því tilefni langar okkur,
fyrrverandi starfsstúlkur hans í
Kosta Boda, að þakka honum fyrir
hans hlýju og elskulcgheit í okkar
garð.
Einnig heitar óskir um bjarta
verund þar sem andi hans fer frjáls.
Megi góður guð styrkja og vernda
ástvini hans.
Kveðja frá fyrrverandi
starfsstúlkum í Kosta Boda.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end-
urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl-
unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur-
eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfí í númer
691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari
ekki yfír eina'og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfílega
línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að
hafa skímarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar
greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmæl-
isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tví-
verknað.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu
tali era nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfin Word og
Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.