Morgunblaðið - 29.06.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.06.1995, Blaðsíða 6
•6 FIMMTUDAGJJR 29. JÚNÍ 1990 MORGUNBLAÐIÐ L FRÉTTIR íslendingar í evrópsku ungmennalestinni leggja baráttu gegn kynþáttahatri lið Enginn eins - engum til meins TUTTUGU ogátta islensk ung- menni fara 4. júlí nk. utan til að taka þátt í baráttu ungmenna víðs vegar úr Evrópu gegn auknu kynþáttahatri, óvild í garð ókunnugra og skorti á umburða- lyndi Yfirskrift framkvæmdaáætl- unarinnar er Enginn eins - eng- um til meins og felur hún í sér ferðir sex ungmennalesta frá fjórum stöðum i Evrópu en enda- stöð allra lestanna verður Strass- borg. Þegar þangað kemur hefst Evrópska ungmennavikan með um 1.300 þátttakendum sem skiptast niður í fjölmarga vinnu- hópa á sviði menntunar, samfé- lags, lista og fleira. Mikil vinna framundan Fanney Karlsdóttir er ein þeirra sem hefur tekið þátt í undirbúningi ferðar íslensku ungmennanna. Hún segir að lestarferðin, undirbúningur hennar og ungmennavikan í Strassborg feli í sér geysilega mikla vinnu þátttakendanna, vinnu sem er bæði skemmtileg og gefandi. „Starf af þessum toga er mikilvægt þegar til lengri tima er hugsað. Það skiptir miklu máli að hafa áhrif á skoðanir ungmenna i þessum efnum því þau taka við af þeim sem eldri eru. Kynþáttafordómar og um- burðarleysi er oft inngróið í _ eldra fólk, auðveldara er að hafa áhrif á ungt fólk og búa í haginn fyrir framtíðina. Þarna verður fjöldi fólks samankominn úr öll- um áttum til að vinna að betri heimi og vekja athygli á baráttu- málum sem skipta okkur öll máli,“ segir Fanney. Lestarferð yfir endilanga Evrópu Islensku ungmennin taka þátt í lest sem ber yfirskriftina Menn- ingarlegt frelsi - Jafnrétti, HLUTI lestarfólksins á undirbúningsfundi fyrir Evrópulestarferðina. ásamt 300 manns frá Norður- löndunum og Eystrasaltsríkjun- um. Ferðin hefst í Kaupmanna- höfn en staldrað verður við í nokkrum evrópskum stórborgum og boðið upp á uppákomur í sam- vinnu við hópa ungs fólks sem þar er búsett. Fanney leggur á það áherslu að tilgangur með vinnu þessa unga fólks sem leggur land und- ir fót er ekki hópsamstarf heldur freista þau þess að vinna sem hluti af stórri heild. Olíkir ein- staklingar með ólík sjónarmið miðla öðrum af reynslu sinni og fá jafnframt innsýn inn í reynslu- heim jafnaldra sinna. Miðhúsasilfrið komið heim úr rannsókn í Danmörku Hjónin á Miðhúsum höfða meiðyrðamál Víkingalottó Fyrsti vinn- ingur til Noregs VINNINGSTÖLURNAR í Víkinga- lottóinu í gær voru 1, 3, 5, 19, 25 og 31. Bónustölur voru 6, 13, og 43. Samkvæmt upplýsingum frá ís- lenskri .getspá var aðeins einn þátt- takandi með allar tölur réttar. Fyrsti vinningurinn fór til Noregs að þessu sinni og nam hann tæpum 43 milljón- um íslenskra króna. Enginn hlaut annan vinning, en níu þátttakendur voru með fimm tölur réttar af sex og hlutu þeir rúm- ar 29 þús. íslenskar kr. hver. 310 voru með ij'órar tölur réttar af sex og unnu því 1.340 íslenskar krónur. Yfir þúsund þátttakendur voru með þrjár tölur réttar auk bónustölu og hlaut hver þeirra 150 krónur. Heildarupphæð vinninga var tæp- ar 45 milljónir íslenskra króna og af þeirri upphæð hlutu lánsamir ís- lendingar 1.834.097 krónur. HJÓNIN á Miðhúsum í Egilsstaða- hreppi hafa ákveðið að höfða meið- yrðamál á hendur þeim einstakling- um sem þau segja, að hafi í fjölmiðl- um og víðar látið að því liggja að þau hafi falsað hluta silfursjóðsins sem fannst að Miðhúsum haustið 1980. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins kemur til greina að málið verði höfðað gegn þeim stofn- unum sem þeir eru fulltrúar fyrir. „Ærumeiðandi ummæli um meinta fölsun okkar á hluta silfur- sjóðsins hafa verið það alvarleg að við sjáum okkur ekki annað fært en að höfða meiðyrðamál. Þannig freistum við þess að hreinsa okkur af ávirðingunum." sagði Hlynur Halldórsson á Miðhúsum í samtali Niðurstöður ald- ursgreiningar birtar á morgun við Morgunblaðið. Hann sagði að málið hafi valdið þeim hjónum mikl- um óþægindum og fullyrti að þau hafí orðið fyrir nokkru aðkasti. „Það eru ýmsir sém trúa því að við höfum falsað silfrið," sagði hann. Hlynur sagði að ekki hafi verið grundvöllur til að kæra ummæli nokkurra einstaklinga um aldur og uppruna Miðhúsasilfursins fyrr en nú. Of flókið hefði reynst að höfða mál fyrr en niðurstöður nákvæmrar rannsóknar á silfursjóðnum lægju fyrir. Hann kvaðst engar spurnir hafa haft af niðurstöðum rannsókn- arinnar í Danmörku. Þær skipti sig raunar engu máli, meiðyrðamál verði höfðað án tillits til efnislegrar niðurstöðu rannsóknarinnar. Danskri rannsókn lokið Miðhúsasilfrið var fyrr í vetur sent til nákvæmrar rannsóknar og aldursgreiningar í Þjóðminjasafni Dana í Kaupmannahöfn og liggja niðurstöður rannsóknarinnar nú fyrir. Lilja Árnadóttir, safnstjóri Þjóðminjasafnsins, sagði að þær verði kynntar á fundi þjóðminjaráðs í fyrramálið og vildi ekki tjá sig um efni þeirra í gær. Lægst bensín- verð í sjálfs- afgreiðslu EFTIR að verð á bensíni lækkaði er það lægst í sjálfsafgreiðslu á bensínstöðvum Skeljungs. Lítrinn er þar um 1,20 kr. lægri en^fullt verð. Þá hafa nýir sjálfsalar verið settir upp á sjö bensínstöðvum Skeljungs. Skeljungur rekur 17 bensínstöðv- ar á höfuðborgarsvæðinu. Þar af eru fjórar sem eingöngu bjóða upp á sjálfsafgreiðslu. Þá bjóða sjö stöðvar upp á val á sjálfsafgreiðslu eða hefðbundinni afgreiðslu. Lítri af 92 oktana bensíni kostar í sjálfs- afgreiðslu 65,30 kr., 95 oktana bensíni 67,50 kr. og 98 70,90 kr. Nýir sjálfsalar, svokallaðir MX- sjálfsalar, hafa verið settir upp á sjö bensínstöðvum Skeljungs á höfuðborgarsvæðinu, það er við Bústaðaveg, Bæjarhraun í Garðabæ, Kleppsveg, Reykjanes- braut, Suðurfell, Vesturlandsveg, Gylfaflöt í Grafarvogi og á Akra- nesi. Félagsmálaráðherra hefur staðfest nýja reglugerð um hættumat vegna snjóflóða Endurskoða á eldra hættumat hið fyrsta Laus staða aðstoðar- prests við Neskirkju STAÐA aðstoðarprests við Nes- prestakall í Reykjavíkurprófasts- dæmi vestra hefur verið auglýst laus til umsóknar en séra Guð- mundur Óskar Ólafsson hefur sagt embætti sínu lausu frá 1. septem- ber. í Neskirkju hafa verið tvö sókn- arprestsembætti en samkvæmt ákvæði laga um skipan prestakalla og prófastsdæma og starfsmenn kirkjunnar frá 1990 breytist annað þeirra nú í stöðu aðstoðarprests, sem ráðið er í til fjögurra ára í senn. Biskup hefur einnig auglýst Iausa til umsóknar stöðu deildar- stjóra við fræðslu- og þjónustu- deild kirkjunnar á biskupsstofu en séra Jón Ragnarsson, deildar- stjóri, hefur fengið veitingu fyrir Hveragerðisprestakalli. Umsóknarfrestur um stöðurnar er tl 1. ágúst næstkomandi. FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur staðfest nýja reglugerð um hættu- mat vegna snjóflóða og nýtingu hættusvæða. í þeim sveitarfélögum þar hættumat hefur farið fram á grundvelli eldri reglugerðar frá 1988 skal samkvæmt bráða- birgðaákvæði í nýju reglugerðinni endurskoða matið svo fljótt sem auðið er á grundvelli nýju reglu- gerðarinnar. Á ráðstefnu, sem hald- in var í síðasta mán'uði um snjóflóð og varnir gegn þeim, kom fram að áætlað er að við endurmatið fjölgi húsum á hættusvæðum úr rúmlega 500 í um 800 á landinu öllu. Samkvæmt nýju reglugerðinni, sem öðlast gildi þegar hún hefur verið auglýst í Stjórnartíðindum, skal meta hættu af snjóflóðum í þeim sveitarfélögum þar sem snjó- flóð hafa fallið á byggð eða nærri henni, eða hætta er talin á slíku. Hættumatið skal ná til byggðra svæða og svæða sem skipulögð eru eða skipuleggja á fyrir byggð, mannvirki eða umferð og útivist fólks á vetrartíma. Tvenns konar hættusvæði Samkvæmt reglugerðinni á að afmarka snjóflóðasvæði með svo- nefndri grunnlínu þar sem dregnar eru útlínur þekktra snjóflóða og lík- legra snjóflóða samkvæmt útreikn- ingum og afmarkaðir eru aðrir far- vegir þar sem talið er að snjóflóð geti hlaupið fram. í hættumati eru skilgreind tvenns konar hættusvæði og á að auðkenna þau með rauðum og gulum lit á hættumatskorti og skipulagsupp- drætti. Mörk rauðs svæðis fylgja grunnlínu snjóflóðs, en gult svæði tekur við af rauðu og skal aldrei vera mjórra en 50 metrar mælt hornrétt á grunnlínu. Þau hættusvæði sem merkt eru með rauðum lit á hættumatskorti og skipulagsuppdrætti má nota undir skipulagða starfsemi sem fer fram utan þess árstíma sem hætta er á snjóflóðum, og einnig má vera starfsemi á skíðasvæðum sem liggja inni á rauðum hættusvæðum sé stöðugt fylgst með snjóflóðahættu. Skylt er að hafa viðbúnað til að koma á framfæri viðvörunum til fólks innan skíðasvæða og til að vara fólk við þegar hætta er á snjó- flóðum. Rýma skal hættusvæði á meðan snjóflóðahætta vofir yfir. Einnig er skylt að hafa til staðar neyðaráætlun sem tekur til leitar og björgunar fólks sem lendir i snjó- flóðum á svæðinu. Óheimilt að byggja skíðaskála Á hættusvæðum er óheimilt að byggja skíðaskála eða aðrar bygg- ingar sem nota má til gistingar eða samkomu fólks. Hins vegar er heim- ilt að nota rauð hættusvæði undir ýmis veitumannvirki sem starfrækt eru mannlaus, svo og samgöngu- mannvirki, enda skulu tök á að loka fyrir umferð fólks um hættusvæðið þegar snjóflóðahætta skapast. A hættusvæðum sem merkt eru með gulum lit á hættumarkskorti og skipulagsuppdrætti má ekki byggja mannvirki sém draga að sér fjölmenni á vetrartíma vegna við- skipta, skólahalds, samkomuhalds eða íþróttaiðkana annarra en vetr- aríþrótta. Þegar vetraríþróttir eru stundaðar inni á gulum hættusvæð- um gilda sömu ákvæði og gilda á rauðum hættusvæðum hvað þetta varðar. Á gulum svæðum er heim- ilt að byggja önnur mannvirki en að ofan greinir ef sýnt er fram á að þau standist tiltekna áraun snjó- flóðs samkvæmt reglum sem kveðið er á um í reglugerðinni. Breyta má mörkum svæða með varnarvirkjum Breyta má mörkum hættusvæða með því að gera varnarvirki sem hægja á snjóflóðum og stytta þann- ig skriðlengd þeirra eða breyta stefnu, og einnig má breyta mörk- um hættusvæða með því að byggja varnarvirki sem eru nægilega öflug til að varna því að skrið hefjist á upptakasvæði flóðs. Varin svæði má nýta fyrir byggð að fengnu samþykki Álmannavama ríkisins. r i i i t í l
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.