Morgunblaðið - 30.05.1995, Side 46

Morgunblaðið - 30.05.1995, Side 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Ljóska Ferdinand Smáfólk HE5, AAAAM.. REMEMBER ME? I WA5 IN HERE A FEU) OMS A60 ANP B0U6HT A BOOK OF POEM5 FOR A 6IRL IN MY CLASS.. /2-17 SHE DION't LIKE IT... CAN YOU THINK OF ANYTHIN6 EL5E I MI6HT BUY F0R HER? S0METHIN6 THAT WOULP REALLY IMPRE55 HER,ANP MAKE HER LIKE ME MORE THAN ANYONE SHE'5 EVER KNOWN.. ’FOR ABOUT A POLLAR? Já, frú... Ég var hérna Henni líkaði manstu eftir fyrir nokkrum hún ekki... mér? dögum og dettur þér keypti ljóðabók eitthvað handa stelpu í annað í hug bekknum mín- sem ég gæti um... keypt handa henni? Eitthvað sem hún yrði virki- lega hrifin af, og gerði hana hrifnari af mér en nokkrum öðrum sem hún þekkti... Fyrir svona 70 krónur? Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 GREINARHÖFUNDUR á milli „heilladísanna“ tveggja, Guðrúnar Ásmundsdóttur og Eyglóar Stefánsdóttur, sem hann segir að hafi beint honum af braut einangrunar. Staðreyndir um „mannránið“ á Vesturgötu 7 Frá Karli 0. Bang: SVO BAR til að þolandi, aldraður meinleysismaður, brá sér í mesta sakleysi inn í samkomusal að Vest- urgötu 7 þeirra erinda að fá sér í rólegheitum kaffisopa við hóflegu verði, eins og hann raunar hafði tví- vegis áður gert, og allt farið hið besta fram. Þetta var allra fyrstu daga aprílmánaðar. En þolandi var nýlega búinn að missa konu sína, en það mun enginn í þessu húsi hafa vitað þá. Þegar þolandi hefur lokið kaffinu og setið einn og afskiptalaus hóflega stund, gengur hann fram í fordyrið, tekur hatt sinn og frakka, en þegar hann er um það bil að hálfu kominn í frakkann sinn, veit hann ekki fyrr en það vindur sér að honum ein snotur valkyija og segir: „Nei! Hvað ertu að fara? Vertu ekki að því, það á að fara að dansa - ég hefí ekki séð þig áður.“ En nú tók ekki betra við, af þvi að einmitt í sömu svifum, bregður sér eins og stormsveipur inn úr dyrunum ein valkyija ekki minni né síður glæsileg að vallarsýn; og sú var nú ekki sein, en gellur: „Nei! Hvaða mann ertu þama með?“ Sú fyrri ansar: „Hann telur sig vera að fara.“ Báðar: „Nei, þú ferð nú úr frakkanum." Síðan höfðu þær snör handbrögð og færðu gestinn úr frakkanum hvort sem hann vildi eða ekki en þó ósköp vin- samlega á yfírborðinu en með ákveðnum blæ - þá gella þær nær samtímis: „En hver ertu? Hvað heit- irðu?“ Sú fyrri: „Ég heiti Eygló Stef- ánsdóttir og er forstöðukona hér.“ Nú já, komdu sæl, ég heiti Karl 0. Bang. Þá tjáði sú er síðar kom að hún héti Guðrún Ásmundsdóttir. Þolandi: „Nú já, komdu sæl og bless- uð, ég kannast auðvitað við þig.“ En nú vildu þær þessar tvær glæsi- legu dömur endilega fá nánari deili á feng sínum, og nú dundi yfír Karli hver spumingin af annarri, svo sem ertu danskur, hefurðu dvalist lengi á íslandi, hvemig getur það verið að þú talar alveg einsog íslenskur maður, hefurðu nokkuð fengist við skriftir? Þannig létu þær dæluna ganga, en sáu til þess að halda Karli þéttingsfast á milli sín svo að hann kæmist hvergi. - Það er nú svo um karlmenn að þá er þeir verða fyrir þéttum þrýstingi aðíaðandi kvenna, er sem einhver dulin líkamsstarfsemi segi til sín og blóðið tekur á rás og gusast með feikna hraða um allan líkamann, svo að menn bæði bleikna og blána. Nú höfðu dömurnar þjarm- að svo að bráð sinni að hann var orðinn mjúkur og meðfærilegur nán- ast sem nýstrokkað smjör. Þá tóku þær hann hvor undir sinn arm og færðu hann í eina stofu þar sem sat hópur manna. Var nú sem á þær legðist einhver sigurvíma og augu þeirra urðu mild og gljáandi er þær létu ijúfa hálfhring þann, er fólkið sat í, um miðjuna og bæta þar þrem- ur sætum við, settust nú sín hvorum megin við Karl, sem nánast lak vilja- laus og máttvana í sæti sitt. Nú tóku þær til við að sefa hann og stilla með því að vera honum ósköp Ijúfar og blíðar sem móðir við bam. - Já, ákaflega var það nú notalegt! - Þeg- ar Eygló Stefánsdóttur og Guðrúnu Ásmundsdóttur þótti sem Karl væri orðinn sæmilega rólegur, afhentu þær eða framseldu hann þriðju val- kyiju til þess að laga hann og móta að geðþótta. Sú heitir Þórann Magnea og var að taka við stjóm á þessum hóp af Guðrúnu Ásmunds- dóttur. Þessari dömu, Þóranni Magneu, hefur tekist með furðubrög- um að þjálfa og aga Karl svo að nú getur hún látið hann lesa upp bæði sögur og ljóð fyrir hóp manna, sem hann hefði ekki vogað sér áður nema aðeins fyrir konu sína. Það er að sjálfsögðu nokkur ráðgáta hvað veld- ur því að svo glæsilegar konur skuli taka sig til og ræna sér svo gömlum gaur sem raun er á að þessu sinni. Þótt svo sýnist sem téður Karl Oluf sé nú frjáls úr fjötrum og fari allra ferða sinna að geðþótta leikur nú samt á því grunur að honum sé nú enn haldið í nokkram viðjum þótt ekkert slíkt hafi sannast. „Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott!“ Karl Oluf má nú vel við una, af því að þær heilladísimar, Guðrún Ásmundsdóttir og Eygló Stefánsdót- ir, áttu mestan þátt í því að beina honum af braut einangrunar til meiri samskipta við fólk, meðal annars í leikhópinn „Fomar dyggðir" að Vest- urgötu 7. KARLO. BANG, Dalbraut 27, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþýkkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.