Morgunblaðið - 29.06.1995, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Meindýraeyðir á Húsavík hefur fengið fjölda
fyrirspurna vegna rottugangs á Akureyri undanfarið
Afleiðing* af umhverfis-
átaki á s orp haugunum
YFIR 20 manns á Akureyri hafa á
síðustu dögum haft samband við
meindýraeyðinn á Húsavík, Áma
Loga Sigurbjörnsson vegna rottu-
gangs í bænum en hann segir að
mikið sé um rottur víða um Akur-
eyri um þessar mundir.
„Ég hef sagt að þessi mikli rottu-
gangur nú sé afleiðing af því átaki
sem gert hefur verið í umhverfís-
málum á sorphaugunum í Glerár-
dal. Þar hafa rottur átt sér sama-
stað í tugi ára og lítið gert til að
farga þeim. I kjölfar þessa átaks á
haugunum fer að harðna á dalnum
hjá rottunum og þær fara að sækja
ofan i bæinn eftir æti og það er
að gerast einmitt nú,“ sagði Árni
Logi.
Að mati Áma Loga hefur ríkt
nokkurt andvaraleysi gagnvart því
að reyna að útrýma rottum á Akur-
eyri. „Það hefur á síðustu ámm
margt gott verið gert í umhverfís-
málum á Akureyri, margt til fyrir-
myndar, en þessi þáttur hefur
gleymst," sagði hann. „Það er að
mínu mati skelfilegt að slíkt gerist
í bæ eins og Akureyri.
Stórsnjöll kvikindi
Árni Logi hefur langa reynslu í
því að eýða meindýrum og hann
segir að rottur séu „stórsnjöll kvik-
indi, tortryggnar og matvandar,“
eins og hann lýsir þeim og því þurfi
að hafa nokkuð við eigi að farga
þeim. „Maður þarf í rauninni að
vinna traust þeirra til að byija
með, þær eru matvandar og lita
ekki við hverju sem er. Ég hef oft
lagt fyrir þessa hópa 6-10 rétta
matseðla til að sjá hvað þær éta
og þegar þær era farnar að éta
óttalaust það sem þeim er boðið er
komið að svefnskammtinum."
Árni Logi segir að fjölmargir
Akureyringar hafi haft samband
við sig síðustu daga og óskað eftir
aðstoð við útrýmingu rottna. „Það
er ekki eðlilegt hversu margar
hringingar ég fæ, ég get ekki merkt
annað af þeim en að það hljóti að
vera mikið um þessi kvikindi í bæn-
um um þessar mundir.“
Eitrað í brunnum
Alfreð Schiöth heilbrigðisfulltrúi
á Akureyri segir að það sé stað-
reynd að rottur haldi til í holræsa-
kerfi bæjarins, en kerfisbundið sé
farið í branna og eitrað fyrir þeim
og taldi hann að ekki væri meira
um rottur nú en áður.
Hann segir að samkvæmt starfs-
leyfi fyrir sorphaugana í Glerárdal
sé gert ráð fyrir bættri umgengni
þar og verklag við urðun yrði stór-
um betra. Hvort það hefði áhrif á
að rottur flýðu staðinn gæti hann
ekki fullyrt.
Bætt þjónusta við
vélar á flugvellinum
SKEUUNGUR hefur aukið þjón-
ustu við flugvélar á Akureyrar-
flugvelli með því að staðsetja tank-
bifreið á flugvellinum til afgreiðslu
á flugsteinolíu.
Vaxandi flugumferð um Akur-
eyrarflugvöll hefur leitt til þess
að ekki er hægt að koma öllum
vélum að áfyllingarafgreiðslu, auk
þess sem tankbifreið flýtir af-
greiðslu stærri véla. Mikil hagræð-
ing er því af þessari bifreið fyrir
starfsemina á Akureyrarflugvelli
og veruleg bót í þjónustu fyrir
millilandaflug um Ákureyrarflug-
völl.
Listasumar
Fyrsta djasskvöld
sumarsins
DJASSKLÚBBUR Listasumars og
Café Karólínu verður á hveiju
fimmtudagskvöldi í Deiglunni í
sumar, en auk djass verður boðið
upp á dagskrár með söngleikja-
tónlist, gömlum dægurlögum,
Kurt Weill og fleira.
Fyrsta djasskvöld sumarsins
verður í Deiglunni í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 29. júní kl. 22.00 en
þá leikur kvartett skipaður þeim
Sigurði Flosasyni á saxófón,
Gunnari Gunnarssyni á píanó, Jóni
Rafnssyni á kontrabassa og Pétri
Grétarssyni á trommur.
Allir eru þeir vel þekktir hljóð-
færaleikarar og hafa auk djasstón-
listar leikið popp, kirkjutónlist og
Deiglunm
sígilda tónlist með Sinfóníuhljóm-
sveit Islands og Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands.
Þeir leika þekkta sem óþekkta
standarda ásamt frumsömdu efni
og má búast við góðri stemmningu
í Deiglunni. Aðgangur er ókeypis.
Söngvaka
Tónlistarmennimir Rósa Kristín
Baldursdóttir og Þórarinn Hjartar-
son flytja íslensk sönglög í kirkju
Minjasafnsins í kvöld kl. 21.00.
Miðað er við að erlendir ferðamenn
geti notið dagskrárinnar sem verð-
ur flutt tvisvar í viku í sumar, á
þriðjudags- og miðvikudagskvöld-
um.
I(JARNABYGGÐ|AKUREYRI
Fyrirtæki-
félagasamtök
Til sölu
orlofshús í náttúru
perlunni Kjarnaskógi við Akureyri
Húsin eru 55 fm að stærð og eru í skipulögðu orlofshúsahverfi.
Frábært útsýni, trimmbrautir, göngustígar og fjallgönguleiðir um
óspillta náttúru. Örfá hús eftir í fyrri áfanga.
Upplýsingar
veitir
OPta fRAKl.10-12OG13 -17
26441
æuthgna salan
EICNAKIOR
tKH’AGÖTU ,6-FAX. 11644
- kjarni málsins!
"v.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Dalvík
Kauptilboð
í sápugerð
Dalvík-Á síðasta fundi bæjar-
stjórnar Dalvíkur fyrir sumarleyfi
var samþykkt kauptilboð sem bær-
inn hafði gert Nóa Siríus hf. um
kaup á sápugerðinni Hreini. Kaup-
tilboðið hljóðar upp á 14 millj. kr.
Nói Siríus hf. hefur starfrækt
sápugerðina Hrein um langt árabil
en fyrirtækið framleiðir ýmiss kon-
ar vörur til hreingerninga. Til að
byija með er áætlað að 4-6 ný störf
skapist í bænum með fyrirtækinu.
Tilraunir hafa verið gerðar af
hálfu bæjarstjórnar Dalvíkur á liðn-
um vetri til nýsköpunar í atvinnu-
lífi. Ýmsar hugmyndir hafa verið á
kreiki og m.a. í því ljósi festi Dalvík-
urbær í vetur kaup á Hafnarbraut
7, fiskverkunarhúsi Haraldar hf.
sem var í eigu Sparisjóðs Svardæla.
Ekkert af þeim hugmyndum sem
uppi voru hafa þó gengið eftir og
því hefur nú verið ákveðið að Dal-
víkurbær selji ýmsum smáfyrir-
tækjum á Dalvík aðstöðu fyrir
starfsemi sína í húsinu. Þá er gert
ráð fyrir að sápugerðin flytjist inn
í húsið.
Á þessum fundi bæjarstjórnar
urðu mannaskipti í forsæti bæjar-
stjórnar. Kristján Ólafsson, oddviti
framsóknarmanna, tók við starfi
forseta af Svanfríði Jónasdóttur,
oddvita I-lista, en þessir tveir listar
mynda meirihluta í bæjarstjórn.
Jafnréttis- og fræðslufulltrúi Akureyrar
Fimm umsækjendur
Varanlegt
þak sett á
kirkjuna
VIÐGERÐ stendur yfir á þaki
Akureyrarkirkju, en þótt bygg-
ingin sé ríflega 50 ára gömul
hefur varanlegt efni aldrei ver-
ið sett á þak hennar. Ur því er
bætt nú þegar kirkjunni var
lokað vegna umfangsmikilla
endurbóta á orgeli kirkjunnar
sem standa nú yfir. Kirkjan
verður lokuð fram í miðjan
næsta mánuð. Ferðamenn sem
hafa í stórum hópum skoðað
kirkjuna að sumarlagi verða að
láta sér myndatökur utandyra
nægja í sumar.
FIMM umsóknir bárust um stöðu
jafnréttis- og fræðslufulltrúa Akur-
eyrarbæjar, en umsóknarfrestur um
stöðuna rann út nýlega.
Þeir sem sækja um stöðu jafnrétt-
is- og fræðslufulltrúa eru Halldór
Arinbjarnarson, félagsfræðingur,
Svalbarðsströnd, Ingibjörg Inga-
dóttir, ferðamálafulltrúi, Eiðum, Jón
Sigtryggsson, viðskiptafræðingur,
Akureyri, Ragnhildur Vigfúsdóttir,
sagn- og mannfræðingur, Reykjavík
og Þórey Eyþórsdóttir, sérkennari
og talmeinafræðingur, Akureyri.
Starfað að jafnréttismálum í 10 ár
Valgerður Bjarnadóttir hefur
gengt þessu starfi síðustu fjögur
ár en hún lætur af störfum síðsum-
ar þegar hún heldur til náms í
Bandaríkjunum. Áður var Valgerð-
ur verkefnisstjóri norræna verkefn-
isins Bijótum múrana eða frá 1985
þannig að hún hefur starfað að jafn-
réttismálum á Akureyri undanfarin
10 ár.
Að sögn Valgerðar mun undir-
búningshópur, skipaður fulltrúum
úr jafnréttisnefnd og fræðslunefnd
fjalla um málið en gert er ráð fyrir
að niðurstaða fáist innan tíðar.
Ljóst ef samkvæmt upplýsingum
Valgerðar að umsækjendur um
stöðuna uppfylla ekki allir þær kröf-
ur sem gerðar eru.