Morgunblaðið - 29.06.1995, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.06.1995, Blaðsíða 33
i - MORGUNBLAÐIÐ FlMMTUDÁGUft 29. JÚNÍ 1995 33 AÐSENDAR GREINAR Frá ráðstefnu norrænna orðabókafræðinga í Reykjavík fyrir Osló i Helgi Haraldsson. DAGANA 7.-10. júni var haldin í Reykjavík 3. ráðstefna Norræna orðabóka- fræðifélagsins (NFL, þ.e. „Nordisk forening for leksikografí"). Samtökin voru stofnuð fjórum árum í sló og fyrsti formað- ur þeirra var norðmað- urinn Dag Gundersen. Ráðstefnur eru á tveggja ára fresti. Síð- ast var þingað í Kaup- mannahöfn, og eftir tvö ár verður blásið til fundar í Helsinki. Ráðstefnuna sóttu nær 140 manns frá öllum Norður- löndunum, þar af 19 frá íslandi. Hún var haldin í Odda, og voru alls 40 erindi flutt um hinar ólík- ustu þætti orðabókafræði. Erlent ráðstefnufólk lauk miklu lofsorði á framkvæmd ráðstefnunnar sem Orðabók Háskólans og félagið Orð- mennt sáu um í samvinnu við Nor- ræna málstöð. Stofnun og starfsemi samtaka norrænna orðabókafræðinga bera vott um öflugan uppgang þessarar fræðigreinar á Norðurlöndum og aukinn skilning á henni. Sem dæmi má nefna að unnið er að gerð stórr- ar norrænnar orðabókar um fræði- orð greinarinnar með skilgreining- um og þýðingum á öll norðurlanda- mál. Þetta verk hefur hlotið dágóð- an stuðning m.a. frá Norræna menningarsjóðnum og Norrænni málstöð. Bo Svensén frá sænsku vísindaakademíunni gerði grein fyr- ir framvindu og markmiði verksins við lok ráðstefnunnar. Sú tæknibylting sem nú gengur yfír í sambandi við tölvunotkun og rafræna gagnavinnslu veldur því að orðabókargerð stendur í mörgu tilliti á krossgötum. Jafnframt virð- ast augu fjölmiðla og menntastofn- ana opnast æ betur fyrir því lykil- hlutverki sem orðabækur gegna í tungumálanámi og samskiptum landa og þjóða. Því vakti erindi Páls Steigans um orðabókafræði og fjölmiðla verðskuldaða athygli („Multimedialeksikografi. Nye ut- fordringer for leksikografisk teori“). Eitt stærsta blað á Norður- löndum, Dagens Ny- heter í Stokkhólmi, sendi fulltrúa á ráð- stefnuna, og hvorki sænska né norska utanríkisráðuneytið létu sig vanta. Þrír danskir verslunarskól- ar áttu samtals 10 full- trúa. Einhver kapp- samasti liðsmaður samtakanna, Henning Bergenholtz, kemur einmitt frá verslunar- háskóla Árósa. Hann er ritstjóri Lexico- Nordica, tímarits sam- takanna, ásamt svían- Norræna orðabókafé- lagið hefur, að mati Helga Haraldssonar, þjappað orðabókafræð- ingum Norðurlanda saman. um Sven Göran Malmgren. Sjöundi hver ráðstefnugestur (alls 20) var á vegum einhvers bókaforlags. Tíu forlög áttu full- trúa, og af íslands hálfu voru Mál og menning og Iðunn mætt til leiks. Á þátttakendaskrá má sjá fólk frá fyrirtækinu Norsk tekst A.S. sem sérhæfir sig í sjónvarpstextun og hefur unnið mörg verkefni fyrir norska sjónvarpið. Margt bar á góma í Odda þessa daga. Einkum varð mönnum tíð- rætt um val og skipan flettiorða í orðabókum, bæði einmála- og tví- málabókum, enda öll þau mál flókn- ari en margan grunar. Það kom fram að bæði í Noregi og Svíþjóð er unnið að miklum orðabókaverk- efnum sem vonir standa til að ljúki á næstu árum. Ekki skal ekki reynt að tíunda út í æsar fjölbreytt efni ráðstefn- unnar, en ljúft er að geta greinar- gerðar færeysku fulltrúanna fyrir samningu stórrar færeyskrar orða- bókar. Tæknilausnir færeyinganna þóttu einkar athyglisverðar. Norræna orðabókafræðifélagið hefur þjappað orðabókafræðingum Norðurlanda saman og brýnt þá til samstarfs. Það heíur haft forgöngu um metnaðarfull verkefni og er ánægjulegt vitni um það hvers nor- ræn samvinna er megnug þegar best lætur. Dæmi um þetta er stuðningur samtakanna við gerð íslensks orðabókarstofns sem nota mætti sem grunn við samningu ís- lensk-erlendra orðabóka í framtíð- inni. Hafa menn þá fyrst í huga íslensk-norrænar orðabækur, enda tímabært að gera skipulagt átak í þeim efnum. Núverandi formaður Norræna orðabókafræðifélagsins er Jón Hilmar Jónsson. Greinarhöfundur er prófessor við Austrænudeiid Óslóarháskóla (Institutt for ostcuropeiskc og orientalske studier). ^ssssssss s s s s Skór fyrir kröfuharða krakka | Flottir oq þasgilegir Brúnt oq evart leður Svart lakk - Rósótt - Gull Stærðir 26-38 Verð kr4.5S0,- lENGLABÖRNÍN Bankastrceti 10 sími 552-2201 ssssssssssss Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflngvelli og Rábbústorginu -kjarni málsins! NIYEA sólarvörur standa svo sannarlega íyrir sínu! Franska neytendablaðið Que Choisir birti í júlí 1994 niðurstöður úr prófun blaðsins á virkni og gæðum sólarvara frá ýmsum framleiðendum. Allar tegundirnar voru bornar á ferninga á baki 10 þátttakendum og þeir síðan látnir liggja undir sólarlampa þar til þeir brunnu. Sólarvörurnar reyndust misjafnlega. Nokkrar gáfu í raun ekki þá vörn sem gefin var upp á umbúðunum og aðrar gáfu mun meiri vörn en merkingin sagði til um. Sumar tegundirnar reyndust misvel eftir húðgerð þátttakandans. Niðurstaða greinarhöfunda var að miðað við verð væru bestu kaupin í Nivea sólarvörum. Sólarvörurnar frá Nivea voru meðal þeirra sem gáfu meiri vörn en gefin var upp og þær gáfu öllum þátttakendunum svipaða vörn án tillits til húðgerðar. Samanburðar tafla úr grein franska neytendablaðsins Que Choisir nr. 307, júlí- ágúst 1994. SU n,. «0&C,Í O&S®**0 1 MERKI 0G NAFN Innihald i ml. Verð pr. lítra í FF Umbúðir Lýsing Síutegundir Innihald á þekktum ofnæmis- völdum Uppgefinn stuðull Mældur stuðull Stöðugleiki varnar Heildar- einkunn NH/EA Sun sensitive lait enfant peaux sensibles Flaska 200 240 ★ ★ A og B efna- og steinefnasíur Nei 10 13,5 ★★★ ★★★ NIVEA Sun lait solaire actif hydratant Flaska 200 210 ★ ★ ★ A og B efna- og steinefnasíur Nei 8 12 ★★★ ★★★ VICHY Capital soleil lait hydratant haute protection Flaska 150 533,33 ★ ★ ★ Aog B efnasíur Ekki inni- haldslýsing 10 17,5 ★★★ ★ ★★ CLARINS créme solaire bronzage sécurité Túba 125 560 ★ ★★ ■ Aog B Ekki inni- haldslýsing 12 15 ★★★ ★★★ YVES R0CHER Hydra puiss solaire lait bronzant hydratation intense Flaska 150 393,33 ■ ★ Aog B efnasiur Nei 8 15 ★★★ ★ ★★ BI0THERM lait bronzant protection sécurité Túba 125 608 ★ ★★ ■ B efna- og steinefnasíur Ekki inni- haldslýsing 12 11 ★★ ★ ★ LUTSINE lait solaire aux céramides Túba 125 416 ★ ★ A og B efnasíur Ekki inni- haldslýsing 8 9 ★ ★ ★ R0C lait solaire resistant d l'eau Flaska 150 373,33 ★ ■ B efnasíur Nei 7-9 13 ★★★ ★ ★ BI0THERM gelée bronzante hydratante Túba 125 600 ★ ■ Aog B efnasíur Ekki inni- haldslýsing 8 9 ★ ★ ★ GARNIER Ambre solaire lait bronzant hydratant Flaska 200 207,50 ★ ★★ ★ A og B efna- og steinefnasíur Já oxybenzone 12 10 ■■ ■ CLUB MED lait bronzant hydratant Flaska 150 453,33 ★ ★★ ■ A og B efna- og steinefnasíur Já oxybenzone 12 10 ■■ ■ BERGAS0L écran solaire bronzant Túba 75 920 ★ ★ efna- og steinefnasíur Ekki inni- haldslýsing Með psoral 10 10 ■■ ■ PIZ BUIN Sun sportlotion solaire non grasse Flaska 125 664 ■ ■ A og B efnasíur Ekki inni- haldslýsing 8 6,5 ■■ ■■ YVES R0CHER Cap soleil lait enfant résistant a l'eau Úðabrúsi 100 590 ★ ★★ ★ ★ A og B Nei 12 9,5 ■■ ■■ KL0RANE Les polysianes lait solaire haute protection Flaska 150/143 593,33 ★ ★ ★ A og B efna- og steinefnasíur Nei 10-15 7 ■■ ■■ J ★★★ MJ0G G0TT ★★G0H ★ Þ0KKALEGT ■ LELEGT I SLÆMT Nánari upplýsingar um prófunina fást hjá JS Helgason hf. sími: 587- 5152
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.