Morgunblaðið - 29.06.1995, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
^^rrossvogsst3ðin hf
plðntusalan t VOssvogi
Opið 8-19 & um helgar 9-17- Sími 564-1777
Allir dagar eru plöntudagar
í Fossvogsstöð.
Einstakt tilbod
þessa fielgi:
Stafafura í bökkum
m/ stórum rótarfinaus
35 stk. á 980 kr.
(áður 1.560).
Tré og runnar
í 2 Itr. pottum 570 kr
Kasmírreynir Álmur
Ráðgjöf, þjó
Runnamura Úlfareynir
wmrtm'
/
Fossvogsstöðin,
Fossvogsbletti t, f. neðan Borgarspftala.
M<tfhft,aftóðri
ÚRVERINU
Spænskar útgerðir binda
vonir við langhalaveiðar
ALBERTO Gonzalez Garces, for-
stöðumaður haffræðistofnunarinn-
ar í Vigo á Spáni, hefur eitt verk-
efni umfram öll önnur og það er
að fínna ný fiskimið fyrir spánska
flotann, sérstaklega nú þegar Spán-
verjar geta ekki veitt að vild úr
grálúðustofninum við Nýfundna-
land. Eru nú sex spænsk skip að
kanna veiðar á þremur hafsvæðum,
á skarkola á 1.500 metra dýpi í
Barentshafi, sverðfíski í Indlands-
hafí og á langhala á Hatton-banka
vestur af Rockall. Eru mestar vonir
bundnar við síðastnefnda svæðið.
Slæmt ár
Gonzalez segir, að spænskar hús-
mæður þekki vel til langhalans, sem
almennt sé kallaður „rottan“ vegna
þess hve ljótur hann þyki. Hann sé
þó markaðssettur undir öðru nafni
Hafa verið að
kanna mið vestur
af Rockall
og þekkilegra enda sé hér um að
ræða ágætan matfísk.
Gonzalez reynir að vera bjart-
sýnn á framtíðina en sjómenn í
Galiciu sjá litla ástæðu til þess.
Þetta ár hefur verið þeim erfitt á
allar lundir. Vegna deilunnar við
Kanada er hætta á, að um 7.000
manns, sem eiga allt sitt undir út-
hafsveiðiflotanum, 90 togurum,
missi atvinnuna og vegna deilunnar
við Marokkó hafa meira en 200
smærri skip verið bundin við
bryggju síðustu þijá mánuði.
Sjómennimir hafa ekki fengið
nema sem svarar til 37.000 ísl. kr.
í bætur í þennan tíma og þeir og
yfírvöld í Galiciu telja, að þeirra
hagsmunir skipti engu máli í aðal-
stöðvum Evrópusambandsins í
Brussel. Hefði verið um franska eða
þýska sjómenn að ræða, hefði ann-
að verið upp á teningnum.
Dagar úthafsveiða
brátt taldir
Estai, togarinn, sem Kanada-
menn tóku við Nýfundnaland, og
36 önnur skip frá Galiciu eru enn
að veiðum þar en framtíðin er ekki
björt enda búið að skera grálúðu-
kvótann niður um 75%. Galiciu-
menn gera sér grein fyrir því innst
inni, að dagar úthafsveiðanna eru
taldir og skarkoli í Barentshafi og
langhali vestur af Rockall fá engu
það breytt.
SR-mjöl kaupir brennslu-
hvata frá DEB-þjónustunni
Sparar eldsneyti
og minnkar
mengun
SR-MJÖL hefur keypt þrettán svo-
kallaða CEP-brennsluhvata (Com-
bustion enhancement process) af
DEB-þjónustunni á Akranesi.
Brennsluhvatamir verða settir á
bræðsluofna og mjölþurrkara til að
minnka mengun og eldsneytisnotk-
un. David Butt, eigandi DEB-þjón-
ustunnar, segir að pantanir frá fleiri
fyrirtækjum séu á döfínni.
SR-mjöl tók eitt slíkt tæki til
reynslunotkunar í fyrra og í desem-
ber síðastliðnum var gerður kaup-
samningur um kaup á brennsluhvöt-
um á alla bræðsluofna og þurrkara
fyrirtækisins á árinu 1995 ef það
reyndist vel. í maí síðastliðnum voru
síðan pöntuð þrettán tæki, eða á
helming bræðsluofna og þurrkara
SR-mjöls.
Viðurkenndur búnaður
Umhverfísverndarmiðlun Banda-
ríkjanna, EPA, hefur viðurkennt
eldsneytissparnað og mengunar-
vamir brennsluhvatanna og Banda-
ríska orkumálastofnunin hefur, sam-
kvæmt rannsóknum, staðfest vissar
efnabreytingar á eldsneyti sem fer
í gegnum útbúnaðinn. David segir
að í einfölduðu máli geri þessi efna-
breyting það að verkum að eldsneyt-
ið nýtist betur í brennsluhólfum, eða
sprengihólfum, og það skili sér í
meiri orku og minni mengun. Hann
segir að þegar tækin séu til dæmis
notuð á bræðsluofna og þurrkara í
loðnuverksmiðjum minnki sótmeng-
un í kötlunum.
Selt í skip og bíla
Að sögn Davids hefur hann selt
brennsluhvata í mörg íslensk skip
og að nú séu um 45 skip með slíkan
útbúnað. Langflestir séu mjög
ánægðir með tækin og nokkrir hafa
þegar lagt inn endurpöntun, en hvert
tæki endist í tíu þúsund tíma. David
segir að skipin nýti sér vel hina
auknu orku og séu því kannske ekki
að eyða mikið minna eldsneyti.
Brennsluhvatarnir hafa einnig
verið settir í bíla og segir David að
bíladeild Eimskips hafí nú sett
brennsluhvata á um helming dísel-
bíla- og lyftaraflota þeirra. Þá hefur
SR-mjöl keypt tæki á alla 12 dísel-
lyftara sína. David segir að einnig
hafi verið flutt út nokkur tæki til
Kanada, Bandaríkjanna og Ástralíu
til reynslu.
DEB-þjónustan framleiðir alla
brennsluhvatana sem seldir verða
SR-mjöIi og sömuleiðis brennslu-
hvata sem settir eru í skip með 500
hestafla vélar eða meira. Brennslu-
hvatar í minni vélar eru hins vegar
fluttir inn, annaðhvort frá Banda-
ríkjunum eða Bretlandi.
Sannfærðir um jákvæð áhrif
Þórður Jónsson hjá SR-mjöli segir
að enn sé ekkert hægl að svara til
um hvað brennsluhvatarnir komi til
með að spara fyrirtækinu. „Við erum
samt sannfærðir um að þetta hafi
jákvæð áhrif þó að það sé nú
kannske fyrst og fremst tilfinninga-
legt atriði. Við erum náttúrulega
með skýrslur frá opinberum aðilum
sem segja að áhrif brennsluhvatanna
séu jákvæð og þær mælingar sem
við höfum gert virðast benda til þess
að þeir séu til bóta,“ sagði Þórður.
MATVINNSL UVEL fjölhæf og sterk.
KENWOOD
-þjónn þinna þarfa
HRÆRIVÉL kraftmikil og hljóölát.
Skeifunni, Hagkaup Kringlunni, Heimilistæki Sætúni 8, Raftækjaversiunin Glóey Ármúla, Húsasmiöjan Skútuvogi, Húsasmiöjan Helluhrauni, Rafmætti Miöbæ, Stapafell
rgarnesi, Rafþjónusta Sigurdórs Akranesi, VESTFIRÐIR: Straumur Isafiröi, NORÐURLAND: Kaupfólag V.-Húnvetninga Hvammstanga, Kaupfélag Húnvetninga Blönduósi,
■" ! *’ : 1 l',f“ *’ “*“* *'*■*-' A1 ii Husavík, Kaupfélag Þingeyinga,
____________________ ______ ______ ______________ _________,----------------------- ------------- — ________ ____——Ifossi, Brimnes Vestmannaeyjum.
Verslunin Hegri Sauðárkróki, Kaupfélag Éyfiröinga Akureyri, Radíónaust Geislagötu Akureyri, Radióvinnustofan Mýrarvegi Ákureyri, Rafland Sunnuhlíö Akureyri, Metró Akureyri, Öryggi
AUSTURLAND: Kaupfélag Héraösbua Egilsstööum, Húsgagnaverslun J.A.G. Höfn, SUÐURLAND: Kaupfélag Ranpæinga Hvolsvelli, Mosfell Hellu, Kaupfélag Arnesinga Selfc