Morgunblaðið - 29.06.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1995 15
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
ÁLFASTEINN á Borgarfirði
eystra kynnir nýja strauma í
framleiðslu sinni.
KÍNVERSKUR fylgdarmaður
varaforsætisráðherra Kína rit-
ar nafn sitt með fjaðurpenna.
Fjölbreytt atvinnu-
líf á Drekanum ’95
Egilsstöðum - Drekinn ’95 er sýn-
ing á starfsemi fyrirtækja á Austur-
landi sem haldin er í íþróttahúsinu
á Egilsstöðum og lýkur nk. sunnu-
dag. Þetta er í fjórða sinn sem slík
sýning er haidin og eru nú um 90
aðilar sem sýna og kynna starfsemi
sína og þjónustu.
Undirbúningnr stóð yfir í um sex
mánuði og ráðinn var framkvæmda-
stjóri Hrefna Hjálmarsdóttir mark-
aðsfræðingur. Áberandi er hvað
mörg ný fyrirtæki kynna starfsemi
sína sem segir að Austfirðingar láta
ekki sitt eftir liggja í nýsköpun at-
vinnutækifæra. Fjölbreytnin er
mikil, þarna má sjá fiskverkun,
handverk, innréttingar, kjötafurða-
vinnslu, fatahönnun og förðun,
íþróttavörur, skógrækt, stofnanir
og verslanir sýna vöru sína. Sér-
staka athygli hefur vakið tískusýn-
ing en hún er undirbúin og skipu-
lögð af fagfólki sem hefur flutst til
Austurlands eftir nám í hönnunar-
og tískufræðum.
Heilsugæslan á Egilsstöðum
með kynningarbás
Halla Eiríksdóttir hjúkrunarforstjóri
sagði að eftir miklar vangaveltur
hefði sú ákvörðun verið tekin að
falast eftir að vera með í sýning-
unni. Markmiðið er að selja heilsu,
í þeim skilningi að fólk getur komið
og hitt lækninn sinn undir öðrum
kringumstæðum en vanalega og
spurt og fengið ráðleggingar úr
þekkingarbrunni starfsfólks heilsu-
gæslunnar. „Við höfum verið að
mæla blóðþrýsting og púls og ræð-
um við fólk um almenna líðan, þjálf-
un, hreyfingu, streitu, hvíld, matar-
æði og hjarta- og æðasjúkdóma.
Þetta er skemmtilegur vettvangur
til að varpa af sér sérfræðingshul-
unni og tala mannamál við fólk“,
segir Halla. „Það er alltaf læknir
og hjúkrunarfræðingur með viðveru
í básnum og við
segjum að þetta sé
lifandi hugbúnaður
sem fólk ' getur
nálgast á eigin for-
sendum. Við bend-
um ennfremur á að
það þarf ekki að
kaupa allt til að
vera heilbrigður,
heldur veltur heil-
brigði á því að taka
á eigin lífi og það
er ekki alltaf auð-
velt en hvert skref
skilar árangri og
kostar ekki pen-
inga.“
Drekinn ’95
eflir tengsl
Gunnar Vignisson
atvinnuráðgjafí
Austurlands segir
sýninguna skapa
vettvang sem eyk-
ur samkennd milli
fyrirtækja og við-
skiptavina. Sýning
sem þessi auðveld-
ar fyrirtækjum að
koma sér á fram-
færi í stöðugt
harðnandi sam-
keppni. Gunnar
segir sérstakt
hvemig fyrirtækin
setja upp sýning-
una. Það sé mikið lagt í básana og
þeir settir upp á listrænan og aðlað-
andi hátt frekar en að um beina
sölubása sé að ræða. „Tilfiriningin
er „komdu og skoðaðu í þessu
skemmtilega umhverfi“ og tel ég
það vera mildari og jákvæðari leið
að viðskiptavininum en hörð sölu-
mennska," segir Gunnar. Gunnar
segir að þrátt fyrir langt samdráttar-
tímabil í rekstri og efnahagslífí sé
greinilegt að framfaraferli hefur átt
sér stað hjá mörgum fyrirtækjum
og nefnir hann sérstaklega Austmat
á Reyðarfirði og Álfastein á Borgar-
firði eystra. „Fólk heldur að það sé
að skoða það sama og á Drekanum
’89 en raunin er önnur. Ennfremur
eru fjölmörg ný fyrirtæki þátttak-
endur á sýningunni og gefur það
tilefni til bjartsýni," segir Gunnar.
HEILSUGÆSLAN á Egilsstöðum er með
kynningarbás á Drekanum þar sem fólki gefst
kostur á að láta mæla blóðþrýsting og púls
auk þess að fá ráðleggingar.
Innlausnarverð vaxtamiða
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Hinn 10. júlí 1995 er 21. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.B 1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 21 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 5.000 kr. skírteini = kr. 558,00
" » 10.000 kr. skírteini = kr. 1.116,00
•» » 100.000 kr. skírteini = kr. 11,160,00
Hinn 10. júlí 1995 er 19. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í l.fl.B 1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 19 verður frá og með 10. júlí nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 4.988,30
Ofangreindar fjárhæðir eru vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. jánúar 1995 til 10. júlí 1995 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá £runnvísitölu skírteinanna.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, og hefst hinn 10. júlí 1995.
Reykjavík, 29. júní 1995.
SEÐLABANKIÍSLANDS
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) ÁKR. 10.000,00
1977-2.fl. 10.09.95 -10.09.96 kr. 1 .132.545,60
1978-2.fl. 10.09.95 -10.09.96 kr. 723,521,80
1979-2.fl. 15.09.95 -15.09.96 kr. 471.684,80
INNLAUSNARVERÐ*)
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL ÁKR. 10.000,00
1985-1.fl.A 10.07.95 - 10.01.96 kr. 68.812,30
1985-1.fl.B 10.07.95 - 10.01.96 kr. 33.817,00**
1986-1.fl.A 3 ár 10.07.95 - 10.01.96 kr. 47.431,40
1986-1.fl.A 4 ár 10.07.95 - 10.01.96 kr. 54,138,00
1986-l.fl.A6 ár 10.07.95 - 10.01.96 kr. 56.555,10
1986-1.fl.B 10.07.95 - 10.01.96 kr. 24.941,30**
1986-2.fl.A 4 ár 01.07.95 -01.01.96 kr. 44.582,70
1986-2.fl.A 6 ár 01.07.95 -01.01.96 kr. 46.484,00
1987-1.fl.A 2 ár 10.07.95 - 10.01.96 kr. 37.127,10
1987-1.fl.A 4 ár 10.07.95 - 10.01.96 kr. 37.127,10
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
**) Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 29. júní 1995
SEÐLABANKIÍSLANDS