Morgunblaðið - 30.05.1995, Síða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Ástkær systir okkar,
RANNVEIG LÁRA LÁRUSDÓTTIR,
Karlagötu 6,
Reykjavík,
sem lést 22. maí, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu miðviku-
daginn 31. maí kl. 15.00.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Ágúst Lárusson,
Sveinborg Lárusdóttir.
t
Ástkær móðir okkaf, tengdamóðir og
amma,
ÓLÖF KR. ÍSFELD,
lést að morgni 29. maí á Droplaugar-
stöðum.
Jarðarför hennar fer fram frá Fossvogs-
kÍFkju föstudaginn 2. júní kl. 13.30.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og
barnabarna,
Rafn Kristjánsson,
Margrét Kristjánsdóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
amma og langamma,
FRÍÐA JÓHANNA JÓNSDÓTTIR,
(DÍDÍ)
Öldunarheimilinu Viðihlið,
Grindavík,
áður til heimilis f Steinholti,
Vestmannaeyjum,
lést að kvöldi 26. maí.
Jarðarförin auglýst síðar,
Ebba Unnur Jakobsdóttir, Jónas Guðjónsson,
Guörún Halldóra Jóhannesdóttir, Guðmundur Einarsson,
Jón Ólafur Jóhannesson, Ólöf S. Andrésdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar,
JÓNAS G. HALLDÓRSSON
rakarameistari,
frá Siglufirði,
lést í Borgarspítalanum föstudaginn
26. maí.
Hermína Jónasdóttir Lilliendahl,
Guðný Jónasdóttir,
Stefán Jónasson,
Dagný Jónasdóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
SIGURLÍN ÓLAFSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði aðfaranótt
29. maí. Jarðaförin auglýst síöar.
Einar Kristjánsson,
Auðunn Karlsson,
Hilmar Sigurðsson,
Guðrún G. Matthíasdóttir,
og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför,
SIGRÍÐAR KJARTANSDÓTTUR,
Selvogsgrunni 11.
Ásdís Kjartansdóttir,
Kjartan Haraldsson,
og aðrir aðstandendur.
Lokað
Lokað í dag vegna jarðarfarar MÁS EGILSSONAR
frá kl. 9-13.
Lífstykkjabúðin,
Laugavegi4.
Sólrún Gestsdóttir,
Fríður Jónsdóttir,
Hrefna Jónsdóttir,
Baldur Jónsson,
barnabörn
JÓNAS
JÓHANNSSON
-4- Jónas Jóhanns-
* son var fæddur
í Skógum í Fells-
strönd í Dalasýslu
18. desember
1899. Hann lést 25.
febrúar sl.
ÞEIM fækkar nú
bændunum á íslandi
sem fæddir voru fyrir
og um sl. aldamót og
lifðu tvenna tímana.
Menn sem ólust upp
við vinnubrögð og at-
vinnuhætti sem við-
gengist höfðu allt frá
upphafi byggðar í landinu, með
fábreyttan búnað, lítil þægindi en
mikið strit á tímum þegar baráttan
fyrir afkomu fólksins var þrotlaus
og hörð en þó aldrei trygg. Þó var
aldrei farið fram á meira en að
hafa fyrir nauðþurftum, fæði,
klæðum og einhveiju húsaskjóli. Á
þeirri tíð var ekki amast við vinnu
barna og því síður unglinga, frek-
ar að lagt væri að þeim að duga
sem best, það gæti komið sér vel
síðar á lífsleiðinni að hafa lært að
taka til hendi og það gerði það líka.
Einn úr hópi þessara aldamóta-
manna, sem svo eru nefndir, var
Jónas Jóhannsson frá Skógum,
síðan bóndi á Valþúfu á Fells-
strönd. Kynni okkar hófust reynd-
ar ekki fyrr en hann var að mestu
hættur allri búsýslu og sonur hans
og tengdadóttir tekin við búi á
Valþúfu. I nokkra áratugi höfðum
við þó vitað hvor af öðrum því lífs-
förunautur hans hún Guðbjörg var
mér að góðu kunn frá því hún
dvaldi í Kollafirði á Ströndum al-
veg fram á fullorðinsár eða til
ársins 1951 þegar fjölskylda henn-
ar tekur sig upp frá búi í Þrúðar-
dal þar sem þau voru leiguliðar.
Ég tel mig vita að Jónas hefði
verið sáttur við þau orð mín að
þegar Guðbjörg kemur til hans þá
fer hamingjusól hans að skína fyr-
ir alvöru. Ég tel að þau hafi átt
vel saman, bæði orðin nokkuð full-
orðin og þroskaðar manneskjur
þegar þau taka saman. Jónas kom-
inn rétt yfir fimmtugt. Mér er
næst að halda að
árekstrar og misklíð-
arefni hafi verið fá
eða nær engin á lið-
lega fjörtíu ára sam-
búðartíma þeirra.
Á heimili þeirra
voru í heiðri höfð
gömul sannindi sem
þó verða ætíð ný, að
líta á öll störf sem
vinna þurfti og vinna
varð jafn merkileg og
nauðsynleg, rækja
hvert þeirra af alúð
hugans og kostgæfni
og alltaf með jákvæðu
hugarfari, jafnvel hin smáu sem
mörgum hættir til að líta á sem
ómerkileg en eru það ekki. Fara
vel með alla hluti og sína aðhald
og fyrirhyggju í meðferð fjár-
muna, nokkuð sem virðist ætla að
vera eiginleiki þeirrar kynslóðar,
sem komin er á efri ár, en gætir
síður hjá þeim sem yngri eru þó
að hún verði ætíð gullvæg regla
og sannindin mestu.
Jónas var mjög félagslyndur
maður og tók mikinn þátt í starfi
margra félaga í sinni sveit. Hann
var einn af stofnendum UMF Dög-
unar og var sá félagsskapur hon-
um einkar kær, sú hugsjón og
stefna sem sú hreyfing helst hafði
á oddinum átti samhljóm í skap-
gerð hans og sál. Hann hafði for-
göngu um stofnun bæði sauðfjár-
ræktar- og nautgriparæktarfélags
í sveitinni, var lengi í stjórn búnað-
arfélags sveitarinnar og sat í
hreppsnefnd um árabil. Þá nutu
málefni bókasafns sveitarinnar á
Staðarfelli lengi orku huga hans
og handa.
Margt er starfið hjá einyrkjan-
um og næðisstundir færri en oft
er á kosið. Á Valþúfu var þó aldr-
ei vanrækt að sinn^ gestum sem
að garði bar jafnvel um hábjarg-
ræðistímann. Jónas og Guðbjörg
áttu marga kunningja og vini sem
sóttu þau heim tl að njóta gest-
risni þeirra og hlýju. Jónas naut
þess að blanda geði við fólk. Hann
hafði þá gjarnan uppi gamanmál
og skemmti gestum sínum með
t
Við þökkum alla þá einlægu samúð,
hlýju og vináttu sem okkur hefur verið
sýnd við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
GUÐJÓNS JÓNSSONAR,
Höfðabraut 6,
Akranesi.
Lilja Pétursdóttir,
Trausti Vilhjálmsson, Jóhanna Cardenas,
Gunnar Guðjónsson, Elsa Jónasdóttir,
Guðbjörg Guðjónsdóttir, Birgir Sigdórsson,
Helgi Pétur Guðjónsson, Dóra María Elíasdóttir,
Sævar Guðjónsson, Þuríður Þórðardóttir,
Guðjón Viðar Guðjónsson.
skólar/námskeið
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið. Samvinna
við Burda. Sparið og saumió fðtin sjálf.
Mest 4 nemendur í hóp. Faglærður
kennari.
Sigríður Pétursd., s. 551 7356.
tölvur
■ Tölvuskóli f fararbroddi
Öll hagnýt tölvunámskeið.
Fáðu senda námsskrána.
tónlist
■ Píanókennsla
Reyndur píanókennari tekur að sér
píanókennslu frá 1. júní. Skemmtilegt
námsefni! Innritun í síma 561-3655.
■ Pianókennsla
Kenni í sumar, fólki á öllum aldri.
Tónfræði innifalin. Einnig sértímar í tón-
fræði, tónheyrn, og undirleik með söng-
nemum og hljóöfæranemum.
Kennsla hefst 6. júní.
Upplýsingar í síma 55 73277
kl. 10.00 - 12.00 og 18.00 - 20.00.
Guðrún Birna Hannesdóttir.
frásögnum og fór með vísur. Sjálf-
ur sinnti hann nokkuð ljóðagerð
og batt þá gjarnan bagga sína
ekki sömu hnútum og samferða-
mennirnir heldur fór sínar eigin
leiðir. Margar vísna hans segja
hlutina umbúðalaust og eru kjarn-
yrtar þó oft sé farið nokkuð fijáls-
lega með formið.
Jónas var alla tíð mikill ræktun-
armaður í sér. Eins og svo margir
af hans kynslóð unni hann landi
og gróðri. Eftir tveggja vetra dvöl
í bændaskólanum á Hvanneyri
vann hann mikið við plægingar
og aðra túnræktun bæði í Dala-
sýslu og á bæjum á Snæfellsnesi.
Ekki munu þau hafa búið neinu
stórbúi á nútímamælikvarða en
afrakstur þess gaf þeim það sem
dugði vel til framfærslu fjölskyld-
unni. Það nægði þeim, meira
kröfðust þau ekki. Nokkuð fullorð-
in drógu þau sig í hlé frá allri
búumsýslu og fluttu í framhaldi
af því til Búðardals og eru með
þeim fyrstu sem eignast þar íbúð
í sambýli fyrir aldraða, sem þar
var þá verið að byggja. Líkami
Jónasar og þrek er þá farið að
gefa sig eftir langferð lífsins. Þau
voru því sátt við umskiptin og
höfðu síður en svo á móti því að
fá nú að njóta náðugri daga en
þau höfðu áður upplifað á æviferð
sinni.
Það var ánægjulegt að koma til
þeirra og notalegt að njóta þeirra
hlýja viðmóts, sem var þeim svo
eðlilegt og þau voru svo rík af.
Nú höfðu þau í fyrsta sinn
nægan tíma og sem meira var
voru sátt við líf sitt og umhverfi
allt. Við Jónas áttum a.m.k. eitt
sameiginlegt áhugamál sem leiddi
af sér nokkur samskipi okkar á
milli þótt samfundir okkar yrðu
færri en mér finnst nú að æskilegt
hefði verið, en það var áhugi okk-
ar á pappír og þá sér í lagi þeim
sem eitthvað var á prentað. Við
skiptumst á vísum og stuttum frá-
sögnum úr nokkuð ólíku reynslu-
umhverfi og oft frá ólíkum tíma.
Það var mér mikils virði að eign-
ast slíkan kunningja og mér fannst
einkar notalegt í návist hans og
þeirra hjóna. Þess er gott að rninn-
ast.
Jónas mat konu sína mikils, hún
var sólargeislinn besti sem lífið
gaf honum. Fyrir þann sólargeisla
var hann tæíð þakklátur, það
bæði sagði hann og sýndi vel. Þau
eignuðust tvo syni, Andra, sem
er lyfjafræðingur að mennt og
starfar í Reykjavík, og Rúnar sem
er bóndi á Valþúfu.
Á fyrri hluta síðasta árs fer
slappleiki Jónasar að ágerast og
dvelur hann á sjúkrahúsi um skeið.
í framhaldi af því flytja þau sig
um set og setjast að í Barmahlíð
á Reykhólum. Þar lést hann 25.
febrúar sl. Hann hafði búið í Dala-
sýslu alla sína ævi utan þetta síð-
asta ár.
Blessuð sé minning hans.
Guðfinnur S. Finnbogason.
-----♦ » ♦-----
BRIDS
llmsjón Arnór G.
Ragnarsson
Bridsfélag
Reykjavíkur
Jakob Kristinsson - Matthías Þorvaldsson 904
SverrirÁrmannsson-JónasP. Erlingsson 760
Örn Amþórsson - Guðlaugur R. Jóhannsson 752
GuðmundurPáll Amarson — Þorlákur Jónsson 643
Sigtryggur Sigurðsson - Bragi Hauksson 639
JónBaldursson-SævarÞorbjömsson 591
ísak Örn Sigurðsson - Helgi Sigurðsson 542
Hjalti Elíasson - Páll Hjaltason 425
Páll Valdimarsson-RagnarMagnússon 408
Hæstu skor fjórða kvöldið fengu
þessi pör:
Bjöm Eysteinsson - Aðalsteinn Jörgensen 300
Páll Valdimarsson - Hrólfur Hjaltason 236
Hjalti Elíasson - Páll Hjaltason 182
Helgi Jónsson — Helgi Sigurðsson 172
Halldór Svanbcrgsson - Kristinn Kristinsson 140
Þar með lauk vetrarstarfinu og ekki
annað eftir en að mæta á aðalfundinn
sem haldinn verður í húsi BSÍ nk.
miðvikudagskvöld kl. 20.00.