Morgunblaðið - 17.06.1995, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1995 59
________BREF TIL BLAÐSINS__
Menntun eða afplánun?
Frá Meyvant Þórólfssyni:
NÚ ER þessu viðburðaríka skólaári
lokið. Flestir nemendur hafa fengið
einkunnir sínar, laun erfiðis síns.
Launin eru að vísu misrýr og ekki
alltaf í réttu hlutfalli við fyrirhöfn-
ina. Þegar þetta er skrifað, bíða
um 4.000 unglingar eftir niðurstöð-
um samræmdra prófa. En hvaða
kunnátta er svo mikilfengleg að það
tekur áratug að afla hennar?
Það er ótrúlega sterk tilhneiging
í menningu okkar að líta á menntun
sem nk. kyrrstöðukerfi sem tekur
engum breytingum í tímans rás.
Unglingar nútímans lesa t.d. sömu
málfræðibókina og ömmur þeirra og
afar og þeir glíma enn við stærð-
fræðihugtök úr reynsluheimi sem
þeir þekkja ekki. Nú kann einhver
að spyrja: Já, en er það ekki bara
allt í lagi? Ég spyr á móti: Er það
í samræmi við yfirlýst markmið
skyldunáms, helstu kenningar um
nám og kennslu og þróun mála í
þjóðfélaginu? Menntun á fyrst og
fremst búa einstaklinginn undir líf
og starf í því þjóðfélagi sem hann
tilheyrir. Og ekki má gleyma því að
samsetning nemendahópsins verður
æ fjölbreytilegri, bakgrunnur nem-
enda ólíkur og fjölþjóðlegur. Mennt-
un verður að taka mið af þessu.
Hún á að byggja á reynsluheimi
nemenda, þörfum þeirra og þjóðfé-
lagsins. Hætt er við að nemendur
sem fara á mis við slíkt skólastarf,
stundi að einhverju leyti merkingar-
lausa afplánun skólavistar.
Kennsluhættir í kyrrstöðu
Kennsluhættir virðast ekki síður
vera í kyrrstöðu en viðfangsefnin.
Hin hefðbundna safnaðarkennsla
er ótrúlega lífseig, þar sem kennar-
inn (prédikarinn) miðlar og nem-
endur (söfnuðurinn) bíða óvirkir
eins og ílát eftir að taka á móti.
Ég sé ekki betur en að slíkir
kennsluhættir séu í andstöðu við
kenningar um árangursríkt nám og
kennslu. Samkvæmt þeim eru
virkni og sjálfstraust nemenda lyk-
ilatriði, svo að góður árangur náist.
Efla þarf hjá nemendum öguð og
sjálfstæð vinnubrögð við úrvinnslu
og lausn ýmissa vandamála. Verum
minnug þess að fulltrúar atvinnu-
lífsins telja frumkvæði, sjálfstæða
hugsun og samstarfshæfni for-
gangsatriði í fari starfsmanna nú-
tímafyrirtækja.
Ég hef átt þess kost að fylgjast
náið með stærðfræðimenntun i
grunnskóla undanfarin ár. Mér sýn-
ist meginmarkmið Aðalnámskrár
og grunnskólalaga ráða þar litlu,
a.m.k. á ui.glingastigi. Það er eink-
um tvennt, sem ræður ferðinni:
þarfir framhaldsskólans og sam-
ræmd próf, eldskírnin. Þegar sígur
á seinni hluta skyldunáms, hefst
undirbúningur þessarar skírnar fýr-
ir alvöru. Mikilvægum markmiðum
eins og eflingu frumkvæðis og sjálf-
stæðra vinnubragða, umræðum,
röksemdafærslum og ýmiss konar
Brynjudalsá
bjargað!
VEIÐI á efiaust eftir að glæðast á
efra svæðinu í Brynjudalsá en að
bjóða mönnum upp á 23 þúsund
króna hækkun á milli ára á neðra
svæðinu er mér algerlega óskiljan-
legt því þar veiðist aldrei neitt nema
ufsi og marhnútur langt fram eftir
hausti. Leyfishækkun úr 5 þúsund
krónum í 28 þúsund krónur stangar-
dagurinn, og aukning úr tveimur
stöngum og fjórar stengur gerir
útslagið og ekki bætir úr skák að
það er sex fiska kvóti.
Eftir þessar upplýsingar úr versl-
uninni Vesturröst féll mér allur ket-
ill í eld.
Ég vona að menn hugsi sig um
tvisvar áður en þeir kaupa leyfi og
íhugi frekar Reynisvatn eða
Hvammsvík til sleppifiskveiða og ég
vor.a að þeir höfðingjar sem eru
með ána á leigu athugi sinn gang
og bjóði mönnum ekki upp á vit-
leysu sem þessa.
RÍKHARÐUR BRAGASON,
SIGURÐUR BEN. BJÖRNSSON.
rannsóknastarfsemi er gefinn minni
gaumur. Nemendur verða eins og
skammtímarafhlöður sem reynt er
að hlaða með prófanlegum kunn-
áttuatriðum á sem skemmstum
tíma. Þeim skilningssneyddu er
gjarnan ráðlagt að læra aðferðir
og reglur utan bókar, svo að þeir
geti spjarað sig á prófi. Þeir verða
nk. sendiboðar sem þurfa að flytja
boð frá kennara sínum og kennslu-
bókinni til prófdómaranna á máli
sem þeir skilja ekki. Spurningin er
hvort skilaboðin komast óbrengluð
á prófblaðið, áður en minnið bregst,
hleðslan klárast. Mikil orka fer í
að leggja á minnið í stað þess að
reyna að skilja viðfangsefnin. Hæfi-
leikinn að leggja á minnið vinnur
þannig gegn beitingu skilnings og
skynsemi.
Slíkt nám er vitanlega tímasóun
og e.t.v. má færa rök fýrir að þar
séu á ferðinni skemmdarverk.
Stærðfræði er ekkert annað en af-
leiðing af hugsun manna við lausn
vandamála í dagsins önn og það
að apa eftir hugsun annarra kemur
engum að gagni. Skólastarf á að
miða að því að efla hjá nemendum
sjálfstraust og hugrekki til að leysa
sjálfir úr vandamálum miðað við
eigin forsendur. Sá hæfíleiki er
dýrmætastur, þegar komið er út í
líf og starf nútímaþjóðfélags. Þegar
þú kemur út í lífsbaráttuna, hefur
þú engan til að spyija: Hvað á að
gera næst? Á að deila eða marg-
falda? Kemur þetta á prófí?
Börnin mótast í skólanum
Á hveiju hausti hefja u.þ.b. 4.000
íslensk börn nám í íslenskum grunn-
skólum. Þau hefja skólagönguna
full af þrá til að menntast, spyija,
ræða og takast á við ýmis viðfangs-
efni; tíu ára „afplánun skólavistar“
er hafín, svo notuð séu orð fyrrver-
andi menntamálaráðherra. Hér
mótast bömin og markast eftir
ákveðnum forskriftum á viðkvæm-
asta skeiði ævinnar. Það varðar
alla, hvað þar fer fram. Þess vegna
eiga foreldrar og aðrir uppalendur
að hafa greiðan aðgang að eftirfar-
andi upplýsingum: a) Hver eru fýr-
irmæli yfírvalda (t.d. í aðalnám-
skrá, lögum og reglugerðum)? b)
Hvað aðhafast skólarnir (sjá t.d.
skólanámskrár)? c) Hvemig eru
árangur og hugmyndir nemenda
metin?
Fáist ekki skýr svör við slíkum
spumingum, er það vísbending um
veikleika í kerfínu. Það skiptir máli,
hvort bömin okkar stunda menntun
eða merkingarlausa afplánun tíu
mikilvægustu ár ævinnar. Allt tal
um lengd skólaárs og fjölda nem-
endalausra starfsdaga er hégómi
einn í samanburði við það.
MEYVANT ÞÓRÓLFSSON,
kennari, Hagamel 38, Reykjavík.
aðse
ftjeið
uumami
8-vikna fitubrennslunámskeið
á einstöku sumarverði,
aðeins:
9900
Þær Rannveig. Helena og Hafdís fóru á
fitubrennslunámskeiö fyrir einu ári. Samtals misstu
þær 38 kíló og hafa haldiö þeim árangri.
Komdu og vertu meö á þessu frábæra námskeiöi.
Flestar ná aö missa 5-10 aukakiló og iæra aö
halda þeim árangri varanlega! Á
Mefót 26. júní
Þjálfun 3-5x í víku
Fitumælingar og viktun
Matardagbók
Uppskriftabæklingur aö fitulitlu fæöi
Mappa m. fróöleik og upplýsingum
Mjög mikiö aöhald
Vinningar dregnir út í hverri viku
Frítt 3ja mán. kort fyrir þær 5
samviskusömustu!
Framhaldshópur
- fyrir allar þær sem
hafa verið áður á
námskeiðunum okkar.
Nýtt fræðsluefni.
Mikið aðhald.
!► Morgunhópur
► Daghópur
► Kvöldhópar
Barnagæsla
Skráning í síma
* *
AGUSTU OG HRAFNS
SKEIFAN 7 108 REYKJAVÍK S. 533 3355