Morgunblaðið - 29.06.1995, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. JÚNt 1995 2C
LISTIR
Leyndardómar
Snæfellsjökuls
SNÆFELLSJÖKULL hefur frá
ómunatíð veitt listamönnum inn-
blástur. Hefur hann einnig vakið
ýmsar hugmyndir með þeim sem
kanna æðri svið vitundarinnar og
hið yfirskilvitlega. Þannig telja
sumir að þessi jökulkrýnda eldkeila
laði til sín verur utan úr geimnum.
Margar þjóðsögur hafa jafnframt
spunnist um Snæfellsjökul, auk
þess sem kunn bókmenntaverk
tengjast honum. Nægir þar að
nefna Kristnihald undir jökli eftir
Halldór Laxness og Ferð að miðju
veraldar, þar sem höfundurinn,
Jules Verne, býður lesandanum í
ævintýralegt ferðalag niður um gíg
jökulsins.
Nú er röðin komin að nemum í
arkitektúr að drekka í sig leyndar-
dóma Snæfellsjökuls og andrúms-
loftið undir jökli. Tilefnið er sum-
arnámskeið íslenska arkitekta-
skólans — ISARK — og viðfangs-
efni þess: Hönnun byggingar sem
ætlað er að vera einskonar „hlið“
að fyrirhuguðum þjóðgarði yst á
Snæfellsnesi, jafnframt því að
þjóna sem móttökustaður ferða-
fólks.
Átján norrænir nemar taka þátt
í námskeiðinu og eru þeir allir vel
á veg komnir í námi. Hófst nám-
skeiðið á tveggja daga vettvangs-
leiðangri fyrir íjórum vikum en því
lýkur með verðlaunaafhendingu og
opnun sýningar á úrlausnum í
Ásmundarsal við Freyjugötu á
morgun.
Við úrlausn verkefnisins beina
nemendurnir sjónum að sérkenn-
um staðarins í víðasta samhengi,
frá jarðsögu, veðurfari og lífríki
að yfirskilvitlegum fyrirbærum er
tengjast Snæfellsjökli. Þá taka
þeir túlkun þessara sérkenna í
bókmenntum á ýmsum tímum með
í reikninginn. í gegnum samteng-
ingu þekkingarfræðilegra þátta,
texta, vésagna og frumkrafta nátt-
úrunnar er stefnt að því að birta
áður óþekktar víddir í arkitektúr,
„innri sýn“.
Grunnur að fullgildum
arkitektaskóla
íslenski arkitektaskólinn var
stofnaður með formlegum hætti á
sumardaginn fyrsta 1994. Arki-
tektafélag íslands átti frumkvæði
að stofnun skólans en á vettvangi
Sumamámskeiði íslenska arkitektaskólans
lýkur á morgun en þá verður jafnframt opn-
uð sýning á úrlausnum nemenda í Asmund-
arsal. Orri Páll Ormarsson vatt sér vestur
—-------------------------------3,-------
á Freyjugötu og komst að því að ISARK
ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægst-
ur en viðfangsefni námskeiðsins er bygging
sem vera á hlið að þjóðgarði á Snæfellsnesi.
býsna strembið að gera verkefninu
skil á jafn skömmum tíma enda
sé Snæfellsjökull ein af gersemum
íslenskrar náttúru. Stöllumar hafa
jafnan meiri tíma til að athafna
sig í náminu ytra og gera því ráð
fyrir að snúa þangað á ný reynsl-
unni ríkari.
HALLDÓR Gíslason leiðbeinandi gefur Roger SIGRÍÐUR Eggertsdóttir og Guðrún Sigurðar-
Spetz og Karolinu Keyzer
þess hafði lengi verið rætt um
hvort og hvernig unnt væri að
stofna til kennslu í byggingarlist
á háskólastigi hér á landi.
Fyrsta námskeiðið var haldið á
liðnu sumri og féll það í fijóa jörð.
Þá var viðfangsefnið menningar-
setur eða minnismerki á Þingvöll-
um, annarri perlu í hinu hijóstruga
landslagi íslands.
Jes Einar Þorsteinsson, arkitekt
og formaður skólaráðs ÍSARK,
segir að með þessum námskeiðum
sé verið að leggja grunninn að
áfangaskiptum arkitektaskóla hér
á landi í tengslum við erlendar
menntastofnanir. Sá langþráði
draumur sé nú í sjónmáli en
kennsla í byggingarlist mun í
framtíðinni fara fram á vettvangi
nýstofnaðs Listaháskóla.
Leiðbeinendur á námskeiðinu í
ár eru Halldór Gíslason arkitekt,
Guðjón Bjarnason arkitekt og
myndlistarmaður og dr. Maggi
holl ráð. dóttir
Jónsson arkitekt, sem jafnframt
er forstöðumaður skólans. Þá hafa
nokkrir erlendir gestakennarar
haldið fyrirlestra fyrir lærða sem
leika í tengslum við námskeiðið.
Mun Daniel Liebeskind, arkitekt í
Berlín og prófessor við UCLA-
háskólann í Bandaríkjunum, flytja
síðasta fyrirlesturinn í Odda í kvöld
kl. 20. Nefnist hann „Handan við
múrinn".
Fengur í fyrirlesurum
Leiðbeinendurnir eru á einu
máli um að námskeiðið hafi tekist
mjög vel. Nemendurnir hafi sýnt
mikinn áhuga og dugnað og dr.
Maggi bætir við að mikill fengur
hafi verið í hinum færu og þekktu
fyrirlesurum og kennurum sem
skólinn fékk til liðs við sig.
Ségir hann ennfremur að það
sé alltaf forvitnilegt að sjá hvernig
maðurinn byggi í ósnortinni nátt-
úru. Guðjón tekur í sama streng
bera saman bækur sínar.
og bætir við að hugmyndir nem-
endanna séu nokkuð ólíkar eftir
því hvort íslendingar eða útlend-
ingar eigi í hlut. „Erlendu nemarn-
ir leysa verkefnið með öðrum hætti
enda eru kynni þeirra af landinu
mjög lítil. Þeir líta landið hlut-
bundnum augum og sjá það því í
öðru ljósi; það eru allt aðrir hlutir
sem vekja athygli þeirra.“
Eitt af markmiðum ÍSARK er
að gefa íslenskum arkitektanem-
um, er stunda nám í ýmsum lönd-
um, kost á að kynnast og vinna
saman að úrlausn verkefna á
heimavettvangi. Guðrún Sigurðar-
dóttir, sem leggur stund á nám í
París, og Sigriður Eggertsdóttir,
sem nemur arkitektúr í Þránd-
heimi, eru meðal þeirra Islendinga
sem gripu tækifærið nú. „Þetta
hefur verið mjög skemmtilegt en
um leið erfitt," ljúka þær upp ein-
um munni.
Guðrún segir að það hafi verið
Nauðsynlegt að fara út
Að mati Guðrúnar og Sigríðar
hentar formið, sem ÍSARK hefur
fylgt til þessa, vel og ljúka þær
lofsorði á leiðbeinendur og fyrirles-
ara. Þær vilja að skólinn haldi
áfram á sömu braut og eru ekki
fylgjandi því að fullgildur arki-
tektaskóli verði settur á laggimar
hér á landi. „Það er nauðsynlegt
að fara út til náms.“
Svíamir Karolina Keyzer og
Roger Spetz stunda nám í Stokk-
hólmi en námskeiðið er jafnframt
opið erlendum þátttakendum sem
vilja kynnast menningu og stað-
háttum á framandi slóðum og njóta
leiðsagnar kennara frá ólíkum
þjóðlöndum. Þau segjast hafa grip-
ið tækifærið fegins hendi enda sé
náttúra íslands frábrugðin því sem
þau eigi að venjast.
„Það er mikill munur á því að
vinna í borg og ósnortinni nátt-
úru,“ segir Roger og Karolina er
sama sinnis. „Maður þarf ekki ein-
ungis að skynja náttúruna heldur
jafnframt að vita upp á hár hvað
maður vill gera. Mannvirkið verður
ekki aftur tekið.“
Sýningin á úrlausnum nemenda
ÍSARK mun standa í tvær vikur
en síðan er fyrirhugað að hún fari
til Norðurlandanna, Evrópu og
jafnvel Bandaríkjanna.
Morgunblaðið/Sverrir
HALLDOR Gíslason, dr. Maggi Jónsson og Guðjón Bjarnason
leiðbeinendur á sumarnámskeið ISARK ásamt Jes Einari Þor-
steinssyni formanni skólaráðs.
Francoise Langellé semballeikari leikur í Skálholti
Oruggur stíll, fínleiki
og raunveruleg ástríða
Selfossi. Morgunblaðið.
„ÞAÐ er skemmtileg upplifun að
koma á þennan stað sem er gjörólík-
ur þeim stöðum sem ég hef leikið
á áður. Það er mjög huggulegt og
skemmtilegt að halda tónleika hér
og gaman að vinna hér i sveitinni
í eina viku fyrir tónleikana. Það er
stórkostlegt að finna vindinn,
hreina loftið og heyra í fuglunum
sem er nýtt umhverfi fyrir mig.“
sagði Francoise Langellé sembal-
leikari sem mun flytja verk eftir
Couperin-fjölskylduna á 20 ára af-
mælishátíð sumartónleikanna' í
Skálholtskirkju á laugardag, 1. júlí.
Eftirsótt á tónleika-
hátíðir í Evrópu
Francoise Langellé er þekkt í
Frakklandi og víðar fyrir tónlistar-
flutning sinn og kennslu. Hún
stundaði nám í Conservatoire Nat-
ional superieur de Musique í París
þar sem hún vann til verðlauna
1969 og 1971. Hún vann til fyrstu
verðlauna í Brugge 1977 á alþjóð-
legri samkeppni í semballeik og er
nú reglulegur gestur þeirrar sam-
keppni og dómari. Hún starfar nú
sem semballeikari í Conservatoire
national superieur í Lyon þar sem
hún hefur kennt frá 1983. Þá hefur
hún einnig verið gestakennari við
Kaliforníuháskóla í Santa Barbara
frá 1991. Hún hefur haldið fjölda
tónleika og er eftirsótt á tónleika-
hátíðir, námskeið og ráðstefnur
víðsvegar um Evrópu. Henni er
hvarvetna tekið af miklum hlýleika
og gleði áhorfenda.
Gagnrýnendur segja leik hennar
einkennast af öruggum stfl, fullum
sjálfstrausti, fínleika og raunveru-
legri ástríðu. Hún veitir í leik sínum
sérstaka athygli hraða, takti og
tápmikilli uppbyggingu dansa sem
eru einkennandi fyrir barokktónlist.
í túlkun sinni krefst hún mikils af
sjálfri sér og leggur ríka áherslu á
nákvæma tækni. Þessi sameining á
aga og lífi er talin helsta einkenni
á leik hennar.
Sembaltónlistin samsvarar
skipulagi lífsins
Um uppáhaldstónlist sína segir
Francoise Langellé að um þessar
mundir sé hún upptekin af tónlist
frá lokum 16. aldar og byijun þeirr-
ar sautjándu, franskri, ítalskri og
enskri sem hún sé mest að vinna
með núna. Hún segist hafa einbeitt
sér að semballeik síðustu 25 ár
enda hafi tónlistin fyrir það hljóð-
færi vakið áhuga hennar. Um
ástæður þess segir hún: „Mér finnst
hún samsvara skipulagi lífsins.
Þetta er mjög formföst tónlist og
skipulögð. Svo gefur tónlist frá
þessum tíma aukna möguleika á
samspili. Það er mjög skemmtilegt
og krefjandi að leika á sembal.“
Þó sembaltónlistin sé sérgrein
hennar og aðalviðfangsefni segist
hún einnig hrifin af jassi og hljóm-
sveitarverkum frá 19. öld og róman-
tísk tónlist höfði mjög vel til sín.
Hún hafi unun af Wagner, sé mjög
hrifin af Schubert og gömlum
gregorsöng úr klaustrunum. Og af
jassistum heldur hún mest upp á
Jerry Mulligan.
Ég er djúpt snortin
„Eg er mjög ánægð með að vera
hér. Mér finnst vera miklar and-
stæður hérna og þetta er örugglega
land sem hægt er að láta sér þykja
mjög vænt um. Ég er djúpt snortin
af því sem fyrir augu hefur borið,“
sagði Francoise Langellé sembal-
leikari.