Morgunblaðið - 29.06.1995, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ
2 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1995
FRÉTTIR
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- og dómsmálaráðherra um beiðni LIU
Ástæðulaust að senda varðskip
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegs- og dóms-
málaráðherra telur eðlilegt að það verði kannað
hvort hægt verði að koma íslenskum skipum á
úthafskarfamiðum til aðstoðar. LÍÚ hafi hins
vegar enga grein gert fyrir því í hverju vandinn
er fólginn og við þær aðstæður sér hann ekki
ástæðu til þess að senda varðskip á svæðið.
LÍÚ fór fram á það við sjávarútvegsráðuneyt-
ið bréflega í fyrradag að það hlutaðist til um
að sent yrði varðskip á úthafskarfamiðin þar sem
rússneskir togarar hafa valdið tugmilljóna tjóni
á veiðarfærum íslenskra skipa. Rússarnir eru
sagðir virða hvorki siglingareglur né almennar
samskiptareglur á miðunum.
Varðskip hefur ekki lögsögu
utan 200 mílna
Sjávarútvegsráðherra sagði að varðskip hefði
ekki lögsögu utan 200 mílna markanna og í
annan stað væru ekki til fjármunir til þess að
sinna slíkum verkum utan landhelginnar.
„Við munum láta gera lögfræðilega athugun
á því hvaða hlutverki varðskip geti gegnt á al-
þjóðlegum hafsvæðum og hvaða hlutverki við
þurfum að sinna þegar ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna er lokið og væntanlega kominn bind-
andi alþjóðasamningur og samningur um skipt-
ingu veiðistofna á þessum svæðum. Ég tel að
það sé mjög brýnt að við gerum okkur grein
fyrir því hvaða eftirlitshlutverk við þurfum að
hafa með höndum þegar þróun hafréttarins og
samningar um skiptingu á veiðistofnum eru
orðnir að veruleika," sagði Þorsteinn.
Sjávarútvegsráðherra sagði að LÍÚ þyrfti að
gera nánari grein fyrir þeim atvikum sem hefðu
leitt til beiðnar þeirra um að sent yrði varðskip
á miðin. Ráðuneytið sé reiðubúið að ræða við
útvegsmenn um það hvort og með hvaða hætti
væri hægt að styrkja stöðu íslensku skipanna á
þessu svæði. „Á þessu stigi máls er ekki ástæða
til þess að senda varðskip,“ sagði Þorsteinn.
Morgunblaðið/Uolli ^ Morgunblaðið/Golli
BJÖRGUNARSVEITARMAÐUR býr sig undir köfun á sameigin- KAFARAÆFINGIN undirbúin. Á myndinni sjást björgunar-
legri æfingu á vegum Slysavarnafélags íslands. sveitarmenn sökkva bíl í Hafnarfjarðarhöfn.
25 kafarar á
árlegri æfíngu
SLYSAVARNAFÉLAG ís-
lands stendur á hverju ári fyr-
ir kafaraæfingu, sem að þessu
sinni var í umsjón björgunar-
sveitarinnar Fiskakletts í
Hafnarfirði. Hálfur þriðji tug-
ur kafara af öllu landinu tók
þátt ásamt Slökkviliðinu í
Reykjavík.
Æfingin fór m.a. fram í
skipinu Siguijóni Arnljóts-
syni, sem Slysavarnafélagið
og Landhelgisgæslan sökktu í
Kollafirði I fyrra, en einnig
var kafað í Hafnarfjarðar-
höfn. Æfingin var vel
heppnuð að öllu leyti, að sögn
Jóns Ólafs Magnússonar hjá
Fiskakletti. í fyrra var æfing-
in haldin á Húsavík og að ári
munu kafarar hittast I Vest-
mannaeyjum.
Borgarráð samþykkir tillögur um bensínstöðvar og bensínsölu á verslunarlóðum
Lóðir fyrir bensínsölu seldar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
Iögu um hvemig fara skuli með
umsóknir 'um lóðir fyrir bensín-
stöðvar eða Feyfi fyrir bénsínsölu á
almennri verslunarlóð. Tillagan
gerir ráð fyrir að lóðirnar verði seld-
ar á 1.800-2.600 kr. fyrir hvem
fermetra miðað við núverandi verð-
lag-
I tillögu borgarverkfræðings og
forstöðumanns borgarskipulags,
sem samþykkt var í borgarráði, er
gert ráð fyrir að litið verði á allar
lóðir þar sem bensín er til sölu, þ.e.
fyrir almenning eða þar sem sér-
sala er fyrir fyrirtæki svo sem
sendibíla eða leigubíla, sem bensín-
sölulóðir er hafi sérstöðu. Þar megi
búast við aukinni umferð, sem kalli
á gott aðgengi auk þess sem taka
þurfi tillit til mengunar- og bruna-
vama.
Lóðirsýndar á skipulagi
Fram kemur að bensínsölulóðir
með aðkomu frá stofnbraut skuli
sýna á aðalskipulagi og allar bens-
ínsölulóðir skuli sýna á deiliskipu-
lagi sem borgarráð samþykki eftir
umfjöllun skipulagsnefndar og um-
ferðarnefndar. Sama á við þegar
sótt er um breytta starfsemi á lóð
vegna bensínsölu eða þegar auð lóð
í eldra skipulagi er tekin til þessara
nota. Skipulag eða breytingu á
skipulagi bensínsölulóða skal ávallt
auglýsa og kynna í fjórar vikur.
Verðlag miðist við
staðsetningu
Nýjar bensínsölulóðir skal selja á
1.800-2.600 kr. fyrir hvern fer-
metra. Verðlag miðast við staðsetn-
ingu og aðgengi. Auk þess greiðist
gatnagerðargjald vegna bygginga
miðað við rúmmál, en ekki af geym-
um neðanjarðar. Þá er lagt til að
ekki verði um sinn samþykktar al-
mennar reglur um leyfi fyrir bensín-
dælu á verslunarlóð, sem þegar
hefur lóðarleigusamning, þar sem
erfitt sé að koma við sérstöku gjaldi
eða hækkun gatnagerðargjalda í
slíkum tilvikum. Þess í stað verði
kannað að gjöld verði sem sambæri-
legust öðrum bensínsölulóðum.
Hugsanlegt sé að taka upp nýjan
gjaldflokk í reglugerð fyrir gatna-
gerðargjöld sem myndi gilda fyrir
verslunarlóð með bensínsölu.
Bensínafgreiðsla við Starengi 2
Leituðu eftir sam-
starfi við lóðarhafa
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
stækkun byggingarreits fyrir
verslunarhús við Starengi 2 og
aðstöðu á lóðinni fyrir bensínaf-
greiðslu. Að ábendingu borgar-
yfirvalda leituðu forráðamenn
OLÍS eftir samstarfi við lóðar-
hafa um sölu á bensíni.
í erindi borgarskipulags til
borgarráðs kemur fram að
skipulagsnefnd samþykkir erind-
ið en að hafa skuli samráð við
borgarskipulag um fyrirkomu-
lag á lóðinni og aðkomu áður en
málið er lagt fram í byggingar-
nefnd.
Óíjós byggingarreitur
í bréfi handhafa lóðarinnar til
skipulagsnefndar sem fylgir er-
indinu segir að á uppdrætti
skipulagsnefndar hafi býgg-
ingarréttur verið óljós og því
hafi verið hannað hús sem var
10x22 m í stað 10x17 m.
Fram kemur að samþykki
byggingarnefndar hafi ekki
fengist, aðallega vegna þess að
farið var út fyrir byggingarreit
og einnig vegna fyrirhugaðrar
bensinsölu sem einnig er á teikn-
ingunni.
Bent á þessa lóð
Þá segir: „Ástæðan fyrir því
að teiknuð er bensínafgreiðsla á
lóðina er sú að forráðamenn
OLÍS höfðu samband við skrif-
stofu borgarinnar og var þeim
bent á að þessi lóð myndi henta
til sölu á bensíni í þessu hverfi.
í framhaldi af þeirri viðræðu
höfðu þeir samband við mig [lóð-
arhafa] og föluðust eftir sam-
starfi með sölu bensíns á lóðinni,
ég tjáði þeim að ég væri tilbúinn
í það samstarf ef það væri í lagi
af hálfu ráðamanna borgarskipu-
lags.“
Gert er ráð fyrir einni dælu á
lóðinni með nokkrum stútum,
sem verður að mestu sjálfvirk.
Því óskar lóðarhafi eftir sam-
þykki fyrir stækkun á bygg-
ingarreit og ennfremur aðstöðu
fyrir bensínafgreiðslu.
Viðræður um
meirihluta 1
Hafnarfirði
Akvörðun
um bæjar-
stjóra í dag
VIÐRÆÐUR um myndun
nýs meirihluta í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar ganga ágæt-
lega að sögn Ingvars Viktors-
sonar oddvita Alþýðuflokks-
ins. Gert er ráð fyrir að í dag
verði tekin ákvörðun um hver
verði næsti bæjarstjóri.
Ingvar sagði að enn hefðu
engin ágreiningsmál komið
upp í viðræðunum við Jóhann
G. Bergþórsson og Ellert
Borgar Þorvaldsson bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
„Þetta hefur gengið mjög
vel,“ sagði hann.
Magnús Kjartansson vara-
bæjarfulltrúi sjálfstæðis-
flokksins og Hjördís Guð-
björnsdóttir, sem skipar 21.
sæti á lista Sjálfstæðis-
manna, tóku þátt í viðræðun-
um í gær ásamt þeim Jó-
hanni og Ellerti Borgari.
Island í
5. sæti
Vilaraoura. Morgunblaðið.
ÍSLAND er komið í fimmta
sæti í opna flokknum á Evr-
ópumótinu í brids með 427
stig eftir tvo góða sigra í gær.
Isfendingar unnu ísraela
19-11 í fyrri leiknum. Eftir
fyrri hálfleik höfðu íslending-
ar 16 imp-stiga forskot og
bættu sex við í siðari hálfleik.
I síðari leiknum, gegn Ung-
veijum, höfðu íslendingar 15
impa forskot í hálfleik og
bættu 10 við í þeim síðari og
unnu 20-10.
ítalir náðu aftur efsta sæt-
inu í gær með 453 stig en
Svíar, sem leiddu í gærmorg-
un, áttu slæman dag.
íslenska kvennaliðið vann
Tékkland 20-10 í fyrri leikn-
um en tapaði fyrir Tyrkjum
13-17. Liðið er í 14. sæti
með 246 stig en Frakkar hafa
orðið afgerandi forystu.
Yngri spilarar í
fimmta sæti
Á Norðurlandamóti yngri spil-
ara í Bodö í Noregi voru spil-
aðir tveir leikir í gær. Fyrri
leikurinn var á móti Finnum
og unnu íslendingar 17-13
en töpuðu síðan fyrir Dönum
me_ð 25 gegn 2,5 stigum.
íslenska sveitin er í fimmta
sæti eftir leiki gærdagsins.
Tveir síðustu leikirnir í
mótinu verða í dag og spilar
íslenska sveitin á móti Færey-
ingum og Svíum.
■ Þjóðveijar felldir/11
Feðgarnir
frá Narfa-
stöðum
FEÐGARNIR sem létust í
umferðarslysi í Víkurskarði á
mánudagskvöld hétu Auðunn
Ingi Hafsteinsson, fæddur
27. október 1957, og Oddur
Auðunsson, fæddur 24. febr-
úar 1989. Þeir voru búsettir
á Narfastöðum í Viðvíkur-
hreppi í Skagafirði.