Morgunblaðið - 29.06.1995, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
55 gámar fyrir söfnun dagblaðapappírs settir upp á höfuðborgarsvæðimi
Stefnt að fimm-
földun útflutnings
Sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu og
Sorpa hefja innan
skamms átak í söfnun
dagblaða og tímarita.
Söfnunin hefur um-
hverfisvernd og sparnað
að leiðarljósi en pappír-
inn verður endurunninn
í Svíþjóð.
FIMMTA júlí næstkomandi
verður hrundið af stað
átaki á vegum sveitarfé-
laga á höfuðborgarsvæð-
inu og Sorpu um söfnun
á gömlum dagblöðum og
tímaritum. Atakið er í tilraunaskyni
en söfnunin verður til frambúðar,
takist vel til. Á seinasta ári voru
flutt út rúm þijú þúsund tonn af
pappa og pappír til endurvinnslu
en markmið Sorpu er að fimmfalda
þennan útflutning að minnsta kosti,
en gangi það eftir myndi endur-
vinnsluhlutfall fyrirtækisins hér á
höfuðborgarsvæðinu hækka úr 30%
í rúm 40%.
Borgarráð samþykkti nýlega að
tilraun verði gerð til að safna sam-
an gömlum dagblöðum í Reykjavík
í 40 gáma sem komið verður fyrir
á jafnmörgum stöðum í borginni
sem næst verslunarkjörnum. í
hverfum Breiðholts _ verður flesta
gámana að fínna. ílát og gámar
fyrir dagblöðin verða græn og bæði
merkt Reykjavíkurborg og Sorpu,
auk þess sem skýrt er tekið fram
að þau séu eingöngu ætluð dagblöð-
um. í nágrannasveitarfélögunum
verður 15 gámum komið fyrir, með
sambærilegum merkingum. Gám-
arnir eru hugsaðir fyrir þá sem eiga
reglulega leið hjá þeim með smærri
blaðabunka, en gámastöðvar Sorpu
munu eftir sem áður veita stærri
skömmtum móttöku.
Skynsemi endurvinnslunnar
Átakið verður kynnt vandlega í
fjölmiðlum fyrstu helgina í júlí og
er þess að vænta að borgarstjóri
Reykjavíkur og bæjarstjórar ná-
grannasveitarfélagana
eða aðrir forsvars-
menn sveitarfélag-
anna muni vekja at-
hygli á verkefninu með
viðeigandi hætti.
Ásmundur Reykdal
stöðvarstjóri Sorpu
segir menn gera sér
vonir um að safna saman pappír
sem samsvari 15-20% af þunga
þess sorps sem fellur til á heimilum
í sveitarfélögunum í dag, en magn
endurvinnanlegs pappírsúrgangs í
heimilissorpi hérlendis sé um 24%.
„Auðvitað rennum við blint í sjó-
inn með þessa tilraun, þótt við séum
sannfærðir um áhuga almennings
í garð verkefnisins," segir Ásmund-
ur. „í mínum huga er mikil skyn-
semi fólgin í endurvinnslu þessarar
vöru sem er jafn auðveld í endur-
vinnslu og raun ber vitni. Með end-
urvinnslu minnkarðu það magn
pappírs sem lendir í sorpinu og um
leið kostnaðinn samfara eyðingu
þess. Endurvinnslan sparar urðun-
arstaði, verndar skógana og er
PAPPIR
endurtekið efni
Móttaka á blöðum og tímaritum er á eftirtöldum stöðum
orkusparandi, svo fátt eitt sé nefnt.
Eitt yfirlýstra markmiða Sorpu er
að stuðla að þvi þjóðfélagslega mik-
ilvæga máli að menn verði meðvit-
aðir um ábyrgð sína í umhverfis-
vernd og geri sér jafnframt grein
fyrir að hún kostar fé, sem með
einum eða öðrum hætti kemur frá
þeim sjálfum. Sorpu ber einnig að
fylgjast með tækniframförum á
_________ sviði endurvinnslu
hérlendis og erlend-
is með tilliti til
ítrustu hagkvæmni-
möguleika. Það hef-
ur legið í loftinu í
langan tíma að end-
__________ urvinnsla yrði æ
stærri þáttur í
vinnslu úrgangs og nú er komið að
því að virkja almenning á því sviði
í sambandi við pappírinn, og ég hef
trú á að ekki verði ýkja langt þang-
að til svipað átak fari af stað vegna
söfnunar á plasti. Þetta veltur m.a.
á hvernig til tekst með átakið nú,
en ég vonast til að við getum jafn-
vel á þessu ári gert fyrstu tilraunir
Rifhjavfk
Myntíbsig, Ncthyl
Bteus. HoliaveQl
Bðsus ,Fa*»f«ai
W>m, SWuvogi
Glat&íbcr. Álfheimum
HíjaiKíöin. HjjfðarhaQa
.Hijkaiip.laugavsg:
Haukaup. Skwfuimi 1
Hagkaup. Hvcrafold
Kj&t «9 lokur. höngUbaSdu
KflfiQlírt
Nóatún, Hiingbrsut
Nóstún.LaugaveQi
Néitún. NÁatúfii
AMfurvur, Itíalwtirörsut
Móatún, Kleifirseti
Nóatön. Rotibæ
PiúsMartaíufifta, Efswfesdi
Piwnafkiðurlfts, Spofhómriim
Riuiaval, Langarima
Svarftiósl. íindascl:
Veraltinsft 11-11, ftot&hæ
Varjiuniít 1(H1. taugatitíi
Etra- oj NeAra-BreröhoR
35 oisnar J Oófiguiæti'
vlðsvcgar um h«rftö.
: Stlljsmamtí
; BímiS. Suðurstrðnd
i Kípavogur
; Esso .Stóiahjaiía
: HamHborg
; Brekkuvai
; ValgarðiS'KSilur V'Urðarhrant ■
Girðabxi
Slwli. Garðatergi
HalnírtJðrðHi
Etso. Lawjargófu
Etso. Rsykiavikurvegi
FjJTðarkaup
Mlðvjíijur
Hcóanesfi
BeimUðihreppur
Við skóiasviði
Moílellsbsr
Ok's. Shell. LanQatiWffí
Nóltón. Þwrtiolti
Kjalarnes
Eefiiikíiinn. Olís
Endurvinnslan
sparar orku og
urðunarstaði og
verndar skógana
SC&RFA
0
til ,að senda plast til endurvinnslu
erlendis."
Verðhækkanir á pappír
Þessi tilraun er gerð á sama tíma
og stjórn Sorpu ákvað að taka
ókeypis á móti pappa og pappír til
endurvinnslu, gegn því að fyrirtæki
komi með hann flokkaðan til mót-
tökustöðvarinnar í Gufunesi. Und-
anfarna mánuði hefur pappír til
endurvinnslu stórhækkað í verði á
erlendum mörkuðum með þeim af-
leiðingum að nú svarar kostnaði að
bagga hann og flytja utan til endur-
vinnslu.
„Fyrir um ári síðan var því spáð
að verð á pappír héldist lágt til
ársloka en það hefur hækkað veru-
lega síðan, án þess að haldbærar
skýringar séu fyrir hendi. Menn
nefna spákaupmennsku, nýja mark-
aði í Austurlöndum fjær sem gleypi
mikið magn pappírs og að Evrópu-
löndin fá ekki lengur pappa til end-
urvinnslu frá Bandaríkjunum, því
að Bandaríkjamenn annast nú sjálf-
ir þá vinnu, en allt eru þetta ósann-
aðar kenningar nema e.t.v. hið síð-
astnefnda og það ætti eingöngu að
hafa áhrif .á markaðinn í Evrópu,"
segir Ásmundur. Áætlað er að
árlega falli til um 16 þúsund tonn
af bylgjupappa hérlendis, aðallega
á höfuðborgarsvæðinu þar sem flest
fyrirtæki sem stunda heild- og smá-
sölu er að finna, og um 8 þúsund
tonn af pappír af öðrum toga, þ.á
m. dagblaðapappír. í frétt Morgun-
blaðsins fyrr í vetur var greint frá
því að náist markmið það sem Sorpa
hefur sett sér í flokkun úrgangs-
pappírs frá fyrirtækjum, er talið að
um 60-80 milljónir króna sparist
hjá atvinnulífinu á ári.
Ör þróun
í nokkrum nágrannalöndum ís-
lands fer söfnun dagblaðapappírs
þannig fram að einstaklingar koma
blaðabunkum sínum fýrir við útidyr
húsa sinna og eru bunkarnir síðan
sóttir. í t.d. Hollandi er spilliefnum
safnað með sama hætti. „Það er
spurning um umhverfisstefnu hvers
lands hvað menn ganga langt, og
ekki má gleyma kostnaðinum.
Hugsanlegt er að þróunin hérlendis
verði að einhveiju leyti sambærileg
á næstu árum.“
Aðspurður um áherslur á þessu
sviði utan höfuðborgarsvæðisins,
kveðst Ásmundur vita að sveitarfé-
lög á Suðurlandi og Reykjanesi
hafí verulegan áhuga á endur-
vinnslu pappírs af þessum toga.
„Mér finnst að menn eigi að skoða
þessi mál gaumgæfílega, enda
margvíslegt hagræði og sparnaður
við endurvinnslu sem vegur á móti
kostnaði við hana. Sorpa leggur
höfuðáherslu á að þjóna eigendum
sínum á höfuðborgarsvæðinu en
væri eflaust tilbúin til að ræða við
þessa aðila á landsbyggðinni um
samstarf,“ segir hann.
Endurvinnsla á Morgunblaðinu
Morgunblaðið mun hvetja lesend-
ur sína til að taka þátt í tilrauna-
verkefninu með því að birta auglýs-
ingu á innsíðum blaðsins þar sem
segir að Morgunblaðið henti vel til
endurvinnslu. Þess má geta að öll-
um pappír sem gengur af við prent-
un Morgunblaðsins er safnað saman
og hann nýttur í endurvinnslu.
Einnig eru starfsmenn blaðsins
hvattir til að setja eingöngu pappír
í bréfakörfur og verður hann, ásamt
öðrum pappír sem af gengur, press-
aður í bagga og þeir fluttir til Akur-
eyrar. Þar eru þeir notaðir við að
framleiða kubba í vörubretti. Auk
þess er öllum vökva sem fellur til
við framleiðslu Morgunblaðsins,
rafhlöðum og spilliefnum, safnað
saman og komið til móttökustöðvar
Sorpu og annarra sem endurvinna
og gera þessi efni skaðlaus.
Móttökustöðvar á höfuðborgarsvæðinu
ALLS verður komið fyrir 55
gámum til móttöku pappírs á
höfuðborgarsvæðinu. Hreins-
unardeild Reykjavíkurborgar
mun annast daglegt eftirlit með
gámunum í höfuðborginni en
fulltrúar Sorpu annars staðar.
Einn verktaki þjónustar allt,
svæðið. Þegar gámur er orðinn
fullur er hann losaður í móttöku-
o g flokkunarstöð Sorpu í Gufu-
nesi, sem baggar pappírinn. Sam-
þjöppunin skiptir sköpum um
hagkvæmni flutnings pappírsins
til endurvinnslu. Baggarnir eru
um hálft tonn að þyngd og fara
með gámum sjóleiðina til Sví-
þjóðar, þar sem fyrirtækið II
Returpapper í Gautaborg tekur
á móti þeim og nýtir til vinnslu
á dagblaðapappír, eldhúsrúllum,
salernispappír o.m.fl. II Retur-
papper er í eigu aðila innan
sænska pappírsiðnaðarins.